Beint í efni
Alviti
158. þing · Þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar

Hverju lofaði ríkisstjórnin?

Í upphafi hvers þings birtir ríkisstjórnin lista yfir frumvörpin og tillögurnar sem hún ætlar að leggja fram, og í hvaða mánuði. Hér er fylgst með hverju einasta atriði. Staðan kemur beint úr gögnum Alþingis og uppfærist daglega.

Af málum sem eru komin fram voru 22 lögð fram í áætluðum mánuði eða fyrr og 11 seinna en áætlað var.

Forsætisráðherra

2 af 4 komin fram

  • Frumvarp

    Breyting á stjórnsýslulögum, nr. 37/1993 (ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins)

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september· Endurflutt
    100. mál· Í nefnd· lagt fram 17. sep. 2026
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpi þessu er lagt til að bætt verði við stjórnsýslulög, nr. 37/1993, ákvæði þess efnis að þær sjálfstæðu stjórnsýslunefndir sem fást við úrlausn stjórnsýslukæra geti leitað ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins, eins og lög nr. 21/1994 mæla fyrir um að dómstólar geti gert. Lagt er til að ákvæðið verði hluti af VII. kafla stjórnsýslulaga, sem inniheldur almennar reglur um stjórnsýslukærur og málsmeðferð í kærumálum.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á stjórnsýslulögum, nr. 37/1993 (ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð, nr. 163/2007 (brottfall sjálfstæðrar rannsóknareiningar)

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september
    133. mál· Í nefnd· lagt fram 22. sep. 2026
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að afnema skyldu Hagstofunnar til að starfrækja sjálfstæða rannsóknareiningu sem m.a. semur þjóðhagsspár. Áætlanir stjórnvalda í opinberum fjármálum byggðu áður á þjóðhagsspá Hagstofu Íslands. Frá og með árinu 2026 byggja áætlanir í opinberum fjármálum hins vegar á þjóðhagsspá Seðlabanka Íslands. Með því að losa Hagstofuna undan skyldu til að starfrækja sjálfstæða rannsóknareiningu er komið í veg fyrir tvíverknað hjá hinu opinbera.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð, nr. 163/2007 (brottfall sjálfstæðrar rannsóknareiningar).

Atvinnuvegaráðherra

3 af 19 komin fram

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006 (stærðarhlutföll, endurskoðunarmörk, skilafrestur o.fl.)

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september· Endurflutt· EES-innleiðing
    77. mál· Í nefnd· lagt fram 11. sep. 2026
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér innleiðingu á breytingum á ársreikningatilskipun ESB varðandi stærðarmörk félaga o.fl. Stærðarmörk félaga í lögum um ársreikninga eru þau sömu innan EES og er með frumvarpinu verið að hækka þau til samræmis við nýlegar breytingar innan ESB.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006 (stærðarhlutföll, endurskoðunarmörk, skilafrestur o.fl.).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög (EES-innleiðing)

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september· Endurflutt· EES-innleiðing
    79. mál· Í nefnd· lagt fram 11. sep. 2026
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/828 frá 17. maí 2017 um breytingu á tilskipun 2007/36/EB að því er varðar hvatningu til þátttöku hluthafa til lengri tíma (SRD II).

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög (EES-innleiðing).

  • Frumvarp

    Breyting á búvörulögum og búnaðarlögum (framlenging búvörusamninga)

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september
    76. mál· Í nefnd· lagt fram 11. sep. 2026
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lögð til framlenging á gildandi búvörusamningum til ársloka 2027. Núgildandi búvörusamningar milli stjórnvalda og Bændasamtaka Íslands (BÍ), þ.e. rammasamningur um almenn starfsskilyrði landbúnaðar, samningur um starfsskilyrði sauðfjárræktar, samningur um starfsskilyrði nautgriparæktar og samningur um starfsskilyrði framleiðenda garðyrkjuafurða, voru gerðir árið 2016. Þar er mælt fyrir um að samningarnir gildi til 10 ára. Samningarnir hafa verið endurskoðaðir nokkrum sinnum síðan þeir öðluðust gildi en síðasta endurskoðun fór fram á árinu 2023. Ekki voru gerðar veigamiklar breytingar á búvörusamningum á þeim tíma, þar sem samningsaðilar voru sammála um að hefja strax samtal um starfsumhverfi landbúnaðar til framtíðar. Undirbúningur fyrir samtal stjórnvalda og BÍ hefur staðið yfir um nokkurt skeið og á árinu 2023 voru tvær þingsályktanir er varða landbúnað til framtíðar samþykktar á Alþingi, annars vegar matvælastefna til ársins 2040 og hins vegar landbúnaðarstefna til ársins 2040. Síðustu misseri hafa stjórnvöld átt í samtali við BÍ um starfsumhverfi landbúnaðar en fyrir liggur að meiri tíma þarf fyrir það samtal og er því tilefni þessa frumvarps að framlengja núgildandi búvörusamninga til ársloka 2027.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á búvörulögum og búnaðarlögum (framlenging búvörusamninga).

Dómsmálaráðherra

2 af 17 komin fram · 2 seinkuð

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (tímabundin vernd vegna fjöldaflótta o.fl.)

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september· Endurflutt
    97. mál· Í nefnd· lagt fram 16. sep. 2026
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á 44. gr. laga um útlendinga sem fjallar um sameiginlega vernd á grundvelli fjöldaflótta, til samræmis við löggjöf Evrópusambandsins og löggjöf í Noregi. Einnig eru lagðar til breytingar á 9. gr. laganna um flóttamannanefnd í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að færa ábyrgðarsvið nefndarinnar frá félags- og húsnæðismálaráðherra til dómsmálaráðherra. Þá eru lagðar til breytingar á 17. gr. laganna um miðlun persónuupplýsinga til að tryggja lagaheimild til miðlunar viðkvæmra persónuupplýsinga frá lögreglu til stjórnvalda útlendingamála.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (tímabundin vernd vegna fjöldaflótta o.fl.).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um dómstóla, nr. 50/2016 (staðsetning Landsréttar)

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september
    204. mál· Í nefnd· lagt fram 10. okt. 2026· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að Landsréttur geti áfram haft aðsetur utan Reykjavíkur. Landsréttur hefur um árabil verið staðsettur í Kópavogi á grundvelli ákvæðis til bráðabirgða í lögum um dómstóla. Sú heimild rennur út 1. janúar 2027.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um dómstóla, nr. 50/2016 (staðsetning Landsréttar).

Félags- og húsnæðismálaráðherra

4 af 14 komin fram

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, nr. 88/2021 (rannsókn alvarlegra óvæntra atvika)

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september· Endurflutt
    101. mál· Í nefnd· lagt fram 17. sep. 2026
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér breytingar sem lúta að meðferð og rannsókn alvarlegra óvæntra atvika í félagslegri velferðarþjónustu. Markmið breytinganna er að tryggja að rannsókn slíkra atvika nái því markmiði að koma megi í veg fyrir að sambærileg atvik endurtaki sig.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, nr. 88/2021 (rannsókn alvarlegra óvæntra atvika).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (eingreiðsla og orlofs- og desemberuppbót)

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september
    205. mál· Í nefnd· lagt fram 10. okt. 2026· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Lagt verður til að í lögum um almannatryggingar verði með skýrari hætti en verið hefur samkvæmt gildandi lögum kveðið á um greiðslu orlofs- og desemberuppbóta ár hvert til örorku-, hlutaörorku- og ellilífeyrisþega sem og sjúkra- og endurhæfingargreiðsluþega. Þá verður lagt til að tekjulágir einstaklingar í framangreindum hópum skuli eiga rétt á eingreiðslu í desember 2026 sem kemur til viðbótar við desemberuppbót, sbr. framangreint.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (eingreiðsla og orlofs- og desemberuppbót).

  • Frumvarp

    Breyting á húsaleigulögum, nr. 36/1994 (reglubundnar breytingar á leigufjárhæð)

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september
    157. mál· Í nefnd· lagt fram 3. okt. 2026· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að settur verði skýrari rammi um heimildir aðila leigusamnings til að semja, við gerð leigusamnings, um reglubundnar breytingar leigufjárhæðar á samningstíma. Breytingarnar hafa það að markmiði að stuðla að auknu húsnæðisöryggi leigjenda með meiri stöðugleika og fyrirsjáanleika um leiguverð milli mánaða. Með frumvarpinu verði lagt til að mánaðarleg vísitölutenging leigufjárhæðar verði óheimil.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994 (reglubundnar breytingar á leigufjárhæð).

  • Þingsályktunartillaga

    Framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026– 2029

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september· Endurflutt
    102. mál· Í nefnd· lagt fram 17. sep. 2026
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda er lögð fram til fjögurra ára í senn á grundvelli 7. gr. laga um málefni innflytjenda, nr. 116/2012, og náði gildandi áætlun til ársloka 2025. Verkefni áætlunarinnar miða almennt að því að ná fram markmiðum fyrrnefndra laga og stuðla að samfélagi þar sem allir geta verið virkir þátttakendur óháð þjóðerni og uppruna.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026– 2029.

Fjármála- og efnahagsráðherra

4 af 26 komin fram · 1 seinkað

  • Frumvarp

    Fjárlaga fyrir árið 2027

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september
    1. mál· Í nefnd· lagt fram 8. sep. 2026
  • Frumvarp

    Breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2027

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september
    2. mál· Í nefnd· lagt fram 9. sep. 2026
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér breytingar sem lagðar eru til grundvallar fjárlagafrumvarpi ársins 2027 sem lagt er fram á sama tíma. Það er samið að höfðu samráði við önnur ráðuneyti.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2027.

  • Frumvarp

    Staðfesting ríkisreiknings 2025

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september
    74. mál· Í nefnd· lagt fram 11. sep. 2026
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Skv. 58. gr. laga um opinber fjármál á ráðherra að leggja fram frumvarp á Alþingi til staðfestingar ríkisreikningi. Í greinargerð er fjallað um niðurstöðutölur reikningsins og gerð grein fyrir frávikum tekna, útgjalda og lánamála frá samþykktum fjárheimildum.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um staðfestingu ríkisreiknings 2025.

  • Frumvarp

    Varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september· Endurflutt· EES-innleiðing
    155. mál· Í nefnd· lagt fram 3. okt. 2026· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpinu er ætlað að innleiða reglugerð (ESB) 2019/2033 og tilskipun (ESB) 2019/2034 sem fjalla um verðbréfafyrirtæki. Með gerðunum er regluverk Evrópusambandsins um varfærniseftirlit með verðbréfafyrirtækjum í megindráttum skilið frá reglum um varfærniseftirlit með bönkum og öðrum lánastofnunum. Aðskilnaðinum er ætlað að gera regluverkinu kleift að taka betur mið af sérstöðu hvorrar tegundar fyrirtækja fyrir sig.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja.

Heilbrigðisráðherra

3 af 10 komin fram · 1 seinkað

  • Frumvarp

    Breyting á ýmsum lögum vegna viðbragða við lyfjaskorti o.fl

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september· Endurflutt
    232. mál· Í nefnd· lagt fram 16. okt. 2026· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lyfjalögum, nr. 100/2020, sem teljast nauðsynlegar miðað við þá reynslu sem komin er síðan lögin tóku gildi. Frumvarpið felur m.a. í sér heimildir fyrir Lyfjastofnun til að bregðast við lyfjaskorti og lágmarka áhrif hans á sjúklinga, breytingar á ákvæðum er varða undanþágulyf, ákvæði um lyfjafræðilega þjónustu í lyfjabúðum, ákvæði sem heimilar lyfjafræðingum að ávísa bóluefnum, viðurlagaákvæði og breytingar á framkvæmd ákvarðana um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í lyfjum. Frumvarpið felur einnig í sér breytingar á lögum um dýralyf, nr. 14/2022, lögum um lækningatæki, nr. 132/2020, lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, og lögum um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna viðbragða við lyfjaskorti o.fl.

  • Þingsályktunartillaga

    Aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi fyrir árin 2026–2030

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september· Endurflutt
    131. mál· Í nefnd· lagt fram 22. sep. 2026
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með vísan til markmiða sem lögð voru í skýrslu starfshóps um offitu, holdarfar, heilsu og líðan verður lögð fram tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun vegna offitu. Í tillögunni verði lögð áhersla á almennar lýðheilsuaðgerðir sem tryggja tækifæri einstaklinga til heilsusamlegrar lifnaðarhátta, ásamt gagnaöflun, eftirliti, ráðgjöf og uppbyggingu meðferðar í heilbrigðisþjónustu vegna offitu.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi fyrir árin 2026–2030.

  • Þingsályktunartillaga

    Landsáætlun vegna sjaldgæfra sjúkdóma fyrir árin 2027–2031

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september· Endurflutt
    132. mál· Í nefnd· lagt fram 22. sep. 2026
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með vísan til áherslna vinnuhóps sem lagðar voru fram í skýrslu um sjaldgæfa sjúkdóma verður lögð fram tillaga til þingsályktunar um landsáætlun um sjaldgæfa sjúkdóma. Áætluninni er ætlað að vera leiðbeinandi um þjónustu til þeirra sem falla undir skilmerki um sjaldgæfa sjúkdóma og aðstandendur þeirra.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um landsáætlun vegna sjaldgæfra sjúkdóma fyrir árin 2027–2031.

Innviðaráðherra

5 af 17 komin fram · 1 seinkað

  • Frumvarp

    Sveitarstjórnarlaga

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september· Endurflutt
    5. mál· Í nefnd· lagt fram 9. sep. 2026
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Heildarendurskoðun sveitarstjórnarlaga þar sem m.a. verða lagðar til breytingar á almennum reglum sem varða stjórnsýslu sveitarfélaga, íbúasamráð, samvinnu sveitarfélaga, fjármál og reikningsskil sveitarfélaga, starfshætti kjörinna fulltrúa, eftirlit með stjórnsýslu sveitarfélaga, atvinnuþátttöku sveitarfélaga o.fl.

    Heiti á skránni: Frumvarp til sveitarstjórnarlaga.

  • Frumvarp

    Leiðarmerki og öryggi siglinga

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september· Endurflutt
    99. mál· Í nefnd· lagt fram 17. sep. 2026
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu verða lagðar til breytingar frá fyrri lögum til að tryggja öryggi siglinga þar sem staðsetning mannvirkja á hafi, s.s. fiskeldiskvía, sæstrengja, neðansjávarleiðsla og annarra hafstöðva, hefur aukist til muna. Koma þarf í veg fyrir að þessi þróun dagi úr öryggi siglinga. Þær stofnanir sem bera ábyrgð á öryggi siglinga á hafinu umhverfis Ísland, Vegagerðin, Samgöngustofa og Landhelgisgæsla Íslands, hafa kallað eftir þessum breytingum og fært rök fyrir mikilvægi þeirra. Aðrar breytingar sem stefnt er að með frumvarpinu snúa m.a. að uppfærslu skilgreininga í samræmi við skilgreiningar Alþjóðastofnunar um leiðarmerki á sjó, ábyrgð og heimildir Vegagerðarinnar og Samgöngustofu varðandi leiðarmerki skýrð og heimild ráðherra til að setja reglugerðir tryggð, m.a. um umferð tiltekinna tegunda skipa á ákveðnum svæðum og notkun tiltekinna veiðarfæra og akkerislegu. Aðkoma Samgöngustofu og Vegagerðarinnar að gerð strandsvæðisskipulags vegna ábyrgðarhlutverks stofnananna varðandi öryggi siglinga er tryggð.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um leiðarmerki og öryggi siglinga.

  • Frumvarp

    Netöryggisvottun á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september· Endurflutt· EES-innleiðing
    98. mál· Í nefnd· lagt fram 17. sep. 2026
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að innleidd verði ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2019/881 um Netöryggisstofnun Evrópu (ENISA) og netöryggisvottunarkerfi upplýsinga- og samskiptatækja og niðurfellingu á reglugerð (ESB) 526/2013, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um netöryggisvottun á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni.

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um fjarskipti, nr. 70/2022 (innleiðing EES-gerða)

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september· Endurflutt· EES-innleiðing
    201. mál· Lagt fram· lagt fram 10. okt. 2026· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Markmið frumvarpsins er að innleidd verði reglugerð Evrópusambandsins 2024/1307 um tímabundna undanþágu frá ePrivacy tilskipuninni til að sporna gegn barnaníði á Internetinu. Reynt var að breyta fjarskiptalögum vegna gerðarinnar á 153. löggjafarþingi (947. mál) og aftur í breyttri mynd á 157. löggjafarþingi (601. mál) en frumvarpið náði ekki fram að ganga.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjarskipti, nr. 70/2022 (innleiðing EES-gerða).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um Byggðastofnun, nr. 106/1999 (lagfæringar)

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september
    156. mál· Í nefnd· lagt fram 3. okt. 2026· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Lögin eru frá 1999 og lagt er til að þau verði færð til nútímahorfs. Töluverðar breytingar hafa orðið á starfsemi stofnunarinnar síðan hún hóf störf auk þess sem samfélagsbreytingar hafa verið nokkrar. Þá þarf að skerpa á nokkrum atriðum varðandi póstþjónustu þar sem ESA hefur gert athugasemdir við að tryggja þurfi betur sjálfstæði stofnunarinnar sem eftirlitsaðila á póstmarkaði.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun, nr. 106/1999 (lagfæringar).

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra

1 af 11 komin fram

  • Frumvarp

    Breyting á höfundalögum, nr. 73/1972 (hámarksrefsing fyrir stórfelld brot)

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september· Endurflutt
    108. mál· Í nefnd· lagt fram 18. sep. 2026
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Ólögmæt dreifing höfundaréttarvarins sjónvarpsefnis á netinu, svokölluð „IPTV - sjóræningjastarfsemi“ er útbreidd meinsemd í íslensku samfélagi sem hefur neikvæð áhrif á rétthafa, þar á meðal innlenda fjölmiðla. Með frumvarpinu er lagt til að hækka hámarksrefsingu höfundalaga, úr tveggja ára fangelsi í gildandi lögum upp í allt að sex ára fangelsi, með breytingu á 2. mgr. 54. gr. höfundalaga, nr. 73/1972. Slík breyting sendir skýr skilaboð gagnvart þessari þróun og endurspeglar betur alvarleika og neikvæðar afleiðingar brotanna ásamt því að færa rannsókn lögreglu á málum, sem varða ólögmæta netdreifingu á höfundaréttarvörðu sjónvarpsefni, ofar á forgangslista kærumála hjá lögreglu.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á höfundalögum, nr. 73/1972 (hámarksrefsing fyrir stórfelld brot).

Mennta- og barnamálaráðherra

2 af 10 komin fram

  • Frumvarp

    Barnavernd

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september· Endurflutt
    78. mál· Í nefnd· lagt fram 11. sep. 2026
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér ný heildarlög um barnavernd. Breytingar frá eldri barnaverndarlögum felast meðal annars í aukinni áherslu á samþættingu og samvinnu í þjónustu við börn, betra samspil heilbrigðisþjónustu og barnaverndar og aukin réttindi barna. Þá eru lagðar til breytingar vegna þjónustu við börn með fjölþættar stuðningsþarfir.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um barnavernd.

  • Þingsályktunartillaga

    Stefna og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna til ársins 2030

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september· Endurflutt
    75. mál· Í nefnd· lagt fram 11. sep. 2026
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Samkvæmt 3. gr. laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021, skal mennta- og barnamálaráðherra leggja fram, sem tillögu til þingsályktunar, stefnu og framkvæmdaáætlun um verkefni ríkisins sem varða farsæld barna til fjögurra ára.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna til ársins 2030.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra

5 af 18 komin fram · 3 seinkuð

  • Frumvarp

    Loftslagslaga

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september· Endurflutt
    202. mál· Í nefnd· lagt fram 10. okt. 2026· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Lagt er til að sett verði ný heildarlög um loftslagsmál í stað gildandi laga frá 2012 sem hafa tekið margvíslegum breytingum og eru orðin sundurleit. Markmið frumvarpsins er að skýra og útfæra betur ýmis ákvæði laganna og styrkja þannig framkvæmd loftslagsmála. Frumvarpið tryggir jafnframt nánari útfærslu markmiðs um kolefnishlutleysi eigi síðar en árið 2040. Einnig er lagt til nýtt ákvæði um að ráðherra láti vinna loftslagsstefnu og leggi hana fram á Alþingi. Loftslagsstefna skal m.a. fela í sér töluleg langtímamarkmið ásamt skilgreindum millimarkmiðum og skammtímamarkmiðum sem styðja við framvindu að markmiði um kolefnishlutleysi. með breytingum.

    Heiti á skránni: Frumvarp til loftslagslaga.

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum og lögum um Vegagerðina, framkvæmdastofnun samgöngumála (markmið, nýting eigna og fram-kvæmdaumsjón)

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september· Endurflutt
    4. mál· Í nefnd· lagt fram 9. sep. 2026
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu verður mælt fyrir um nauðsynlegar breytingar á lögunum til að skýra og styrkja framkvæmd þeirra í ljósi reynslunnar, styrkja umgjörð ofanflóðavarna og sporna gegn dvöl fólks utan leyfilegs nýtingartíma í húseignum á hættusvæðum.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum og lögum um Vegagerðina, framkvæmdastofnun samgöngumála (markmið, nýting eigna og fram-kvæmdaumsjón).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004 (leyfisveitingar vegna vísindarannsókna í hafi)

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september
    203. mál· Í nefnd· lagt fram 10. okt. 2026· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið snýr að leyfisveitingum fyrir verkfræðileg rannsóknarverkefni á hafi með hliðsjón af þróun alþjóðareglna á þessu sviði. Samkvæmt lögum um landhelgi, aðlægt belti, efnahagslögsögu og landgrunn, nr. 41/1979, sem eru á forræði utanríkisráðuneytis, eru vísindalegar rannsóknir í landhelgi, efnahagslögsögu og landgrunni Íslands háðar samþykki íslenskra stjórnvalda. Með frumvarpinu mun hluti ábyrgðar á þeirri stjórnsýslu færast til Umhverfis- og orkustofnunar, þ.e. hvað varðar umsóknir um rannsóknarleyfi til einkaaðila vegna umhverfis- og loftslagsrannsókna.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004 (leyfisveitingar vegna vísindarannsókna í hafi).

  • Frumvarp

    Aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september· EES-innleiðing
    233. mál· Í nefnd· lagt fram 16. okt. 2026· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér lögfestingu reglugerðar (ESB) 2023/956 um að koma á fót aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis, sem og reglugerðar (ESB) 2025/2083 um breytingu á reglugerð (ESB) 2023/956 að því er varðar að einfalda og styrkja aðlögunarkerfið við landamæri vegna kolefnis. Kerfið mun fela í sér kolefnisgjöld á innflutning vara með stórt kolefnisfótspor og koma frá þriðju ríkjum. Markmiðið er að efla samkeppnishæfni vara með lágt kolefnisfótspor, s.s. framleiddum af starfsemi sem fellur undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS-kerfið), og stuðla að samdrætti í innflutningi á kolefnisríkum vörum.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis.

Utanríkisráðherra

2 af 4 komin fram · 1 seinkað

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993 (bókun 35)

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september· Endurflutt
    134. mál· Í nefnd· lagt fram 22. sep. 2026
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er ætlunin að gera nauðsynlegar breytingar til þess að bæta innleiðingu bókunar 35 við EES samninginn og tryggja fulla virkni hans hér á landi í þágu einstaklinga og lögaðila.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993 (bókun 35).

  • Þingsályktunartillaga

    Staðfesting ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) sem fellir inn í EES-samninginn reglugerð (ESB) 2023/956 og reglugerð (ESB) 2025/2083

    Í vinnslu á Alþingi
    Áætlað: september
    158. mál· Í nefnd· lagt fram 5. okt. 2026· seinna en áætlað
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Reglugerð (ESB) 2023/956 um aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis (CBAM). Reglugerð (ESB) 2025/2083 um breytingu á reglugerð (ESB) 2023/956 að því er varðar að einfalda og styrkja aðlögunarkerfið við landamæri vegna kolefnis. Aflétting stjórnskipulegs fyrirvara.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) sem fellir inn í EES-samninginn reglugerð (ESB) 2023/956 og reglugerð (ESB) 2025/2083.

Hvernig er staðan fundin?

Ríkisstjórnin birtir þingmálaskrána á vef Stjórnarráðsins samkvæmt 47. grein þingskapa. Alviti les skrána og parar hvert atriði við þingmálið á Alþingi sem ráðherrann lagði fram, eftir ráðherra, tegund máls og heiti.

  • Samþykkt: Alþingi hefur samþykkt málið.
  • Í vinnslu á Alþingi: Málið er komið fram og er til meðferðar á Alþingi.
  • Seinkað: Áætlaður mánuður er liðinn en málið er ekki komið fram.
  • Ekki komið fram: Málið er ekki komið fram, en áætlaður mánuður er ekki liðinn.
  • Stöðvað: Málið var fellt, vísað frá eða dagaði uppi.

„Seinkað“ þýðir aðeins að áætlaður mánuður er liðinn án þess að málið sé komið fram. Ástæðurnar koma ekki fram í gögnunum, og ríkisstjórnin endurskoðar áætlunina eftir jólahlé. Mál sem ríkisstjórnin leggur fram án þess að þau séu á skránni koma ekki fram hér.

Skráin var síðast lesin 24. október 2026. Staða hvers máls fylgir gögnum Alþingis.

Heimild: Stjórnarráð Íslands, þingmálaskrá ríkisstjórnar · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)