Sveitarstjórnarlög
Hvar er málið statt?
Fyrsta umræða: þingmenn ræða málið í þingsal áður en nefnd tekur við því.
- Lagt fram
- 1. umræða
- Í nefnd
- 2. umræða
- 3. umræða
- Niðurstaða
Skráning Alþingis: „Í nefnd eftir 1. umræðu.“
Í stuttu máli
Að styrkja og efla sveitarstjórnarstigið þannig að sveitarfélög séu betur í stakk búin til að sinna verkefnum sínum, veita íbúum skilvirka þjónustu og stuðla að sjálfbærri þróun sveitarfélaga og byggðarlaga. Frumvarpið felur einkum í sér heildarendurskoðun á reglum um fjármál sveitarfélaga, samvinnu þeirra, þátttöku íbúa og eftirlit með sveitarfélögum, auk breytinga sem eiga að skýra stjórnskipulag og stjórnsýslu sveitarfélaga.
Lagt fram af Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra (Flf), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.
- Lagt fram
- 9. september 2026
- Tegund
- Stjórnarmál
- Atkvæðagreiðslur með skrá
- 0
- Umræða í þingsal
- 22 ræður · 1 klst. 9 mín
Málið á mannamáli
Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.
Markmiðið
Að styrkja og efla sveitarstjórnarstigið þannig að sveitarfélög séu betur í stakk búin til að sinna verkefnum sínum, veita íbúum skilvirka þjónustu og stuðla að sjálfbærri þróun sveitarfélaga og byggðarlaga. Frumvarpið felur einkum í sér heildarendurskoðun á reglum um fjármál sveitarfélaga, samvinnu þeirra, þátttöku íbúa og eftirlit með sveitarfélögum, auk breytinga sem eiga að skýra stjórnskipulag og stjórnsýslu sveitarfélaga.
Hvað breytist
Lagt er til að styrkja fjármálastjórn sveitarfélaga, meðal annars með fimm ára fjármálastefnu og fjármálaáætlun og skýrari reglum um afkomu, skuldir og stórar fjárfestingar.
Reglur um samstarf sveitarfélaga yrðu skýrari, meðal annars um ábyrgð, ákvarðanatöku og kostnað þegar þau reka verkefni sameiginlega. Jafnframt er lagt til að íbúar fái betri upplýsingar og aukin tækifæri til að koma sjónarmiðum á framfæri áður en mikilvægar ákvarðanir eru teknar.
Eftirliti ríkisins yrði breytt þannig að samþykktir og samstarfssamningar sveitarfélaga þyrftu almennt ekki lengur staðfestingu ráðherra fyrir fram. Einnig eru lagðar til skýrari reglur um hagsmuni og starfsskyldur kjörinna fulltrúa.
Lög sem breytast
- 138/2011
- 107/1970
- 40/1991
- 4/1995
- 44/1998
- 64/1998
- 90/2008
- 91/2008
- 9/2009
- 123/2010
- 60/2013
- 77/2014
- 22/2015
- 123/2015
- 38/2018
Um er að ræða ný lög og við gildistöku þeirra falla úr gildi sveitarstjórnarlög, nr. 138/2011. Jafnframt verða breytingar á lögum um félagsheimili, nr. 107/1970, lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998, íþróttalögum, nr. 64/1998, lögum um leikskóla, nr. 90/2008, lögum um grunnskóla, nr. 91/2008, lögum um uppbyggingu og rekstur fráveitna, nr. 9/2009, skipulagslögum, nr. 123/2010, lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013, lögum um opinber skjalasöfn, nr. 77/2014, lögum um örnefni, nr. 22/2015, lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015 og lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018.
Kostnaður fyrir ríkið
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
Meira úr samantektinni
Upplýsingaveita sveitarfélaga er sameiginlegur gagnagrunnur ríkis og sveitarfélaga með samræmdum fjárhagsupplýsingum. Gögnin eru birt í mælaborðum Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Löggjöf á Norðurlöndum
Ein helsta breytingin sem felst í frumvarpinu lýtur að ítarlegri áætlanagerð um fjármál sveitarfélaga til langs tíma. Sambærileg ákvæði um langtímaáætlanir er að finna í löggjöf annarra Norðurlanda.
Í Danmörku kveða 2. og 3. gr. reglugerðar um fjárhags- og reikningshald sveitarfélaga, endurskoðun o.fl. (bekendtgørelse om kommunernes budget- og regnskabsvæsen, revision m.v., BEK nr 998 af 03/07/2025) á um að leggja skuli fram árlega tillögu að fjárhagsáætlun ásamt þriggja ára áætlun fyrir næstu ár á eftir. Skal jafnvægis gætt milli tekna og gjalda í samræmi við nánari fyrirmæli reglugerðarinnar.
Í Finnlandi er kveðið á um það í 110. gr. sveitarstjórnarlaga (kommunallag, 410/2015) að sveitarstjórn skuli samþykkja fjárhagsáætlun fyrir eins árs og jafnframt efnahagsáætlun til að minnsta kosti þriggja ára þar sem fjárhagsárið er fyrsta ár tímabilsins. Áætlunin skal vera hallalaus eða skila afgangi, auk þess sem mæla skal fyrir um hvernig unnið verði á uppsöfnuðum halla, eigi það við.
Í Noregi ber sveitarstjórnum samkvæmt 3. og 4. gr. 14. kafla laga um sveitarfélög og fylki (lov om kommuner og fylkeskommuner (kommuneloven), LOV-2018-06-22-83) að samþykkja fjögurra ára fjárhagsáætlun samhliða ársáætlun. Gera skal kröfu um að báðar áætlanir séu raunhæfar, heildstæðar og í jafnvægi, auk þess sem langtímaáætlun skal sýna þróun fjármála, skulda og annarra verulegra skuldbindinga.
Í Svíþjóð mæla 5. og 6. gr. 11. kafla sveitarstjórnarlaga (kommunallag, 2017:725) fyrir um að sveitarfélög geri árlega fjárhagsáætlun þar sem tekjur skuli séu að jafnaði umfram gjöld. Í áætluninni skal jafnframt felast þriggja ára áætlun um fjármál sveitarfélagsins með fjárhagsárið sem fyrsta árið.
Af samanburðinum má ráða að langtímaáætlanir í fjármálum sveitarfélaga eru samnefnari í norrænni löggjöf. Tímalengd áætlana og lagaleg útfærsla eru þó mismunandi og ákvæði frumvarpsins um fimm ára fjármálastefnu og fjármálaáætlun eiga sér því ekki eina sameiginlega norræna fyrirmynd.
Afstaða þingflokkanna
Eyjólfur ÁrmannssonFlokkur fólksinsinnviðaráðherra
Framsögumaður nefndar: Dagur B. Eggertsson
Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.
„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.
Af hverju skiptir þetta máli?
Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.
- Nefndin sem fjallar um málið
- Umhverfis- og samgöngunefnd
- sendi 1 umsagnabeiðnir · frestur 1. okt. 2026
- Sendu inn umsögn eða erindi
- 37 aðilar
- Grindavíkurbær, Suðurnesjabær, Flóahreppur, Samtök sveitafélaga & atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra SSNE, Bláskógabyggð o.fl. · allar umsagnir
- Umræða í þingsal
- 1 klst. 9 mín · 22 ræður
- 5 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
- Kostnaður fyrir ríkissjóð
- Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
- úr samantekt Alþingis
Allt um málið
Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.
Ferill málsins
Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.
- Þingskjal
- UmræðaUmræða 122 ræður · 1 klst. 9 mín
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- UmsagnirUmsagnabeiðnir sendar, frestur 2026-10-011 beiðnir um umsögn
Þingskjöl
Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.
Allar atkvæðagreiðslur
Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.
- yfirlýsing forseta/mál gengur15. september 2026 kl. 20:04Frumvarp gengur til 2. umræðuEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- yfirlýsing forseta/mál gengur→ umhverfis- og samgöngunefnd15. september 2026 kl. 20:04Frumvarp gengur til nefndarEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
Hverjir tóku til máls
- 1. umræða: 22 ræður · 5 ræðumenn · 1 klst. 9 mín
| Þingmaður | Flokkur | Ræður | Ræðutími |
|---|---|---|---|
| Flokkur fólksins | 11 | 43 mín | |
| Sjálfstæðisflokkur | 5 | 16 mín | |
| Framsóknarflokkur | 2 | 4 mín | |
| Miðflokkurinn | 2 | 4 mín | |
| Sjálfstæðisflokkur | 2 | 3 mín |
Umsagnir og erindi
Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.
Umhverfis- og samgöngunefnd sendi 1 umsagnabeiðnir 17. sep. 2026, frestur 1. okt. 2026.
| Hver sendi | Tegund | Barst | Skjal |
|---|---|---|---|
| Grindavíkurbær | umsögn | Opna PDF | |
| Suðurnesjabær | umsögn | Opna PDF | |
| Flóahreppur | umsögn | Opna PDF | |
| Samtök sveitafélaga & atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra SSNE | umsögn | Opna PDF | |
| Bláskógabyggð | umsögn | Opna PDF | |
| Forseti Alþingis | athugasemd | Opna PDF | |
| Grýtubakkahreppur | umsögn | Opna PDF | |
| GB stjórnsýsluráðgjöf slf | minnisblað | Opna PDF | |
| Fjarðabyggð | umsögn | Opna PDF | |
| Akureyrarbær | umsögn | Opna PDF | |
| Skeiða- og Gnúpverjahreppur | umsögn | Opna PDF | |
| Orkuveitan | umsögn | Opna PDF | |
| Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu | umsögn | Opna PDF | |
| Reykjavíkurborg | umsögn | Opna PDF | |
| HS Veitur hf. | umsögn | Opna PDF | |
| Bændasamtök Íslands | umsögn | Opna PDF | |
| Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra | umsögn | Opna PDF | |
| Strandabyggð | umsögn | Opna PDF | |
| Skagafjörður | umsögn | Opna PDF | |
| Samtök atvinnulífsins | umsögn | Opna PDF | |
| Norðurorka hf. | umsögn | Opna PDF | |
| Samband sveitarfélaga á Austurlandi | umsögn | Opna PDF | |
| Persónuvernd | umsögn | Opna PDF | |
| Garðabær | umsögn | Opna PDF | |
| Samorka | umsögn | Opna PDF | |
| Sveitarfélagið Árborg | umsögn | Opna PDF | |
| Samband íslenskra sveitarfélaga | umsögn | Opna PDF | |
| Múlaþing | umsögn | Opna PDF | |
| Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun | umsögn | Opna PDF | |
| Húnaþing vestra | umsögn | Opna PDF | |
| Vestmannaeyjabær | umsögn | Opna PDF | |
| Barnaheill - Save the Children á Íslandi | umsögn | Opna PDF | |
| Hvalfjarðarsveit | umsögn | Opna PDF | |
| Arnar Elvarsson | umsögn | Opna PDF | |
| ÖBÍ réttindasamtök | umsögn | Opna PDF | |
| Landssamtökin Þroskahjálp | umsögn | Opna PDF | |
| Lánasjóður sveitarfélaga ohf. | umsögn | Opna PDF | |
| Orkuveitan | umsögn | Opna PDF |
Tengd mál
- Sveitarstjórnarlögtengt
Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)