Byggðastofnun
Lagfæringar
Hvar er málið statt?
Fyrsta umræða: þingmenn ræða málið í þingsal áður en nefnd tekur við því.
- Lagt fram
- 1. umræða
- Í nefnd
- 2. umræða
- 3. umræða
- Niðurstaða
Skráning Alþingis: „Í nefnd eftir 1. umræðu.“
Í stuttu máli
Að færa lög um Byggðastofnun í nútímalegra horf, skýra verkefni stofnunarinnar sem og verkaskiptingu stjórnar og forstjóra og treysta sjálfstæði hennar við eftirlit með póstþjónustu.
Lagt fram af Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra (Flf), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.
- Lagt fram
- 3. október 2026
- Tegund
- Stjórnarmál
- Atkvæðagreiðslur með skrá
- 0
- Umræða í þingsal
- 1 ræður · 6 mín
Málið á mannamáli
Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.
Markmiðið
Að færa lög um Byggðastofnun í nútímalegra horf, skýra verkefni stofnunarinnar sem og verkaskiptingu stjórnar og forstjóra og treysta sjálfstæði hennar við eftirlit með póstþjónustu.
Hvað breytist
Lagt er til að eftirlit Byggðastofnunar með póstþjónustu verði aðskilið frá öðrum verkefnum stofnunarinnar. Við framkvæmd þess yrði stofnunin sjálfstæð gagnvart ráðherra og póstmál heyrðu ekki undir stjórn hennar. Með breytingunni er meðal annars ætlað að bregðast við athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA um sjálfstæði pósteftirlitsins.
Jafnframt yrði hlutverk Byggðastofnunar í byggðamálum skýrt. Stofnunin meti framvindu sóknaráætlana landshluta og hafi eftirlit með fjárreiðum þeirra, taki þátt í gerð og framkvæmd byggðaáætlunar og fylgist með árangri hennar. Einnig yrði lögð aukin áhersla á rannsóknir á byggðaþróun og samstarf um hana og atvinnuráðgjöf við landshlutasamtök sveitarfélaga og aðra aðila.
Þá er lagt til að forstjóri ákveði innra skipulag stofnunarinnar og ráði staðgengil sinn. Stjórn setji reglur um störf lánanefndar en taki aðeins ákvarðanir um lán og ábyrgðir sem eru umfangsmiklar eða fela í sér nýmæli, vafamál eða stefnumarkandi atriði. Með þessu yrði verkaskiptingin skýrð án efnislegra breytinga á valdheimildum stjórnar. Þagnarskylda næði einnig til utanaðkomandi aðila sem vinna að verkefnum fyrir stofnunina og sett yrðu skýrari ákvæði um vinnslu og öryggi persónuupplýsinga.
Lög sem breytast
Kostnaður fyrir ríkið
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
Meira úr samantektinni
Byggðastofnun tók við eftirliti með póstþjónustu 1. júlí 2021. Stofnunin veitir leyfi til póstrekstrar og hefur meðal annars eftirlit með framkvæmd laga um póstþjónustu, skilmálum póstrekenda og gjaldskrá fyrir alþjónustu, samkvæmt upplýsingum á vef stofnunarinnar.
Í 22. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 97/67/EB, eins og henni var breytt með tilskipun 2008/6/EB, er kveðið á um að stjórnvöld sem hafa eftirlit með póstþjónustu skuli vera lagalega aðskilin frá póstrekendum og óháð þeim í starfsemi sinni. Þegar ríki á eða fer með yfirráð yfir póstrekanda skal jafnframt tryggja að eftirlitshlutverkið sé aðskilið í skipulagi frá þeirri starfsemi ríkisins sem tengist eignarhaldi eða yfirráðum yfir fyrirtækinu.
Afstaða þingflokkanna
Eyjólfur ÁrmannssonFlokkur fólksinsinnviðaráðherra
Framsögumaður nefndar: Jónína Björk Óskarsdóttir
Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.
„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.
Af hverju skiptir þetta máli?
- Nefndin sem fjallar um málið
- Umhverfis- og samgöngunefnd
- sendi 1 umsagnabeiðnir · frestur 22. okt. 2026
- Sendu inn umsögn eða erindi
- 5 aðilar
- Félag atvinnurekenda, Dropp ehf., Póstdreifing ehf., Húnaþing vestra, Byggðastofnun · allar umsagnir
- Umræða í þingsal
- 6 mín · 1 ræða
- 1 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
- Kostnaður fyrir ríkissjóð
- Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
- úr samantekt Alþingis
Allt um málið
Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.
Ferill málsins
Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.
- Þingskjal
- UmræðaUmræða 11 ræður · 6 mín
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- UmsagnirUmsagnabeiðnir sendar, frestur 2026-10-221 beiðnir um umsögn
Þingskjöl
Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.
Allar atkvæðagreiðslur
Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.
- yfirlýsing forseta/mál gengur7. október 2026 kl. 14:41Frumvarp gengur til 2. umræðuEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- yfirlýsing forseta/mál gengur7. október 2026 kl. 14:41Frumvarp gengur til nefndarEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
Hverjir tóku til máls
- 1. umræða: 1 ræða · 1 ræðumenn · 6 mín
| Þingmaður | Flokkur | Ræður | Ræðutími |
|---|---|---|---|
| Flokkur fólksins | 1 | 6 mín |
Umsagnir og erindi
Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.
Umhverfis- og samgöngunefnd sendi 1 umsagnabeiðnir 8. okt. 2026, frestur 22. okt. 2026.
| Hver sendi | Tegund | Barst | Skjal |
|---|---|---|---|
| Félag atvinnurekenda | umsögn | Opna PDF | |
| Dropp ehf. | umsögn | Opna PDF | |
| Póstdreifing ehf. | umsögn | Opna PDF | |
| Húnaþing vestra | umsögn | Opna PDF | |
| Byggðastofnun | umsögn | Opna PDF |
Tengd mál
Engin tengd mál skráð.
Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)