Beint í efni
Alviti
158. þing · Þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar

Hverju lofaði ríkisstjórnin?

Í upphafi hvers þings birtir ríkisstjórnin lista yfir frumvörpin og tillögurnar sem hún ætlar að leggja fram, og í hvaða mánuði. Hér er fylgst með hverju einasta atriði. Staðan kemur beint úr gögnum Alþingis og uppfærist daglega.

Af málum sem eru komin fram voru 22 lögð fram í áætluðum mánuði eða fyrr og 11 seinna en áætlað var.

Dómsmálaráðherra

2 af 17 komin fram · 2 seinkuð

  • Frumvarp

    Breyting á almennum hegningarlögum, lögum um meðferð sakamála og lögreglulögum (aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi)

    Seinkað
    Áætlað: september· 24 dögum á eftir áætlun
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögunum til að efla refsivernd vegna brota sem tengjast skipulagðri brotastarfsemi, efla heimildir til að leggja hald á og gera upptæk verðmæti sem eru ávinningur brota, auka skilvirkni og tryggja gæði sakamálarannsókna og styrkja starf lögreglu á sviði afbrotavarna.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, lögum um meðferð sakamála og lögreglulögum (aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um vegabréf, nr. 136/1998 (útgáfa persónuskilríkja)

    Seinkað
    Áætlað: september· 24 dögum á eftir áætlun
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu eru lagðar til nokkrar breytingar á lögum um vegabréf til að ná betra samræmi við lög um nafnskírteini, nr. 55/2023. Mikilvægt er að fullt samræmi sé á milli þeirra laga sem varða útgáfu persónuskilríkja hér á landi, þ.e. vegabréfa og nafnskírteina. Þykir því tímabært að leggja til nokkrar breytingar á vegabréfalögum með það fyrir augum að slíkt samræmi náist.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vegabréf, nr. 136/1998 (útgáfa persónuskilríkja).

Fjármála- og efnahagsráðherra

4 af 26 komin fram · 1 seinkað

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996 (afnám áminningar o.fl.)

    Seinkað
    Áætlað: september· Endurflutt· 24 dögum á eftir áætlun
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er endurflutt frumvarp um afnám áminningar og fleiri breytingar á starfsmannalögum lítillega breytt. Frumvarpið felur í sér að felld er brott skylda til að veita starfsmanni eða embættismanni formlega áminningu áður en til uppsagnar eða lausnar um stundarsakir kemur. Þá eru gerðar breytingar á ákvæðum laganna um embættismenn, t.a.m. í tengslum við meðferð mála sem nefnd um lausn um stundarsakir rannsakar, setningar í embætti auk breytinga á auglýsingaskyldu o.fl.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996 (afnám áminningar o.fl.).

Heilbrigðisráðherra

3 af 10 komin fram · 1 seinkað

  • Frumvarp

    Tóbaksvarnir, rafrettur og nikótínvörur

    Seinkað
    Áætlað: september· 24 dögum á eftir áætlun
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að tveir lagabálkar verði sameinaðir í einn, þ.e. lög um tóbaksvarnir, nr. 6/2002, og lög um nikótínvörur, rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur, nr. 87/2018. Lagðar eru til breytingar sem ætlað er að draga úr notkun, sérstaklega meðal barna og ungmenna og lúta að eftirliti með vörunum.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um tóbaksvarnir, rafrettur og nikótínvörur.

Innviðaráðherra

5 af 17 komin fram · 1 seinkað

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um fjarskipti, lögum um Fjarskiptastofu og lögum um fjölmiðla (aðgerðir gegn svikastarfsemi, EES-reglur o.fl.)

    Seinkað
    Áætlað: september· Endurflutt· EES-innleiðing· 24 dögum á eftir áætlun
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Með frumvarpinu er lagt til að gildissviðsákvæði laga um fjarskipti verði bætt vegna framtíðartækni sem koma skal. Þá er lagt til að bætt verði inn heimild í lög um Fjarskiptastofu að innheimta auðlindagjald fyrir úthlutun á tíðni 40,5-43,5 GHz fyrir jarðbundin fjarskiptakerfi sem veita þráðlausar breiðbands fjarskiptaþjónustur í Evrópusambandinu skv. framkvæmdarákvörðun framkvæmdarstjórnarinnar (ESB) 2024/1983.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjarskipti, lögum um Fjarskiptastofu og lögum um fjölmiðla (aðgerðir gegn svikastarfsemi, EES-reglur o.fl.).

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra

5 af 18 komin fram · 3 seinkuð

  • Frumvarp

    Breyting á ýmsum lögum á sviði orkumála (EES-reglur)

    Seinkað
    Áætlað: september· EES-innleiðing· 24 dögum á eftir áætlun
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/2001 fjallar um að auka notkun frá endurnýjanlegum orkugjöfum og fellir úr gildi eldri tilskipun 2009/28/EB. Tilskipunin nær til raforku, hita og eldsneytis og í henni felast viðmið varðandi hvað telst endurnýjanleg orka og eldsneyti og hvaða skilyrði þarf að uppfylla. Tilskipunin leggur ríka áherslu á einföldun stjórnsýslu í tengslum við leyfisveitingar fyrir virkjanir sem framleiða orku úr endurnýjanlegum orkugjöfum auk þess sem skilgreina þarf ný hugtök um t.a.m. orkusamfélög og sjálfsnotendur. Breyta þarf raforkulögum og lögum um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi. Þá þarf að breyta lögum um upprunaábyrgðir en núgildandi lög taka einungis til raforku. Útvíkka þarf gildissvið laganna þannig að hægt verði að gefa út upprunaábyrgðir fyrir gas, t.d. vetni, hita og kælingu og tilnefna aðila sem gefur út slíkar ábyrgðir.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á sviði orkumála (EES-reglur).

  • Frumvarp

    Breyting á lögum um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, nr. 96/2023 (ETS2-kerfið)

    Seinkað
    Áætlað: september· EES-innleiðing· 24 dögum á eftir áætlun
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Frumvarpið felur í sér innleiðingu nýs ETS-kerfis (ETS2-kerfið) en ETS2-kerfið nær til losunar frá byggingum, vegasamgöngum og smærri iðnaði. Um er að ræða kerfi sem er hliðstætt viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir sem nær til losunar frá flugi, sjóflutningum og staðbundnum iðnaði. Um er að ræða meginstjórntæki ESB á sviði loftslagsmála og er kerfi um losunarheimildir ætlað að mynda hagrænan hvata til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.

    Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, nr. 96/2023 (ETS2-kerfið).

  • Þingsályktunartillaga

    Stefna stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku

    Seinkað
    Áætlað: september· 24 dögum á eftir áætlun
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Lögð verður fram þingsályktunartillaga í samræmi við 39. gr. a raforkulaga, nr. 65/2003, þar sem segir að ráðherra skuli á fjögurra ára fresti leggja fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku. Tillaga að endurskoðaðri stefnu mun að miklu leyti halda samhljómi við gildandi stefnu en með nokkrum áherslubreytingum. Meðal breytinga er aukin áhersla á markmið frekar en aðferðir, aukin áhersla á frumkvæði flutningsfyrirtækisins og tengingu landshluta með styrkingu meginflutningskerfis.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku.

Utanríkisráðherra

2 af 4 komin fram · 1 seinkað

  • Þingsályktunartillaga

    Staðfesting ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 174/2025 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) og nr. 226/2026 um breytingu á bókun 26 (um valdsvið og störf Eftirlitsstofnunar EFTA á sviði ríkisaðstoðar) við EES-samninginn og bókun 3 við samning EFTA-ríkjanna um stofnun eftirlitsstofnunar og dómstóls

    Seinkað
    Áætlað: september· 24 dögum á eftir áætlun
    Hvað stendur í þingmálaskránni?

    Ákvörðun nr. 174/2025: Tilskipun 2012/27/ESB um orkunýtni, breytingu á tilskipunum 2009/125/EB og 2010/30/ESB, og tilskipun (ESB) 2018/2002 um breytingu á tilskipun 2012/27/ESB um orkunýtni. Ákvörðun nr. 226/2026: Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 734/2013 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 659/1999 um ítarlegar reglur um beitingu 93. gr. EB-sáttmálans og reglugerð ráðsins (ESB) 2015/1589 um ítarlegar reglur um beitingu 108. gr. sáttmálans um starfhætti Evrópusambandsins. Aflétting stjórnskipulegs fyrirvara.

    Heiti á skránni: Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 174/2025 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) og nr. 226/2026 um breytingu á bókun 26 (um valdsvið og störf Eftirlitsstofnunar EFTA á sviði ríkisaðstoðar) við EES-samninginn og bókun 3 við samning EFTA-ríkjanna um stofnun eftirlitsstofnunar og dómstóls.

Hvernig er staðan fundin?

Ríkisstjórnin birtir þingmálaskrána á vef Stjórnarráðsins samkvæmt 47. grein þingskapa. Alviti les skrána og parar hvert atriði við þingmálið á Alþingi sem ráðherrann lagði fram, eftir ráðherra, tegund máls og heiti.

  • Samþykkt: Alþingi hefur samþykkt málið.
  • Í vinnslu á Alþingi: Málið er komið fram og er til meðferðar á Alþingi.
  • Seinkað: Áætlaður mánuður er liðinn en málið er ekki komið fram.
  • Ekki komið fram: Málið er ekki komið fram, en áætlaður mánuður er ekki liðinn.
  • Stöðvað: Málið var fellt, vísað frá eða dagaði uppi.

„Seinkað“ þýðir aðeins að áætlaður mánuður er liðinn án þess að málið sé komið fram. Ástæðurnar koma ekki fram í gögnunum, og ríkisstjórnin endurskoðar áætlunina eftir jólahlé. Mál sem ríkisstjórnin leggur fram án þess að þau séu á skránni koma ekki fram hér.

Skráin var síðast lesin 24. október 2026. Staða hvers máls fylgir gögnum Alþingis.

Heimild: Stjórnarráð Íslands, þingmálaskrá ríkisstjórnar · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)