Beint í efni
Alviti
Þingmál158. þing · 155. mál

Varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja

Hvar er málið statt?

Í nefndsíðan 5. okt. 2026

Nefnd Alþingis fer yfir málið, kallar eftir umsögnum og skilar áliti áður en það fer aftur í þingsal.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Niðurstaða

Skráning Alþingis: „Í nefnd eftir 1. umræðu.“

Í stuttu máli

Að innleiða í íslenskan rétt tvær ESB-gerðir um varfærniskröfur og eftirlit með verðbréfafyrirtækjum. Að aðskilja að mestu leyti reglur um verðbréfafyrirtæki frá reglum um banka og aðrar lánastofnanir og laga þær betur að starfsemi og áhættu verðbréfafyrirtækja.

Lagt fram af Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
3. október 2026
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
1 ræður · 2 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 15. okt. 2026

Markmiðið

Að innleiða í íslenskan rétt tvær ESB-gerðir um varfærniskröfur og eftirlit með verðbréfafyrirtækjum. Að aðskilja að mestu leyti reglur um verðbréfafyrirtæki frá reglum um banka og aðrar lánastofnanir og laga þær betur að starfsemi og áhættu verðbréfafyrirtækja.

Hvað breytist

Lagt er til að verðbréfafyrirtæki, sem meðal annars veita fjárfestingarráðgjöf og stýra eignum viðskiptavina, lúti sérstökum lögum um fjárhagslegan styrk, áhættustýringu og eftirlit. Kröfurnar yrðu mismunandi eftir stærð fyrirtækja, starfsemi þeirra og áhættu. Minni fyrirtæki sem uppfylla tiltekin skilyrði kæmu til með að lúta einfaldari reglum en önnur. Jafnframt yrðu gerðar kröfur um eigið fé og lausafé til að mæta áhættu og rekstrarkostnaði. Lágmarksfjármagn sem þarf til að fá starfsleyfi hækkaði og næmi 75.000, 150.000 eða 750.000 evrum eftir því hvaða starfsemi fyrirtækinu er heimilt að stunda.

Um verðbréfafyrirtæki sem falla ekki undir einfaldari reglurnar giltu jafnframt ítarlegri kröfur um stjórnarhætti, innra eftirlit, upplýsingagjöf og starfskjör. Breytileg laun, svo sem árangurstengdir kaupaukar, mættu að hámarki nema 25% af föstum launum þeirra starfsmanna sem reglurnar ná til. Óheimilt yrði að greiða stjórnarmönnum þessara fyrirtækja breytileg laun. Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefði áfram eftirlit með starfseminni.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög. Jafnframt er lagt til að breyta 56 lögum.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Með frumvarpinu er lagt til að reglugerð (ESB) 2019/2033 um varfærniskröfur fyrir verðbréfafyrirtæki og tilskipun (ESB) 2019/2034 um varfærniseftirlit með verðbréfafyrirtækjum verði innleiddar. Reglugerðin kveður meðal annars á um kröfur um eigið fé, lausafé og upplýsingagjöf en tilskipunin tekur til stofnfjár, stjórnarhátta, starfskjara og eftirlits með starfsemi fyrirtækjanna.

Í október 2025 birtu Evrópska bankaeftirlitsstofnunin (EBA) og Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunin (ESMA) sameiginlega skýrslu framkvæmd þessara reglna. Mat stofnananna var að reglurnar hefðu almennt reynst vel en þær lögðu þó til nokkrar úrbætur, meðal annars til að skýra hugtök, bæta reikniaðferðir og efla eftirlit með tilteknum viðmiðunarmörkum. Í skýrslunni er einnig fjallað um eiginfjárkröfur og starfskjör. Tillögurnar voru lagðar fyrir framkvæmdastjórn ESB en fela ekki í sér beinar breytingar á gildandi reglum. Sjá sameiginlega skýrslu EBA og ESMA frá 15. október 2025.

Löggjöf á Norðurlöndum

Í Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð hafa þær ESB-gerðir um eiginfjár- og lausafjárkröfur og eftirlit með verðbréfafyrirtækjum sem frumvarpið byggist á þegar öðlast gildi. Kröfurnar taka mið af starfsemi og áhættu fyrirtækjanna, auk þess sem einfaldari reglur gilda um lítil og ótengd fyrirtæki sem uppfylla tiltekin skilyrði. Í Danmörku er mælt fyrir um þetta í sérstökum lögum um verðbréfafyrirtæki (bekendtgørelse af lov om fondsmæglerselskaber og investeringsservice og -aktiviteter, LBK nr 467 af 26/04/2026, sjá einkum 120., 121. og 124. gr.). Þar er fyrirtækjum sem ekki teljast hvorki lítil né ótengd meðal annars gert að meta hvort þau búi yfir nægilegu eigin fé og lausafé til að mæta áhættu í rekstri sínum. Danska fjármálaeftirlitið getur jafnframt gert auknar kröfur um eigið fé og lausafé að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Í Finnlandi er sambærileg ákvæði að finna í lögum um fjárfestingarþjónustu (lag om investeringstjänster, 747/2012, einkum köflum 6 og 6 c). Þar eru kröfur um stofnfé breytilegar eftir starfsemi fyrirtækjanna og fjármálaeftirlitinu veitt heimild til að gera auknar eiginfjár- og lausafjárkröfur.

Í Svíþjóð er kveðið á um eftirlit með bönkum og verðbréfafyrirtækjum í sama lagabálki en sérstakur kafli geymir ákvæði um eiginfjár- og lausafjárkröfur til verðbréfafyrirtækja. Samkvæmt lögum um sérstakt eftirlit með lánastofnunum og verðbréfafyrirtækjum (lag om särskild tillsyn över kreditinstitut och värdepappersbolag, 2014:968, einkum 1. og 5. gr. í 2. kafla a) getur sænska fjármálaeftirlitið gert auknar eiginfjár- og lausafjárkröfur til verðbréfafyrirtækja vegna áhættu í starfsemi þeirra. Í Noregi gilda hins vegar enn eldri reglur um eigið fé, lausafé og eftirlit með verðbréfafyrirtækjum samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti (lov om verdipapirhandel (verdipapirhandelloven), LOV-2007-06-29-75, einkum 39., 43., 47. og 49. gr. 9. kafla). Breytingarlög (LOV-2026-02-06-3), sem fela í sér innleiðingu evrópsku reglnanna, hafa verið samþykkt en höfðu ekki tekið gildi þegar frumvarpið var lagt fram.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Ragna Sigurðardóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Efnahags- og viðskiptanefnd
sendi 1 umsagnabeiðnir · frestur 20. okt. 2026
Sendu inn umsögn eða erindi
5 aðilar
Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu, ACRO verðbréf hf., Félag um innri endurskoðun, T Plús hf., Arnar Elvarsson · allar umsagnir
Umræða í þingsal
2 mín · 1 ræða
1 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    Umræða 1
    1 ræður · 2 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur 2026-10-20
    1 beiðnir um umsögn

Þingskjöl

1 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
156Stjórnarfrumvarp3. okt. 2026Daði Már KristóferssonLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur5. október 2026 kl. 15:12
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ efnahags- og viðskiptanefnd5. október 2026 kl. 15:12
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

1 ræður · 2 mín
  • 1. umræða: 1 ræða · 1 ræðumenn · 2 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Daði Már KristóferssonUtan þingflokka12 mín

Umsagnir og erindi

5 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 1 umsagnabeiðnir 6. okt. 2026, frestur 20. okt. 2026.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustuumsögnOpna PDF
ACRO verðbréf hf.umsögnOpna PDF
Félag um innri endurskoðunumsögnOpna PDF
T Plús hf.umsögnOpna PDF
Arnar ElvarssonumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)