Húsaleigulög
Reglubundnar breytingar á leigufjárhæð
Hvar er málið statt?
Nefnd Alþingis fer yfir málið, kallar eftir umsögnum og skilar áliti áður en það fer aftur í þingsal.
- Lagt fram
- 1. umræða
- Í nefnd
- 2. umræða
- 3. umræða
- Niðurstaða
Skráning Alþingis: „Í nefnd eftir 1. umræðu.“
Í stuttu máli
Að auka húsnæðisöryggi leigjenda, draga úr vægi verðtryggingar og gera þróun húsaleigu fyrirsjáanlegri með skýrari ákvæðum um reglubundnar breytingar á leigufjárhæð á samningstíma.
Lagt fram af Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra (Flf), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.
- Lagt fram
- 3. október 2026
- Tegund
- Stjórnarmál
- Atkvæðagreiðslur með skrá
- 0
- Umræða í þingsal
- 114 ræður · 6 klst. 16 mín
Málið á mannamáli
Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.
Markmiðið
Að auka húsnæðisöryggi leigjenda, draga úr vægi verðtryggingar og gera þróun húsaleigu fyrirsjáanlegri með skýrari ákvæðum um reglubundnar breytingar á leigufjárhæð á samningstíma.
Hvað breytist
Lagt er til að reglubundnar breytingar á húsaleigu megi aðeins miðast við vísitölu neysluverðs, fyrir fram ákveðið hlutfall eða fasta fjárhæð. Að minnsta kosti 12 mánuðir verði að líða milli slíkra breytinga og hækkun samkvæmt ákveðnu hlutfalli eða fastri fjárhæð megi ekki vera meiri en hækkun vísitölu neysluverðs á sama tímabili. Mánaðarlegar vísitöluhækkanir húsaleigu yrðu því óheimilar.
Áfram mætti, að uppfylltum tilteknum skilyrðum, hækka leigu vegna verulega aukins rekstrarkostnaðar, þar á meðal til viðbótar við reglubundnar hækkanir. Breytingar vegna aðlögunar að markaðsleigu og jöfnunar leiguverðs hjá óhagnaðardrifnum leigufélögum mættu hins vegar ekki bætast við reglubundnar hækkanir.
Reglurnar tækju til leigu íbúðarhúsnæðis, atvinnuhúsnæðis og annars leiguhúsnæðis. Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun yrði falið að birta upplýsingar um markaðsleigu sambærilegra íbúða sem og að útbúa reiknivél og staðlað eyðublað vegna leigubreytinga.
Lög sem breytast
Kostnaður fyrir ríkið
Áhrif á ríkissjóð eru talin takmörkuð og tímabundin og koma einkum fram á árunum 2027 og 2028. Einhver stofnkostnaður kann að falla til vegna þróunar reiknivélar og breytinga á leiguskrá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar en gert er ráð fyrir að honum verði mætt innan núverandi fjárheimilda stofnunarinnar.
Meira úr samantektinni
Samkvæmt leigumarkaðskönnun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar 2026 greiddu um 45% leigjenda meira en 40% ráðstöfunartekna heimilisins í húsaleigu, að öðrum húsnæðiskostnaði frátöldum.
Löggjöf á Norðurlöndum
Í Danmörku er heimilt að semja um árlegar vísitölubreytingar í tilteknum leigusamningum um íbúðarhúsnæði, sbr. húsaleigulög (lov om leje (lejeloven), LOV nr 341 af 22/03/2022). Í Noregi má breyta leigu í samræmi við vísitölu neysluverðs að hámarki einu sinni á ári og aðlaga hana að leiguverði sambærilegs húsnæðis eftir tiltekinn tíma, samkvæmt húsaleigulögum (lov om husleieavtaler (husleieloven), LOV-1999-03-26-17).
Í Finnlandi byggjast leiguhækkanir almennt á umsömdum forsendum og dómstólar geta endurskoðað ósanngjarna leigu, samkvæmt lögum um leigu á íbúðarhúsnæði (lag om hyra av bostadslägenhet, 481/1995). Í Svíþjóð ræst leigufjárhæð almennt af samningum en samkvæmt lögum um útleigu einstaklinga á eigin íbúðarhúsnæði (privatuthyrningslag, 2026:772) má semja um vísitölubreytingar með að minnsta kosti árs millibili. Sérstakar reglur gilda um leigu atvinnuhúsnæðis í löndunum.
Afstaða þingflokkanna
Ragnar Þór IngólfssonFlokkur fólksinsfélags- og húsnæðismálaráðherra
Framsögumaður nefndar: Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir
Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.
„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.
Af hverju skiptir þetta máli?
- Nefndin sem fjallar um málið
- Velferðarnefnd
- sendi 1 umsagnabeiðnir · frestur 22. okt. 2026
- Sendu inn umsögn eða erindi
- 6 aðilar
- SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu, Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík, Brynja leigufélag ses., Seðlabanki Íslands, Félagsstofnun stúdenta, Byggingafélag námsmanna og Félagsstofnun stúdenta Akureyri o.fl. · allar umsagnir
- Umræða í þingsal
- 6 klst. 16 mín · 114 ræður
- 18 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
- Kostnaður fyrir ríkissjóð
- Áhrif á ríkissjóð eru talin takmörkuð og tímabundin og koma einkum fram á árunum 2027 og 2028. Einhver stofnkostnaður kann að falla til vegna þróunar reiknivélar og breytinga á leiguskrá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar en gert er ráð fyrir að honum verði mætt innan núverandi fjárheimilda stofnunarinnar.
- úr samantekt Alþingis
Allt um málið
Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.
Ferill málsins
Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.
- Þingskjal
- UmræðaUmræða 1114 ræður · 6 klst. 16 mín
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- UmsagnirUmsagnabeiðnir sendar, frestur 2026-10-221 beiðnir um umsögn
Þingskjöl
Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.
Allar atkvæðagreiðslur
Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.
- yfirlýsing forseta/mál gengur7. október 2026 kl. 18:07Frumvarp gengur til 2. umræðuEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- yfirlýsing forseta/mál gengur→ velferðarnefnd7. október 2026 kl. 18:07Frumvarp gengur til nefndarEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
Hverjir tóku til máls
- 1. umræða: 114 ræður · 18 ræðumenn · 6 klst. 16 mín
| Þingmaður | Flokkur | Ræður | Ræðutími |
|---|---|---|---|
| Flokkur fólksins | 21 | 44 mín | |
| Sjálfstæðisflokkur | 15 | 37 mín | |
| Sjálfstæðisflokkur | 10 | 37 mín | |
| Sjálfstæðisflokkur | 8 | 27 mín | |
| Miðflokkurinn | 7 | 27 mín | |
| Miðflokkurinn | 5 | 26 mín | |
| Sjálfstæðisflokkur | 5 | 23 mín | |
| Miðflokkurinn | 5 | 22 mín | |
| Framsóknarflokkur | 5 | 21 mín | |
| Framsóknarflokkur | 3 | 20 mín | |
| Miðflokkurinn | 5 | 17 mín | |
| Sjálfstæðisflokkur | 3 | 16 mín | |
| Flokkur fólksins | 8 | 15 mín | |
| Samfylkingin | 5 | 15 mín | |
| Sjálfstæðisflokkur | 1 | 10 mín | |
| Flokkur fólksins | 3 | 7 mín | |
| Samfylkingin | 4 | 6 mín | |
| Sjálfstæðisflokkur | 1 | 5 mín |
Umsagnir og erindi
Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.
Velferðarnefnd sendi 1 umsagnabeiðnir 8. okt. 2026, frestur 22. okt. 2026.
| Hver sendi | Tegund | Barst | Skjal |
|---|---|---|---|
| SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu | umsögn | Opna PDF | |
| Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík | umsögn | Opna PDF | |
| Brynja leigufélag ses. | umsögn | Opna PDF | |
| Seðlabanki Íslands | umsögn | Opna PDF | |
| Félagsstofnun stúdenta, Byggingafélag námsmanna og Félagsstofnun stúdenta Akureyri | umsögn | Opna PDF | |
| BSRB | umsögn | Opna PDF |
Tengd mál
Engin tengd mál skráð.
Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)