Hverju lofaði ríkisstjórnin?
Í upphafi hvers þings birtir ríkisstjórnin lista yfir frumvörpin og tillögurnar sem hún ætlar að leggja fram, og í hvaða mánuði. Hér er fylgst með hverju einasta atriði. Staðan kemur beint úr gögnum Alþingis og uppfærist daglega.
frumvörp og tillögur á þingmálaskrá 158. þing
Af málum sem eru komin fram voru 22 lögð fram í áætluðum mánuði eða fyrr og 11 seinna en áætlað var.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
5 af 18 komin fram · 3 seinkuð
- SamþykktFrumvarp
Breyting á lögum um menningarminjar, nr. 80/2012 (umsagnarskylda)
Áætlað: september· Endurflutt3. mál· Samþykkt· lagt fram 9. sep. 2026Hvað stendur í þingmálaskránni?
Með frumvarpinu er lagt til afnám álitsskyldu sem gildir í dag um hús byggð 1924–1940.
Heiti á skránni: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um menningarminjar, nr. 80/2012 (umsagnarskylda).
Hvernig er staðan fundin?
Ríkisstjórnin birtir þingmálaskrána á vef Stjórnarráðsins samkvæmt 47. grein þingskapa. Alviti les skrána og parar hvert atriði við þingmálið á Alþingi sem ráðherrann lagði fram, eftir ráðherra, tegund máls og heiti.
- Samþykkt: Alþingi hefur samþykkt málið.
- Í vinnslu á Alþingi: Málið er komið fram og er til meðferðar á Alþingi.
- Seinkað: Áætlaður mánuður er liðinn en málið er ekki komið fram.
- Ekki komið fram: Málið er ekki komið fram, en áætlaður mánuður er ekki liðinn.
- Stöðvað: Málið var fellt, vísað frá eða dagaði uppi.
„Seinkað“ þýðir aðeins að áætlaður mánuður er liðinn án þess að málið sé komið fram. Ástæðurnar koma ekki fram í gögnunum, og ríkisstjórnin endurskoðar áætlunina eftir jólahlé. Mál sem ríkisstjórnin leggur fram án þess að þau séu á skránni koma ekki fram hér.
Skráin var síðast lesin 24. október 2026. Staða hvers máls fylgir gögnum Alþingis.
Heimild: Stjórnarráð Íslands, þingmálaskrá ríkisstjórnar · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)