Beint í efni
Alviti
Þingmál158. þing · 77. mál

Búvörusamningar og rekstrarskilyrði landbúnaðar

Fyrirspurn (munnleg)Staða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að uppfæra ákvæði um ársreikninga með því að hækka stærðarviðmið félaga og viðmið endurskoðunarskyldu, lögfesta skyldu tiltekinna stórra fjölþjóðlegra félaga til opinberrar birtingar tekjuskattsupplýsinga og breyta skilafresti ársreikninga. Með frumvarpinu eru jafnframt innleiddar tvær tilskipanir sem teknar hafa verið upp í EES-samninginn.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Fyrirspurn (munnleg)
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
4 ræður · 7 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 24. sep. 2026

Markmiðið

Að uppfæra ákvæði um ársreikninga með því að hækka stærðarviðmið félaga og viðmið endurskoðunarskyldu, lögfesta skyldu tiltekinna stórra fjölþjóðlegra félaga til opinberrar birtingar tekjuskattsupplýsinga og breyta skilafresti ársreikninga. Með frumvarpinu eru jafnframt innleiddar tvær tilskipanir sem teknar hafa verið upp í EES-samninginn.

Hvað breytist

Lagt er til að hækka stærðarmörk félaga samkvæmt lögum um ársreikninga, það er mörk örfélaga, lítilla, meðalstórra og stórra félaga. Mörk fyrir lítil, meðalstór og stór félög hækka almennt um 25%. Gert er ráð fyrir að mörk örfélaga hækki enn frekar: úr 20 milljónum kr. í 50 milljónir kr. miðað við heildareignir og úr 40 milljónum kr. í 100 milljónir kr. miðað við hreina veltu. Fleiri minni félög gætu því nýtt einfölduð rafræn skil þar sem Skatturinn útbýr rekstrar- og efnahagsyfirlit á grundvelli skattframtals í stað hefðbundins ársreiknings. Þó gætu félög með heildareignir yfir 200 milljónir kr. tvö ár í röð ekki nýtt þá einföldun.

Jafnframt er lagt til að mörk fyrir undanþágu frá lögbundinni endurskoðun hækki um 25%, úr 200 milljónum kr. í 250 milljónir kr. miðað við heildareignir og úr 400 milljónum kr. í 500 milljónir kr. miðað við hreina veltu. Undanþágan tæki þó ekki til félaga með að minnsta kosti 1,5 milljarða kr. í heildareignir tvö ár í röð. Þá er lagt til að tilteknum stórum fjölþjóðlegum félögum og samstæðum með yfir 111 milljarða kr. í hreina veltu tvö ár í röð verði gert að birta opinberlega skýrslu með upplýsingum um tekjuskatt. Skyldan gæti einnig náð til tiltekinna dótturfélaga og útibúa þeirra.

Loks er lagt til að skilafrestur ársreikninga verði lagaður að stærð og eðli félaga. Örfélög, lítil og meðalstór félög fengju almennt allt að átta mánuði frá lokum reikningsárs til að skila ársreikningi en örfélög gætu einnig miðað við þann frest sem ríkisskattstjóri veitir til framtalsskila. Skilafrestur stórra félaga yrði sex mánuðir en félög með verðbréf skráð á skipulegum markaði og félög sem beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum fengju fjóra mánuði. Í öllum tilvikum bæri jafnframt að skila ársreikningi eigi síðar en viku eftir að hann hefur verið staðfestur á aðalfundi.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Með frumvarpinu er lagt til að innleiða tvær tilskipanir Evrópusambandsins sem báðar breyta ársreikningatilskipun ESB, tilskipun 2013/34/ESB.

Í framseldri tilskipun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB) 2023/2775 frá 17. október 2023 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/34/ESB (ársreikningatilskipunina) að því er varðar breytingar á stærðarviðmiðum fyrir ör-, lítil, meðalstór og stór fyrirtæki eða samstæður kemur fram að uppsöfnuð verðbólga frá 1. janúar 2013 til 31. mars 2023 hafi verið 24,3% á evrusvæðinu og 27,2% í Evrópusambandinu í heild. Framkvæmdastjórnin taldi því nauðsynlegt að hækka stærðarmörk fyrirtækja um 25%, með viðeigandi námundun, vegna verðbólgu. Tilskipunin breytir viðmiðunarmörkum fyrir örfyrirtæki og lítil, meðalstór og stór fyrirtæki og samstæður.

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/2101 frá 24. nóvember 2021 um breytingu á tilskipun 2013/34/ESB að því er varðar birtingu tiltekinna fyrirtækja og útibúa á upplýsingum um tekjuskatt kveður á um opinbera birtingu tekjuskattsupplýsinga tiltekinna stórra fjölþjóðlegra fyrirtækja. Í tilskipuninni er miðað við 750 milljóna evra tekjumörk í tvö samfelld reikningsár. Skyldan nær einnig, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, til meðalstórra og stórra dótturfélaga og útibúa fyrirtækja utan Evrópusambandsins. Skýrslan skal meðal annars greina frá eðli starfseminnar, fjölda starfsmanna, tekjum, hagnaði eða tapi fyrir tekjuskatt, áföllnum tekjuskatti, greiddum tekjuskatti og óráðstöfuðum hagnaði. Upplýsingar skulu birtar sérstaklega fyrir hvert aðildarríki ESB og tilteknar skattalögsögur en upplýsingar um önnur ríki mega almennt koma fram samanlagðar.

Löggjöf á Norðurlöndum

Á Norðurlöndum byggjast reglur um stærðarflokkun fyrirtækja að verulegu leyti á sameiginlegum reglum ESB og EES en flokkunarkerfi og fjárhæðarmörk eru þó ekki að öllu leyti eins. Í Danmörku, Finnlandi og Noregi er greint á milli nokkurra stærðarflokka samkvæmt dönskum ársreikningalögum (bekendtgørelse af årsregnskabsloven, LBK nr 402 af 23/03/2026), finnskum bókhaldslögum (bokföringslag, 1336/1997) og norskum ársreikningalögum (lov om årsregnskap m.v. (regnskapsloven), LOV-1998-07-17-56). Sænsk ársreikningalög (årsredovisningslag, 1995:1554) greina hins vegar á milli minni og stærri fyrirtækja. Reglur um undanþágu minni félaga frá lögbundinni endurskoðun eru einnig mismunandi. Tiltekin minni félög geta verið undanþegin endurskoðun í öllum ríkjunum fjórum en fjárhæðarmörk og önnur skilyrði eru ólík; sjá meðal annars 135. gr. dönsku ársreikningalaganna, 2. gr. 2. kafla finnsku endurskoðunarlaganna (revisionslag, 1141/2015), 6. gr. 7. kafla norsku hlutafélagalaganna (lov om aksjeselskaper (aksjeloven), LOV-1997-06-13-44) og 1. gr. 9. kafla sænsku hlutafélagalaganna (aktiebolagslag, 2005:551).

Danmörk, Finnland og Svíþjóð hafa jafnframt lögfest reglur um opinbera birtingu tekjuskattsupplýsinga tiltekinna stórra fjölþjóðlegra fyrirtækja og samstæðna í samræmi við tilskipun (ESB) 2021/2101. Í Danmörku er kveðið á um skýrslugjöfina í kafla 18 a. í ársreikningalögum, í Finnlandi í 7 b. kafla bókhaldslaga og í Svíþjóð í lögum um opinbera birtingu tekjuskattsskýrslna tiltekinna stórra fyrirtækja (lag om offentliggörande av vissa stora företags inkomstskatterapporter, 2023:340). Í Noregi var innleiðing samsvarandi reglna enn í undirbúningi þegar frumvarpið var lagt fram.

Skilafrestir ársreikninga eru einnig ólíkir. Í Danmörku er almennur skilafrestur sex mánuðir frá lokum reikningsárs en fjórir mánuðir fyrir félög í reikningsskilaflokki D samkvæmt 138. gr. laga um ársreikninga. Í Finnlandi getur hámarksskilafrestur, miðað við lok reikningsárs, orðið allt að átta mánuðir samkvæmt 3. gr. 5. kafla og 10. gr. 8. kafla hlutafélagalaga (aktiebolagslag, 624/2006). Í Noregi getur hann orðið allt að sjö mánuðir samkvæmt 1. gr. 3. kafla og 2. gr. 8. kafla í lögum um ársreikninga og í Svíþjóð sömuleiðis allt að sjö mánuðir samkvæmt 10. gr. 7. kafla hlutafélagalaga og 3. gr. 8. kafla ársreikningalaga.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Arna Lára Jónsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Efnahags- og viðskiptanefnd
sendi 1 umsagnabeiðnir · frestur 1. okt. 2026
Sendu inn umsögn eða erindi
10 aðilar
Atvinnuvegaráðuneyti, GK endurskoðun ehf., Skatturinn, Endurskoðun BT ehf., Landsvirkjun o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
7 mín · 4 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur 2026-10-01
    1 beiðnir um umsögn
  2. Umræða
    Umræða
    4 ræður · 7 mín

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

4 ræður · 7 mín
  • Umræða: 4 ræður · 2 ræðumenn · 7 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Bergþór ÓlasonMiðflokkurinn24 mín
Hanna Katrín FriðrikssonViðreisn24 mín

Umsagnir og erindi

11 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 1 umsagnabeiðnir 17. sep. 2026, frestur 1. okt. 2026.

Hver sendiTegundBarstSkjal
AtvinnuvegaráðuneytiminnisblaðOpna PDF
GK endurskoðun ehf.viðbótarumsögnOpna PDF
SkatturinnumsögnOpna PDF
Endurskoðun BT ehf.umsögnOpna PDF
LandsvirkjunumsögnOpna PDF
KPMG ehf.umsögnOpna PDF
Samtök atvinnulífsinsumsögnOpna PDF
Félag atvinnurekendaumsögnOpna PDF
Viðskiptaráð ÍslandsumsögnOpna PDF
Félag löggiltra endurskoðendaumsögnOpna PDF
GK endurskoðun ehf.umsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)