Framkvæmd nýs fyrirkomulags jafnlaunamála
Hvar er málið statt?
Fyrirspurnin bíður svars ráðherra.
Skráning Alþingis: „Fyrirspurninni hefur ekki verið svarað.“
Í stuttu máli
Þingmaður spyr ráðherra skriflega og ráðherra svarar skriflega. Fyrirspurn breytir engu ein og sér en dregur fram upplýsingar.
Flutt af Ragnhildur Jónsdóttir (S).
1. Hefur ráðuneytið metið hvort kröfur sem leiðir af reglugerð nr. 946/2026 og framkvæmd hennar séu í samræmi við þau markmið sem lágu að baki breytingum á fyrirkomulagi jafnlaunamála með lögum nr. 53/2026, m.a. hvað varðar einfaldari framkvæmd og minni kostnað og stjórnsýslu fyrir fyrirtæki og stofnanir? Ef svo er, hver var niðurstaða þess mats? 2. Á hvaða lagaheimild byggist sú krafa við framkvæmd reglugerðar nr. 946/2026 að við starfaflokkun séu notuð sömu viðmið og mælikvarðar á öll störf og að atvinnurekandi ákvarði hlutfallslegt vægi einstakra viðmiða? 3. Var lagt mat á kostnað og vinnuframlag sem fyrirtæki og stofnanir þurfa að leggja í starfaflokkun, launagreiningu og eftir atvikum gerð úrbótaáætlunar samkvæmt nýju fyrirkomulagi áður en reglugerð nr. 946/2026 tók gildi? Ef svo er, hver var niðurstaðan og hvernig ber áætlað umfang þeirrar vinnu saman við fyrra fyrirkomulag jafnlaunavottunar og jafnlaunastaðfestingar? 4. Hvaða faglegu og aðferðafræðilegu sjónarmið lágu að baki ákvörðun um 3,9% viðmið í reglugerð nr. 946/2026? Á hvaða forsendum er niðurstaða rannsóknar Hagstofu Íslands á leiðréttum launamun kvenna og karla á vinnumarkaðnum í heild lögð til grundvallar við launagreiningu einstakra fyrirtækja og stofnana þegar aðferðafræði mælinganna er ólík? 5. …
Orðrétt úr þingskjali 201, stytt. Lesa allt skjalið á althingi.is
- Lagt fram
- 8. október 2026
- Tegund
- Fyrirspurn (skrifleg)
- Atkvæðagreiðslur með skrá
- 0
- Umræða í þingsal
- engin enn
Málið á mannamáli
Einföld útskýring er ekki tilbúin fyrir þetta mál. Þegar samantekt Alþingi eða yfirfarin útskýring Alviti liggur fyrir birtist hún hér.
Hvers konar mál er þetta?
Þingmaður spyr ráðherra skriflega og ráðherra svarar skriflega. Fyrirspurn breytir engu ein og sér en dregur fram upplýsingar.
Hvar er hægt að lesa meira?
Þingskjalið sjálft, með greinargerð flutningsmanna, er á vef Alþingi: þskj. 201.
Alviti birtir aðeins útskýringar sem hafa verið yfirfarnar. Þangað til eru staðreyndir úr gögnum Alþingis sýndar óbreyttar.
Afstaða þingflokkanna
Ragnhildur JónsdóttirSjálfstæðisflokkur1. flutningsmaður
Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.
„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.
Allt um málið
Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.
Ferill málsins
Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.
- Þingskjal
Þingskjöl
Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.
Allar atkvæðagreiðslur
Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.
Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.
Hverjir tóku til máls
Engar ræður hafa verið fluttar um málið.
Umsagnir og erindi
Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.
Engar umsagnir hafa borist.
Tengd mál
Engin tengd mál skráð.
Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)