Strandsvæðisskipulag Austfjarða og leyfisveitingar í Seyðisfirði
Hvar er málið statt?
Fyrirspurnin bíður svars ráðherra.
Skráning Alþingis: „Fyrirspurninni hefur ekki verið svarað.“
Í stuttu máli
Þingmaður spyr ráðherra skriflega og ráðherra svarar skriflega. Fyrirspurn breytir engu ein og sér en dregur fram upplýsingar.
Flutt af Halla Hrund Logadóttir (F).
Austfjarða og leyfisveitingar í Seyðisfirði. Frá Höllu Hrund Logadóttur. 1. Hefur nýtt svæðisráð fyrir Austfirði verið skipað í samræmi við 5. gr. laga nr. 88/2018, um skipulag haf- og strandsvæða? Ef svo er ekki, hvenær er fyrirhugað að skipa ráðið og hver er ástæða þess að það hefur ekki verið gert? 2. Hvaða ráðstafanir hefur ráðuneytið gert í tilefni af áliti umboðsmanns Alþingis í máli nr. 12804/2024 og hefur verið lagt mat á hvort tilefni sé til frekari endurskoðunar á strandsvæðisskipulagi Austfjarða vegna þeirra annmarka sem þar voru staðreyndir? 3. Hvaða afmörkun netlaga leggur Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) til grundvallar við meðferð umsókna um byggingarleyfi fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði og á hvaða lagaheimild byggist sú afmörkun? Hefur stofnunin kannað hvort fyrirhuguð mannvirki eða starfsemi falli að einhverju leyti innan netlaga samkvæmt lögum nr. 88/2018? 4. Á hvaða grundvelli hefur HMS metið að eigendur sjávarjarða í Seyðisfirði eigi ekki aðild að byggingarleyfismálum vegna fyrirhugaðs sjókvíaeldis þegar mannvirki eða starfsemi kann að vera innan netlaga viðkomandi jarða eða í næsta nágrenni við þau? 5. Hvaða stjórnvald ber ábyrgð á því að tryggja við leyfisveitingar og eftirlit að fyrirhugað sjókvíaeldi í Seyðisfirði stofni sæstrengnum FARICE-1 ekki í hættu? Hvernig hefur verið brugðist við athugasemdum Farice ehf. um óskýrt regluverk og eftirlit á þessu sviði? 6. …
Orðrétt úr þingskjali 138, stytt. Lesa allt skjalið á althingi.is
- Lagt fram
- 24. september 2026
- Tegund
- Fyrirspurn (skrifleg)
- Atkvæðagreiðslur með skrá
- 0
- Umræða í þingsal
- engin enn
Málið á mannamáli
Einföld útskýring er ekki tilbúin fyrir þetta mál. Þegar samantekt Alþingi eða yfirfarin útskýring Alviti liggur fyrir birtist hún hér.
Hvers konar mál er þetta?
Þingmaður spyr ráðherra skriflega og ráðherra svarar skriflega. Fyrirspurn breytir engu ein og sér en dregur fram upplýsingar.
Hvar er hægt að lesa meira?
Þingskjalið sjálft, með greinargerð flutningsmanna, er á vef Alþingi: þskj. 138.
Alviti birtir aðeins útskýringar sem hafa verið yfirfarnar. Þangað til eru staðreyndir úr gögnum Alþingis sýndar óbreyttar.
Afstaða þingflokkanna
Halla Hrund LogadóttirFramsóknarflokkur1. flutningsmaður
Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.
„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.
Af hverju skiptir þetta máli?
Allt um málið
Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.
Ferill málsins
Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.
- Þingskjal
Þingskjöl
Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.
Allar atkvæðagreiðslur
Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.
Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.
Hverjir tóku til máls
Engar ræður hafa verið fluttar um málið.
Umsagnir og erindi
Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.
| Hver sendi | Tegund | Barst | Skjal |
|---|---|---|---|
| Félags- og húsnæðismálaráðuneyti | tilkynning | Opna PDF |
Tengd mál
Engin tengd mál skráð.
Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)