Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum (markmið, kostnaður o.fl.) og um breytingu á lögum um Vegagerðina, framkvæmdastofnun samgöngumála (umsjón framkvæmda)
Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum (markmið, kostnaður o.fl.) og um breytingu á lögum um Vegagerðina, framkvæmdastofnun samgöngumála (umsjón framkvæmda).
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-258/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 16. janúar 2026
- Umsagnarfresti lýkur · 13 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (3. júlí 2026)
B-liður 3. gr. var styttur, bætt við c-lið 4. gr. að átt sé við áður óbyggð svæði, d-lið 4. gr. breytt, a-liður 8. gr. tekin n út, 2. málsl. 1. mgr. 12. gr. tekinn út.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (13)
- #1Magnús Kristján Guðmundsson
Gott mál. Það þyrfti líka að setja meiri kraft í að klára þetta fyrr en áætlað er.
- #2Svava Björk Jónasdóttir
Með þessari breytingu á lögunum, verður þá heimilaður dvalartími í sumarhúsum á snjóflóðasvæðum sá sami um allt land? Í dag er ósamræmi milli svæða t.d. er heimilt að dvelja í Tungudal í Skutulsfirði frá 15.apríl en í sumarbyggðinni í Súðavík, í næsta firði, má ekki dvelja fyrr en frá 30.apríl.
- #3Ragnar Bragason
Athugasemd vegna reglna um viðveru í húsum á snjóflóðahættusvæðum á Vestfjörðum Með þessari athugasemd vil ég koma á framfæri sjónarmiðum vegna reglna um viðveru í húsum á snjóflóðahættusvæðum á Vestfjörðum, byggðum á persónulegri reynslu minni sem íbúi á skilgreindu dvalarsvæði í Súðavík yfir vor- og sumarmánuði síðustu 26 ár. Í opinberri umræðu hefur komið fram að bann við vetrardvöl í húsum á slíkum svæðum sé ítrekað brotið og að lögregla hafi takmörkuð úrræði til að bregðast við því. Engar sannanir hafa hins vegar verið lagðar fram til stuðnings þessum fullyrðingum og tel ég þær því órök… Lesa alla
Athugasemd vegna reglna um viðveru í húsum á snjóflóðahættusvæðum á Vestfjörðum Með þessari athugasemd vil ég koma á framfæri sjónarmiðum vegna reglna um viðveru í húsum á snjóflóðahættusvæðum á Vestfjörðum, byggðum á persónulegri reynslu minni sem íbúi á skilgreindu dvalarsvæði í Súðavík yfir vor- og sumarmánuði síðustu 26 ár. Í opinberri umræðu hefur komið fram að bann við vetrardvöl í húsum á slíkum svæðum sé ítrekað brotið og að lögregla hafi takmörkuð úrræði til að bregðast við því. Engar sannanir hafa hins vegar verið lagðar fram til stuðnings þessum fullyrðingum og tel ég þær því órökstuddar. Það er eðlilegt og réttlætanlegt að beita viðurlögum, þar á meðal sektum, ef fólk dvelur í húsum utan leyfilegs dvalartíma. Hins vegar er algerlega óásættanlegt að reglur um leyfilegan dvalartíma séu ekki samræmdar milli byggðarlaga sem öll eru skilgreind á snjóflóðahættusvæðum. Sem dæmi má nefna að í Tunguskógi á Ísafirði hefst leyfilegur dvalartími húseigenda 16. apríl, en í Súðavík ekki fyrr en 30. apríl, þrátt fyrir að aðeins séu um 20 km á milli svæðanna. Slíkt misræmi er ómálefnalegt og skapar ójafnræði milli húseigenda við sambærilegar aðstæður. Ekki er samræmi í reglum um árlegan dvalartíma milli byggðarlaga á Vestfjörðum og tel ég að slíkt fyrirkomulag brjóti gegn jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar, sem kveður á um að sambærileg tilvik skuli hljóta sambærilega meðferð. Félag sumarhúsaeigenda í Súðavík hefur síðastliðin átta ár ítrekað óskað eftir því við hlutaðeigandi stjórnvöld að heimilað verði að dvelja í húsum á svæðinu frá 16. apríl, til jafns við eigendur húsa í Tunguskógi á Ísafirði. Það er sérstaklega mikilvægt í ljósi þess að á báðum svæðum hafa fallið snjóflóð sem kostað hafa mannslíf. Að öllu framangreindu virtu er brýnt að samræma reglur um leyfilegan dvalartíma á snjóflóðahættusvæðum á Vestfjörðum, með það að markmiði að tryggja jafnræði, réttaröryggi og skýra stjórnsýslu. Ég tel því mikilvægt að: 1. Samræma leyfilegan dvalartíma fyrir húseigendur á snjóflóðahættusvæðum innan Vestfjarða svo að réttaröryggi og jafnræði sé tryggt. 2. Endurskoða gildistíma dvalartíma í samráði við íbúa og sérfræðinga í snjóflóðamálum til að stuðla að sanngirni og skýrum reglugerðum. Ég hvet ráðuneyti til að taka tillit til þessara atriða við áframhaldandi vinnu og stuðla að slíku samræmi í regluverki. Með vinsemd og virðingu, Ragnar Bragason Aðalgata 26, Súðavík bragasonragnar@gmail.com
- #4Ísafjarðarbær
Umsögn Ísafjarðarbæjar.
- #5Karl Már Einarsson
Athugasemdir við Mál nr. S-258/2025
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.