Beint í efni
Alviti
Þingmál157. þing · 400. mál

Afturköllun alþjóðlegrar verndar

Staða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að setja tímabundnar sérreglur um kosningarrétt og kjörgengi í Grindavíkurbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar árið 2026. Reglurnar eiga að tryggja að Grindvíkingar sem þurft hafa að flytja lögheimili sitt vegna náttúruhamfaranna geti tekið þátt í ákvörðunum um endurreisn samfélagsins.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
1 ræða · 1 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 13. maí 2026

Markmiðið

Að setja tímabundnar sérreglur um kosningarrétt og kjörgengi í Grindavíkurbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar árið 2026. Reglurnar eiga að tryggja að Grindvíkingar sem þurft hafa að flytja lögheimili sitt vegna náttúruhamfaranna geti tekið þátt í ákvörðunum um endurreisn samfélagsins.

Hvað breytist

Lagt er til að þeir sem áttu lögheimili í Grindavíkurbæ 9. nóvember 2023 en hafa flutt lögheimili sitt í annað sveitarfélag hér á landi geti sótt um að vera teknir á kjörskrá í Grindavík fyrir sveitarstjórnarkosningar 2026. Verði frumvarpið að lögum þýðir samþykkt umsókn að viðkomandi kýs í Grindavík en ekki í því sveitarfélagi þar sem lögheimili hans er nú skráð. Jafnframt er gert ráð fyrir að kjörgengi til bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar tengist þessum sérreglum og haldist út kjörtímabilið, óháð lögheimili viðkomandi. Í frumvarpinu er einnig mælt fyrir um að verði dvöl í Grindavíkurbæ eða umferð um sveitarfélagið bönnuð á kjördag fari kosningin engu að síður fram. Kjörstaður yrði þá ákveðinn utan sveitarfélagsins í samráði við landskjörstjórn.

Lög sem breytast

Kosningalög, nr. 112/2021. Sveitarstjórnarlög, nr. 138/2011. Lög um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir teljandi áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur (Grindavíkurnefnd).

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Ásthildur Lóa Þórsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 11. feb. 2026
Sendu inn umsögn eða erindi
1 aðili
Landskjörstjórn · allar umsagnir
Umræða í þingsal
1 mín · 1 ræða
1 þingmaður tók til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir teljandi áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-244/2025· Áform um lagasetningu· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. des. 2025 – 12. des. 2025· 1 umsögn

Áform um lagasetningu vegna sveitarstjórnarkosninga í Grindavík 2026

Áform um breytingu á ýmsum lögum vegna sveitarstjórnarkosninga í Grindavík 2026.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-244/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 12. desember 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (22. september 2026)

Frumvarp til breytinga á kosningalögum var lagt fram á Alþingi 29. janúar 2026 og samþykkt sem lög nr. 13/2026.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
  • #1Gréta Dögg Hjálmarsdóttir

    Það er sjálfsagt að fólk sem ætlar að snúa aftur heim fái að kjósa en hvernig er hægt að tryggja það? Mér finnst glórulaust að fólk sem ætlar ekki heim næstu tvö árin fái að ráða örlögum bæjarins þannig mitt svar er nei. Einungis þeir sem eru með lögheimili í Grindavík eiga að fá að kjósa.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-257/2025· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. des. 2025 – 7. jan. 2026· 1 umsögn

Frumvarp vegna sveitarstjórnarkosninga í Grindavík 2026

Drög að frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum vegna sveitarstjórnarkosninga í Grindavík 2026.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-257/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 7. janúar 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (22. september 2026)

Ein umsögn barst um frumvarpið frá Sveitarfélaginu Vogar. Var frumvarpið lagt fram á Alþingi 29. janúar 2026 og var samþykkt sem lög nr. 13/2026.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umræða
    Umræða
    1 ræða · 1 mín
  2. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 11. febrúar 2026
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

1 ræða · 1 mín
  • Umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 1 mín

Umsagnir og erindi

1 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd sendi 1 umsagnabeiðni 4. feb. 2026, frestur 11. feb. 2026.

Hver sendiTegundBarstSkjal
LandskjörstjórnumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.