Aðgengi að vefsetrum og smáforritum opinberra aðila
Innleidd er tilskipun sem miðar að því að tryggja að vefsetur og smáforrit hins opinbera uppfylli aðgengiskröfur.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-170/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 28. september 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (10. október 2025)
Fjórar umsagnir bárust þar sem áformum var fagnað. Ábendingar sneru að innleiðingu, s.s. samráði, notendaprófunum og skýrri ábyrgð, auk athugasemda um rafræn skilríki. Tekið verður mið af ábendingum við innleiðingu laganna.
- Áform um lagasetningu - að vefsetrum og smáforritum opinberra aðila
- Mat á áhrifum - aðgengi að vefsetrum og smáforritum opinberra aðila
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)
- #1Matthías Matthíasson
Ég fagna þessum áformum fjármála- og efnahagsráðuneytisins um bætt aðgengi mismunandi hópa að rafrænum upplýsinga- og samskiptaveitum hins opinbera. Sérstaklega er mikilvægt að huga að því að ekki hafa öll færi á því að nota snjallsíma og eru þannig í mörgum tilfellum útilokuð frá því að sinna erindum gagnvart opinberum aðilum. Þannig má horfa til þess að allir notendur geti nýtt auðkenningu (t.d. þjónustu Auðkennis sem nú er alfarið í eigu ríkisins) til að fá aðgang að netbanka, vefsíðum Skattsins, vefsíðu Tryggingastofnunar og ekki síst aðgang að vefnum island.is. Til eru lausnir sem hægt er… Lesa alla
Ég fagna þessum áformum fjármála- og efnahagsráðuneytisins um bætt aðgengi mismunandi hópa að rafrænum upplýsinga- og samskiptaveitum hins opinbera. Sérstaklega er mikilvægt að huga að því að ekki hafa öll færi á því að nota snjallsíma og eru þannig í mörgum tilfellum útilokuð frá því að sinna erindum gagnvart opinberum aðilum. Þannig má horfa til þess að allir notendur geti nýtt auðkenningu (t.d. þjónustu Auðkennis sem nú er alfarið í eigu ríkisins) til að fá aðgang að netbanka, vefsíðum Skattsins, vefsíðu Tryggingastofnunar og ekki síst aðgang að vefnum island.is. Til eru lausnir sem hægt er að nota til auðkenningar án þess að þurfa snjallsíma. Þjónustunotendur ættu að hafa aðgang að auðkenniskubbum (USB) sem styðjast við FIDO2 staðal og eru til dæmis með fingrafarsauðkenningu. Þannig gætu einstaklingar með fatlanir eða sem eru í mjög flóknum félagslegum aðstæðum átt lykil hjá aðstoðarmanneskju, t.d. á þjónustumiðstöð og gætu þannig komið á miðstöðina til að sinna sínum erindum. Lykillinn er ekki nothæfur nema viðkomandi einstaklingur leggi til fingrafar en er á sama tíma geymdur á öruggum stað og alltaf tiltækur. Fleiri hópar sem ekki hafa aðgang að eða geta ekki notað snjallsíma myndu hafa gagn af lausn sem þessari.
- #2ÖBÍ réttindasamtök
Góðan daginn, Meðfylgjandi er umsögn ÖBÍ réttindasamtaka.
- #3Barnaheill - Save the Children á Íslandi
Meðfylgjandi er umsögn Barnaheilla - Save the Children á Íslandi
- #4Landssamtökin Þroskahjálp
Meðfylgjandi er umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.