Beint í efni
Alviti
Þingmál157. þing · 230. mál

Staða hafrannsókna

Sérstök umræðaStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að setja sérstök lög um brottfararstöð þar sem útlendingar geta sætt frelsisskerðingu vegna ákvörðunar um að þeir skuli yfirgefa landið eða meðan mál sem getur leitt til slíkrar ákvörðunar er til meðferðar. Að uppfylla Schengen-skuldbindingar Íslands, einkum samkvæmt brottvísunartilskipuninni og skimunarreglugerðinni, og að horfið verði frá vistun útlendinga í fangelsi í þessum tilvikum.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Sérstök umræða
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
13 ræður · 37 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 9. jún. 2026

Markmiðið

Að setja sérstök lög um brottfararstöð þar sem útlendingar geta sætt frelsisskerðingu vegna ákvörðunar um að þeir skuli yfirgefa landið eða meðan mál sem getur leitt til slíkrar ákvörðunar er til meðferðar. Að uppfylla Schengen-skuldbindingar Íslands, einkum samkvæmt brottvísunartilskipuninni og skimunarreglugerðinni, og að horfið verði frá vistun útlendinga í fangelsi í þessum tilvikum.

Hvað breytist

Lagt er til að lögreglustjórinn á Suðurnesjum beri ábyrgð á rekstri brottfararstöðvar, ráði starfsfólk og ákveði hvar útlendingur skuli vistaður. Kveðið er á um upphaf vistunar, skráningu upplýsinga, heilsufarsskoðun, rétt til samskipta við lögmann og aðra, heilbrigðisþjónustu, vistarverur, útiveru, tómstundir og aðbúnað, með sérstakri áherslu á einstaklinga í viðkvæmri stöðu. Í frumvarpinu er jafnframt gert ráð fyrir reglum um takmarkanir á réttindum, líkamsleit og leit í vistarverum, valdbeitingu, agabrot, agaviðurlög, aðskilnað, öryggisklefa, haldlagningu og kæruheimildir. Gert er ráð fyrir að sérreglur gildi um börn og að vistun barns með fjölskyldu sinni verði aðeins heimil þegar brýna nauðsyn ber til, sem síðasta úrræði og í mjög skamman tíma. Þá er lagt til að fylgdarlaus börn verði ekki vistuð á brottfararstöð og að óheimilt verði að beita agaviðurlögum gagnvart börnum eða valdbeitingartækjum þegar barn á í hlut. Með frumvarpinu eru innleiddar tvær Evrópugerðir á sviði Schengen-samstarfsins, tilskipun 2008/115/EB um endursendingu ríkisborgara þriðju ríkja sem dvelja ólöglega í aðildarríkjum og reglugerð (ESB) 2024/1356 um skimun ríkisborgara þriðju ríkja á ytri landamærum.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög en við gildistöku þeirra verða breytingar á lögum um útlendinga, nr. 80/2016, vopnalögum, nr. 16/1998, og lögum um tóbaksvarnir, nr. 6/2002.

Kostnaður fyrir ríkið

Í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2026 er gert ráð fyrir árlegu rekstrarframlagi til brottfararstöðvar að fjárhæð 500 milljónir kr. Gert er ráð fyrir einskiptiskostnaði vegna breytinga á húsnæði en sá kostnaður er ekki fjármagnaður sérstaklega og er ekki styrkhæfur úr landamærasjóði.

Meira úr samantektinni

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/115/EB frá 16. desember 2008 um sameiginlega staðla og málsmeðferð í aðildarríkjunum varðandi endursendingu ríkisborgara þriðju landa sem dvelja þar ólöglega (brottfarartilskipunin).

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1356 frá 14. maí 2024 um innleiðingu skimunar ríkisborgara þriðju landa á ytri landamærunum og um breytingu á reglugerðum (EB) nr. 767/2008, (ESB) 2017/2226, (ESB) 2018/1240 og (ESB) 2019/817 (skimunarreglugerðin).

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk

Bekendtgørelse af udlændingeloven (udlændingeloven) LBK nr 1183 af 25/09/2025.

Sjá einkum 36., 37. gr. og 37. gr. a–e.

Finnland

Utlänningslag 301/2004.

Sjá einkum 117. gr. a, 118.–120. gr., 120. gr. a–b og 121.–129. gr.

Lag om bemötande av utlänningar som tagits i förvar och om förvarsenheter 116/2002.

Noregur

Lov om utlendingers adgang til riket og deres opphold her (utlendingsloven) LOV-2008-05-15-35.

Sjá einkum 106. gr., 106 gr. a–d, 107. gr. og 107 gr. a.

Forskrift om Politiets utlendingsinternat (utlendingsinternatforskriften) FOR-2009-12-23-1890.

Svíþjóð

Utlänningslag (2005:716).

Sjá einkum 10. og 11. kf.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Grímur Grímsson

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 27. nóv. 2025
Sendu inn umsögn eða erindi
33 aðilar
Barnaheill og fleiri, Dómsmálaráðuneytið, Mannréttindafulltrúi Evrópuráðsins, Ungmennaráð Barnaheilla, Ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty International, Ungmennaráð UNICEF á Íslandi, Barna- og fjölskyldustofa o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
37 mín · 13 ræður
9 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2026 er gert ráð fyrir árlegu rekstrarframlagi til brottfararstöðvar að fjárhæð 500 milljónir kr. Gert er ráð fyrir einskiptiskostnaði vegna breytinga á húsnæði en sá kostnaður er ekki fjármagnaður sérstaklega og er ekki styrkhæfur úr landamærasjóði.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Sýna 3 í viðbót

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-138/2025· Áform um lagasetningu· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 22. júl. 2025 – 5. ágú. 2025· 6 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um brottfararstöð

Lagt er til að sett verði lög um vistun útlendinga á brottfararstöð. Þá verði innleidd skimunarreglugerð sem kveði á um skimun ríkisborgara þriðju ríkja á ytri landamærum.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-138/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 5. ágúst 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-193/2025· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 2. okt. 2025 – 16. okt. 2025· 13 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um brottfararstöð

Lagt er til að sett verði lög um vistun útlendinga á brottfararstöð. Þá verði innleidd skimunarreglugerð sem kveði á um skimun ríkisborgara þriðju ríkja á ytri landamærum.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-193/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 16. október 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 13 umsagnir bárust
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (13)
  • #1Landssamtökin Þroskahjálp

    Meðfylgjandi er umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar

  • #2Bjarkarhlíð - miðstöð fyrir þolendur ofbeldis
    Um skimun og þjónustu viðkvæmra einstaklinga. Bjarkarhlíð fagnar yfirlýstum áformum dómsmálaráðherra um að leggja sérstaka áherslu á mansalsmál og skipulagða brotastarfsemi. Bjarkarhlíð hefur væntingar til þess að þessi áhersla skili sér í framkvæmd, bæði þegar kemur að skimun einstaklinga á landamærum og aðbúnaði í móttökumiðstöðvum og brottvísunarbúðum. Ljóst er að stór hluti brotaþola mansals er af erlendu bergi brotinn og lifir í mörgum tilfellum utan hefðbundinna kerfa. Ofbeldi í nánum samböndum er að sama skapi til staðar í öllum samfélögum og eru flóttafólk og farandfólk þar ekki… Lesa alla

    Um skimun og þjónustu viðkvæmra einstaklinga. Bjarkarhlíð fagnar yfirlýstum áformum dómsmálaráðherra um að leggja sérstaka áherslu á mansalsmál og skipulagða brotastarfsemi. Bjarkarhlíð hefur væntingar til þess að þessi áhersla skili sér í framkvæmd, bæði þegar kemur að skimun einstaklinga á landamærum og aðbúnaði í móttökumiðstöðvum og brottvísunarbúðum. Ljóst er að stór hluti brotaþola mansals er af erlendu bergi brotinn og lifir í mörgum tilfellum utan hefðbundinna kerfa. Ofbeldi í nánum samböndum er að sama skapi til staðar í öllum samfélögum og eru flóttafólk og farandfólk þar ekki undanskilin. Mikilvægt er að tryggja að skimun á fólki á landamærum og í móttökumiðstöðvum sé framkvæmd af þjálfuðu og óháðu fagfólki sem hefur færni í að greina viðkvæma stöðu einstaklinga, þar á meðal mögulega þolendur ofbeldis og mansals. Þjálfun starfsfólks þarf að fela í sér skýra verkferla og viðbragðsáætlanir ef grunur vaknar um ofbeldi eða mansal, auk þess sem skilgreina þarf hvaða úrræði taka við og hver ber ábyrgð á næstu skrefum. Eitt af lykilatriðunum er að tryggja að þeir einstaklingar sem stöðvaðir eru á flugvelli eða við landamæri, og ekki geta sannað á sér deili eða eru hugsanlega þolendur mansals, séu ekki vistaðir í lokuðu úrræði. Þeir skulu þess í stað hafa aðgang að móttökumiðstöð í Reykjavík, þar sem hægt er að veita samræmda þjónustu í samstarfi við Bjarkarhlíð og aðra viðeigandi aðila. Reynslan sýnir að ofbeldi innan móttökumiðstöðva og brottvísunarbúða getur átt sér stað, og því er nauðsynlegt að starfsfólk sem þar starfar sé vakandi fyrir einkennum ofbeldis. Viðbrögð við grun um ofbeldi verða að vera skýr og úrræði til staðar. Það má ekki vera svo að hindranir, svo sem mannekla eða úrræðaleysi, komi í veg fyrir að gripið sé til aðgerða. Að loka brotaþola og geranda inni á sama stað getur verið lífshættulegt og skapað óbærilegt ástand fyrir brotaþola. Markmið skimunar þarf fyrst og fremst að vera að aðstoða einstaklinga í viðkvæmri stöðu fremur en að hraða brottvísun. Þá vakna spurningar um ábyrgð íslenska ríkisins á vernd þeirra sem kunna að vera þolendur ofbeldis eða mansals. Samkvæmt 27. gr. skimunarreglugerðar Evrópusambandsins (2024/1356) skulu aðildarríki tryggja að viðeigandi innlendar og alþjóðlegar stofnanir, sem og frjáls félagasamtök, geti tekið þátt í eftirliti með framkvæmd skimunar. Þar sem Bjarkarhlíð fer með hlutverk samhæfingaraðila mansalsmála á Íslandi telur miðstöðin mikilvægt að fá aðkomu að þeirri vinnu. Þá ber að tryggja að rannsókn á mögulegum brotum á grundvallarréttindum fari fram og að kvörtunum sé sinnt á skjótan og viðeigandi hátt, auk þess sem skýrt þarf að liggja fyrir hvert einstaklingar geti leitað með mál sín. Í þessu samhengi vakna eftirfarandi spurningar: • Hver skilgreinir sérstaklega viðkvæma stöðu einstaklinga? • Hver ber ábyrgð á framkvæmd skimunar? • Er unnið eftir samræmdu opinberu tilvísunarkerfi vegna mansalsmála (National Referral Mechanism)? Bjarkarhlíð óskar eftir því að fá að koma formlega að málaflokknum og starfa í nánu samstarfi við þjónustuaðila sem sinna þessum verkefnum. Miðstöðin býr yfir sérþekkingu og reynslu sem getur verið grundvallaratriði í vernd og stuðningi við þolendur. Hjá Bjarkarhlíð starfa sérfræðingar í mansalsmálum sem sinna þjónustu og stuðningi við þolendur ofbeldis og mansals. Mikilvægt er að sú þekking og þau úrræði sem Bjarkarhlíð hefur upp á að bjóða verði nýtt til að tryggja heildstæða, samræmda og mannúðlega þjónustu. f.h. Bjarkahlíðar Jenný Kristín Valberg Teymisstýra

  • #3Samband sveitarfél Suðurnesjum

    Meðfylgjandi er ályktun aðalfundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, sem var samþykkt á aðalfundi S.S.S. þann 4.október s.l. Virðingarfyllst F.h. Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum Berglind Kristinsdóttir/framkvæmdastjóri.

  • #4Stígamót

    Meðfylgjandi er sameiginleg umsögn Stígamóta og Kvennaathvarfsins.

  • #5Unicef Ísland

    Meðfylgjandi er umsögn landsnefndar UNICEF á Íslandi. Virðingarfyllst, Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 27. nóvember 2025
    1 beiðni um umsögn
  2. Umræða
    Umræða
    13 ræður · 37 mín

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

13 ræður · 37 mín
  • Umræða: 13 ræður · 9 ræðumenn · 37 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Hanna Katrín FriðrikssonViðreisn28 mín
Sigurjón ÞórðarsonFlokkur fólksins27 mín
Þórarinn Ingi PéturssonFramsóknarflokkur25 mín
Bergþór ÓlasonMiðflokkurinn25 mín
Jens Garðar HelgasonSjálfstæðisflokkur13 mín
Ingvar ÞóroddssonViðreisn13 mín
Jón GunnarssonSjálfstæðisflokkur12 mín
Arna Lára JónsdóttirSamfylkingin12 mín
Eydís ÁsbjörnsdóttirSamfylkingin12 mín

Umsagnir og erindi

35 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 13. nóv. 2025, frestur 27. nóv. 2025.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Barnaheill og fleiriumsögnOpna PDF
DómsmálaráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Mannréttindafulltrúi EvrópuráðsinsbréfOpna PDF
DómsmálaráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Ungmennaráð Barnaheilla, Ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty International, Ungmennaráð UNICEF á ÍslandiumsögnOpna PDF
Barna- og fjölskyldustofaumsögnOpna PDF
The United Nations High Commissioner for Refugees (UNHCR)umsögnOpna PDF
Umboðsmaður barnaumsögnOpna PDF
Þórhildur Sunna ÆvarsdóttirumsögnOpna PDF
Lögmannafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Alda - félag um sjálfbærni og lýðræðiumsögnOpna PDF
RíkislögreglustjóriumsögnOpna PDF
Lögreglan á SuðurnesjumumsögnOpna PDF
FTA, félag talsmanna umsækjenda um alþjóðlega verndumsögnOpna PDF
ÖBÍ réttindasamtökumsögnOpna PDF
Námsbraut í tómstunda- og félagsmálafræði HÍumsögnOpna PDF
Vinstrihreyfingin - grænt framboðumsögnOpna PDF
Barnaheill - Save the Children á ÍslandiumsögnOpna PDF
Solaris - hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á ÍslandiumsögnOpna PDF
Íslandsdeild Amnesty InternationalumsögnOpna PDF
Alma Mjöll ÓlafsdóttirumsögnOpna PDF
Rauði krossinn á ÍslandiumsögnOpna PDF
ÚtlendingastofnunumsögnOpna PDF
Samtök kvenna af erlendum uppruna á ÍslandiumsögnOpna PDF
UNICEF á ÍslandiumsögnOpna PDF
Samband sveitarfélaga á SuðurnesjumumsögnOpna PDF
Samtökin '78umsögnOpna PDF
Kvenréttindafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Landssamtökin ÞroskahjálpumsögnOpna PDF
Mannréttindastofnun ÍslandsumsögnOpna PDF
Blaðamannafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
No Borders IcelandumsögnOpna PDF
Sara MansourumsögnOpna PDF
Jón Frímann JónssonumsögnOpna PDF
Jón Frímann JónssonumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.