Beint í efni
Alviti
Þingmál152. þing · 593. mál

Sorgarleyfi

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 15. jún. 2022

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að tryggja foreldrum svigrúm til sorgarúrvinnslu í kjölfar barnsmissis og eftir atvikum til að styðja við eftirlifandi systkin við að aðlagast breyttum aðstæðum. Að auka líkur á að foreldrar geti átt farsæla endurkomu á vinnumarkað og geti tekið virkan þátt í samfélaginu að nýju í kjölfar barnsmissis.

Lagt fram af Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra (Vg), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 15. jún. 2022 greiddu 55 atkvæði með og 0 á móti; málið var samþykkt.

Lagt fram
1. apríl 2022
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
6
Umræða í þingsal
18 ræður · 55 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 23. feb. 2023

Markmiðið

Að tryggja foreldrum svigrúm til sorgarúrvinnslu í kjölfar barnsmissis og eftir atvikum til að styðja við eftirlifandi systkin við að aðlagast breyttum aðstæðum. Að auka líkur á að foreldrar geti átt farsæla endurkomu á vinnumarkað og geti tekið virkan þátt í samfélaginu að nýju í kjölfar barnsmissis.

Hvað breytist

Lagt er til að foreldrum verði tryggt svonefnt sorgarleyfi í allt að sex mánuði sem og greiðslur til að koma til móts við tekjutap á umræddu tímabili í tengslum við fjarveru frá vinnumarkaði í kjölfar barnsmissis. Jafnframt er lagt til að tryggja foreldrum utan vinnumarkaðar eða í minna en 25% starfshlutfalli, þ.á.m. námsmönnum, sorgarstyrk verði þeir fyrir barnsmissi. Þá er gert ráð fyrir að réttur foreldra til leyfis frá störfum í þrjá mánuði í kjölfar andvanafæðingar eftir 22 vikna meðgöngu og í tvo mánuði vegna fósturláts eftir 18 vikna meðgöngu samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof verði áfram tryggður í frumvarpinu sem og greiðslur til að koma til móts við tekjutap á umræddu tímabili.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög en við gildistöku þeirra verða breytingar á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020, og lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, nr. 22/2006.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir að árleg fjárhagsáhrif á ríkissjóð verði um 168 milljónir kr. auk þess sem gert er ráð fyrir 6 milljóna kr. einskiptiskostnaði við aðlögun tölvulausna hjá Vinnumálastofnun.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Jódís Skúladóttir

Lokaatkvæðagreiðsla
15. jún. 2022
Samþykkt55 með · 0 á móti
Að samþykkja frumvarpið „Sorgarleyfi“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S15–0
  • F11–0
  • 236–0
  • 436–0
  • Flf4–0
  • Sf6–0
  • V5–0
  • M2–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Velferðarnefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 16. maí 2022
Sendu inn umsögn eða erindi
6 aðilar
Sorgarmiðstöð, félagasamtök, Barnaheill, Krabbameinsfélagið, Landssamtökin Þroskahjálp, Samtök atvinnulífsins o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
55 mín · 18 ræður
11 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir að árleg fjárhagsáhrif á ríkissjóð verði um 168 milljónir kr. auk þess sem gert er ráð fyrir 6 milljóna kr. einskiptiskostnaði við aðlögun tölvulausna hjá Vinnumálastofnun.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 15. júní 2022: 55 með, 0 á móti.

Greiddu atkvæði með6 tóku til máls

49 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna5 tóku til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-118/2021· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. maí 2021 – 4. jún. 2021· 9 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um sorgarleyfi

Félagsmálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um sorgarleyfi.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-118/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 4. júní 2021
  3. Umsagnarfresti lýkur · 9 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (23. ágúst 2022)

Drög að frumvarpinu voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda frá og með 21. maí 2021 og var veittur frestur til og með 4. júní 2021 til að veita umsagnir um frumvarpið (mál nr. S-118/2021). Alls bárust níu umsagnir um frumvarpið með framangreindum hætti og var litið til þeirra við endanlegan frágang frumvarpsins eftir því sem unnt þótti. Máli þessu lauk með framlagningu frumvarps á 152. löggjafarþingi, þar sem það var samþykkt.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (9)
  • #1Birgir Sigmundsson
    Undirritaður mælir eindregið með því að þetta mál nái fram að ganga og verði að lögum. Tvisvar sinnum höfum við hjónin orðið fyrir þeirri sáru reynslu að missa barn, í báðum tilvikum fáum dögum eftir fæðingu. Það er langt um liðið, því fyrra barnið okkar misstum við 1975, aðeins 15 daga gamalt - en síðara barnið misstum við 1979, aðeins 4ra daga gamalt. Á þessum árum var ekki annað í boði en halda áfram daglegu lífi, þ.m.t. að mæta til vinnu, hvað sem liði persónulegum erfiðleikum - og reyndar datt engum neitt annað í hug. Sjálfur mætti ég til vinnu án nokkurrar “frítöku”, ef frá er ta… Lesa alla

    Undirritaður mælir eindregið með því að þetta mál nái fram að ganga og verði að lögum. Tvisvar sinnum höfum við hjónin orðið fyrir þeirri sáru reynslu að missa barn, í báðum tilvikum fáum dögum eftir fæðingu. Það er langt um liðið, því fyrra barnið okkar misstum við 1975, aðeins 15 daga gamalt - en síðara barnið misstum við 1979, aðeins 4ra daga gamalt. Á þessum árum var ekki annað í boði en halda áfram daglegu lífi, þ.m.t. að mæta til vinnu, hvað sem liði persónulegum erfiðleikum - og reyndar datt engum neitt annað í hug. Sjálfur mætti ég til vinnu án nokkurrar “frítöku”, ef frá er talinn einn dagur í tvígang, til að jarða börnin mín. Konan mín fór í keisaraskurð í báðum tilvikum og hennar eina “frí”, eftir að missa nýfædd börnin sín, var sá tími sem það tók hana að jafna sig líkamlega eftir keisaraskurðinn. Á þessum árum var heldur ekki um að ræða neinskonar áfallahjálp, frá öðrum en nánustu fjölskyldu. Ekki hafði neinn úr “kerfinu” samband, enda tíðkaðist slíkt ekki, sem hefur þó vonandi breyst mikið á síðari árum. Enn í dag höfum við ekki unnið að öllu leyti úr þessum áföllum, þó liðin séu 42 og 46 ár - en lært að lifa með þessu. Fyrstu vikurnar og mánuðirnir eftir að við misstum börnin okkar, var erfiðasti tíminn, því það að halda áfram daglegu lífi, mæta til vinnu og vera “eðlileg” - var stundum skelfilega erfitt. Af þessum sökum fögnum við þessu frumvarpi og vitum af biturri reynslu, að þetta mun auðvelda þeim sem verða fyrir áföllum af þessu tagi, að ná áttum og öðlast þrek til að halda lífi sínu áfram.

  • #2Krabbameinsfélag Íslands
    Krabbameinsfélagið fagnar framkomnu frumvarpi til laga um sorgarleyfi. Frumvarpið er mjög gott fyrsta skref í átt að því að viðurkenna mikilvægi sorgarúrvinnslu og það álag sem því fylgir fyrir fjölskyldur að missa barn. Fyrir utan mikilvægi sorgarúrvinnslu foreldranna er eitt af markmiðum laganna að auðvelda foreldrum að styðja við eftirlifandi systkini við að aðlagast breyttum aðstæðum. Frumvarpið er gott fyrsta skref en nauðsynlegt er að það nái líka til fleiri fjölskyldna. Krabbameinsfélagið bendir á að á hverju ári missa um 100 börn foreldri hér á landi. Um 40% foreldranna deyja úr il… Lesa alla

    Krabbameinsfélagið fagnar framkomnu frumvarpi til laga um sorgarleyfi. Frumvarpið er mjög gott fyrsta skref í átt að því að viðurkenna mikilvægi sorgarúrvinnslu og það álag sem því fylgir fyrir fjölskyldur að missa barn. Fyrir utan mikilvægi sorgarúrvinnslu foreldranna er eitt af markmiðum laganna að auðvelda foreldrum að styðja við eftirlifandi systkini við að aðlagast breyttum aðstæðum. Frumvarpið er gott fyrsta skref en nauðsynlegt er að það nái líka til fleiri fjölskyldna. Krabbameinsfélagið bendir á að á hverju ári missa um 100 börn foreldri hér á landi. Um 40% foreldranna deyja úr illkynja sjúkdómum. Sorgarleyfi fyrir eftirlifandi foreldra, meðal annars til að styðja við börnin, getur skipt sköpum. Fulltrúar Krabbameinsfélagsins veita fúslega frekari upplýsingar varðandi þessi mál. Fyrir hönd Krabbameinsfélags Íslands Halla Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri

  • #3Sorgarmiðstöð, félagasamtök

    Sorgarmiðstöð fagnar fram komnu frumvarpi til laga um sorgarleyfi og hvetur til þess að það verði samþykkt sem lög frá Alþingi. Frumvarpið boðar góða réttarbót fyrir foreldra sem missa börn. Verði það að lögum fæst einnig mikilvæg staðfesting á vægi sorgarúrvinnslu fyrir heilsu og velferð aðstandenda.  Sorgarmiðstöð hvetur til þess að jafnhliða verði hafinn undirbúningur að næsta skrefi sem yrði frumvarp til breytinga á lögum um sorgarleyfi, með það að markmiði að færa einstaklingum sem missa maka frá ungum börnum, sambærilega réttarbót. Sjá nánar í fylgiskjali

  • #4Landssamtökin Þroskahjálp

    Sjá umsögn í viðhengi

  • #5Alþýðusamband Íslands

    Meðfylgjandi er umsögn ASÍ

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    15 ræður · 49 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 16. maí 2022
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Umræða
    2. umræða
    2 ræður · 5 mín
  8. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 56 með, 0 á móti
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 55 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 56 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 56 með, 0 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 56 með, 0 á móti
  13. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  14. Þingskjal
  15. Umræða
    3. umræða
    1 ræða · 1 mín
  16. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 55 með, 0 á móti
  17. Þingskjal

Þingskjöl

4 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
835Stjórnarfrumvarp1. apr. 2022Guðmundur Ingi GuðbrandssonLesaPDF
1204Nál. með brtt.11. jún. 2022Líneik Anna Sævarsdóttir, Ásmundur Friðriksson +7LesaPDF
1309Frumvarp eftir 2. umræðu15. jún. 2022—LesaPDF
1386Lög (samhlj.)15. jún. 2022—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

9 alls · 6 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur29. apríl 2022 kl. 14:55
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ velferðarnefnd29. apríl 2022 kl. 14:55
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt15. júní 2022 kl. 12:48
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Sorgarleyfi“.
    1. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:11 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:4 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:5 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt15. júní 2022 kl. 12:48
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Sorgarleyfi“.
    2.--13. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:10 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:4 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:5 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt15. júní 2022 kl. 12:48
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Sorgarleyfi“.
    1--5
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:11 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:4 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:5 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt15. júní 2022 kl. 12:49
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Sorgarleyfi“.
    14.--38. gr., svo breyttar,
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:11 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:4 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:5 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt15. júní 2022 kl. 12:49
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Sorgarleyfi“.
    6 (nýtt ákv. til brb.)
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:11 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:4 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:5 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:2 með · 0 á móti
  • yfirlýsing forseta/mál gengur15. júní 2022 kl. 12:49
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt15. júní 2022 kl. 22:24
    Að samþykkja frumvarpið „Sorgarleyfi“ sem lög.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:11 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:4 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:5 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:2 með · 0 á móti

Hverjir tóku til máls

18 ræður · 55 mín
  • 1. umræða: 15 ræður · 9 ræðumenn · 49 mín
  • 2. umræða: 2 ræður · 2 ræðumenn · 5 mín
  • 3. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 1 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Guðmundur Ingi GuðbrandssonUtan þingflokka614 mín
Eva Sjöfn HelgadóttirUtan þingflokka19 mín
Bryndís HaraldsdóttirSjálfstæðisflokkur16 mín
Hildur SverrisdóttirSjálfstæðisflokkur15 mín
Lilja Rafney MagnúsdóttirUtan þingflokka14 mín
Eyjólfur ÁrmannssonFlokkur fólksins24 mín
Guðrún HafsteinsdóttirSjálfstæðisflokkur14 mín
Þorbjörg Sigríður GunnlaugsdóttirViðreisn24 mín
Orri Páll JóhannssonUtan þingflokka13 mín
Guðný Birna GuðmundsdóttirSamfylkingin11 mín
Helga ÞórðardóttirFlokkur fólksins11 mín

Umsagnir og erindi

6 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Velferðarnefnd sendi 1 umsagnabeiðni 2. maí 2022, frestur 16. maí 2022.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Sorgarmiðstöð, félagasamtökumsögnOpna PDF
BarnaheillumsögnOpna PDF
KrabbameinsfélagiðumsögnOpna PDF
Landssamtökin ÞroskahjálpumsögnOpna PDF
Samtök atvinnulífsinsumsögnOpna PDF
BSRBumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.