Starfskjaralög
Hvar er málið statt?
Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.
- Lagt fram
- 1. umræða
- Í nefnd
- 2. umræða
- 3. umræða
- Dagaði uppi
Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 152. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“
Í stuttu máli
Að tryggja að laun og önnur starfskjör launamanna á innlendum vinnumarkaði séu í samræmi við ákvæði laga, reglugerða og kjarasamninga á vinnumarkaði hér á landi á hverjum tíma.
Lagt fram af Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra (Vg), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.
- Lagt fram
- 1. apríl 2022
- Tegund
- Stjórnarmál
- Atkvæðagreiðslur með skrá
- 0
- Umræða í þingsal
- 17 ræður · 55 mín
Málið á mannamáli
Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.
Markmiðið
Að tryggja að laun og önnur starfskjör launamanna á innlendum vinnumarkaði séu í samræmi við ákvæði laga, reglugerða og kjarasamninga á vinnumarkaði hér á landi á hverjum tíma.
Hvað breytist
Megintilgangur frumvarpsins er að koma til framkvæmda þeim aðgerðum stjórnvalda í tengslum við lífskjarasamninga á almennum vinnumarkaði vorið 2019 sem falla undir málefnasvið félags- og vinnumarkaðsráðherra og lúta að vinnumarkaði. Með frumvarpinu er jafnframt stefnt að því að skýra leikreglur á vinnumarkaði, m.a. í því skyni að sporna gegn félagslegum undirboðum og brotastarfsemi og er frumvarpinu þannig ætlað að bregðast við auknum vanda hvað það varðar á innlendum vinnumarkaði.
Lög sem breytast
Um er að ræða ný lög og við gildistöku þeirra falla úr gildi lög um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, nr. 55/1980. Við gildistöku laganna verða jafnframt breytingar á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, nr. 46/1980, lögum um útsenda starfsmenn og skyldur erlendra þjónustuveitenda, nr. 45/2007, lögum um starfsmannaleigur, nr. 139/2005, og lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006.
Kostnaður fyrir ríkið
Gert er ráð fyrir að árleg fjárhagsáhrif á ríkissjóð verði 175,7 milljónir kr. Þá er gert ráð fyrir 76 milljóna kr. einskiptiskostnaði vegna hugbúnaðargerðar hjá Vinnumálastofnun í tengslum við aukið eftirlit stofnunarinnar á vinnumarkaði.
Meira úr samantektinni
Skýrsla samstarfshóps Félags- og barnamálaráðherra um félagsleg undirboð og brotastarfsemi á vinnumarkaði. Félagsmálaráðuneytið, janúar 2019.
Stuðningur stjórnvalda við lífskjarasamninga. Forsætisráðuneytið, 3. apríl 2019.
Afstaða þingflokkanna
Guðmundur Ingi GuðbrandssonUtan þingflokkafélags- og vinnumarkaðsráðherra
Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.
„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.
Af hverju skiptir þetta máli?
Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.
- Nefndin sem fjallar um málið
- Velferðarnefnd
- sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 1. jún. 2022
- Sendu inn umsögn eða erindi
- 7 aðilar
- Ríkislögreglustjóri, Félag atvinnurekenda, Bandalag háskólamanna, Samtök atvinnulífsins, BSRB o.fl. · allar umsagnir
- Umræða í þingsal
- 55 mín · 17 ræður
- 5 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
- Kostnaður fyrir ríkissjóð
- Gert er ráð fyrir að árleg fjárhagsáhrif á ríkissjóð verði 175,7 milljónir kr. Þá er gert ráð fyrir 76 milljóna kr. einskiptiskostnaði vegna hugbúnaðargerðar hjá Vinnumálastofnun í tengslum við aukið eftirlit stofnunarinnar á vinnumarkaði.
- úr samantekt Alþingis
Orð og atkvæði
Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.
Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.
Jóhann Páll JóhannssonSamfylkingin2 ræður · 5 andsvör · 19 mín
Guðmundur Ingi GuðbrandssonÞingflokkur 232 ræður · 2 andsvör · 17 mín
Guðrún HafsteinsdóttirSjálfstæðisflokkur1 ræða · 3 andsvör · 10 mín
Oddný G. HarðardóttirSamfylkingin1 ræða · 6 mín
Halldór Auðar SvanssonÞingflokkur 431 ræða · 4 mín
Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.
Allt um málið
Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.
Ferill málsins
Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.
- Þingskjal
- Umræða1. umræða17 ræður · 55 mín
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- UmsagnirUmsagnabeiðnir sendar, frestur til 1. júní 20221 beiðni um umsögn
Þingskjöl
Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.
Allar atkvæðagreiðslur
Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.
- yfirlýsing forseta/mál gengur16. maí 2022 kl. 18:30Frumvarp gengur til 2. umræðuEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- yfirlýsing forseta/mál gengur→ velferðarnefnd16. maí 2022 kl. 18:30Frumvarp gengur til nefndarEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
Hverjir tóku til máls
- 1. umræða: 17 ræður · 5 ræðumenn · 55 mín
| Þingmaður | Flokkur | Ræður | Ræðutími |
|---|---|---|---|
| Utan þingflokka | 4 | 17 mín | |
| Samfylkingin | 7 | 19 mín | |
| Samfylkingin | 1 | 6 mín | |
| Sjálfstæðisflokkur | 4 | 10 mín | |
| Utan þingflokka | 1 | 4 mín |
Umsagnir og erindi
Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.
Velferðarnefnd sendi 1 umsagnabeiðni 18. maí 2022, frestur 1. jún. 2022.
| Hver sendi | Tegund | Barst | Skjal |
|---|---|---|---|
| Ríkislögreglustjóri | umsögn | Opna PDF | |
| Félag atvinnurekenda | umsögn | Opna PDF | |
| Bandalag háskólamanna | umsögn | Opna PDF | |
| Samtök atvinnulífsins | umsögn | Opna PDF | |
| BSRB | umsögn | Opna PDF | |
| Alþýðusamband Íslands (ASÍ) | umsögn | Opna PDF | |
| Skatturinn | umsögn | Opna PDF |
Tengd mál
Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)