Beint í efni
Alviti
Þingmál152. þing · 586. mál

Óundirbúinn fyrirspurnatími

Óundirbúinn fyrirspurnatímiStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að tryggja að gildandi lög nái því meginmarkmiði sínu að skráningu raunverulegra eigenda verði komið í viðunandi horf til að draga úr hættu á peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Óundirbúinn fyrirspurnatími
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
engin enn

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 29. sep. 2022

Markmiðið

Að tryggja að gildandi lög nái því meginmarkmiði sínu að skráningu raunverulegra eigenda verði komið í viðunandi horf til að draga úr hættu á peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Hvað breytist

Lagt er til að tvö ný bráðabirgðaákvæði bætist við lögin þar sem kveðið verði á um sérstök úrræði til að koma fram skiptum eða slitum á lögaðilum sem er skylt að tilkynna um raunverulega eigendur sína til fyrirtækjaskrár samkvæmt lögunum en hafa ekki sinnt þeirri skyldu.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Undirbúningur og framkvæmd krefst tveggja til þriggja starfsmanna í fullu starfi auk aðkomu fleiri sérfræðinga eftir þörfum. Gert var ráð fyrir þessum kostnaði í fjármálaáætlun fyrir árin 2021–2025 og í fjárlögum fyrir árið 2021 var gert ráð fyrir að ríkisskattstjóri fengi tímabundið 50 milljóna kr. framlag og gert var ráð fyrir 30 milljóna kr. framlagi í fjárlögum fyrir árið 2022, á málefnasviði 5, til að sinna þessum verkefnum. Beinn kostnaður ríkissjóðs vegna skiptatrygginga fer eftir ákvörðun dómstóla hverju sinni og kostnaður vegna beiðna til héraðsdóms um slit eða skipti fer eftir lögum um aukatekjur ríkissjóðs. Í fjárlögum fyrir árið 2022 er gert ráð fyrir, á málefnasviði 5, að Skatturinn fái tímabundið 140 milljóna kr. framlag til að standa straum af kostnaði við skiptatryggingu þar sem fara þarf með lögaðila í skipti skv. 17. gr. laganna. Þá er gert ráð fyrir tímabundnum kostnaði vegna slita- og skiptameðferðar hjá héraðsdómstólunum og í fjárlögum fyrir árið 2022 er gert ráð fyrir 30 milljóna kr. framlagi til þeirra á árinu 2022, á málefnasviði 2, til að standa straum af þeim kostnaði.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Ágúst Bjarni Garðarsson

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Efnahags- og viðskiptanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 1. jún. 2022
Sendu inn umsögn eða erindi
1 aðili
Samtök fjármálafyrirtækja · allar umsagnir
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Undirbúningur og framkvæmd krefst tveggja til þriggja starfsmanna í fullu starfi auk aðkomu fleiri sérfræðinga eftir þörfum. Gert var ráð fyrir þessum kostnaði í fjármálaáætlun fyrir árin 2021–2025 og í fjárlögum fyrir árið 2021 var gert ráð fyrir að ríkisskattstjóri fengi tímabundið 50 milljóna kr. framlag og gert var ráð fyrir 30 milljóna kr. framlagi í fjárlögum fyrir árið 2022, á málefnasviði 5, til að sinna þessum verkefnum. Beinn kostnaður ríkissjóðs vegna skiptatrygginga fer eftir ákvörðun dómstóla hverju sinni og kostnaður vegna beiðna til héraðsdóms um slit eða skipti fer eftir lögum um aukatekjur ríkissjóðs. Í fjárlögum fyrir árið 2022 er gert ráð fyrir, á málefnasviði 5, að Skatturinn fái tímabundið 140 milljóna kr. framlag til að standa straum af kostnaði við skiptatryggingu þar sem fara þarf með lögaðila í skipti skv. 17. gr. laganna. Þá er gert ráð fyrir tímabundnum kostnaði vegna slita- og skiptameðferðar hjá héraðsdómstólunum og í fjárlögum fyrir árið 2022 er gert ráð fyrir 30 milljóna kr. framlagi til þeirra á árinu 2022, á málefnasviði 2, til að standa straum af þeim kostnaði.
úr samantekt Alþingis

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-61/2022· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. mar. 2022 – 24. mar. 2022· 2 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um skráningu raunverulegra eigenda, nr. 82/2019

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum nr. 82/2019 en tillögurnar fela í sér sérstök úrræði til að koma fram skiptum eða slitum á lögaðilum sem ekki hafa sinnt skráningarskyldu skv. lögunum

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-61/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 24. mars 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (11. apríl 2022)

Frumvarpsdrögin voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda 11. - 24. mars 2022. Tvær umsagnir bárust um frumvarpið. Umfjöllun um umsagnirnar og viðbrögð við þeim má finna í samráðskafla frumvarpsins. Frumvarpið hefur verið lagt fram á Alþingi (586. þingmál á 152. löggjafarþingi), sjá nánar um þinglega meðferð málsins á vef Alþingis: https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/?ltg=152&mnr=586

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
  • #1Valdimar Össurarson
    Ég legg hér með inn umsögn varðandi breytingu á lögum um "raunverulega eigendur". Ég geri athugasemd við það að breytingartillagan sem hér um ræðir nær ekki að bæta úr helsta galla laganna; þannig að þau samræmist öðrum gildandi lögum. Með lögunum er forráðamönnum lögaðila gert skylt að skrá sig sem eigendur þeirra, hvort sem þeir eru það raunverulega eða ekki. Þannig er þeim sem kosinn hefur verið til formennsku í t.d. áhugamannafélagi gert skylt að sölsa undir sig eignir félagsins, þó hann eigi ekkert tilkall til þeirra fremur en aðrir félagsmenn. Þetta stangast algerlega á við eignarrét… Lesa alla

    Ég legg hér með inn umsögn varðandi breytingu á lögum um "raunverulega eigendur". Ég geri athugasemd við það að breytingartillagan sem hér um ræðir nær ekki að bæta úr helsta galla laganna; þannig að þau samræmist öðrum gildandi lögum. Með lögunum er forráðamönnum lögaðila gert skylt að skrá sig sem eigendur þeirra, hvort sem þeir eru það raunverulega eða ekki. Þannig er þeim sem kosinn hefur verið til formennsku í t.d. áhugamannafélagi gert skylt að sölsa undir sig eignir félagsins, þó hann eigi ekkert tilkall til þeirra fremur en aðrir félagsmenn. Þetta stangast algerlega á við eignarrétt, eins og hann er skilgreindur í lögum. Fallist forráðamaðurinn ekki á þessa ólöglegu eignaupptöku er honum hótað dagsektum og aðför. Með þessu er brotin meðalhófsregla stjórnsýslulaga; enda er ekkert sem réttlætir slíka óhóflega valdbeitingu, hvað sem líður samþykktum Evrópusambandsins. Þessi óskapnaður gengur einnig gegn þriðju lögunum sem Alþingi ber að virða; lögum um íslenska tungu. Til að taka af öll tvímæli í þessum efnum leitaði ég álits þeirrar stofnunar sem gleggst veit um meðferð íslensks máls; Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Meðfylgjandi er svar málfarssérfræðings Árnastofnunar, sem staðfestir minn skilning varðandi þessi ólög. Sjálfur er ég forráðamaður einkahlutafélags og gat með góðri samvisku játast undir eignarhald á því. Öðru máli gegndi um áhugamannasamtök sem ég er formaður fyrir. Ég neitaði að sölsa undir mig það félag með því að skrá mig "raunverulegan eiganda" þess. Mér var þá hótað dagsektum og einhverju verra, en gaf ekki eftir. Um það samdist loks milli mín og skattyfirvalda að ég mætti undirrita með mínum fyrirvörum; sem ég gerði. Ég vil þó nota tækifærið hér og mótmæla því harðlega að vera þannig þvingaður til lögbrota vegna gallaðrar lagasetningar frá Alþingi. Auðveldlega má ná tilgangi laganna án þess að níðast með þessum hætti á íslensku máli, með því að nota orðið "forráðamaður" eða "forsvarsmaður" í stað "eigandi", þar sem um er að ræða lögaðila í dreifðri eignaraðild. Ég skora því á Alþingi að gera úrbætur í þá veru á þessum lögum; jafnvel þó slíkt sé ekki efni þeirra breytinga sem hér standa til. Jafnframt skora ég á Alþingi að vanda til alls málfars í lagasetningu. Bregðist Alþingi þeirri skyldu sinni að standa vörð um íslenska tungu og íslenskan málskilning er engin von til að almenningur geri betur. Hnignun íslenskrar tungu er um leið hnignun sjálfstæðis þjóðarinnar. Meðfylgjandi eru bréfaskriftir mínar við sérfræðing Árnastofnunar frá 2020, ofanrituðu til staðfestu.

  • #2Samtök fjármálafyrirtækja

    Góðan dag. Meðfylgjandi er umsögn Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF). Virðingarfyllst, F.h. SFF Margrét A. Jónsdóttir, lögfræðingur

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 1. júní 2022
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

Engar ræður hafa verið fluttar um málið.

Umsagnir og erindi

1 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 25. maí 2022, frestur 1. jún. 2022.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Samtök fjármálafyrirtækjaumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.