Beint í efni
Alviti
Þingmál152. þing · 585. mál

Hlutafélög o.fl.

Hluthafafundir o.fl

LagafrumvarpDagaði uppiViðskipti

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 24. maí 2022

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 152. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að auka svigrúm við undirbúning hluthafafunda. Að binda formlegan endi á tilvist félags sem hefur verið afskráð samkvæmt reglum laganna. Að auka skilvirkni og hagkvæmni.

Lagt fram af Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra (F), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
1. apríl 2022
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
5 ræður · 21 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 29. sep. 2022

Markmiðið

Að auka svigrúm við undirbúning hluthafafunda. Að binda formlegan endi á tilvist félags sem hefur verið afskráð samkvæmt reglum laganna. Að auka skilvirkni og hagkvæmni.

Hvað breytist

Lagðar eru til breytingar á lögum um hlutafélög þar sem félögum þar sem hlutir hafa verið teknir til viðskipta á skipulegum markaði er heimilað að ákveða í samþykktum sínum tiltekin atriði er varða hluthafafundi, þ.m.t. aðalfundi. Þá eru lagðar til breytingar á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög þess efnis að þegar um er að ræða félag sem þegar hefur verið afskráð samkvæmt heimild í lögunum þá sé hlutafélagaskrá heimilt að krefjast skipta á félaginu að liðnu ári frá afskráningu enda hafi þá ekki borist beiðni um að félagið verði skráð á nýjan leik. Enn fremur eru lagðar til nokkrar breytingar á lögum um ársreikninga, s.s. að ársreikningum skuli skila á rafrænu formi.

Lög sem breytast

Lög um hlutafélög, nr. 2/1995. Lög um einkahlutafélög, nr. 138/1994. Lög um ársreikninga, nr. 3/2006.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir verulegum áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk

Bekendtgørelse af lov om aktie- og anpartsselskaber (selskabsloven) LBK nr 1952 af 11/10/2021.

Finnland

Aktiebolagslag 21.7.2006/624.

Noregur

Lov om allmennaksjeselskaper (allmennaksjeloven) LOV-1997-06-13-45.

Svíþjóð

Aktiebolagslag ( 2005:551).

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Efnahags- og viðskiptanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 1. jún. 2022
Sendu inn umsögn eða erindi
1 aðili
Samtök fjármálafyrirtækja og Samtök atvinnulífsins · allar umsagnir
Umræða í þingsal
21 mín · 5 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir verulegum áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    5 ræður · 21 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 1. júní 2022
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
827Stjórnarfrumvarp1. apr. 2022Lilja AlfreðsdóttirLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur24. maí 2022 kl. 18:47
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ efnahags- og viðskiptanefnd24. maí 2022 kl. 18:47
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

5 ræður · 21 mín
  • 1. umræða: 5 ræður · 2 ræðumenn · 21 mín

Umsagnir og erindi

1 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 25. maí 2022, frestur 1. jún. 2022.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Samtök fjármálafyrirtækja og Samtök atvinnulífsinsumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)