Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála og lögum um fullnustu refsinga (réttarstaða brotaþola, fatlaðs fólks og aðstandenda)
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á nokkrum ákvæðum laga með það að markmiði að styrkja réttarstöðu brotaþola, fatlaðra og aðstandenda látinna einstaklinga.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-50/2022)
- Umsagnarfrestur hefst · til 14. mars 2022
- Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (7. júní 2022)
Alls bárust 5 umsagnir um frumvarpið við kynningu í samráðsgátt. Umsögn Lögmannafélag Íslands leiddi til breytinga á 2. gr. og 18. gr. frumvarpsins en aðrar breytingar voru ekki gerðar. Ítarlega er farið yfir umsagnir og viðbrögð við þeim í frumvarpi sem lagt fram á Alþingi.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)
- #1Landssamtökin Þroskahjálp
Umsögn Þroskahjálpar er hér í viðhengi
- #2Hildur Fjóla Antonsdóttir
Sjá umsögn í viðhengi.
- #3Ingimar Ingason
Umsögn laganefndar Lögmannafélags Íslands
- #4Stígamót
Umsögn Aflsins, Kvennaráðgjafarinnar, Kvenréttindafélags Íslands, NORDREF, Öfga, Rótarinnar, Samtaka um kvennaathvarf, Stígamóta, UN Women á Íslandi og W.O.M.E.N.
- #5Hafdís Arnardóttir
Umsögn brotaþola sem kært hafa kynbundið ofbeldi um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála og lögum um fullnustu refsingu (réttarstaða brotaþola, fatlaðs fólks og aðstandenda) Við undirritaðar fögnum því að réttarstaða brotaþola verði mögulega bætt með meðal annars aðgangi réttargæslumanns að gögnum á rannsóknarstigi, að brotaþola verði heimilt að vera viðstödd lokað þinghald eftir skýrslutöku, að réttargæslumanni verði milliliðalaust heimilað að leggja spurningar fyrir skýrslugjafa fyrir dómi og að brotaþola verið heimilað að ávarpa dóm í lok aðalmeðferðar. Um le… Lesa alla
Umsögn brotaþola sem kært hafa kynbundið ofbeldi um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála og lögum um fullnustu refsingu (réttarstaða brotaþola, fatlaðs fólks og aðstandenda) Við undirritaðar fögnum því að réttarstaða brotaþola verði mögulega bætt með meðal annars aðgangi réttargæslumanns að gögnum á rannsóknarstigi, að brotaþola verði heimilt að vera viðstödd lokað þinghald eftir skýrslutöku, að réttargæslumanni verði milliliðalaust heimilað að leggja spurningar fyrir skýrslugjafa fyrir dómi og að brotaþola verið heimilað að ávarpa dóm í lok aðalmeðferðar. Um leið og við fögnum öllum endurbótum sem styrkja stöðu brotaþola viljum við varpa ljósi á það sem okkur þykir enn mega betur fara til að réttarkerfið endurspegli réttlætiskennd nútíma samfélags á Íslandi. Undirritaðar eru fimm brotaþolar sem kært hafa kynbundið ofbeldi og hafa persónulega reynslu af réttarkerfinu. Við fimm stigum nýverið fram í herferð Stígamóta „Vettvangur glæps“ (https://askorun.stigamot.is/) og skrifum þessa umsögn í kjölfar herferðarinnar til að koma til skila ákalli sem við og aðrir brotaþolar, aðstandendur okkar, sérfræðingar í málaflokknum og samfélagið allt hrópar hátt. Ósk okkar er skýr, veitið brotaþolum aðild að málum sínum og öll sömu réttindi og sakborningur hefur nú þegar. Við leggjum hér til máls út frá reynslu okkar af okkar eigin málum og teljum okkur eiga fullt erindi sem álitsgjafar. Allar eigum við það sameiginlegt að hafa orðið fyrir auknu áfalli við meðferð mála okkar vegna stöðu okkar sem vettvangur glæps og vitni innan réttarkerfisins en ekki aðili mála. Allar fundum við að réttindi gerenda okkar voru mun meiri en okkar eigin og lögðum við þrátt fyrir það í baráttu sem teljast má í besta falli ójöfn. Íslenskt samfélag hefur á síðustu árum sagt kynbundnu ofbeldi stríð á hendur og mikil vitundarvakning hefur átt sér stað í samfélaginu öllu hvað réttarstöðu brotaþola varðar. Aukin fræðsla og sterkari staða brotaþola innan réttarkerfisins er tvennt af því sem sérfræðingar í málaflokknum mæla allra helst með. Sjá má augljósan kerfisbundinn vanda þegar litið er til málaflokksins innan réttarkerfisins hér á landi. Myndast hefur gjá á milli réttlætiskenndar þjóðarinnar og réttarkerfisins og við trúum því heilshugar að með því að gera brotaþola að aðilum mála sinna og veita þeim öll sömu réttindi og sakborningur sköpum við öruggara og betra samfélag heilt yfir. Við bergmálum hér orð Hildar Fjólu Antonsdóttur og Maríu Sjafnar Árnadóttur, Mannréttindaskrifstofu Íslands, Aflsins, Kvenfélagasambands Íslands, Kvennaathvarfsins, Kvennaráðgjafarinnar, Kvenréttindafélags Íslands, Rótarinnar, Stígamóta og UN WOMEN á Íslandi frá því í Apríl 2021. Eina rétta í stöðunni er að veita brotaþolum formlega aðilastöðu í sakamáli. Hildur Fjóla Antonsdóttir orðaði þetta vel í viðtali við fréttablaðið í maí 2019 „Þetta er liður í því að gefa brotaþola meiri innsýn í rannsókn málsins og tækifæri til að leggja sitt af mörkum til að aðstoða við rannsóknina. Brotaþoli hefur oft hvað mesta þekkingu á málinu og getur búið yfir mikilvægum upplýsingum án þess að vita það, því hann veit ekki hvað er að gerast í rannsókninni.“ (https://www.frettabladid.is/lifid/hraedilega-erfitt-ad-vita-ekkert/) Þessi orð endurspegla bitra reynslu okkar á réttarkerfinu og hér að neðan má lesa bút af sögum okkar, sögur sem við allar getum speglað í öðrum brotaþolum sem kært hafa álíka brot. Hafdís: Ég var 15 ára þegar ég kærði kynferðislegt ofbeldi. Ég fór í skýrslutöku hjá lögreglu, þaðan á spítala í skoðun og svo í vitnaleyðslu hjá barnahúsi nokkru síðar. Eftir það var minni aðkomu að málinu lokið og ég sat og beið í ærandi þögn í þrjú ár. Síðan fékk ég bréf, eina blaðsíðu, engin eftirfylgni, áfallahjálp eða útskýring, málinu hefði verið vísað frá. Ég talaði við vini mína sem voru með mér þetta kvöld og fékk á hreint að ekki hefði verið talað við þá alla og þeir sem var talað við var haft samband við seint. Hvorki ég né foreldrar mínir fengum að fara yfir málsgögn, koma með tillögu að spurningum til geranda míns, sjá hvað gerandi minn hafði sagt um árásina eða fylgja eftir rannsókn málsins á nokkurn hátt. Ég fékk ekki að taka til máls í dómssal og koma mínu til skila. Allt þetta hefði bætt gæði rannsóknarinnar svo um munar og verið valdeflandi fyrir barn í miklu áfalli sem umfram allt annað þarfnaðist viðurkenningar á því að brotið var á henni. Í staðin fékk gerandi minn að ráðast á mig aftur í gegnum sinn réttargæslumann með ítrekuðum spurningum sem vörpuðu skömm og ábyrgð yfir á mig og ég mátti ekki verja mig með spurningum til baka. Þegar þú lendir í kynferðislegu ofbeldi er val þitt og stjórn á eigin líkama hrifsað af þér, með því að veita brotaþolum aðild að málum sínum og jöfn réttindi og sakborningar á allan hátt trúi ég að réttarkerfið okkar verði sanngjarnara fyrir alla. Stuðningur og sanngirni í meðferð mála sem þessum eru lífs nauðsynlegur til að vinna úr svona áfalli. Ekki brjóta á fleiri brotaþolum með ósanngjörnu og úreltu réttarkerfi. Júnía: Ég kærði kynferðisbrot þann 19.nóvember 2011. Lögreglumaðurinn sem tók af mér skýrslu var eldri karlmaður sem virtist ekki nenna vinnunni sinni. Þar var enga samúð, hlýju eða skilning að finna. Hann spurði hvernig ég hafi verið klædd og hvað ég hefði drukkið mikið. Réttargæslumaður fylgdi mér í gegnum skýrslutökuna en hafði svo aldrei samband aftur, og ég þurfti að hafa samband við hana til þess að vita eitthvað, en hún sagðist ekki vita neitt. Eftir heilt ár af þrúgandi þögn kom niðurfellingarbréfið. Heim til mömmu minnar, ég var í vinnunni á meðan og algjörlega brotnaði niður, ég hef ekki enn almennilega jafnað mig á þeim tilfinningum sem ég fann fyrir. Ég upplifði mig svikna af kerfinu, sem mér var kennt að væri þarna fyrir þolendur ofbeldis, rosalega hafði ég rangt fyrir mér. Því miður. Ég myndi ekki hvetja fólk til þess að kæra. Þessi ópersónulegu samskipti og þögnin í ferlinu öllu gerðu kæruferlið mjög erfitt, ég missti allt traust á kerfið. Ég vildi óska þess að ég hefði sleppt því að kæra því ég hefði fengið nákvæmlega það sama út úr því og þegar ég kærði. Ég myndi líklega ekki kæra aftur nema eitthvað breytist. Ég er mjög óánægð hvernig var komið fram við mig í kæruferlinu og það er mjög slæmt þegar brotaþolum líður eins og það sé verið að brjóta á manni aftur þegar maður er að leita sér hjálpar. Ég var í mikilli áfengisneyslu á þessum tíma sem brotið átti sér stað og brotið var í raun stimplað á þann veginn, „fyllerí sem endaði illa“. Mér finnst að ef gerendur eru með öll þessi réttindi þá ættu brotaþolar að fá það sama. Mér finnst að vitnisburður brotaþola ættu að hafa meira vægi en þolenda, það fer enginn í gegnum þetta ferli að gamni sínu. Linda: Árið 2014 kærði ég mann fyrir ítrekuð kynferðisbrot. Eftir skýrslutökuna gerðist lítið og þögnin var þrúgandi. Hálfu ári seinna var gerandinn boðaður í skýrslutöku, en ég kveið því mest og var hrædd um viðbrögð hans. Mér þótti mikilvægt að vita hvenær hann yrði boðaður í skýrslutöku svo ég gæti undirbúið mig. Mér var sagt að skýrslutakan hans yrði í maí en svo kom í ljós að skýrslutökunni hafði verið frestað fram á sumar og ég ekki látin vita, svo ég upplifði endurtekinn kvíða og ógleði. 18 mánuðum eftir kæruna kom niðurfellingarbréfið óvænt. Engin viðvörun, ekkert samtal, enginn sem horfði í augun á mér og útskýrði. Svo algjörlega ómannlegt. Ég var viss um að málið færi í ákæru því eitt brotið var til á upptöku. Það sem hafði hvað mest áhrif á mig er reiðin gagnvart niðurfellingunni og sú staðreynd að ég gat ekkert aðhafst meira í mínu máli. Það er eitt þegar óbreyttur borgari brýtur á manni, en annað þegar kerfið sem ég treysti á lét ekki á það reyna að koma málinu áfram. Nokkru síðar fékk ég að sjá málsgögnin mín hjá saksóknara. Eina ljósið í öllu saman var að fá að lesa yfir skýrslutöku gerandans og sjá að hann var spurður gagnrýninna spurninga. Hann var látinn svara fyrir það af hverju hann stoppaði ekki eftir að ég hafði ítrekað sagt ,,hættu“ og ,,stopp“ á upptökunni. Þarna fann ég fyrst að einhver í kerfinu hafði líka séð ofbeldið. Ég vildi bara að ég hefði fengið eitthvað réttlæti út úr kerfinu. Sigrún: Árið 2021 kærði ég mann fyrir ofbeldi í nánu sambandi, en ég hafði áður leitað aðstoðar lögreglu vegna ofsókna og ofbeldis af hans hálfu. Í fyrri skipti hafði mætt mér ömurlegt viðmót, lítillækkun og virðingarleysi – ég upplifði eins og þetta „vesen“ mitt væri ómerkilegt. Þegar kæruferlið hafði verið útskýrt fyrir mér, t.d. að hann myndi ganga laus á meðan málið væri í rannsókn, þorði ég ekki að kæra. En ofbeldið hætti ekki, og eftir nauðsynlega aðstoð fagaðila og minna nánustu var ekkert annað í stöðunni en að kæra. Ég trúði því að þá myndi lífið lagast. Það gerðist ekki. Mér var sagt að nálgunarbann væri eingöngu formsatriði og við jafn alvarlegu máli yrði sannarlega brugðist með hraði. Það gerðist ekki. Í kæruferlinu kom í ljós að ýmis sönnunargögn voru orðin of gömul og ónothæf, sem engum datt í hug að segja mér frá þegar ég leitaði fyrst til lögreglunnar. Ég var logandi hrædd við gerandann og óttaðist mjög viðbrögð hans við kærunni. Svo leið tíminn, ég beið milli vonar og ótta eftir að hann yrði boðaður í skýrslutöku. Fyrstu mánuðina sendi ég tölvupósta nánast vikulega til að kanna stöðuna, oftast fékk ég ekkert svar en stundum komu lélegar afsakanir á biðinni. Aðstandandi minn sendi langan tölvupóst á stjórnendur Lögreglunnar og aðila að mínu máli - um stöðu mála, aðgerðaleysið, biðina og áhrifunum á mig og mína nánustu. Ekkert svar. Eftir 9 mánuði hafði gerandinn enn ekki verið boðaður til skýrslutöku. Þá gat ég ekki meir, hafði ekki andlegt bolmagn í meiri bið. Ég tilkynnti Lögreglunni að ég vildi falla frá kæru – þungu fargi var af mér létt þann dag. Við þeim tölvupósti fékk ég svar: erindið móttekið! Tómlæti, þögn og aðgerðarleysi af hálfu yfirvalda, sem ég áður treysti, hefur valdið mér gríðarlegri vanlíðan og stöðugum kvíða. Ég dáist að þeim þolendum sem þrauka allt ferlið. Þetta lagaumhverfi er svo gerendavænt að í langflestum tilvikum hefur það nákvæmlega engar afleiðingar að beita manneskju ofbeldi. Þá staðreynd að kæran hefur valdið mér meiri skaða en gerandanum er erfitt að sætta sig við. Að safna styrk og finna loks hugrekkið til að kæra…. til þess eins að upplifa meiri sársauka, ótta og kvíða - því verður ekki lýst með orðum. Þórdís: Ég kærði barnsföður minn og eiginkonu hans fyrir ofbeldi gegn mér árið 2016. Eftir að ég lagði fram kæru til lögreglu missti ég röddina, á mig var ekki hlustað og um leið og saksóknari tók málið í sínar hendur upplifði ég að réttur minn væri hrifsaður af mér, ég varð utan gátta. Ég var útilokuð af saksóknara, þar sem samkvæmt framkvæmdinni má ég ekki hafa áhrif á hann og samskipti við hann skulu engin vera. Mér var brugðið þar sem með kæru minni var ég að kalla á hjálp og hélt að saksóknari yrði minn talsmaður. Svo varð ekki og fyrir vikið heyrðist mín rödd aldrei. Ég hitti saksóknara aldrei á þessu rúmu tveggja ára tímabili sem málið vaggaði í dómskerfinu. Ég skipti engu máli, vilji minn og upplifun mín voru algjört aukaatriði. Meðan á aðalmeðferð stóð fyrir dómi fengu gerendur mínir heilan dag með dómsvaldinu - til að sanna sakleysi sitt og ágæti, og mála mig upp sem geðveika. Þau sátu í dómsal allan tímann og gátu talað sjálf þegar þau vildu og í gegnum lögmenn sína. Ég fékk rúman hálftíma í héraðsdómi og þurfti að fara út úr dómsalnum þegar ég lauk máli mínu, eins og mér kæmi þetta ekkert við. Sá stutti tími sem ég kom fyrir dóminn var ekki til að tala út frá mínu hjarta, heldur til að svara spurningum saksóknara og tilraunum verjenda til að véfengja verknaðinn og geðheilsu mína. Ég, þolandinn og vitnið, var sett í þá stöðu að þurfa að verja mig. Eftir sakfellingu barnsföður míns í héraði gat hann áfrýjað, en eiginkona hans var sýknuð í héraði. Það sem leiddi til sýknu í Landsrétti var álitsgerð læknis sem var lögð fram af kröfu barnsföður míns og greidd af honum. Ég hafði engan rétt til að leggja fram mikilvæg gögn eða véfengja mat læknis sem hafði aldrei hitt mig. Fyrir mér var allt þetta ferli ofbeldi og alls ekki sú heilun og réttlæti sem ég var að leita eftir, hélt að ég fengi og ætti rétt á. Við fimm viljum með þessari umsögn varpa ljósi á þær tillögur er varða réttindi brotaþola við rannsókn sakamála hjá lögreglu og við málsmeðferð hjá dómstólum sem okkur þykir enn ábótavant. Við sjáum á tillögum dómsmálaráðuneytisins að brotaþolar eru gerðir að einskonar óformlegum aðilum mála sinna. Þó er ekki gengið alla leið og jafnað stöðu brotaþola á við stöðu sakbornings til fulls líkt og sérfræðingar í málaflokknum hafa mælt með til lengri tíma. Nokkur atriði sem við viljum hér varpa ljósi á. 1) Talað er um að með því að veita brotaþolum aðild að málum sínum sé á einhvern hátt sett of mikil ábyrgð á brotaþola og setjum við stórt spurningarmerki við þessa réttlætingu. Sem brotaþolar sjáum við það þannig að með því að taka virkan þátt í rannsókn og málsmeðferð gætum við gæði rannsóknar og aukum líkur á að fá dóm á þá sem á okkur hafa brotið. Okkur þykir hér réttast að veita brotaþolum fulla aðild en gera e.t.v. viðeigandi breytingar á ákvæðum um skýrslugjöf brotaþola, þannig að það hafi ekki áhrif á sönnunargildi framburðar, og leggjum til að takmarka t.a.m. ákvörðun um saksókn. Að fá aðild að málum sínum teljum við vera mikilvæga valdeflingu fyrir brotaþola og táknrænn sigur í baráttu sem oft reynist brotaþolum erfið og letjandi. Við teljum að aðild að málum myndi ekki aðeins jafna stöðu brotaþola og sakbornings heldur hvetja fleiri brotaþola til þess að leggja fram kærur og bæta gæði rannsóknar og málsmeðferðar svo um munar. 2) Samkvæmt drögum að frumvarpi hafa brotaþolar enn ekki rétt til að áfrýja máli. Það er mikilvægur partur af málsmeðferð að fá að koma skoðunum sínum á framfæri og fá útskýringar fyrir því sem gert er á hverju stigi og skilja hvers vegna. Ef brotaþolar fá upplýsingar á meðan rannsókn stendur en svo ákveður saksóknari að fara ekki lengra með málið þurfa brotaþolar samt að fá upplýsingar og ættu enn að hafa rödd. Áfrýjun myndi veita brotaþolum rödd og út frá því ætti að endurmeta málið áður en því er vísað frá. 3) Við setjum spurningarmerki við það hvers vegna ríkinu er ekki skylt að greiða brotaþolum bætur þegar málsmeðferð dregist á langinn og dómur er mildaður sökum þess. Áfallið sem fylgir bið eftir málsmeðferð og útkomu er mikið og erfitt fyrir brotaþola og þegar dómur er mildaður vegna lengdar á málsmeðferð hallar aftur á réttindi brotaþola. 4) Við setjum einnig spurningarmerki við þá ákvörðun að veita brotaþolum ekki gjafsókn þegar ekki er gefin út kæra eða sakborningur er sýknaður að fullu. Ef ríkið veitir sakborningi gjafsókn hvers vegna þá ekki einnig brotaþola? Ætti ekki að sama að ganga um bæði brotaþola og sakborning? Sanngjörn málsmeðferð, raunveruleg vernd frá geranda með t.d. aðgengi að upplýsingum á öllum stigum rannsóknar og málsmeðferðar og stuðningur og skilningur frá þeim sem starfa innan kerfisins teljum við vera mikilvægan þátt í að uppræta það samfélagsmein sem kynbundið ofbeldi er. Meðferð málsins og útkoma hefur bæði mikilvæg áhrif á brotaþola þar sem það að leita réttar síns snýst að stórum hluta um að taka vald sitt til baka eftir að gerandi hrifsar það frá manni með kynbundnu ofbeldi. Stuðningur, skilningur og jákvæð upplifun af réttarkerfinu er því stór partur af heilunarferli brotaþola. Við ljúkum þessu með vangaveltu um orð dómsmálaráðherra af facebook síðu hans 8. mars sl. þar sem hann segir „Það er bæði fullur vilji í réttarvörslukerfinu og þverpólitískur til að gera betur og við þurfum að gera betur.“ (https://www.facebook.com/jongunnarss) Kæri dómsmálaráðherra, ef þessi orð eru sönn, hvers vegna endurspegla drög þín að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála og lögum um fullnustu refsingu (réttarstaða brotaþola, fatlaðs fólks og aðstandenda) það ekki að fullu með því að veita brotaþolum aðild að málum sínum og öll sömu réttindi og sakborningur hefur nú þegar? Virðingarfyllst, Hafdís Arnardóttir Júnía Líf Maríuerla Sigurjónsdóttir Linda Björg Guðmundsdóttir Sigrún Björnsdóttir Þórdís Filipsdóttir
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.