Beint í efni
Alviti
Þingmál152. þing · 475. mál

Störf þingsins

Störf þingsinsStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að innleiða Evrópureglugerð um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænna vara.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Störf þingsins
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
15 ræður · 31 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 24. feb. 2023

Markmiðið

Að innleiða Evrópureglugerð um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænna vara.

Hvað breytist

Gerðar verða nauðsynlegar breytingar á lögum um matvæli og lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru til innleiðingar á nýrri löggjöf ESB um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænna vara og að um leið verði lög um lífræna landbúnaðarframleiðslu felld úr gildi. Með innleiðingu er stefnt að því að einfalda regluverk sem gildir um lífræna framleiðslu, styrkja eftirlitskerfi með framleiðslunni, stuðla að ábyrgri notkun orku og náttúruauðlinda, aukinni dýravelferð og að viðhalda líffræðilegri fjölbreytni.

Lög sem breytast

Lög um matvæli, nr. 93/1995. Lög um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994. Við gildistöku laganna falla úr gildi lög um lífræna landbúnaðarframleiðslu, nr. 162/1994.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/848 frá 30. maí 2018 um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænna vara og um niðurfellingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 834/2007.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Bjarkey Gunnarsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Atvinnuveganefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 22. apr. 2022
Sendu inn umsögn eða erindi
1 aðili
SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu · allar umsagnir
Umræða í þingsal
31 mín · 15 ræður
15 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Sýna 9 í viðbót

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-18/2022· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 25. jan. 2022 – 8. feb. 2022· 5 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 93/1995, um matvæli og lögum nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru (lífræn framleiðsla)

Lagðar eru til breytingar á lögum um matvæli og lögum um eftirlit með fóðri áburði og sáðvöru.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-18/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 8. febrúar 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)
  • #1Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði sf.
    Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) telja mikilvægt að framleiðendur landbúnaðarafurða á Íslandi búi við sömu rekstrarskilyrði og framleiðendur landbúnaðarafurða í Noregi og ESB búa við. SAM telja að sú samræming reglna sem lögð er til með máli 18/2022 í samráðsgáttinni sé jákvætt skref í þá átt að tryggja samkeppnishæfni innlendrar matvælaframleiðslu gagnvart erlendri samkeppni. SAM er kunnugt um að túlkun og framkvæmd evrópskra reglna um framleiðslu matvæla er misjöfn milli landa ESB. Sem dæmi má nefna að framleiðsla undir merkjum lífrænnar framleiðslu hefur víðast í ESB krafist… Lesa alla

    Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) telja mikilvægt að framleiðendur landbúnaðarafurða á Íslandi búi við sömu rekstrarskilyrði og framleiðendur landbúnaðarafurða í Noregi og ESB búa við. SAM telja að sú samræming reglna sem lögð er til með máli 18/2022 í samráðsgáttinni sé jákvætt skref í þá átt að tryggja samkeppnishæfni innlendrar matvælaframleiðslu gagnvart erlendri samkeppni. SAM er kunnugt um að túlkun og framkvæmd evrópskra reglna um framleiðslu matvæla er misjöfn milli landa ESB. Sem dæmi má nefna að framleiðsla undir merkjum lífrænnar framleiðslu hefur víðast í ESB krafist staðfestingar frá sjálfstæðum vottunarstofum, en í Danmörku hefur vottun og túlkun reglna um lífræna framleiðslu verið á hendi stjórnvalda. Einnig er SAM kunnugt um að veittar hafa verið undanþágur frá reglugerð ESB um lífræna framleiðslu og að undanþágur sem veittar eru í hverju landi séu tilkynntar til ESB og þær séu aðgengilegar stjórnvöldum á vefsíðu þar sem hægt er að nálgast upplýsingar um allar undanþágur allra landa innan ESB (einungis aðgengilegt stjórnvöldum). Þegar vitað er að innan ESB eru veittar undanþágur frá reglugerðum nægir þess vegna ekki að taka upp evrópskar reglugerðir til að tryggja samkeppnishæfni innlendrar matvælaframleiðslu. SAM hvetja stjórnvöld til að fylgjast vel með undanþágum sem þjóðir innan ESB veita frá eigin reglugerðum; að öðrum kosti mun samkeppnishæfni innlendrar framleiðslu skerðast. Reykjavík 4. febrúar 2022 F.h. Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði Sigurjón R. Rafnsson, formaður stjórnar

  • #2Eygló Björk Ólafsdóttir

    Meðfylgjandi er umsögn Verndun og ræktun, VOR - félag framleiðenda í lífrænum búskap, kt 500594-2179, um breytingu á lögum vegna lífrænnar framleiðslu.

  • #3Bændasamtök Íslands

    Sjá hjálagða umsögn BÍ.

  • #4Óskar Ísfeld Sigurðsson

    Umsögnin er send inn fyrir hönd Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur

  • #5Samtök iðnaðarins

    Meðfylgjandi er umsögn Samtaka iðnaðarins um mál nr. 18/2022; Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 93/1995, um matvæli og lögum nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru (lífræn framleiðsla).

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umræða
    Umræða
    15 ræður · 31 mín
  2. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 22. apríl 2022
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

15 ræður · 31 mín
  • Umræða: 15 ræður · 15 ræðumenn · 31 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Þórunn SveinbjarnardóttirSamfylkingin12 mín
Þorgerður Katrín GunnarsdóttirViðreisn12 mín
Þorbjörg Sigríður GunnlaugsdóttirViðreisn12 mín
Lenya Rún Taha KarimUtan þingflokka12 mín
Kristín HermannsdóttirFramsóknarflokkur12 mín
Jódís SkúladóttirUtan þingflokka12 mín
Iða Marsibil JónsdóttirFramsóknarflokkur12 mín
Hilda Jana GísladóttirSamfylkingin12 mín
Hanna Katrín FriðrikssonViðreisn12 mín
Guðmundur Ingi KristinssonFlokkur fólksins12 mín
Gísli Rafn ÓlafssonUtan þingflokka12 mín
Diljá Mist EinarsdóttirSjálfstæðisflokkur12 mín
Bjarni JónssonUtan þingflokka12 mín
Bergþór ÓlasonMiðflokkurinn12 mín
Ásthildur Lóa ÞórsdóttirFlokkur fólksins12 mín

Umsagnir og erindi

1 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Atvinnuveganefnd sendi 1 umsagnabeiðni 7. apr. 2022, frestur 22. apr. 2022.

Hver sendiTegundBarstSkjal
SVÞ - Samtök verslunar og þjónustuumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.