Beint í efni
Alviti
Þingmál152. þing · 416. mál

Starfsreglur fastanefnda

Staða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að styrkja löggjöf og stjórnsýslu varðandi jarðir, land og aðrar fasteignir bæði að því er varðar hefðbundnar landnytjar og auðlindir sem tengjast eignarhaldi á landi.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
1 ræða · 1 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 19. ágú. 2022

Markmiðið

Að styrkja löggjöf og stjórnsýslu varðandi jarðir, land og aðrar fasteignir bæði að því er varðar hefðbundnar landnytjar og auðlindir sem tengjast eignarhaldi á landi.

Hvað breytist

Lagt er til að ríkissjóður hafi forkaupsrétt að landi þar sem friðlýstar menningarminjar er að finna. Sett verða ítarlegri ákvæði um sameign á landi sem fellur undir gildissvið jarðalaga. Kveðið verður heildstætt á um afmörkun fasteigna innan og utan þéttbýlis, þ.e. merki landsvæða og lóða af öllum stærðum og gerðum (landamerki), í lögum um skráningu og mat fasteigna. Slakað verður lítillega á skilyrðinu um að erlendir ríkisborgarar frá ríkjum utan EES sem vilja kaupa hér fasteign verði að hafa sterk tengsl við Ísland. Þá þurfa lögaðilar innan EES sem eru undir yfirráðum annarra en EES-aðila að óska eftir leyfi dómsmálaráðherra til að kaupa fasteign hér á landi.

Lög sem breytast

Lög um menningarminjar, nr. 80/2012. Jarðalög, nr. 81/2004. Lög um skráningu og mat fasteigna, nr. 6/2001. Lög um eignarrétt og afnotarétt fasteigna, nr. 19/1966. Lög um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991. Skipulagslög, nr. 123/2010. Við gildistöku laganna falla úr gildi lög um mælingu og skrásetningu lóða og landa í lögsagnarumdæmi Akureyrar, nr. 16/1951, lög um landamerki o.fl., nr. 41/1919, lög um útmælingar lóða í kaupstöðum, löggiltum kauptúnum o.fl., nr. 75/1917, og lög um mælingu og skrásetningu lóða og landa í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur, nr. 35/1914.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Skýrsla um heildstæða löggjöf og stjórnsýslu varðandi jarðir, land og aðrar fasteignir lögð fram. Forsætisráðuneytið, 28. maí 2021.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Bryndís Haraldsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 24. mar. 2022
Sendu inn umsögn eða erindi
14 aðilar
Forsætisráðuneytið, Landssamtök landeigenda á Íslandi, BBA Fjeldco, Jón Einarsson, Eleven Experience á Íslandi o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
1 mín · 1 ræða
1 þingmaður tók til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-91/2021· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 26. mar. 2021 – 11. apr. 2021· 10 umsagnir

Eignarráð og nýting fasteigna (landamerki, óskipt sameign, forkaupsréttur, aðilar utan EES)

Fjallað er um afmörkun fasteigna innan og utan þéttbýlis, óskipta sameign á jörðum, forkaupsrétt ríkisins að landi til verndar náttúru og menningarminjum og skilyrði fyrir því að erlendir lögaðilar þurfi að afla leyfis dómsmálaráðherra til að kaupa fasteign.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-91/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 11. apríl 2021
  3. Umsagnarfresti lýkur · 10 umsagnir bárust
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (10)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 24. mars 2022
    1 beiðni um umsögn
  2. Umræða
    Umræða
    1 ræða · 1 mín

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

1 ræða · 1 mín
  • Umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 1 mín

Umsagnir og erindi

15 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 10. mar. 2022, frestur 24. mar. 2022.

Hver sendiTegundBarstSkjal
ForsætisráðuneytiðupplýsingarOpna PDF
Landssamtök landeigenda á ÍslandiumsögnOpna PDF
BBA FjeldcoumsögnOpna PDF
ForsætisráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Jón EinarssonumsögnOpna PDF
Eleven Experience á ÍslandiumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
ReykjavíkurborgumsögnOpna PDF
Minjastofnun ÍslandsumsögnOpna PDF
Bændasamtök ÍslandsumsögnOpna PDF
ÓbyggðanefndumsögnOpna PDF
Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins og Viðskiptaráð ÍslandsumsögnOpna PDF
Landmælingar ÍslandsumsögnOpna PDF
Samtök ferðaþjónustunnarumsögnOpna PDF
LandgræðslanumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.