Fjölmiðlar
EES-reglur, hljóð og myndmiðlunarþjónusta, samfélagsmiðlar o.fl.
Hvar er málið statt?
Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.
- Lagt fram
- 1. umræða
- Í nefnd
- 2. umræða
- 3. umræða
- Dagaði uppi
Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 151. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“
Í stuttu máli
Að innleiða Evróputilskipun um breytingar á hljóð- og myndmiðlunartilskipun ESB.
Lagt fram af Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra (F), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.
- Lagt fram
- 7. apríl 2021
- Tegund
- Stjórnarmál
- Atkvæðagreiðslur með skrá
- 0
- Umræða í þingsal
- 2 ræður · 8 mín
Málið á mannamáli
Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.
Markmiðið
Að innleiða Evróputilskipun um breytingar á hljóð- og myndmiðlunartilskipun ESB.
Hvað breytist
Lagðar eru til breytingar á lögum um fjölmiðla vegna innleiðingar á tilskipun 2018/1808/ESB um breytingar á tilskipun 2010/13/ESB um hljóð- og myndmiðlunarþjónustu. Lagt er til að mynddeiliþjónusta falli að hluta undir lögsögu fjölmiðlanefndar og nýjar efnisreglur í fjölmiðlalögum. Einnig er lagt til að með ítarlegum reglum sé kveðið á um undir lögsögu hvaða EES-ríkis starfsemi mynddeiliveitna heyrir. Þá er gert ráð fyrir að kveðið verði á um ráðstafanir sem mynddeiliveitur þurfa að grípa til í því skyni að vernda börn og ungmenni fyrir efni og notendaframleiddu efni sem getur haft skaðleg áhrif á líkamlegan, andlegan eða siðferðislegan þroska. Lagt er til að óheimilt verði að dreifa efni sem hvetur til ofbeldis, haturs og refsiverðs verknaðar. Þá eru lagðar til breytingar á ákvæðum um upprunaland fjölmiðlaþjónustu og hvernig skuli bregðast við efni sem sjónvarpað er frá einu ríki en er beint til notenda í öðru ríki. Gert er ráð fyrir að sú krafa verði gerð að 30% af framboði myndefnis eftir pöntun verði evrópsk verk og auglýsingareglur rýmkaðar þannig að hámark auglýsinga verði 20% á tilteknum tímabilum en ekki bundið við 20% á klukkustund eins og nú gildir. Þá er gert ráð fyrir að fjölmiðlanefnd fái það hlutverk að gera áætlanir og ráðstafanir til að efla og þroska fjölmiðlalæsi almennings auk annarra verkefna er varða upplýsingagjöf til eftirlitsstofnunar EFTA og þátttöku í starfi samráðshóps evrópskra fjölmiðlaeftirlitsstofnana.
Lög sem breytast
Kostnaður fyrir ríkið
Gert er ráð fyrir að bæta þurfi við einu stöðugildi hjá fjölmiðlanefnd. Þá kemur fram í frumvarpi að tryggja þurfi fjölmiðlanefnd nægilegt fjármagn til að sinna með viðeigandi hætti skyldu sinni að efla og þroska miðla- og upplýsingalæsi almennings en fjárhæðir eru ekki tilgreindar í frumvarpinu.
Meira úr samantektinni
Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1808 frá 14. nóvember 2018 um breytingar á tilskipun 2010/13/ESB um samræmingu tiltekinna ákvæða í lögum og stjórnsýslufyrirmælum í aðildarríkjunum um hljóð- og myndmiðlunarþjónustu (tilskipun um hljóð- og myndmiðlunarþjónustu) í ljósi breytinga á markaðsaðstæðum.
Afstaða þingflokkanna
Lilja AlfreðsdóttirFramsóknarflokkurmennta- og menningarmálaráðherra
Framsögumaður nefndar: Silja Dögg Gunnarsdóttir
Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.
„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.
Af hverju skiptir þetta máli?
Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.
- Nefndin sem fjallar um málið
- Allsherjar- og menntamálanefnd
- sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 29. apr. 2021
- Sendu inn umsögn eða erindi
- 6 aðilar
- Fjölmiðlanefnd, Umboðsmaður barna, Persónuvernd, Birgir Örn Steingrímsson, Björn Jónsson o.fl. · allar umsagnir
- Umræða í þingsal
- 8 mín · 2 ræður
- 2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
- Kostnaður fyrir ríkissjóð
- Gert er ráð fyrir að bæta þurfi við einu stöðugildi hjá fjölmiðlanefnd. Þá kemur fram í frumvarpi að tryggja þurfi fjölmiðlanefnd nægilegt fjármagn til að sinna með viðeigandi hætti skyldu sinni að efla og þroska miðla- og upplýsingalæsi almennings en fjárhæðir eru ekki tilgreindar í frumvarpinu.
- úr samantekt Alþingis
Orð og atkvæði
Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.
Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.
Lilja AlfreðsdóttirFramsóknarflokkur1 ræða · 6 mín
Óli Björn KárasonSjálfstæðisflokkur1 ræða · 2 mín
Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.
Allt um málið
Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.
Ferill málsins
Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.
- Þingskjal
- Umræða1. umræða2 ræður · 8 mín
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- UmsagnirUmsagnabeiðnir sendar, frestur til 29. apríl 20211 beiðni um umsögn
Þingskjöl
Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.
Allar atkvæðagreiðslur
Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.
- yfirlýsing forseta/mál gengur14. apríl 2021 kl. 13:54Frumvarp gengur til 2. umræðuEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- yfirlýsing forseta/mál gengur→ allsherjar- og menntamálanefnd14. apríl 2021 kl. 13:54Frumvarp gengur til nefndarEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
Hverjir tóku til máls
- 1. umræða: 2 ræður · 2 ræðumenn · 8 mín
| Þingmaður | Flokkur | Ræður | Ræðutími |
|---|---|---|---|
| Framsóknarflokkur | 1 | 6 mín | |
| Sjálfstæðisflokkur | 1 | 2 mín |
Umsagnir og erindi
Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.
Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 15. apr. 2021, frestur 29. apr. 2021.
| Hver sendi | Tegund | Barst | Skjal |
|---|---|---|---|
| Fjölmiðlanefnd | umsögn | Opna PDF | |
| Umboðsmaður barna | umsögn | Opna PDF | |
| Persónuvernd | umsögn | Opna PDF | |
| Birgir Örn Steingrímsson | umsögn | Opna PDF | |
| Björn Jónsson | umsögn | Opna PDF | |
| Síminn hf | umsögn | Opna PDF |
Tengd mál
- Fjölmiðlartengt
- Fjölmiðlartengt
Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)