Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 717. mál

Fjölmiðlar

EES-reglur, hljóð og myndmiðlunarþjónusta, samfélagsmiðlar o.fl.

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 14. apr. 2021

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 151. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að innleiða Evróputilskipun um breytingar á hljóð- og myndmiðlunartilskipun ESB.

Lagt fram af Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra (F), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
7. apríl 2021
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
2 ræður · 8 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 25. jún. 2024

Markmiðið

Að innleiða Evróputilskipun um breytingar á hljóð- og myndmiðlunartilskipun ESB.

Hvað breytist

Lagðar eru til breytingar á lögum um fjölmiðla vegna innleiðingar á tilskipun 2018/1808/ESB um breytingar á tilskipun 2010/13/ESB um hljóð- og myndmiðlunarþjónustu. Lagt er til að mynddeiliþjónusta falli að hluta undir lögsögu fjölmiðlanefndar og nýjar efnisreglur í fjölmiðlalögum. Einnig er lagt til að með ítarlegum reglum sé kveðið á um undir lögsögu hvaða EES-ríkis starfsemi mynddeiliveitna heyrir. Þá er gert ráð fyrir að kveðið verði á um ráðstafanir sem mynddeiliveitur þurfa að grípa til í því skyni að vernda börn og ungmenni fyrir efni og notendaframleiddu efni sem getur haft skaðleg áhrif á líkamlegan, andlegan eða siðferðislegan þroska. Lagt er til að óheimilt verði að dreifa efni sem hvetur til ofbeldis, haturs og refsiverðs verknaðar. Þá eru lagðar til breytingar á ákvæðum um upprunaland fjölmiðlaþjónustu og hvernig skuli bregðast við efni sem sjónvarpað er frá einu ríki en er beint til notenda í öðru ríki. Gert er ráð fyrir að sú krafa verði gerð að 30% af framboði myndefnis eftir pöntun verði evrópsk verk og auglýsingareglur rýmkaðar þannig að hámark auglýsinga verði 20% á tilteknum tímabilum en ekki bundið við 20% á klukkustund eins og nú gildir. Þá er gert ráð fyrir að fjölmiðlanefnd fái það hlutverk að gera áætlanir og ráðstafanir til að efla og þroska fjölmiðlalæsi almennings auk annarra verkefna er varða upplýsingagjöf til eftirlitsstofnunar EFTA og þátttöku í starfi samráðshóps evrópskra fjölmiðlaeftirlitsstofnana.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir að bæta þurfi við einu stöðugildi hjá fjölmiðlanefnd. Þá kemur fram í frumvarpi að tryggja þurfi fjölmiðlanefnd nægilegt fjármagn til að sinna með viðeigandi hætti skyldu sinni að efla og þroska miðla- og upplýsingalæsi almennings en fjárhæðir eru ekki tilgreindar í frumvarpinu.

Meira úr samantektinni

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1808 frá 14. nóvember 2018 um breytingar á tilskipun 2010/13/ESB um samræmingu tiltekinna ákvæða í lögum og stjórnsýslufyrirmælum í aðildarríkjunum um hljóð- og myndmiðlunarþjónustu (tilskipun um hljóð- og myndmiðlunarþjónustu) í ljósi breytinga á markaðsaðstæðum.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Silja Dögg Gunnarsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 29. apr. 2021
Sendu inn umsögn eða erindi
6 aðilar
Fjölmiðlanefnd, Umboðsmaður barna, Persónuvernd, Birgir Örn Steingrímsson, Björn Jónsson o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
8 mín · 2 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir að bæta þurfi við einu stöðugildi hjá fjölmiðlanefnd. Þá kemur fram í frumvarpi að tryggja þurfi fjölmiðlanefnd nægilegt fjármagn til að sinna með viðeigandi hætti skyldu sinni að efla og þroska miðla- og upplýsingalæsi almennings en fjárhæðir eru ekki tilgreindar í frumvarpinu.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    2 ræður · 8 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 29. apríl 2021
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1196Stjórnarfrumvarp7. apr. 2021Lilja AlfreðsdóttirLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur14. apríl 2021 kl. 13:54
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ allsherjar- og menntamálanefnd14. apríl 2021 kl. 13:54
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

2 ræður · 8 mín
  • 1. umræða: 2 ræður · 2 ræðumenn · 8 mín

Umsagnir og erindi

6 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 15. apr. 2021, frestur 29. apr. 2021.

Hver sendiTegundBarstSkjal
FjölmiðlanefndumsögnOpna PDF
Umboðsmaður barnaumsögnOpna PDF
PersónuverndumsögnOpna PDF
Birgir Örn SteingrímssonumsögnOpna PDF
Björn JónssonumsögnOpna PDF
Síminn hfumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.