Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 708. mál

Hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl.

EES-reglur, hringrásarhagkerfi

Hvar er málið statt?

Samþykkt sem lög frá Alþingi.

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Niðurstaða

Í stuttu máli

Að skapa skilyrði fyrir myndun hringrásarhagkerfis svo stuðla megi að sjálfbærri auðlindanotkun og draga úr myndun úrgangs sem og að leggja bann við urðun úrgangs sem hefur verið safnað sérstaklega til undirbúnings fyrir endurnotkun, endurvinnslu eða annarrar endurnýtingar.

Lagt fram af Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
7. apríl 2021
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
10 ræður · 50 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 25. jún. 2021

Markmiðið

Að skapa skilyrði fyrir myndun hringrásarhagkerfis svo stuðla megi að sjálfbærri auðlindanotkun og draga úr myndun úrgangs sem og að leggja bann við urðun úrgangs sem hefur verið safnað sérstaklega til undirbúnings fyrir endurnotkun, endurvinnslu eða annarrar endurnýtingar.

Hvað breytist

Lagðar eru til breytingar vegna innleiðingar fjögurra Evrópugerða. Breytingarnar fela í sér innleiðingu á hringrásarhagkerfinu og er sérstök áhersla lögð á að draga úr myndun úrgangs, samræmda flokkun og sérstaka söfnun, sem og bann við urðun tiltekins úrgangs. Samþykkt frumvarpsins hefði þannig í för með sér að einstaklingum og lögaðilum yrði gert skylt að flokka heimilisúrgang. Jafnframt eru lagðar til breytingar varðandi fram­leið­endaábyrgð á ákveðnum úrgangsflokkum í samræmi við lágmarkskröfur sem gerðar eru í tilskipun (ESB) 2018/854 til kerfa sem byggja á framlengdri framleiðendaábyrgð. Þá er lagt til að kveðið verði á um framleiðendaábyrgð á plastvörum og drifrafhlöðum.

Lög sem breytast

Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998. Lög um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003. Lög um úrvinnslugjald, nr. 162/2002.

Kostnaður fyrir ríkið

Gera má ráð fyrir einskiptiskostnaði við uppsetningu rafræns skráningarkerfis fyrir spilliefni hjá Umhverfisstofnun en nákvæmt kostnaðarmat liggur ekki fyrir.

Meira úr samantektinni

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/850 frá 30. maí 2018 um breytingu á tilskipun 1999/31/EB um urðun úrgangs.

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/851 frá 30. maí 2018 um breytingu á tilskipun 2008/98/EB um úrgang.

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/852 frá 30. maí 2018 um breytingu á tilskipun 94/62/EB um umbúðir og umbúðaúrgang.

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/904 frá 5. júní 2019 um að draga úr áhrifum tiltekinna plastvara á umhverfið.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Ari Trausti Guðmundsson

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Umhverfis- og samgöngunefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 29. apr. 2021
Sendu inn umsögn eða erindi
20 aðilar
Heilbrigðiseftirlit Kjósarsvæðis, Pure North Recycling, Sveitarfélagið Hornafjörður, Umhverfisstofnun, Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
50 mín · 10 ræður
5 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gera má ráð fyrir einskiptiskostnaði við uppsetningu rafræns skráningarkerfis fyrir spilliefni hjá Umhverfisstofnun en nákvæmt kostnaðarmat liggur ekki fyrir.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 13. júní 2021: 45 með, 0 á móti, 7 sátu hjá.

Greiddu atkvæði með3 tóku til máls

42 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Sátu hjá0 tóku til máls

7 aðrir sátu hjá án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna2 tóku til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    5 ræður · 17 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 29. apríl 2021
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Þingskjal
  8. Umræða
    2. umræða
    5 ræður · 33 mín
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 52 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 44 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 53 með, 0 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 44 með, 0 á móti
  13. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  14. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 45 með, 0 á móti
  15. Þingskjal
  16. Þingskjal

Þingskjöl

5 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1187Stjórnarfrumvarp7. apr. 2021Guðmundur Ingi GuðbrandssonLesaPDF
1680Nefndarálit9. jún. 2021Ari Trausti Guðmundsson, Guðjón S. Brjánsson +5LesaPDF
1681Breytingartillaga9. jún. 2021Ari Trausti Guðmundsson, Guðjón S. Brjánsson +4LesaPDF
1769Frumvarp eftir 2. umræðu1. júl. 2021—LesaPDF
1810Lög (samhlj.)13. jún. 2021—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

8 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur13. apríl 2021 kl. 22:56
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ umhverfis- og samgöngunefnd13. apríl 2021 kl. 22:56
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt12. júní 2021 kl. 14:14
    Breytingartillaga
    1
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt12. júní 2021 kl. 14:14
    Grein / þingskjal
    1. gr., svo breytt,
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt12. júní 2021 kl. 14:15
    Breytingartillaga
    2--23
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt12. júní 2021 kl. 14:16
    Grein / þingskjal
    2.--40. gr., svo breytt,
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur12. júní 2021 kl. 14:16
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt13. júní 2021 kl. 00:04
    Lokaatkvæðagreiðsla um frumvarp
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

10 ræður · 50 mín
  • 1. umræða: 5 ræður · 2 ræðumenn · 17 mín
  • 2. umræða: 5 ræður · 3 ræðumenn · 33 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Bergþór ÓlasonMiðflokkurinn24 mín
Andrés Ingi JónssonUtan þingflokka24 mín
Guðjón S. BrjánssonSamfylkingin111 mín
Ari Trausti GuðmundssonUtan þingflokka217 mín
Guðmundur Ingi GuðbrandssonUtan þingflokka312 mín

Umsagnir og erindi

20 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Umhverfis- og samgöngunefnd sendi 1 umsagnabeiðni 15. apr. 2021, frestur 29. apr. 2021.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Heilbrigðiseftirlit KjósarsvæðisumsögnOpna PDF
Pure North RecyclingumsögnOpna PDF
Sveitarfélagið HornafjörðurumsögnOpna PDF
UmhverfisstofnunumsögnOpna PDF
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestraumsögnOpna PDF
DalabyggðumsögnOpna PDF
FenúrumsögnOpna PDF
Umhverfis- og auðlindaráðuneytiðkynningOpna PDF
Umhverfis- og skipulagssvið ReykjavíkurborgarumsögnOpna PDF
SORPA bsumsögnOpna PDF
Grímsnes- og GrafningshreppurumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
Félag atvinnurekendaumsögnOpna PDF
Samtök atvinnulífsins, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustuumsögnOpna PDF
Bændasamtök ÍslandsumsögnOpna PDF
LandverndumsögnOpna PDF
Sveitarfélagið SkagafjörðurumsögnOpna PDF
BláskógabyggðumsögnOpna PDF
Heilbrigðiseftirlit ReykjavíkurumsögnOpna PDF
Stefán GíslasonumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)