Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 704. mál

Breyting á ýmsum lögum á sviði fiskveiðistjórnar

Eftirlit Fiskistofu o.fl.

LagafrumvarpEkki útrætt á 151. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)SjávarútvegurTölvu- og upplýsingamál

Hvar er málið statt?

Ekki útrætt á 151. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Niðurstaða

Í stuttu máli

Að styrkja eftirlit Fiskistofu.

Lagt fram af Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
7. apríl 2021
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
6 ræður · 31 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 24. jún. 2021

Markmiðið

Að styrkja eftirlit Fiskistofu.

Hvað breytist

Lagt er til að heildstæðu viðurlagakerfi verði komið á fót vegna brota á lögum á sviði fiskveiðistjórnar. Viðurlagakaflar laganna verða samræmdir þannig að sömu heimildir verði milli mismunandi laga til að bregðast við brotum. Frumvarpið felur í sér það nýmæli að Fiskistofa fái heimildir til álagningar stjórnvaldssekta vegna brota á fiskveiðilöggjöfinni. Lagt er til að heimildir Fiskistofu til að framkvæma rafrænt eftirlit verði styrktar. Loks er lagt til að hugtakið raunveruleg yfirráð við framkvæmd reglna um hámarksaflahlutdeildir verði afmarkað betur.

Lög sem breytast

Lög um umgengni um nytjastofna sjávar, nr. 57/1996. Lög um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006. Lög um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997. Lög um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 22/1998. Lög um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, nr. 151/1996. Lög um Fiskistofu, nr. 36/1992.

Kostnaður fyrir ríkið

Til lengri tíma litið eru fjárhagsáhrif frumvarpsins jákvæð fyrir ríkissjóð þar sem stjórnvaldssektir munu renna í ríkissjóð. Ekki er hægt að segja til um hve mikil þau verða þar sem ekki hefur farið fram mat á umfangi álagningar stjórnvaldssekta auk þess sem reglunum er ætlað að hafa fælingar- og varnaðaráhrif til lengri tíma litið.

Meira úr samantektinni

Bætt eftirlit með fiskveiðiauðlindinni. Skýrsla verkefnisstjórnar um bætt eftirlit með fiskveiðiauðlindinni. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, júní 2020.

Eftirlit Fiskistofu. Skýrsla til Alþingis. Ríkisendurskoðun, desember 2018.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Ásmundur Friðriksson

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Atvinnuveganefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 29. apr. 2021
Sendu inn umsögn eða erindi
8 aðilar
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Hafnasamband Íslands, Persónuvernd, Samkeppniseftirlitið, Landssamband smábátaeigenda o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
31 mín · 6 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Til lengri tíma litið eru fjárhagsáhrif frumvarpsins jákvæð fyrir ríkissjóð þar sem stjórnvaldssektir munu renna í ríkissjóð. Ekki er hægt að segja til um hve mikil þau verða þar sem ekki hefur farið fram mat á umfangi álagningar stjórnvaldssekta auk þess sem reglunum er ætlað að hafa fælingar- og varnaðaráhrif til lengri tíma litið.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    6 ræður · 31 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 29. apríl 2021
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1183Stjórnarfrumvarp7. apr. 2021Kristján Þór JúlíussonLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur13. apríl 2021 kl. 21:09
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ atvinnuveganefnd13. apríl 2021 kl. 21:09
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

6 ræður · 31 mín
  • 1. umræða: 6 ræður · 2 ræðumenn · 31 mín

Umsagnir og erindi

8 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Atvinnuveganefnd sendi 1 umsagnabeiðni 15. apr. 2021, frestur 29. apr. 2021.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegiumsögnOpna PDF
Hafnasamband ÍslandsumsögnOpna PDF
PersónuverndumsögnOpna PDF
SamkeppniseftirlitiðumsögnOpna PDF
Landssamband smábátaeigendaumsögnOpna PDF
Samtök smærri útgerðaumsögnOpna PDF
FiskistofaumsögnOpna PDF
Útgerðarfélag Reykjavíkur hf.umsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)