Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 701. mál

Covid-19, staðan og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða

skýrsla ráðherraStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að sameina, samræma og einfalda lagaákvæði fernra laga.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
skýrsla ráðherra
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
37 ræður · 1 klst. 12 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 1. feb. 2022

Markmiðið

Að sameina, samræma og einfalda lagaákvæði fernra laga.

Hvað breytist

Með frumvarpinu er lagt til að sameina fern lög sem fjalla um áhafnir skipa og með því einfalda lagaumhverfi um áhafnir skipa og setja ákvæði um þær í ein lög. Í nokkrum atriðum eru lagðar til efnisbreytingar frá ákvæðum laganna út frá þeirri reynslu sem skapast hefur eftir gildistöku laganna og breytingum samkvæmt alþjóðasamningum og EES-gerðum sem tekið hafa gildi gagnvart Íslandi síðan lögin tóku gildi. Í því skyni er lagt til að sjö EES-gerðir verði innleiddar.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög og við gildistöku þeirra falla úr gildi lög um bryta og matreiðslumenn á farskipum og fiskiskipum, nr. 50/1961, lög um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa, nr. 76/2001, lög um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa, nr. 30/2007, og lög um lögskráningu sjómanna, nr. 35/2010. Við gildistöku laganna verða jafnframt breytingar á lögum um breytingu á lögum vegna alþjóðasamþykktar um vinnu við fiskveiðar, nr. 158/2019.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir kostnaðarauka fyrir ríkissjóð. Ekki er heldur gert ráð fyrir að heimild til stjórnvaldssekta, sem gæti aukið tekjur ríkissjóðs, verði beitt í miklum mæli.

Meira úr samantektinni

Tilskipun ráðsins 1999/63/EB frá 21. júní 1999 um samning um skipulag á vinnutíma sjómanna á kaupskipum milli Samtaka skipaeigenda í Evrópubandalaginu (ECSA) og Samtaka félaga flutningaverkamanna í Evrópusambandinu (FST).

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 1999/95/EB frá 13. desember 1999 um framkvæmd ákvæða um vinnutíma sjómanna á skipum sem fara um hafnir í bandalaginu.

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2005/45/EB frá 7. september 2005 um gagnkvæma viðurkenningu á skírteinum sjómanna sem aðildarríkin gefa út og um breytingu á tilskipun 2001/25/EB.

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 336/2006 frá 15. febrúar 2006 um að hrinda í framkvæmd ákvæðum alþjóðlega kóðans um öryggisstjórnun skipa innan Bandalagsins og um niðurfellingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 3051/95.

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/106/EB frá 19. nóvember 2008 um lágmarksþjálfun sjómanna (endurútgefin).

Tilskipun ráðsins 2009/13/EB frá 16. febrúar 2009 um framkvæmd samnings sem Samtök skipaeigenda í Evrópubandalaginu (ECSA) og Samband félaga flutningaverkamanna í Evrópu (ETF) hafa gert með sér um samþykktina um vinnuskilyrði farmanna, 2006, og um breytingu á tilskipun 1999/63/EB.

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/54/ESB frá 20. nóvember 2013 um tilteknar skyldur fánaaðildarríkis til að fara að og framfylgja samþykktinni um vinnuskilyrði farmanna, 2006.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Umhverfis- og samgöngunefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 29. apr. 2021
Sendu inn umsögn eða erindi
10 aðilar
Hafnasamband Íslands, Samtök atvinnulífsins og Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu, Alþýðusamband Íslands, Samtök smærri útgerða o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
1 klst. 12 mín · 37 ræður
10 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir kostnaðarauka fyrir ríkissjóð. Ekki er heldur gert ráð fyrir að heimild til stjórnvaldssekta, sem gæti aukið tekjur ríkissjóðs, verði beitt í miklum mæli.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Sýna 4 í viðbót

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-155/2020· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. ágú. 2020 – 7. sep. 2020· 3 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um áhafnir skipa

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið áformar að leggja fram frumvarp til laga um áhafnir skipa. Markmiðið með frumvarpinu er að yfirfara þær reglur sem gilda á þessu sviði, einfalda regluverkið og sameina þau lög sem gilda um áhafnir skipa í einn lagabálk.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-155/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 7. september 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (16. september 2021)

Þrjár umsagnir bárust um áform þessi. Í kjölfar samráðsins voru fundir haldnir með hagsmunaaðilum þar sem frekari sjónarmið komu fram. Frumvarp var síðan birt á samráðsgátt stjórnvalda 18. febrúar 2021 til umsagnar (sjá mál nr. 51/2021).

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-51/2021· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. feb. 2021 – 3. mar. 2021· 14 umsagnir

Frumvarp til laga um áhafnir skipa

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um áhafnir skipa. Með frumvarpinu er gerð tillaga um ný heildarlög um áhafnir íslenskra skipa. Er markmiðið að einfalda löggjöfina um menntun og þjálfun, öryggisfræðslu, skírteini, lögskráningu, lágmarksmönnun, vinnu- og hvíldartíma, læknisvottorð, heilsu- og tryggingavernd, orlof, heimferðir, vinnuskilyrði o.fl.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-51/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 3. mars 2021
  3. Umsagnarfresti lýkur · 14 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (16. september 2021)

Frumvarp til laga um áhafnir skipa var lagt fyrir Alþingi á 151. löggjafarþingi (sjá 701. mál). Umfjöllun um niðurstöður samráðs sem fram fór um frumvarpið er að finna í greinargerð þess.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (14)
  • #1Páll Jóhann Pálsson
    Umsögn um frumvarp til laga um áhafnir skipa. Þessi umsögn er í samræmi við megintilgang frumvarpsins um að samræma og einfalda lög um áhafnir skipa. 7.grein Ekki er eðlilegt að svipta menn alfarið réttindum eftir fimm ár þó þeir hafi starfað við greinina í minna en tólf mánuði. Eðlilegra væri að réttindi myndu skerðast um t.d. eitt þrep eða þar um bil tímabundið. Það má hinns vegar færa rök fyrir því að þeir sem hafa starfað minna en tólf mánuði síðustu fimm ár missi réttindi tímabundið til að gegna stöðu á stjórnunarsviði (samkvæmt skilgreiningu í 2. Grein 2. Töluliðar) t.d. Skipstjóri,… Lesa alla

    Umsögn um frumvarp til laga um áhafnir skipa. Þessi umsögn er í samræmi við megintilgang frumvarpsins um að samræma og einfalda lög um áhafnir skipa. 7.grein Ekki er eðlilegt að svipta menn alfarið réttindum eftir fimm ár þó þeir hafi starfað við greinina í minna en tólf mánuði. Eðlilegra væri að réttindi myndu skerðast um t.d. eitt þrep eða þar um bil tímabundið. Það má hinns vegar færa rök fyrir því að þeir sem hafa starfað minna en tólf mánuði síðustu fimm ár missi réttindi tímabundið til að gegna stöðu á stjórnunarsviði (samkvæmt skilgreiningu í 2. Grein 2. Töluliðar) t.d. Skipstjóri, yfirstýrimaður eða yfirvélstjóri eða þar til þeir hafa starfað í t.d. 12 mánuði undir stjórn yfirmanna á stórnunarsviði. Það getur ekki verið eðlilegt að t.d.maður með Skipherraéttindi á varðskipi og langan starfsferil fái ekki endurnýjuð réttindi til að vera undirstýrimaður á smábát þó hann hafi verið skráður stýrimaður minna en 12 mánuði s.l. fimm ár. Eða maður með full vélstjóraréttindi á öll sip fái ekki réttindi til að vera vélavörður á smáskipi þó svo að hann hafi verið skráður minna en 12 mánuði s.l. fimm ár,við endurnýjun skýrteinis. 10. grein Ekki er hægt að fallast á þau rök að það bæti skilvirkni og auki samræmi og sérhæfingu að leggja niður undanþágunefnd og mönnunarnefnd og færa alfarið inn í Samgönngustofu. Þessar tvær nefndir hafa einmitt verið skipaðar af mönnum með þá sérþekkingu og reynslu sem til þarf til að leggja mat á hin ýmsu mál. Þessi þekking og reynsla þyrfti því að vera til staðar inni í Samgöngustofu. 15.grein Að hafa skítreinið um borð í rafrænum heimi er tímaskekkja þar sem starfsmenn lanhelgisgæslu og Samgöngustofu sjá allar þær upplýsingar um réttindamál skipverja í sínum gögnum auk þess sem skráning gengur ekki nema réttindi séu til staðar. 17.grein Sjálfsagt mál er að hafa tvo skipstjóramenntaða menn á smáskipum ef veiðiferð fer yfir 14 tíma. Það er hinns vegar nóg að hafa einn mann um borð með þekkingu og tilskilin réttindi á vélbúnað hvort sem veiðiferð er undir eða yfir 14 tímum. Með því að sleppa kröfu um annan smáskipavélavörð má fallast á að afnema þjónustusamninga við þjónustuaðila í landi. Undirritaður er mentaður vélfræðingur og skipstjóri og hefur starfað um borð og gert út smábáta í yfir 20 ár. Er nú starfsmaður og einn af eigendum Vísis hf sem gerir út stóra og litla línubáta. Páll Jóhann Pálsson

  • #2Árni Bjarnason

    Sjá í viðhengi. Umsögn Félags skipstjórnarmanna, VM Félag vélstjóra og málmtæknimanna og Sjómannasambands Íslands

  • #3Halldór Árnason

    Meðfylgjandi er álit um breytingu á: Frumvarpi til laga um áhafnir skipa. Word skjal tvær bls.

  • #4Halldór Árnason
    Umsögn um: Frumvarp til laga um áhafnir skipa. Góðan dag. Ég undirritaður vil koma eftirfarandi atriðum á framfæri: Að bátar undir 12 m og vélarstærð undir 249 KW fái að vera áfram vélstjóralausir, með því skilyrði að þeir hafi samning við smiðju. Þeir eru notaðir allt öðruvísi en 15 m bátar. Skip eru flokkuð eftir lengdum; 8 - 10 m, 10 – 12 m og 12 – 15 m. 15 m bátar eru nýir af nálinni, á markaði og ef vel er að gáð, þá er líklega mesta slysatíðnin á þeim ofurbátum, miðað við fjölda þeirra. Staðreyndina tel ég vera, að slysin verða vegna þreytu og svefnleysis, en ekki sökum skorts á… Lesa alla

    Umsögn um: Frumvarp til laga um áhafnir skipa. Góðan dag. Ég undirritaður vil koma eftirfarandi atriðum á framfæri: Að bátar undir 12 m og vélarstærð undir 249 KW fái að vera áfram vélstjóralausir, með því skilyrði að þeir hafi samning við smiðju. Þeir eru notaðir allt öðruvísi en 15 m bátar. Skip eru flokkuð eftir lengdum; 8 - 10 m, 10 – 12 m og 12 – 15 m. 15 m bátar eru nýir af nálinni, á markaði og ef vel er að gáð, þá er líklega mesta slysatíðnin á þeim ofurbátum, miðað við fjölda þeirra. Staðreyndina tel ég vera, að slysin verða vegna þreytu og svefnleysis, en ekki sökum skorts á prófskírteinum. Mér finnst hættulegt að setja alla báta undir 15 m undir sama hatt. Bátar sem eru nýlega smíðaðir eru margfalt stærri og allt öðruvísi, en bátar hafa verið fram að þessu. Þeir eru einnig gerðir út öðruvísi en hinir, þ. e. nánast upp á hvern dag ársins. Ég vil biðja samgöngunefnd að kynna sér rekstrarfyrirkomulag báta undir 15 m. Báturinn minn; Sæljómi BA 59 (2050) er innan við 12 m að mælingarlengd. Hann er með viðhaldssamning við smiðju. Vélarstærð er 115 KW og hann gengur 8 mílur. Ég vil taka fram að ég hef gert út fjóra báta á 50 ára tímabili, nú í maí 2021. Það hefur aldrei þurft að draga bát frá mér í land, en ég hef aðstoðað marga. Ef þetta frumvarp gengur í gegn, þá kemst ég ekki á sjó, því mig vantar vélstjóraréttindin. Einnig má nefna að ég er á útkallslista á björgunarskipinu Verði II, hér á staðnum og fór síðast í útkall nú í janúar. Mig langar að koma á framfæri tillögu varðandi mönnun smábáta, þegar verið er á sjó lengur en í 14 tíma: Að ekki sé þörf á réttindamanni, sem öðrum manni um borð. Skýring: Ég og fleiri sem höfum tekið með okkur byrjendur á sjóinn; þ.a.l. hafa viðkomandi ekki verið komnir með réttindi. Mér finnst lágmarkið að greinin um mönnun fiskiskipa, miðist ekki eingöngu við stýrimannsréttindi, heldur einnig háseta. Getur háseti ekki staðið vakt? Tveir skráðir um borð, það gefur hliðstætt öryggi, sem væntanlega er verið að sækjast eftir. T.d. þegar maður er á línu eða grásleppu, þá er aldrei hægt að sjá það fyrir hversu langur róðurinn verður. Sá veiðiskapur er oft vaggan að byrjunarferli sjómanna. Að fenginni reynslu af strandveiðunum; þá var ég einu sinni lengur en 14 tíma í róðrinum. Það stóð ekki á viðbrögðum Fiskistofu: Ef þetta kæmi fyrir aftur, þá yrði veiðileyfið tekið af mér! Samt voru tveir skráðir um borð. Eftirlit með smábátum er að verða all ískyggilegt. Virðingarfyllst, Halldór Árnason Mýrum 8, 450 Patreksfirði

  • #5SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu

    Meðfylgjandi er umsögn SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu um drög að frumvarpi til laga um áhafnir skipa.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 29. apríl 2021
    1 beiðni um umsögn
  2. Umræða
    Umræða
    37 ræður · 1 klst. 12 mín

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

37 ræður · 1 klst. 12 mín
  • Umræða: 37 ræður · 10 ræðumenn · 1 klst. 12 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Svandís SvavarsdóttirUtan þingflokka1937 mín
Bergþór ÓlasonMiðflokkurinn25 mín
Björn Leví GunnarssonUtan þingflokka24 mín
Ólafur Þór GunnarssonUtan þingflokka24 mín
Halla Signý KristjánsdóttirFramsóknarflokkur24 mín
Logi EinarssonSamfylkingin24 mín
Bryndís HaraldsdóttirSjálfstæðisflokkur23 mín
Jón Steindór ValdimarssonViðreisn23 mín
Guðmundur Ingi KristinssonFlokkur fólksins23 mín
Ásmundur FriðrikssonSjálfstæðisflokkur23 mín

Umsagnir og erindi

10 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Umhverfis- og samgöngunefnd sendi 1 umsagnabeiðni 15. apr. 2021, frestur 29. apr. 2021.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Hafnasamband ÍslandsumsögnOpna PDF
Samtök atvinnulífsins og Samtök fyrirtækja í sjávarútvegiumsögnOpna PDF
SVÞ - Samtök verslunar og þjónustuumsögnOpna PDF
Alþýðusamband ÍslandsumsögnOpna PDF
Samtök smærri útgerðaumsögnOpna PDF
Landssamband smábátaeigendaumsögnOpna PDF
Sjómannasamband Íslands, Félag skipstjórnarmanna og Félag vélstjóra og málmtæknimannaumsögnOpna PDF
Samtök ferðaþjónustunnarumsögnOpna PDF
Slysavarnafélagið LandsbjörgumsögnOpna PDF
Hilmar SnorrasonathugasemdOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.