Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 625. mál

Störf þingsins

Störf þingsinsStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að stuðla að skilvirkri opinberri þjónustu, auka gagnsæi við meðferð mála og hagkvæmni í stjórnsýslu og tryggja örugga leið til að miðla gögnum til einstaklinga og lögaðila. Að meginboðleið stjórnvalda við einstaklinga og lögaðila verði stafræn og miðlæg á einum stað.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Störf þingsins
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
15 ræður · 33 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 25. jún. 2021

Markmiðið

Að stuðla að skilvirkri opinberri þjónustu, auka gagnsæi við meðferð mála og hagkvæmni í stjórnsýslu og tryggja örugga leið til að miðla gögnum til einstaklinga og lögaðila. Að meginboðleið stjórnvalda við einstaklinga og lögaðila verði stafræn og miðlæg á einum stað.

Hvað breytist

Lagt er til að starfrækt verði stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda og gert er ráð fyrir þeirri meginreglu að stjórnvöld sendi gögn til einstaklinga og lögaðila með rafrænum hætti í pósthólfið. Frumvarpið tekur til allra gagna, þ.m.t. tilkynninga, ákvarðana og ákvaða sem viðtakandi er bundinn af, m.t.t. kærufrests og efni gagnanna að öðru leyti. Sú aðferð að senda gögnin rafrænt myndi hafa sömu réttaráhrif og þegar gögn berast með bréfpósti eða öðrum hætti. Gert er ráð fyrir að einstaklingar sem hafa fengið útgefna kennitölu samkvæmt lögum um skráningu einstaklinga og lögaðilar sem skráðir eru með kennitölu í fyrirtækjaskrá eigi hver sitt pósthólf sem að jafnaði þeir einir hafa aðgang að.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir að breytt fyrirkomulag við birtingar hafi í för með sér hagræðingu fyrir ríkissjóð á bilinu 300–700 milljónir kr. á ári.

Meira úr samantektinni

Island.is.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Bryndís Haraldsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Efnahags- og viðskiptanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 14. apr. 2021
Sendu inn umsögn eða erindi
16 aðilar
Persónuvernd, Umboðsmaður barna, Sýslumannafélag Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, Hrafn Sveinbjarnarson og Þorsteinn Tryggvi Másson o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
33 mín · 15 ræður
15 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir að breytt fyrirkomulag við birtingar hafi í för með sér hagræðingu fyrir ríkissjóð á bilinu 300–700 milljónir kr. á ári.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Sýna 9 í viðbót

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-196/2020· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. sep. 2020 – 8. okt. 2020· 11 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um stafrænt pósthólf

Með frumvarpi til laga um birtingu gagna í stafrænu pósthólfi er gert ráð fyrir að heimila stjórnvöldum að senda gögn til einstaklinga og lögaðila með stafrænum hætti. Sú aðferð að senda gögn á vegum hins opinbera með rafrænum hætti mun hafa sömu réttaráhrif og þegar bréf er í dag sent á lögheimili viðkomandi.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-196/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 8. október 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 11 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (14. september 2021)

Alls bárust ellefu umsagnir, frá Grafíu, stéttarfélagi í prent- og miðlunargreinum, Hagsmunasamtökum heimilanna, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Þjóðskrá Íslands og frá fimm einstaklingum. Helst snéru athugasemdirnar að rafrænni auðkenningu og aðgengi fatlaðra og aldraðra einstaklinga að pósthólfinu. Farið yfir þær umsagnir og ábendingar sem bárust og þau atriði sem þörfnuðust skýringa hafa verið skýrð betur í greinargerð með drögum að frumvarpi til laga um stafrænt pósthólf sem birt var í samráðsgátt stjórnvalda 23.11.2020 sem mál nr. 253/2020.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (11)
  • #1Guðmundur Gíslason

    Góðan dag. Hef verulegar áhyggjur fyrir hönd þeirra sem komnir eru á aldur og hafa aldrei tileinkað sér tölvur. Þó margir geta beðið börn eða vina til að aðstoða er bara ekkert víst að fólk vilji að aðrir séu að hnísast í sín mál og allir eiga rétt á einkamáum sínum.. Hittt atriðið er prenthlutinn. Kem sjálfur úr þeim geira og veit að þar er viðkvæm staða. Takk fyrir

  • #2Grafía-stéttarfélag í prent- og miðlunargreinum
    Reykjavík, 6. október 2020. Efni: Umsögn vegna áforms um frumvarps um stafrænt pósthólf GRAFÍA stéttarfélag í prent- og miðlunargreinum mótmælir fyrirhugaðri breytingu á útsendingu bréfasendinga á vegum stjórnvalda. Lagt er til að heimila stjórnvöldum að birta tilkynningar í stafrænu pósthólfi einstaklinga og lögaðila í stað hefðbundinna bréfasendinga og fara í stafrænt pósthólf með bréf á vegum stjórnvalda. Þrátt fyrir að eðlilegt sé að nýta tæknina og hagræða þar sem möguleiki er teljum við að ekki sé tímabært að leggja af bréfasendingar á vegum stjórnvalda. Það er sjálfsagður… Lesa alla

    Reykjavík, 6. október 2020. Efni: Umsögn vegna áforms um frumvarps um stafrænt pósthólf GRAFÍA stéttarfélag í prent- og miðlunargreinum mótmælir fyrirhugaðri breytingu á útsendingu bréfasendinga á vegum stjórnvalda. Lagt er til að heimila stjórnvöldum að birta tilkynningar í stafrænu pósthólfi einstaklinga og lögaðila í stað hefðbundinna bréfasendinga og fara í stafrænt pósthólf með bréf á vegum stjórnvalda. Þrátt fyrir að eðlilegt sé að nýta tæknina og hagræða þar sem möguleiki er teljum við að ekki sé tímabært að leggja af bréfasendingar á vegum stjórnvalda. Það er sjálfsagður réttur landsmanna að hafa val um að fá bréfpóst eða rafræna sendingu. Mikið atvinnuleysi er í prentiðnaði þessi misserin og hefur samdráttur aukist jafnt og þétt. Af 603 starfandi félagsmönnum eru 53 eða tæp 9% í atvinnuleit og þiggja 100% atvinnuleysisbætur auk þess sem 90 félagsmenn fá 50% atvinnuleysisbætur í svokallaðri hlutabótaleið stjórnvalda sem er um 7% atvinnuleysi til viðbótar og er því atvinnuleysi u.þ.b. 16,2% um þessar mundir. Þessi ráðstöfun bætir ekki stöðuna og hætt við að þessi breyting auki atvinnuleysi í greininni sem aftur skilar sér í aukunum útgjöldum ríkisins. Þannig er vandséð að breytingin skili þeirri hagræðingu sem áætluð er. Með félagskveðju, Georg Páll Skúlason, formaður GRAFÍA stéttarfélag í prent- og miðlunargreinum aðildarfélag Rafiðnaðarsambands Íslands

  • #3Tryggingastofnun - rekstur

    Meðfylgjandi er umsögn Tryggingastofnunar um áform Fjármála- og efnahagsráðuneytisins um frumvarp til laga um stafrænt pósthólf, sjá viðhengi.

  • #4Þjóðskrá Íslands

    Meðfylgjandi er umsögn Þjóðskrár Íslands vegna áforma frumvarps til laga um stafrænt pósthólf.

  • #5Sigurvin Ólafsson

    Umsögn skilað inn fyrir hönd Umslags ehf. og Burðargjalda ehf., sjá viðhengi.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-254/2020· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. nóv. 2020 – 7. des. 2020· 13 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda

Með frumvarpi til laga um stafrænt pósthólf er gert ráð fyrir þeirri meginreglu að stjórnvöld sendi gögn til einstaklinga og lögaðila með stafrænum hætti í gegn um stafrænt pósthólf. Sú aðferð mun hafa sömu réttaráhrif og þegar gögn berast með bréfpósti eða öðrum hætti.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-254/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 7. desember 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 13 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (14. september 2021)

Frumvarpið var samþykkt sem lög frá Alþingi 25. júní 2021. Í 5. kafla í greinargerð með frumvarpi til laganna er fjallað um umsagnir í samráðsgáttinni.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (13)
  • #1Bjarni Valur Guðmundsson

    Ágæti viðtakandi. Ég mótmæli því harðlega að fólk, þar á meðal öryrkjar og eldri borgarar sem á e.t.v. ekki einu sinni snjallsíma og/eða tölvu, verði skyldað til að vera með þetta stafræna pósthólf. Mér finnst afskaplega sérkennilegt að flokkur sem stendur fyrir frelsi einstaklingsins, þ.e. Sjálfstæðisflokkurinn, skuli standa fyrir þessu. Fólk á að hafa val um þetta. Með virðingu, Bjarni.

  • #2Hagsmunasamtök heimilanna

    Sjá viðhengi.

  • #3Björgvin Rúnar Leifsson

    Góðan dag. Mér skilst að það standi til að allir með íslenska kennitölu fái rafrænt pósthólf. Á að líka við um þá sem búa erlendis? Ef svo er, þá vek ég athygli á að þeir hafa ekki að aðgang að rafrænum skilríkjum nema þeir haldi íslenska símanúmerinu sínu.

  • #4Friðjón Guðjohnsen
    Með frumvarpinu er lögð kvöð á einstaklinga um að hafa til staðar rafræn skilríki. Á Íslandi er útbreiddasta útgáfan af þeim í formi rafrænna skilríkja á farsíma. Í þessar kvöð felst einnig krafa til einstaklinga til að gæta að öllum öryggisþáttum sem geta leitt til þess að óviðkomandi komist í stjórn yfir rafrænu skilríkin og geti misnotað þau. Þegar skoðað er hvaða þættir geta stefnt öryggi rafrænna skilríkja á farsíma í hættu er ljóst að þeir eru þó nokkrir: * Notkun á farsíma sem ekki er uppfærður með nýjustu öryggisuppfærslum. * Notkun á þráðlausum netum sem óvinveittur aðili hefur st… Lesa alla

    Með frumvarpinu er lögð kvöð á einstaklinga um að hafa til staðar rafræn skilríki. Á Íslandi er útbreiddasta útgáfan af þeim í formi rafrænna skilríkja á farsíma. Í þessar kvöð felst einnig krafa til einstaklinga til að gæta að öllum öryggisþáttum sem geta leitt til þess að óviðkomandi komist í stjórn yfir rafrænu skilríkin og geti misnotað þau. Þegar skoðað er hvaða þættir geta stefnt öryggi rafrænna skilríkja á farsíma í hættu er ljóst að þeir eru þó nokkrir: * Notkun á farsíma sem ekki er uppfærður með nýjustu öryggisuppfærslum. * Notkun á þráðlausum netum sem óvinveittur aðili hefur stjórn á. * Notkun á farsíma sem óvinveittur aðili fær einhvern aðgang að, hvort sem er með áþreifanlegum hætti eða með fjarlægri tengingu. * Notkun á forritum skrifuðum af óvinveittum aðila sem ógna öryggi farsímans * Ótal mörg önnur atriði ... Þótt hugsanlega megi sjá fyrir sér að hægt sé að nota farsíma á öruggan hátt þannig að óvinveittir aðilar munu ekki komast í stjórn yfir rafrænum skilríkjum á símanum er líklegt að stór hluti almennings sinni slíkum öryggisatriðum ekki endilega vel. Það hafa komið upp mörg tilfelli þar sem stýrikerfi farsíma hafa verið haldið slíkum göllum að ómögulegt er fyrir jafnvel grandvaran einstakling að gera nauðsynlegar öryggisráðstafanir. Því til viðbótar er venjuleg notkun á farsíma ekki til þess fallin að gæta að öryggi þeirra. Með því að gera farsíman að hluta af öruggum undirskriftarbúnaði er ekki lengur hyggilegt að nota síman á sama hátt og áður. Afleiðingar af misnotkun óvinveittra aðila á rafrænu skilríkjunum geta verið mjög alvarlegar. Undirskrift með rafrænum skilríkjum er álitin jafngild undirskrift á pappír. Sá munur er þó á að aðili sem verður fyrir því að óvinveittur aðili framkallar rafræna undirskift án samþykkis er í vonlausri stöðu til að sýna fram á slíkt. Þessi kvöð á hendur einstaklingum til þess að þurfa að hafa rafræn skilríki opnar því alla einstaklinga fyrir mögulegri misnotkun skilríkjana. Einstaklingarnir hafa ekki lengur val um það hvort þeir meti hagræðið af notkun þeirra vega upp á móti áhættuni af þeim. Litlar takmarkanir virðast vera á því hvað slík rafræn undirskrift getur skuldbundið eiganda hennar fyrir. Það væri strax til bóta ef einstaklingurinn gæti tiltekið, þegar rafræn skilríki eru fengin, að með þeim fylgi engin skuldbinding, aðeins sönnun á auðkenni. Þ.e. að einstaklingurinn sem notar rafrænu skilríkin vilji eingöngu nota þau til að sýna fram á auðkenni sitt en ekki til að skuldbinda sig á nokkurn hátt. Þetta ætti ekki að vera flókið í framkvæmd, hægt væri þegar rafrænu skilríkin eru fengin að bjóða upp á mismunandi tegundir rafræna skilríkja. Þannig gæti ein tegund eingöngu verið til auðkenningar en t.d. ekki til að skrifa undir lánasamninga eða aðrar skuldbindandi gjörðir. Þá gætu þeir sem efasemdir hafa um möguleika sinn á að halda farsíma sínum öruggum, kosið að fá sér aðeins auðkennandi rafræn skilríki en ekki skuldbindandi. Þetta væri einnig mun hófsamari leið til að ná markmiðum frumvarpsins, og leiddi ekki til þess að allir þyrftu að taka á sig eins miklar kvaðir um að halda farsímanum sínum öruggum. Það væri auðvitað slæmt, en ekki eins slæmt og ef óvinveittur aðili skrifar t.d. undir lánasamning í nafni fórnarlambsins. Möguleg misnotkun mundi þá gefa óvinveittum aðilum færi á að komast í gögn viðkomandi en ekki til þess að skuldbinda fórnarlambið með öfugri sönnunarbyrði. Það að gera kröfu um að einstaklingar fá sér rafræn skilríki með möguleikan á svo til ótakmarkaðri skuldbindingu er afarósanngjarnt af stjórnvöldum. Það sem stjórnvöld þurfa í þessu tilfelli er aðeins að koma gögnum til einstaklingana en ekki að neyða þá til þess að opna aðra leið fyrir ótakmarkaðar skuldbindingar sem mun vera hægt að misnota af óvinveittum aðilum.

  • #5Bragi Leifur Hauksson
    Ágætu viðtakendur umsagnar og samborgarar allir. Ég hef um árabil komið að þróun og rekstri þeirra kerfa sem hér um ræðir. Almennt finnst mér alltaf besta sjónarhornið að skoða þetta út frá því sem hentar viðskiptavininum (borgaranum eða lögaðilanum) best. Mín reynsla er sú að þannig endar maður með lausnina sem hentar öllum best (win – win). Hér á eftir fer ég yfir nokkur atriði sem tengjast þessum frumvarpsdrögum. 1. Það hefur lengi verið mikilvægt að setja í lög að birting í pósthólfi á Ísland.is hafi sömu réttaráhrif og birtingar sem tilgreindar kunna að vera í lagatexta. Þetta er þ… Lesa alla

    Ágætu viðtakendur umsagnar og samborgarar allir. Ég hef um árabil komið að þróun og rekstri þeirra kerfa sem hér um ræðir. Almennt finnst mér alltaf besta sjónarhornið að skoða þetta út frá því sem hentar viðskiptavininum (borgaranum eða lögaðilanum) best. Mín reynsla er sú að þannig endar maður með lausnina sem hentar öllum best (win – win). Hér á eftir fer ég yfir nokkur atriði sem tengjast þessum frumvarpsdrögum. 1. Það hefur lengi verið mikilvægt að setja í lög að birting í pósthólfi á Ísland.is hafi sömu réttaráhrif og birtingar sem tilgreindar kunna að vera í lagatexta. Þetta er því gleðilegt og löngu tímabært. Það sem ég hnýt hins vegar um er að það eru lagðar alls kyns kvaðir á viðtakanda sendingar, en litlar á birtingaraðilann. Högun pósthólfsins er mjög nútímaleg og upplýsingar um skjal eru sendar í pósthólfið, en skjalið/sendingin sjálf ekki afhent fyrr en viðtakandi vill opna hana. Þannig veit viðkomandi birtingararaðili nákvæmlega hvenær sendingin hefur verið opnuð. Þar með veit birtingaraðili auðvitað líka ef sendingin hefur ekki verið opnuð. Birtingaraðili getur óskað eftir að hnippt sé í viðtakanda þegar hann á sendingu. Ef um „mikilvægar“ sendingar er að ræða er því eðlilegt að birtingaraðili geri fleiri en eina tilraun til þess að vekja athygli viðtakanda á sendingunni, en bíði ekki bara eftir því að hann sitji í súpunni. Þetta gæti verið með SMS hnippi og jafnvel ef allt annað þrýtur, með póstsendingu. Frumvarpsdrögin gera birtingaraðila allt of stikkfrí á sama tíma og viðtakandinn verður strax að vera á tánum. Birtingaraðilar fá hins vegar fjögurra ára aðlögunartíma! 2. Ég held að flestir muni fagna því að fá allar sínar sendingar í pósthólfið. Það verður hins vegar ekki framhjá því litið að það hentar ekki endilega öllum. Ýmsar hugmyndir varðandi lausnir hafa verið viðraðar í gegnum tíðina, t.d. að prenta á 7-14 daga fresti út allt sem viðkomandi hefur fengið í pósthólfið sitt á því tímabili og setja í eitt umslag og senda viðkomandi. Það er skautað svolítið létt yfir þetta í frumvarpsdrögunum og bara hamrað á gjaldtökuheimild. Þetta er hins vegar sennilega viðkvæmasti hópurinn og því mikilvægt að koma fram við hann af nærgætni! 3. Innskráningarþjónusta Ísland.is er nýtt af hundruðum þjónustuveitenda með góðum árangri. Þar er boðið upp á innskráningu á vefi í krafti Íslykils, styrkts Íslykils og rafrænna skilríkja. Hver þjónustuveitandi ákveður hvaða kröfur hann gerir til innskráningar hjá sér. Þorri þjónustuveitenda veitir aðgang að sinni þjónustu í krafti Íslykils, en örfáir aðilar gera kröfu um styrktan Íslykil eða rafræn skilríki. Eins er það með pósthólfið, þar ákveða birtingaraðilar hvaða kröfur eru gerðar til auðkenningar svo veita megi aðgang að sendingu. Nær allir birtingaraðilar gera bara kröfu um Íslykil. Ég man eftir einum birtingaraðila sem gerir kröfu um rafræn skilríki til að aðgangur sé veittur að skjölum hans í pósthólfiinu. Sá aðili veitir hins vegar aðgang að sömu gögnum á vef sínum með einföldu lykilorði. Ef bara er gerð krafa um Íslykil, þá kemst fólk auðvitað líka inn á styrktum Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Ef skilja á frumvarpsdrögin sem svo að gera eigi kröfu um rafræn skilríki í öllum tilvikum, þá er það STÓRSLYS. Ágætt er að rifja upp að fyrir mörgum árum var gerð tilraun til að „þröngva“ þjóðinni til þess að fara að nýta rafræn skilríki á debetkortum. Það var algjört fíasko. Rafræn skilríki í símum eru auðvitað mun notendavænni, en henta alls ekki öllum. Í stjórnsýslunni er gjarna hamrað á því að meðalhófs skuli gætt og ekki settar upp áþarfa hindranir fyrir fólk. Hérna er einmitt gott að hafa það í huga. Áherslan á að vera á það að veita góða þjónustu og mæta viðskiptavininum þar sem það hentar honum. Borgarinn í öndvegi. Þjónusta, þjónusta, þjónusta og aftur þjónusta! 4. Af hverju er ekki rétt að gera alls staðar kröfu um rafræn skilríki? Það eru margar ástæður fyrir því. Með því að gera alltaf kröfu um rafræn skilríki, þá missum við alltaf einhverja fyrir borð, sem ekki treysta sér til þess að nota rafræn skilríki. Vilji menn gera meiri kröfur en bara Íslykil, þá er styrktur Íslykill mjög góður kostur og sambærilegur við varaleið bankanna inn í heimabanka. Bankarnir gera miklar kröfur um öryggi og því ágætt að líta til þess hvað þeir telja að veiti gott öryggi. Ég mæli alls ekki með að þeir sem þurfa mikla aðstoð við sín tölvumál fái sér rafræn skilríki. Rafræn skilríki eru hættulega öflug, eins og bent hefur verið á í annarri umsögn. Fíkniefnafíklar og spilafíklar finnast því miður í mörgum fjölskyldum og sjúkleikinn getur valdið stórfelldu fjárhagslegu tjóni hjá viðkvæmum handhafa rafrænna skilríkja, svo dæmi sé tekið. 5. Gleymum ekki að viðskiptavinir opinberra stofnana eru öll þjóðin, ekki bara hip og kúl lið! Bragi L. Hauksson, tölvunarfræðingur

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 14. apríl 2021
    1 beiðni um umsögn
  2. Umræða
    Umræða
    15 ræður · 33 mín

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

15 ræður · 33 mín
  • Umræða: 15 ræður · 15 ræðumenn · 33 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Willum Þór ÞórssonFramsóknarflokkur12 mín
Smári McCarthyUtan þingflokka12 mín
Sigurður Páll JónssonMiðflokkurinn12 mín
Ólafur Þór GunnarssonUtan þingflokka12 mín
Ólafur ÍsleifssonMiðflokkurinn12 mín
María HjálmarsdóttirSamfylkingin12 mín
Lilja Rafney MagnúsdóttirUtan þingflokka12 mín
Karl Gauti HjaltasonMiðflokkurinn12 mín
Inga SælandFlokkur fólksins12 mín
Helgi Hrafn GunnarssonUtan þingflokka12 mín
Hanna Katrín FriðrikssonViðreisn12 mín
Guðmundur Ingi KristinssonFlokkur fólksins12 mín
Bryndís HaraldsdóttirSjálfstæðisflokkur12 mín
Birgir ÁrmannssonSjálfstæðisflokkur12 mín
Ásmundur FriðrikssonSjálfstæðisflokkur12 mín

Umsagnir og erindi

16 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 30. mar. 2021, frestur 14. apr. 2021.

Hver sendiTegundBarstSkjal
PersónuverndumsögnOpna PDF
Umboðsmaður barnaumsögnOpna PDF
Sýslumannafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
Hrafn Sveinbjarnarson og Þorsteinn Tryggvi MássonumsögnOpna PDF
Viðskiptaráð ÍslandsumsögnOpna PDF
Creditinfo Lánstraust hfumsögnOpna PDF
Bragi Leifur HaukssonumsögnOpna PDF
Þjóðskrá ÍslandsumsögnOpna PDF
Landssamtökin ÞroskahjálpumsögnOpna PDF
BlindrafélagiðumsögnOpna PDF
Tryggingastofnun ríkisinsumsögnOpna PDF
Samtök fjármálafyrirtækjaumsögnOpna PDF
Guðbjörn JónssonumsögnOpna PDF
Hagsmunasamtök heimilannaumsögnOpna PDF
Þjóðskjalasafn ÍslandsumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.