Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 602. mál

Útlendingar og atvinnuréttindi útlendinga

Alþjóðleg vernd, brottvísanir, dvalar- og atvinnuleyfi

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 17. mar. 2021

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 151. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að stuðla að gagnsærri og stöðugri framkvæmd laganna, auka skilvirkni og stytta málsmeðferðartíma til hagsbóta fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi. Að bæta meðferð opinbers fjár.

Lagt fram af Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
15. mars 2021
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
46 ræður · 2 klst. 51 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 22. feb. 2023

Markmiðið

Að stuðla að gagnsærri og stöðugri framkvæmd laganna, auka skilvirkni og stytta málsmeðferðartíma til hagsbóta fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi. Að bæta meðferð opinbers fjár.

Hvað breytist

Með frumvarpinu er brugðist við ábendingum frá Útlendingastofnun, kærunefnd útlendingamála og eftirlitsnefnd Schengen. Auk þess þykir býnt að bregðast við fjölgun umsækjenda sem þegar hafa hlotið alþjóðlega vernd í öðrum Evrópuríkjum. Á meðal þeirra álitaefna sem frumvarpinu er ætlað að taka á eru atriði er snerta forgangsmeðferð tilhæfulausra umsókna, málsmeðferðartími umsókna barna um alþjóðlega vernd, hvenær taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar, hlutverk Barnaverndarstofu við veitingu alþjóðlegrar verndar fyrir fylgdarlaus börn sem sækja um slíka vernd hér á landi, orðalag útilokunarástæðna við ákvörðun um ríkisfangsleysi, réttindi og skyldur flóttafólks sem kemur til landsins í boði íslenskra stjórnvalda, fjölskyldusameiningu flóttafólks, afturköllun verndar sem veitt er á grundvelli slíkrar sameiningar, hvenær veita beri þjónustu sem umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga rétt á skv. 33. gr. laga um útlendinga og hvenær hún eigi að falla niður.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir útgjaldabreytingum sem nokkru nemi fyrir ríkissjóð.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Birgir Ármannsson

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 7. apr. 2021
Sendu inn umsögn eða erindi
11 aðilar
Starfshópur þjóðkirkjunnar um málefni flóttafólks, Alþýðusamband Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, Réttur - ráðgjöf og málflutningur ehf, Kærunefnd útlendingamála o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
2 klst. 51 mín · 46 ræður
10 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir útgjaldabreytingum sem nokkru nemi fyrir ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Sýna 4 í viðbót

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    46 ræður · 2 klst. 51 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 7. apríl 2021
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1029Stjórnarfrumvarp15. mar. 2021Áslaug Arna SigurbjörnsdóttirLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur17. mars 2021 kl. 18:03
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ allsherjar- og menntamálanefnd17. mars 2021 kl. 18:03
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

46 ræður · 2 klst. 51 mín
  • 1. umræða: 46 ræður · 10 ræðumenn · 2 klst. 51 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Andrés Ingi JónssonUtan þingflokka114 mín
Áslaug Arna SigurbjörnsdóttirSjálfstæðisflokkur1332 mín
Birgir ÞórarinssonMiðflokkurinn522 mín
Guðmundur Andri ThorssonSamfylkingin522 mín
Helgi Hrafn GunnarssonUtan þingflokka1031 mín
Olga Margrét CiliaUtan þingflokka23 mín
Ólafur ÍsleifssonMiðflokkurinn215 mín
Rósa Björk BrynjólfsdóttirSamfylkingin114 mín
Steinunn Þóra ÁrnadóttirUtan þingflokka517 mín
Þorbjörg Sigríður GunnlaugsdóttirViðreisn22 mín

Umsagnir og erindi

11 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 18. mar. 2021, frestur 7. apr. 2021.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Starfshópur þjóðkirkjunnar um málefni flóttafólksumsögnOpna PDF
Alþýðusamband ÍslandsumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
Réttur - ráðgjöf og málflutningur ehfumsögnOpna PDF
Kærunefnd útlendingamálaumsögnOpna PDF
Íslandsdeild Amnesty InternationalumsögnOpna PDF
Rauði krossinn á ÍslandiumsögnOpna PDF
Mannréttindaskrifstofa ÍslandsumsögnOpna PDF
ÚtlendingastofnunumsögnOpna PDF
ReykjavíkurborgumsögnOpna PDF
Dagrún Fanný LiljarsdóttirumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)