Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 563. mál

Réttindi sjúklinga

Beiting nauðungar

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 4. mar. 2021

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 151. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að skapa lagaramma um það verklag sem viðhaft er á heilbrigðisstofnunum hér á landi sem felur í sér þvinganir, valdbeitingu eða annars konar inngrip í sjálfsákvörðunarrétt, frelsi og friðhelgi einkalífs sjúklinga.

Lagt fram af Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra (Vg), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
2. mars 2021
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
8 ræður · 49 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 28. jún. 2021

Markmiðið

Að skapa lagaramma um það verklag sem viðhaft er á heilbrigðisstofnunum hér á landi sem felur í sér þvinganir, valdbeitingu eða annars konar inngrip í sjálfsákvörðunarrétt, frelsi og friðhelgi einkalífs sjúklinga.

Hvað breytist

Lagt er til að skýrt verði kveðið á um að beiting nauðungar gagnvart sjúklingum á heilbrigðisstofnunum verði bönnuð og að bannið nái einnig til fjarvöktunar. Gert er ráð fyrir að yfirlækni eða vakthafandi sérfræðilækni verði heimilt að víkja frá slíku banni í sérstökum einstaklingsbundnum tilfellum. Einnig er gert ráð fyrir að heimilt verði að beita nauðung í neyðartilvikum til að koma í veg fyrir yfirvofandi líkamstjón, stórfellt eignatjón eða röskun á almannahagsmunum. Þá er lagt til að skipað verði sérfræðiteymi um beitingu nauðungar. Gert er ráð fyrir að kveðið verði á um rétt sjúklinga til að kæra ákvörðun um beitingu nauðungar til sérfræðiteymisins eða kæra beitingu nauðungar án þess að ákvörðun liggi þar að baki. Enn fremur er lagt til að kveðið verði á um skráningu allra tilvika sem fela í sér nauðung eða fjarvöktun.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir kostnaði vegna skipunar sérfræðiteymis um beitingu nauðungar sem og vegna umsýslu og móttöku erinda til teymisins en áætlaður kostnaður kemur ekki fram í frumvarpi.

Meira úr samantektinni

OPCAT -- eftirlit með frelsissviptum.

Athugasemdir umboðsmanns Alþingis í kjölfar eftirlitsheimsóknar hans á þrjár lokaðar deildir geðsviðs Landspítala á Kleppi í október 2018 (á ensku).

Athugasemdir frá nefnd Evrópuráðsins um varnir gegn pyndingum.

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk

Bekendtgørelse af lov om anvendelse af tvang i psykiatrien m.v. LBK nr 936 af 02/09/2019.

Finnland

Mentalvårdslag 14.12.1990/1116.

Sjá einkum kafla 4 a.

Noregur

Lov om etablering og gjennomføring av psykisk helsevern (psykisk helsevernloven) LOV-1999-07-02-62.

Lov om pasient- og brukerrettigheter (pasient- og brukerrettighetsloven) LOV-1999-07-02-63.

Sjá einkum kafla 4 A.

Lov om helsepersonell m.v. (helsepersonelloven) LOV-1999-07-02-64.

Sjá einkum 7. gr.

Lov om kommunale helse- og omsorgstjenester m.m. (helse- og omsorgstjenesteloven) LOV-2011-06-24-30.

Sjá einkum 9. kafla.

Svíþjóð

Lag om psykiatrisk tvångsvård (1991:1128).

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Ólafur Þór Gunnarsson

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Velferðarnefnd
sendi 2 umsagnabeiðnir · frestur 26. mar. 2021
Sendu inn umsögn eða erindi
7 aðilar
Hugarafl, Félag heyrnarlausra, Landspítalinn, Hrafnista, Landssamtökin Þroskahjálp o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
49 mín · 8 ræður
3 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir kostnaði vegna skipunar sérfræðiteymis um beitingu nauðungar sem og vegna umsýslu og móttöku erinda til teymisins en áætlaður kostnaður kemur ekki fram í frumvarpi.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    8 ræður · 49 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 26. mars 2021
    2 beiðnir um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Þingskjal

Þingskjöl

3 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
943Stjórnarfrumvarp2. mar. 2021Svandís SvavarsdóttirLesaPDF
1698Nefndarálit10. jún. 2021Ólafur Þór Gunnarsson, Ásmundur Friðriksson +4LesaPDF
1699Breytingartillaga10. jún. 2021Ólafur Þór Gunnarsson, Ásmundur Friðriksson +4LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur4. mars 2021 kl. 16:36
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ velferðarnefnd4. mars 2021 kl. 16:36
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

8 ræður · 49 mín
  • 1. umræða: 8 ræður · 3 ræðumenn · 49 mín

Umsagnir og erindi

7 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Velferðarnefnd sendi 2 umsagnabeiðnir 12. mar. 2021, frestur 26. mar. 2021.

Hver sendiTegundBarstSkjal
HugaraflumsögnOpna PDF
Félag heyrnarlausraumsögnOpna PDF
LandspítalinnumsögnOpna PDF
HrafnistaumsögnOpna PDF
Landssamtökin ÞroskahjálpumsögnOpna PDF
Embætti landlæknisumsögnOpna PDF
GeðhjálpumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)