Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 561. mál

Húsnæðismál menntastofnana

Óundirbúinn fyrirspurnatímiStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að samræma ákvæði laganna við frumvarp til laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og aðlaga hlutverk Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins að þeirri þróun sem orðið hefur innan málaflokksins frá því að núgildandi lög tóku gildi.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Óundirbúinn fyrirspurnatími
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
4 ræður · 6 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 24. jún. 2021

Markmiðið

Að samræma ákvæði laganna við frumvarp til laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og aðlaga hlutverk Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins að þeirri þróun sem orðið hefur innan málaflokksins frá því að núgildandi lög tóku gildi.

Hvað breytist

Lagt er til að nafni stofnunarinnar verði breytt í Greiningar- og ráðgjafarstöð. Einnig er lagt til að uppfæra skilgreiningar laganna til samræmis við nýja löggjöf og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þá eru lagðar til breytingar sem tengjast auknu samstarfi og samþættingu þjónustu í þágu barna. Lögð er rík áhersla á að ryðja í burtu hindrunum sem kunna að vera á því að börn njóti þjónustu sem þau eiga rétt á og að samvinna þjónustukerfa sé best til þess fallin að stuðla að því að barn fái þjónustu við hæfi. Gert er ráð fyrir að Greiningar- og ráðgjafarstöð fái heimildir til að setja reglur um fyrirkomulag svokallaðra frumgreininga sem þjónustuveitendum ber að fylgja. Þá er lagt til að þeir hópar sem fá þjónustu Greiningar- og ráðgjafarstöðvar verði skilgreindir betur og skyldur stofnunarinnar gagnvart þeim verði skýrðar. Loks er lagt til að hlutverk stofnunarinnar gagnvart þjónustuveitendum verði skilgreint betur.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Viljayfirlýsing um aukið samstarf í þágu barna. Félagsmálaráðuneytið, mennta- og menningarmálaráðuneytið, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, dómsmálaráðuneytið, 7. september 2018.

Þingmannanefnd um málefni barna. Félagsmálaráðuneytið, 8. október 2018.

Stýrihópur Stjórnarráðsins í málefnum barna. Félagsmálaráðuneytið, 22. janúar 2019.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Halla Signý Kristjánsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Velferðarnefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 22. mar. 2021
Sendu inn umsögn eða erindi
5 aðilar
Landssamtökin Þroskahjálp, Samband íslenskra sveitarfélaga, Umboðsmaður barna, Öryrkjabandalag Íslands, Félagsráðgjafafélag Íslands · allar umsagnir
Umræða í þingsal
6 mín · 4 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-245/2020· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. nóv. 2020 – 27. nóv. 2020· 3 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingar á lögum um Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins nr. 83/2003 (Greiningar- og ráðgjafarstöð)

Félags- og barnamálaráðherra kynnir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Það er liður í endurskoðun á löggjöf um málefni barna sem tengist m.a. samþættingu þjónustu í þágu barna.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-245/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 27. nóvember 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (2. febrúar 2021)

Þrjár umsagnir bárust innan athugasemdafrests frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Landssamtökunum Þroskahjálp og Akureyrarbæ. Sjá niðurstöðuskjal til nánari upplýsinga.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
  • #1Landssamtökin Þroskahjálp
    Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um breytingar á lögum um Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins nr. 83/2003 (Greiningarstöð ríkisins). Landssamtökin Þroskahjálp vilja koma eftirfarandi á framfæri vegna frumvarps um breytingu á lögum um Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins. Landssamtökin Þroskahjálp hafa um áraraðir bent á þann annmarka að starfsemi stofnunarinnar miðast nánast einvörðungu við börn, eins og kemur fram í 1. gr. og er sérstaklega áréttað í 4. gr. núgildandi laga. Þroskahjálp bendir í því sambandi á að Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins er eini aðilinn sem veitir ráðgj… Lesa alla

    Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um breytingar á lögum um Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins nr. 83/2003 (Greiningarstöð ríkisins). Landssamtökin Þroskahjálp vilja koma eftirfarandi á framfæri vegna frumvarps um breytingu á lögum um Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins. Landssamtökin Þroskahjálp hafa um áraraðir bent á þann annmarka að starfsemi stofnunarinnar miðast nánast einvörðungu við börn, eins og kemur fram í 1. gr. og er sérstaklega áréttað í 4. gr. núgildandi laga. Þroskahjálp bendir í því sambandi á að Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins er eini aðilinn sem veitir ráðgjöf á landsvísu vegna þroskahömlunar og/eða einhverfu og því er enginn aðili ábyrgur fyrir ráðgjöf vegna fullorðins fólks með þessar skerðingar . Einnig skal bent á að samtökin þekkja þess dæmi að einstaklingar sem flust hafi til landsins og eru eldri en 18 ára gamlir lenda í vandræðum með að fá viðeigandi greiningu sem oft á tíðum er þó grundvöllur fyrir ýmsum réttindum og aðgangi að viðeigandi og nauðsynlegri þjónustu. Landssamtökin Þroskahjálp telja mjög æskilegt og eðlilegt að þegar lög um Greiningar- og ráðgjafastöð eru endurskoðuð verði tekið til skoðunar hvort ekki sé rétt að breyta þessu fyrirkomulagi þannig að einstaklingar eldri en 18 ára eigi greiðari leið að ráðgjöf og greiningu. Hvað varðar efnisatrið fyrirliggjandi frumvarps virðist tilgangur þess vera sá helstur að laga það að breytingum sem ráðgerðar eru með nýjum lögum sem hlotið hafa heitin lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, lög um barna- og fjölskyldustofu og lög um Gæða- og eftirlitsstofnun. Í greinargerð með frumvarpinu er rifjuð upp vinna sem fór fram á árunum 2013 og 2014 og miðaði að því að koma á laggirnar einni séhæfðri Greiningar- og ráðgjafamiðstöð vegna allra fatlana sem eftir atvikum gæti verið deildarskipt í barna- og fullorðinssvið. Landssamtökin Þroskahjálp studdu þá tillögu og styðja hana enn. Gert er ráð fyrir því samkvæmt frumvarpinu að stofnuninni sé falið að setja reglur um annars vegar frumgreiningu og hins vegar langtíma-eftirfylgd. Hvað varðar þessar reglusetningar skal haft samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga. Þess er hins vegar hvergi getið að slíkt samráð skuli haft við hagsmunasamtök fatlaðs fólk eða aðra hópa notenda þjónustunar, þótt skylt sé að hafa slíkt samráð samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem íslenska ríkið fullgilti árið 2016 og skuldbatt sig þar með til að framfylgja. Í frumvarpinu eru einnig gerðar breytingar á orða- og hugtakanotkun í núverandi lögum. Landssamtökin Þroskahjálp gera ekki miklar athugasemdir við þær orðalagsbreytingar en velta þó fyrir sér hvort samræma þurfi orðanotkun þar sem annars vegar er lagt til að fötlun sé skilgreind sem samspil skerðinga og samfélagslegra hindrana sem koma í veg fyrir fulla þátttöku (sjá 2. tl. 3. Gr.). En samt sem áður eru notuð orð eins “alvarleg frávik”, “óvenju flókin fötlun” um skerðingar einstaklinga einvörðungu. Fleira mætti tilgreina hvað varðar umdielanlega orða- og hugtakanotkun. T.a.m. virðist hugtakið “sjálfsbjörg barns” vera nokkuð sérstakt og óljóst, a.m.k. hvað lagalegt innihald varðar. Landssamtökin Þroskahjálp áskilja sér rétt til að koma frekari athugansemdum á framfæri varaðdni frumvarpið á síðari stigum meðferðar þess. Virðingarfyllst. Bryndís Snæbjörnsdóttir, formaður Þroskahjálpar Anna Lára Steindal, verkefnastjóri Þroskahjálpar í málefnum fatlaðra barna og ungmenna

  • #2Akureyrarbær
    Akureyri 26. nóvember 2020 Umsögn Akureyrarbæjar um framvarp til laga um Greiningar- og ráðgjafarstöð Ánægjulegt er að sjá nýtt frumvarp um þessa mikilvægu stofnun sem er nauðsynleg ekki síst fyrir sveitarfélög er varðar uppbyggingu á þjónustu fyrir fötluð börn og fjölskyldur þeirra. Stofnunin á að vera stuðningur í erfiðum úrlausnarefnum og að vera sá aðili sem kynnir nýjungar í rannsóknum er varðar íhlutun og þróun þjónustunnar. Sú nýjung í frumvarpinu (4.grein) um að það eigi að samræma á landsvísu innihald frumgreiningar er metnaðarfullt verkefni sem verður áhugavert að fylgja… Lesa alla

    Akureyri 26. nóvember 2020 Umsögn Akureyrarbæjar um framvarp til laga um Greiningar- og ráðgjafarstöð Ánægjulegt er að sjá nýtt frumvarp um þessa mikilvægu stofnun sem er nauðsynleg ekki síst fyrir sveitarfélög er varðar uppbyggingu á þjónustu fyrir fötluð börn og fjölskyldur þeirra. Stofnunin á að vera stuðningur í erfiðum úrlausnarefnum og að vera sá aðili sem kynnir nýjungar í rannsóknum er varðar íhlutun og þróun þjónustunnar. Sú nýjung í frumvarpinu (4.grein) um að það eigi að samræma á landsvísu innihald frumgreiningar er metnaðarfullt verkefni sem verður áhugavert að fylgjast með. Þannig ættu allir að sitja við sama borðið. Einnig er ánægjulegt að sjá að stofnunin setji sér reglur um hvað langtímaeftirfylgd inniber því það er oft á tímum óljóst. Mjög jákvætt er fyrir tilvonandi Barna- og fjölskyldustofu að styrkja tengslin við Greiningarstöð þar sem þar liggur sérþekking sem Barnaverndarstofu hefur skort. Helstu athugasemdir við frumvarpið snúa að því sem ekki er þar. Ekki er gert ráð fyrir breytingum á aldri þeirra sem njóta þjónustu stofnunarinnar og því ekki verið að leysa vanda, sérstaklega ungs fólks sem þarf verulega sérhæfða þjónustu sem er miður. Ekki er sett inn í lögin ákvæði um landshlutateymi sem myndi styrkja samband Greiningarstöðvar við landsbyggðina og styrkja þar faglegt starf. Það er ljóst að verklag varðandi mat á umönnunarþyngd fatlaðra barna þarf að endurskoða. Nota hefði átt tækifærið við endurskoðun þessara laga að Greiningarstöð hefði hlutverk í þeirri vinnu sem þarf að fara fram t.d. með því að tengja SIS mat við umönnunarmatið. f.h. Akureyrarbæjar Karólína Gunnarsdóttir Sviðsstjóri búsetusviðs Akureyrarbæjar

  • #3Samband íslenskra sveitarfélaga

    Meðfylgjandi er umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga. f.h. sambandsins Valgerður Rún Benediktsdóttir

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 22. mars 2021
    1 beiðni um umsögn
  2. Umræða
    Umræða
    4 ræður · 6 mín

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

4 ræður · 6 mín
  • Umræða: 4 ræður · 2 ræðumenn · 6 mín

Umsagnir og erindi

5 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Velferðarnefnd sendi 1 umsagnabeiðni 8. mar. 2021, frestur 22. mar. 2021.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Landssamtökin ÞroskahjálpumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
Umboðsmaður barnaumsögnOpna PDF
Öryrkjabandalag ÍslandsumsögnOpna PDF
Félagsráðgjafafélag ÍslandsumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.