Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 400. mál

Þróunarsamvinna og háskólar Sameinuðu þjóðanna

Óundirbúinn fyrirspurnatímiStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að deilur neytenda við fjármálafyrirtæki, vátryggingafyrirtæki, vátryggingamiðlara og fasteignasala verði leystar hjá frjálsum viðurkenndum úrskurðaraðilum í stað lögbundinna úrskurðaraðila. Að leggja niður úrskurðarnefnd um dreifingu vátrygginga. Að gera starfsemi eftirlitsnefndar fasteignasala skilvirkari og auka svigrúm hennar til eftirlits. Að gera fyrirkomulag nefndanna skýrara í lagalegu tilliti og sveigjanlegra að því er varðar aðstöðu og rekstur.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Óundirbúinn fyrirspurnatími
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
4 ræður · 7 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 18. mar. 2021

Markmiðið

Að deilur neytenda við fjármálafyrirtæki, vátryggingafyrirtæki, vátryggingamiðlara og fasteignasala verði leystar hjá frjálsum viðurkenndum úrskurðaraðilum í stað lögbundinna úrskurðaraðila. Að leggja niður úrskurðarnefnd um dreifingu vátrygginga. Að gera starfsemi eftirlitsnefndar fasteignasala skilvirkari og auka svigrúm hennar til eftirlits. Að gera fyrirkomulag nefndanna skýrara í lagalegu tilliti og sveigjanlegra að því er varðar aðstöðu og rekstur.

Hvað breytist

Lagðar eru til breytingar til að hægt sé að innleiða réttilega tilskipun 2013/11/ESB um lausn deilumála neytenda utan dómstóla og tryggja þannig að neytendur hafi ávallt aðgang að faglegri og skilvirkri málsmeðferð utan dómstóla vegna ágreinings við seljendur sem fellur undir gildissvið laganna. Lagt er til að afnema ákvæði um úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki úr lögum og þar með skylduaðild fjármálafyrirtækja að nefndinni. Í staðinn er lagt til að neytendum verði vísað á þann úrskurðaraðila sem er bær til að taka ágreining neytenda til meðferðar samkvæmt lögum um úrskurðaraðila á sviði neytendamála. Þá er lagt til að leggja niður úrskurðarnefnd um dreifingu vátrygginga og fella úr gildi lagaákvæði sem fjalla um úrskurðarnefnd í vátryggingarmálum. Lagt er til að í stað vísunar til úrskurðarnefndanna komi vísun til viðeigandi úrskurðaraðila samkvæmt lögum um úrskurðaraðila á sviði neytendamála. Einnig er lagt til að breyta hlutverki eftirlitsnefndar fasteignasala samkvæmt lögum um sölu fasteigna og skipa þannig að hún taki ekki lengur til meðferðar einkaréttarlegan ágreining kaupanda eða seljanda fasteignar.

Lög sem breytast

Lög um úrskurðaraðila á sviði neytendamála, nr. 81/2019. Lög um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002. Lög um greiðsluþjónustu, nr. 120/2011. Lög um útgáfu og meðferð rafeyris, nr. 17/2013. Lög um neytendalán, nr. 33/2013. Lög um fasteignalán til neytenda, nr. 118/2016. Lög um vátryggingarsamninga, nr. 30/2004. Lög um dreifingu vátrygginga, nr. 62/2019. Lög um sölu fasteigna og skipa, nr. 70/2015.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir óverulegum áhrifum á ríkissjóð en að þau verði fremur til þess fallin að draga úr kostnaði ríkissjóðs en að auka hann.

Meira úr samantektinni

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/11 frá 21. maí 2013 um lausn deilumála neytenda utan dómstóla og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 2006/2004 og tilskipun 2009/22/EB (tilskipun um lausn deilumála neytenda utan dómstóla (ADR)).

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Þórarinn Ingi Pétursson

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Efnahags- og viðskiptanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 8. feb. 2021
Sendu inn umsögn eða erindi
5 aðilar
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa, Hagsmunasamtök heimilanna, Samtök fjármálafyrirtækja, Neytendasamtökin · allar umsagnir
Umræða í þingsal
7 mín · 4 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir óverulegum áhrifum á ríkissjóð en að þau verði fremur til þess fallin að draga úr kostnaði ríkissjóðs en að auka hann.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-237/2020· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. nóv. 2020 – 18. nóv. 2020· 0 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum er varða úrskurðaraðila á sviði neytendamála (einföldun úrskurðarnefnda).

Með frumvarpinu er lagt til að endurskoða gildandi fyrirkomulag úrskurðarnefndar í vátryggingarmálum, úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki, úrskurðarnefndar um dreifingu vátrygginga og eftirlitsnefndar fasteignasala.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-237/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 18. nóvember 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (15. september 2021)

Engin umsögn barst við frumvarpsdrög í samráðsgátt. Stjórnarfrumvarp var lagt fram á Alþingi þann 14. desember 2020, sbr. þskj. 574 á 151. löggjafarþingi 2020-2021 (4000 mál). Frumvarpið var samþykkt sem lög frá Alþingi þann 16. mars 2021, sbr. lög nr. 19/2021 um breytingu á ýmsum lögum er varða úrskurðaraðila á sviði neytendamála (einföldun úrskurðarnefnda).

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 8. febrúar 2021
    1 beiðni um umsögn
  2. Umræða
    Umræða
    4 ræður · 7 mín

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

4 ræður · 7 mín
  • Umræða: 4 ræður · 2 ræðumenn · 7 mín

Umsagnir og erindi

5 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 22. jan. 2021, frestur 8. feb. 2021.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Kærunefnd vöru- og þjónustukaupaumsögnOpna PDF
Hagsmunasamtök heimilannaumsögnOpna PDF
Samtök fjármálafyrirtækjaumsögnOpna PDF
NeytendasamtökinumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.