Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 400. mál

Breyting á ýmsum lögum er varða úrskurðaraðila á sviði neytendamála

Einföldun úrskurðarnefnda

LagafrumvarpSamþykktViðskipti

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 16. mar. 2021

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að deilur neytenda við fjármálafyrirtæki, vátryggingafyrirtæki, vátryggingamiðlara og fasteignasala verði leystar hjá frjálsum viðurkenndum úrskurðaraðilum í stað lögbundinna úrskurðaraðila. Að leggja niður úrskurðarnefnd um dreifingu vátrygginga. Að gera starfsemi eftirlitsnefndar fasteignasala skilvirkari og auka svigrúm hennar til eftirlits. Að gera fyrirkomulag nefndanna skýrara í lagalegu tilliti og sveigjanlegra að því er varðar aðstöðu og rekstur.

Lagt fram af Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 16. mar. 2021 greiddu 48 atkvæði með og 0 á móti; málið var samþykkt.

Lagt fram
14. desember 2020
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
6
Umræða í þingsal
6 ræður · 18 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 18. mar. 2021

Markmiðið

Að deilur neytenda við fjármálafyrirtæki, vátryggingafyrirtæki, vátryggingamiðlara og fasteignasala verði leystar hjá frjálsum viðurkenndum úrskurðaraðilum í stað lögbundinna úrskurðaraðila. Að leggja niður úrskurðarnefnd um dreifingu vátrygginga. Að gera starfsemi eftirlitsnefndar fasteignasala skilvirkari og auka svigrúm hennar til eftirlits. Að gera fyrirkomulag nefndanna skýrara í lagalegu tilliti og sveigjanlegra að því er varðar aðstöðu og rekstur.

Hvað breytist

Lagðar eru til breytingar til að hægt sé að innleiða réttilega tilskipun 2013/11/ESB um lausn deilumála neytenda utan dómstóla og tryggja þannig að neytendur hafi ávallt aðgang að faglegri og skilvirkri málsmeðferð utan dómstóla vegna ágreinings við seljendur sem fellur undir gildissvið laganna. Lagt er til að afnema ákvæði um úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki úr lögum og þar með skylduaðild fjármálafyrirtækja að nefndinni. Í staðinn er lagt til að neytendum verði vísað á þann úrskurðaraðila sem er bær til að taka ágreining neytenda til meðferðar samkvæmt lögum um úrskurðaraðila á sviði neytendamála. Þá er lagt til að leggja niður úrskurðarnefnd um dreifingu vátrygginga og fella úr gildi lagaákvæði sem fjalla um úrskurðarnefnd í vátryggingarmálum. Lagt er til að í stað vísunar til úrskurðarnefndanna komi vísun til viðeigandi úrskurðaraðila samkvæmt lögum um úrskurðaraðila á sviði neytendamála. Einnig er lagt til að breyta hlutverki eftirlitsnefndar fasteignasala samkvæmt lögum um sölu fasteigna og skipa þannig að hún taki ekki lengur til meðferðar einkaréttarlegan ágreining kaupanda eða seljanda fasteignar.

Lög sem breytast

Lög um úrskurðaraðila á sviði neytendamála, nr. 81/2019. Lög um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002. Lög um greiðsluþjónustu, nr. 120/2011. Lög um útgáfu og meðferð rafeyris, nr. 17/2013. Lög um neytendalán, nr. 33/2013. Lög um fasteignalán til neytenda, nr. 118/2016. Lög um vátryggingarsamninga, nr. 30/2004. Lög um dreifingu vátrygginga, nr. 62/2019. Lög um sölu fasteigna og skipa, nr. 70/2015.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir óverulegum áhrifum á ríkissjóð en að þau verði fremur til þess fallin að draga úr kostnaði ríkissjóðs en að auka hann.

Meira úr samantektinni

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/11 frá 21. maí 2013 um lausn deilumála neytenda utan dómstóla og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 2006/2004 og tilskipun 2009/22/EB (tilskipun um lausn deilumála neytenda utan dómstóla (ADR)).

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Þórarinn Ingi Pétursson

Lokaatkvæðagreiðsla
16. mar. 2021
Samþykkt48 með · 0 á móti
Að samþykkja frumvarpið „Breyting á ýmsum lögum er varða úrskurðaraðila á sviði neytendamála“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S14–0
  • 239–0
  • M6–0
  • F5–0
  • Sf6–0
  • 435–0
  • V2–0
  • Flf1–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Efnahags- og viðskiptanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 8. feb. 2021
Sendu inn umsögn eða erindi
5 aðilar
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa, Hagsmunasamtök heimilanna, Samtök fjármálafyrirtækja, Neytendasamtökin · allar umsagnir
Umræða í þingsal
18 mín · 6 ræður
3 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir óverulegum áhrifum á ríkissjóð en að þau verði fremur til þess fallin að draga úr kostnaði ríkissjóðs en að auka hann.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 16. mars 2021: 48 með, 0 á móti.

Greiddu atkvæði með3 tóku til máls

45 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    5 ræður · 14 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 8. febrúar 2021
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Umræða
    2. umræða
    1 ræða · 4 mín
  8. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 54 með, 0 á móti
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 53 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 54 með, 0 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 54 með, 0 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 52 með, 0 á móti
  13. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  14. Þingskjal
  15. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 48 með, 0 á móti
  16. Þingskjal

Þingskjöl

4 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
574Stjórnarfrumvarp14. des. 2020Þórdís Kolbrún Reykfjörð GylfadóttirLesaPDF
995Nál. með brtt.9. mar. 2021Óli Björn Kárason, Þórarinn Ingi Pétursson +4LesaPDF
1023Frumvarp eftir 2. umræðu15. mar. 2021—LesaPDF
1045Lög (samhlj.)16. mar. 2021—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

9 alls · 6 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Hverjir tóku til máls

6 ræður · 18 mín
  • 1. umræða: 5 ræður · 2 ræðumenn · 14 mín
  • 2. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 4 mín

Umsagnir og erindi

5 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 22. jan. 2021, frestur 8. feb. 2021.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Kærunefnd vöru- og þjónustukaupaumsögnOpna PDF
Hagsmunasamtök heimilannaumsögnOpna PDF
Samtök fjármálafyrirtækjaumsögnOpna PDF
NeytendasamtökinumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)