Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 378. mál

Störf þingsins

Störf þingsinsStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að auka sjálfstjórn og sjálfbærni sveitarfélaga og efla sveitarstjórnarstigið í heild.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Störf þingsins
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
15 ræður · 32 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 24. jún. 2021

Markmiðið

Að auka sjálfstjórn og sjálfbærni sveitarfélaga og efla sveitarstjórnarstigið í heild.

Hvað breytist

Lagt er til að kveðið verði á um að lágmarksíbúafjöldi sveitarfélaga verði eitt þúsund og í frumvarpinu er mælt fyrir um aðlögun að slíku lágmarki og hvernig málsmeðferð skuli háttað þegar ráðherra hefur frumkvæði að sameiningu sveitarfélaga. Önnur ákvæði frumvarpsins tengjast sameiningu sveitarfélaga, s.s. ákvæði sem skýrir og eykur heimildir sveitarfélaga til að nýta fjarfundabúnað á fundum sínum. Einnig er lagt til að sveitarfélög þurfi að móta stefnu um þjónustustig byggða sem eru fjarri stærri byggðakjörnum. Að auki eru lagðar til ýmsar aðrar breytingar sem miða að því að draga úr lagahindrunum við sameiningu sveitarfélaga.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir óverulegum áhrifum á ríkissjóð.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Líneik Anna Sævarsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Umhverfis- og samgöngunefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 18. feb. 2021
Sendu inn umsögn eða erindi
34 aðilar
Ásahreppur, Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, Stykkishólmsbær, Starfshópur minni sveitarfélaga, Samband íslenskra sveitarfélaga o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
32 mín · 15 ræður
15 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir óverulegum áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Sýna 9 í viðbót

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-29/2020· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. feb. 2020 – 27. feb. 2020· 29 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingar á sveitarstjórnarlögum og lögum um tekjustofna sveitarfélaga

Frumvarpið er það fyrsta sem lagt er fram til að ná markmiðum nýsamþykktrar þingsályktunar um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2019-2033 og aðgerðaráætlun fyrir árin 2019-2023.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-29/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 27. febrúar 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 29 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (2. júlí 2021)

Sjá niðurstöðuskjal.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (29)
  • #1Hjálmar Georgsson
    Þó málin séu óskyld, er kannski rökfræðin skyld. En ég hef þurft að lúta þeim lögum og reglugerð sem tilheyra rekstri og leyfi ferðaskrifstofu, þar sem háar tryggingafjárhæðir þurfa að liggja á borðinu, til að leyfi fáist skráð. Þessi reglugerð hefur verið litlum ferðaþjónustufyrirtækjum ofviða, og þeim eru sett skilyrði til fullrar ábyrgðar og samvinna við stór fyrirtæki ekki samþykkt, vegna þess að bæði fyrirtækin verða að hafa fulla ábyrgð. Sömu lög gætu átt við sveitarfélög, sem vilja kaupa sig frá vandamálum, en þá gætu lítil sveitarfélög ekki samið við stórt nágranna sveitarfélag um… Lesa alla

    Þó málin séu óskyld, er kannski rökfræðin skyld. En ég hef þurft að lúta þeim lögum og reglugerð sem tilheyra rekstri og leyfi ferðaskrifstofu, þar sem háar tryggingafjárhæðir þurfa að liggja á borðinu, til að leyfi fáist skráð. Þessi reglugerð hefur verið litlum ferðaþjónustufyrirtækjum ofviða, og þeim eru sett skilyrði til fullrar ábyrgðar og samvinna við stór fyrirtæki ekki samþykkt, vegna þess að bæði fyrirtækin verða að hafa fulla ábyrgð. Sömu lög gætu átt við sveitarfélög, sem vilja kaupa sig frá vandamálum, en þá gætu lítil sveitarfélög ekki samið við stórt nágranna sveitarfélag um félagslega þjónustu við íbúa sína og fríað sig ábyrgðar, og neitað að sameinast stærra sveitarfélagi.

  • #2Soffía Hauksdóttir
    Þetta er einfaldlega aðför að landsbyggðinni og lýðræði þeirra sem þar búa. Hef séð hvernig sameiningar hafa farið með samfélögin á norðanverðum Vestfjörðum, það er ekki eftirsóknarvert. Getum litið á Flateyri og Þingeyri sem dæmi, það eru samfélög í dag sem sitja eftir með litla sem enga þjónustu við íbúa. Blábankinn á Þingeyri er dæmi um tapaða varnarbaráttu ekki sigur, þar hvarf bankinn, pósthúsið, sveitarstjórnarskrifstofan og öll störfin sem þar voru. Þar varð síðan sigurganga einhverra, að heldur sérkennilegum sigri, þar sem í dag er eitt starfsgildi. Þarna töpuðu samfélögin því miður… Lesa alla

    Þetta er einfaldlega aðför að landsbyggðinni og lýðræði þeirra sem þar búa. Hef séð hvernig sameiningar hafa farið með samfélögin á norðanverðum Vestfjörðum, það er ekki eftirsóknarvert. Getum litið á Flateyri og Þingeyri sem dæmi, það eru samfélög í dag sem sitja eftir með litla sem enga þjónustu við íbúa. Blábankinn á Þingeyri er dæmi um tapaða varnarbaráttu ekki sigur, þar hvarf bankinn, pósthúsið, sveitarstjórnarskrifstofan og öll störfin sem þar voru. Þar varð síðan sigurganga einhverra, að heldur sérkennilegum sigri, þar sem í dag er eitt starfsgildi. Þarna töpuðu samfélögin því miður á misvitrum og illa grunduðum ákvörðunum ráðamanna, því enginn stuðningur né þjónusturammi fylgdi bara loforð sem fólk trúði en voru fljótt svikin, allt í nafni sparnaðar. Það er nokkuð augljóst að beita á samfélög þvingunum til sameininga sama hvað. Sama þótt íbúar sem n.b. hafa líklegast kosið einhverja þingmenn sem styðja þetta frumvarp en eru víðsfjarri því að styðja slíkar aðgerðir, ekki síst fyrir þær sakir að staðreyndir sýna að mislukkaðar sameiningar skila engu nema eilífum varnarbaráttum og samdrætti.

  • #3Þroskahjálp,landssamtök
    Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um drög að frumvarpi til laga um breytingar á sveitarstjórnarlögum og lögum um tekjustofna sveitarfélaga. Landssamtökin Þroskahjálp vilja benda á eftirfarandi atriði, sjónarmið og rök sem að þeirra mati hafa þýðingu varðandi frumvarpið og óska eftir að til þeirra verði litið við meðferð þess hjá ráðuneyti og Alþingi. Vandséð er að fámenn sveitarfélög hafi burði og aðstæður til að bjóða upp á margbreytilega og stundum mjög sérhæfða þjónustu sem þeim ber að gera samkvæmt lögum og reglum um þjónustu við fatlað fólk. Mjög mikilvægt er að sveitarfélög hafi… Lesa alla

    Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um drög að frumvarpi til laga um breytingar á sveitarstjórnarlögum og lögum um tekjustofna sveitarfélaga. Landssamtökin Þroskahjálp vilja benda á eftirfarandi atriði, sjónarmið og rök sem að þeirra mati hafa þýðingu varðandi frumvarpið og óska eftir að til þeirra verði litið við meðferð þess hjá ráðuneyti og Alþingi. Vandséð er að fámenn sveitarfélög hafi burði og aðstæður til að bjóða upp á margbreytilega og stundum mjög sérhæfða þjónustu sem þeim ber að gera samkvæmt lögum og reglum um þjónustu við fatlað fólk. Mjög mikilvægt er að sveitarfélög hafi yfir að ráða fjölbreyttum þjónustuúrræðum og nauðsynlegri sérþekkingu í málaflokknum til þess að geta sinnt margbreytilegri þjónustu við fatlað fólk. Faglegur viðbúnaður þarf að vera til staðar svo að unnt sé að mæta þeim þjónustuþörfum sem fyrir hendi eru með tiltölulega skömmum fyrirvara, svo sem vegna fæðingar fatlaðs barns eða flutnings fatlaðs einstaklings í sveitarfélag. Þá er nauðsynlegt að líta til þess að í lögum um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir og í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, eins og þau eru eftir síðustu breytingar sem gerðar voru á þeim, eru mikilvæg nýmæli sem styrkja rök fyrir nauðsyn þess að sveitarfélög séu nægilega fjölmenn og burðug. Þar má nefna ákvæði um skyldur til að hafa starfsfólk með tiltekna fagmenntun. Fullt tilefni til að hafa af því áhyggjur að það kunni að vera erfitt fyrir fámenn sveitarfélög að hafa starfsfólk í þjónustu sinni sem býr yfir fullnægjandi og sérhæfðri menntun og þekkingu sem nauðsynleg er og krafa er gerð um í nefndum lögum. Þá má í þessu sambandi einnig nefna ákvæði um notendaráð og notendasamráð og um þjónustuteymi með fullnægjandi sérfræðiþekkingu. Augljóst er að til að geta uppfyllt þessi skilyrði og skyldur sem af þeim leiða svo vel sé er afar æskilegt að sveitarfélög séu ekki of fámenn. Og síðast en ekki síst. Þegar sveitarfélög eru mjög mörg og misburðug verður en örðugra en nú er fyrir ríkið að standa við þá lagalegu skyldu sína að tryggja jafnræði og samræmi milli búsetusvæða fatlaðs fólks. Í því sambandi verður að líta til þess að það er alvarlegt brot gegn mannréttindum ef íbúum landsins er mismunað á grundvelli búsetu hvað varðar þjónustu þar sem í húfi eru mjög miklir hagsmunir og réttindi þeirra sem hlut eiga og mjög oft er þjónustan forsenda þess að þeir sem á henni þurfa að halda fái notið mikilsverðra mannréttinda í skilningi laga. Einnig verður í þessu sambandi að líta til þess að ósamræmi og/eða ójafnræði á milli búsetusvæða að þessu leyti vegur einnig mjög alvarlega að tækifærum fatlaðs fólks til að flytjast á milli svæða og mest að tækifærum þeirra sem hafa miklar þjónustuþarfir vegna fötlunar sinnar og eru því mest háðir þjónustunni. Rétturinn til að ráða búsetu sinni er mannréttindi í skilningi stjórnarskrár og mannréttindasamninga sem íslenska ríkið hefur fullgilt. Eftir því sem „þjónustueiningarnar“ verða fleiri eykst hætta á ósamræmi milli þeirra eðli máls samkvæmt.

  • #4Tjörneshreppur
    Hreppsnefnd Tjörneshrepps leggst eindregið gegn lögfestingu íbúalágmarks í sveitarfélögum enda hafa engin góð rök verið færð fyrir því að þetta sé byggðum landsins fyrir bestu. Ráðherra málaflokksins hefur látið hafa eftir sér að frumvarpið sé sett fram til þess að snúa við íbúaþróun á landsbyggðinni sem hefur verði neikvæði víðast hvar eins og vel er skrásett. Þetta eru líkast til ein verstu rök sem sett hafa verið fram í íslenskum stjórnmálum þar sem nú þegar er búið að sameina mörg sveitarfélög á landsbyggðinni á svæðum þar sem íbúaþróun hefur verið mjög neikvæð. Sameining sveitarfélaganna… Lesa alla

    Hreppsnefnd Tjörneshrepps leggst eindregið gegn lögfestingu íbúalágmarks í sveitarfélögum enda hafa engin góð rök verið færð fyrir því að þetta sé byggðum landsins fyrir bestu. Ráðherra málaflokksins hefur látið hafa eftir sér að frumvarpið sé sett fram til þess að snúa við íbúaþróun á landsbyggðinni sem hefur verði neikvæði víðast hvar eins og vel er skrásett. Þetta eru líkast til ein verstu rök sem sett hafa verið fram í íslenskum stjórnmálum þar sem nú þegar er búið að sameina mörg sveitarfélög á landsbyggðinni á svæðum þar sem íbúaþróun hefur verið mjög neikvæð. Sameining sveitarfélaganna hefur ekki haft nein áhrif á íbúaþróun þessara svæða og vandséð hvernig það getur breyst einungis vegar þess að ráðherran segir að það muni gerast. Eitt af af stóru markmiðum með þessu framlagða frumvarpi er hagræðing í rekstri sveitarfélaga. Þannig hafa verið nefndar til sögunnar upphæðir sem sparist muni ekkert sveitarfélag verða fámennara en 1000 manns. Þetta er í nokkru ósamræmi við reynsluna en svo virðist sem útgjöld hafi hlutfallslega aukist hjá þeim sveitarfélögum sem hafa sameinast. Bætt þjónusta er líka nefnd til sögunnar. Ekki hefur þó verið sýnt fram á að þjónusta hafi batnað hjá þeim sveitarfélögum sem hafa orðið til eftir sameiningar. Talað hefur verið um aukin verkefni fyrir sveitarstjórnarstigið auk annarra bittlinga sem sveitarfélög sem sameinist fái muni verða af sameiningu. Allt þetta á það þó sammerkt að vera ótímasett, engar upphæðir á fjárlögum merktar þessum verkefnum og bittlingum og er í flestum tilfellum gömul loforð sem búið er að dusta rykið af enn einn ganginn eftir að hafa verið marglofað af ríkisvaldinu í gegnum tíðina án þess að vera nokkurn tíman efnt. Það væri hægt að skrifa mikið um þetta í viðbót en Hreppsnefnd Tjörneshrepps lætur staðar numið að svo stöddu og vísar þá frekar í umsögn sveitarstjórnar Grýtubakkahrepps um mörg önnur atriði sem ganga engan vegin upp í þessari umræðu allri. Þó verður að setja fram það álit Hreppsnefndar að okkar tilfinning er að ekki sé sagan öll sögð í þessum gjörningi ráðherrans og raunveruleg ástæða fyrir þessu frumvarpi sé aldrei sett fram. Málið er ótrúverðugt að öllu leyti.

  • #5Matthildur Ásmundardóttir
    Sveitarfélagið Hornafjörður ítrekar fyrri umsögn við frumvarpinu að við sameiningu sveitarfélaga komi til sér fjárframlög úr ríkissjóði í stað þess að skerða það fjármagn sem Jöfnunarsjóður hefur til úthlutunar til sveitarfélaga sbr. 12. gr. 12. gr. Jöfnunarsjóði sveitarfélaga er heimilt að halda eftir allt að 1.000 millj. kr. af tekjum sjóðsins á hverju ári á tímabilinu 2020–2035 skv. a-lið, utan þeirrar fjárhæðar sem skal renna til málefna fatlaðs fólks, b-lið og d-lið 8. gr. a laganna, til að mæta greiðslu á sérstökum framlögum úr sjóðnum sem koma til vegna sameiningar sveitarfélaga, s… Lesa alla

    Sveitarfélagið Hornafjörður ítrekar fyrri umsögn við frumvarpinu að við sameiningu sveitarfélaga komi til sér fjárframlög úr ríkissjóði í stað þess að skerða það fjármagn sem Jöfnunarsjóður hefur til úthlutunar til sveitarfélaga sbr. 12. gr. 12. gr. Jöfnunarsjóði sveitarfélaga er heimilt að halda eftir allt að 1.000 millj. kr. af tekjum sjóðsins á hverju ári á tímabilinu 2020–2035 skv. a-lið, utan þeirrar fjárhæðar sem skal renna til málefna fatlaðs fólks, b-lið og d-lið 8. gr. a laganna, til að mæta greiðslu á sérstökum framlögum úr sjóðnum sem koma til vegna sameiningar sveitarfélaga, sbr. a-lið 1. mgr. 11. gr. Laganna. Matthildur Ásmundardóttir, bæjarstjóri Sveitarfélaginu Hornafirði

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umræða
    Umræða
    15 ræður · 32 mín
  2. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 18. febrúar 2021
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

15 ræður · 32 mín
  • Umræða: 15 ræður · 15 ræðumenn · 32 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Logi EinarssonSamfylkingin12 mín
Björn Leví GunnarssonUtan þingflokka12 mín
Bryndís HaraldsdóttirSjálfstæðisflokkur12 mín
Lilja Rafney MagnúsdóttirUtan þingflokka12 mín
Njáll Trausti FriðbertssonSjálfstæðisflokkur12 mín
Sara Elísa ÞórðardóttirUtan þingflokka12 mín
Brynjar NíelssonSjálfstæðisflokkur12 mín
Þorsteinn B SæmundssonMiðflokkurinn12 mín
Ágúst Ólafur ÁgústssonSamfylkingin12 mín
Hanna Katrín FriðrikssonViðreisn12 mín
Silja Dögg GunnarsdóttirFramsóknarflokkur12 mín
Karl Gauti HjaltasonMiðflokkurinn12 mín
Willum Þór ÞórssonFramsóknarflokkur12 mín
Guðmundur Ingi KristinssonFlokkur fólksins12 mín
Andrés Ingi JónssonUtan þingflokka12 mín

Umsagnir og erindi

37 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Umhverfis- og samgöngunefnd sendi 1 umsagnabeiðni 28. jan. 2021, frestur 18. feb. 2021.

Hver sendiTegundBarstSkjal
ÁsahreppurathugasemdOpna PDF
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
StykkishólmsbærumsögnOpna PDF
Starfshópur minni sveitarfélagaumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaviðbótarumsögnOpna PDF
ReykjavíkurborgumsögnOpna PDF
TjörneshreppurumsögnOpna PDF
StykkishólmsbærumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
VopnafjarðarhreppurumsögnOpna PDF
AkrahreppurumsögnOpna PDF
Davíð PéturssonumsögnOpna PDF
TálknafjarðarhreppurumsögnOpna PDF
SkorradalshreppurumsögnOpna PDF
KaldrananeshreppurumsögnOpna PDF
LanganesbyggðumsögnOpna PDF
Viðskiptaráð ÍslandsumsögnOpna PDF
HörgársveitumsögnOpna PDF
SvalbarðsstrandarhreppurumsögnOpna PDF
Grímsnes- og GrafningshreppurumsögnOpna PDF
ByggðastofnunumsögnOpna PDF
EyjafjarðarsveitumsögnOpna PDF
Þjóðskrá ÍslandsumsögnOpna PDF
FljótsdalshreppurumsögnOpna PDF
Fjórðungssamband VestfirðingaumsögnOpna PDF
SvalbarðshreppurumsögnOpna PDF
HvalfjarðarsveitumsögnOpna PDF
LEX lögmannsstofaumsögnOpna PDF
Sveitarfélagið SkagaströndumsögnOpna PDF
BolungarvíkurkaupstaðurumsögnOpna PDF
SúðavíkurhreppurumsögnOpna PDF
GrýtubakkahreppurumsögnOpna PDF
Starfshópur minni sveitarfélagatillagaOpna PDF
Sveitarfélagið HornafjörðurumsögnOpna PDF
Landssamtökin ÞroskahjálpumsögnOpna PDF
Sveitarfélagið SkagafjörðurumsögnOpna PDF
HveragerðisbærumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.