Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 369. mál

Frumvörp um stöðu íslenskunnar og mannanöfn

Óundirbúinn fyrirspurnatímiStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að vernda náttúru og sögu þjóðgarðsins, svo sem landslag, víðerni, lífríki, jarðmyndanir og menningarminjar og tryggja tilvist heildstæðra vistkerfa og náttúrulegra ferla; að gefa almenningi kost á að kynnast og njóta náttúru, menningar og sögu þjóðgarðsins; að auðvelda almenningi aðgengi að þjóðgarðinum eftir því sem unnt er án þess að náttúra hans spillist; að stuðla að því að almenningur geti stundað útivist innan þjóðgarðsins í sátt við náttúru og menningarminjar; að leitast við að efla samfélag og styrkja byggð og atvinnustarfsemi í nágrenni þjóðgarðsins og á landinu öllu, meðal annars með því að hvetja til sjálfbærrar nýtingar á gæðum svæðisins; að þjóðgarðurinn verði vettvangur umræðu og ákvarðanatöku um landnýtingu innan þjóðgarðs og þróun hennar; að stuðla að rannsóknum og fræðslu um þjóðgarðinn og ýta undir aukinn skilning almennings á gæðum og sérstöðu hans; að endurheimta vistkerfi sem hafa raskast; að varðveita þjóðlendur í þjóðgarði og viðhalda virði þeirra í náttúrufarslegu og menningarlegu tilliti; og að stuðla að samvinnu og samstarfi við félög og sjálfboðaliða um málefni landsvæðisins.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Óundirbúinn fyrirspurnatími
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
4 ræður · 7 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 24. jún. 2021

Markmiðið

Að vernda náttúru og sögu þjóðgarðsins, svo sem landslag, víðerni, lífríki, jarðmyndanir og menningarminjar og tryggja tilvist heildstæðra vistkerfa og náttúrulegra ferla; að gefa almenningi kost á að kynnast og njóta náttúru, menningar og sögu þjóðgarðsins; að auðvelda almenningi aðgengi að þjóðgarðinum eftir því sem unnt er án þess að náttúra hans spillist; að stuðla að því að almenningur geti stundað útivist innan þjóðgarðsins í sátt við náttúru og menningarminjar; að leitast við að efla samfélag og styrkja byggð og atvinnustarfsemi í nágrenni þjóðgarðsins og á landinu öllu, meðal annars með því að hvetja til sjálfbærrar nýtingar á gæðum svæðisins; að þjóðgarðurinn verði vettvangur umræðu og ákvarðanatöku um landnýtingu innan þjóðgarðs og þróun hennar; að stuðla að rannsóknum og fræðslu um þjóðgarðinn og ýta undir aukinn skilning almennings á gæðum og sérstöðu hans; að endurheimta vistkerfi sem hafa raskast; að varðveita þjóðlendur í þjóðgarði og viðhalda virði þeirra í náttúrufarslegu og menningarlegu tilliti; og að stuðla að samvinnu og samstarfi við félög og sjálfboðaliða um málefni landsvæðisins.

Hvað breytist

Lagt er til að ráðherra verði heimilt að friðlýsa tiltekið landsvæði á miðhálendinu sem þjóðgarð (Hálendisþjóðgarður). Gert er ráð fyrir að Hálendisþjóðgarður verði sjálfstæð ríkisstofnun með forstjóra og stjórn. Lagt er til að þjóðgarðinum verði skipt í rekstrarsvæði þar sem umdæmisráð marki stefnu og fari með umsjón hvers rekstrarsvæðis, þ.m.t. meginákvarðanir um landnýtingu í stjórnunar- og verndaráætlun. Lagt er til að stjórn þjóðgarðsins marki stefnu í málefnum hans í heild og staðfesti áætlanir og ákvarðanir umdæmisráða. Gert er ráð fyrir að önnur efnisákvæði verði að mestu leyti þau sömu fyrir Hálendisþjóðgarð og eru í gildandi lögum um Vatnajökulsþjóðgarð, t.d. um stjórnunar- og verndaráætlun, almennar meginreglur um háttsemi í þjóðgarðinum, starfsemi í þjóðgarðinum, atvinnustefnu, landnýtingu, þjónustu auk almennra reglna um eftirlit og valdheimildir vegna þess.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög en við gildistöku laganna falla úr gildi lög um Vatnajökulsþjóðgarð, nr. 60/2007, og jafnframt verða breytingar á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013.

Kostnaður fyrir ríkið

Árlegur rekstrarkostnaður er áætlaður um 600–700 milljónir kr. á ári þegar þjóðgarðurinn verður komin í fullan rekstur og gert er ráð fyrir að auknar sértekjur geti verið 100–200 milljónir kr. Í fjármálaáætlun ríkisins fyrir árin 2020–2024 er gert ráð fyrir stigvaxandi fjárveitingum á árunum 2021–2023. Gert er ráð fyrir að þessar auknu fjárveitingar muni standa undir þeim viðbótarrekstrarkostnaði sem hlýst af stofnun Hálendisþjóðgarðs.

Meira úr samantektinni

Forsendur fyrir stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands. Lokaskýrsla nefndar. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið, 7. nóvember 2017.

Nefnd um stofnun miðhálendisþjóðgarðs (2018–2019).

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Kolbeinn Óttarsson Proppé

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Umhverfis- og samgöngunefnd
sendi 2 umsagnabeiðnir · frestur 1. feb. 2021
Sendu inn umsögn eða erindi
153 aðilar
Landsvirkjun, Umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Ungir umhverfissinnar, Skorradalshreppur, Eyjafjarðarsveit o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
7 mín · 4 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Árlegur rekstrarkostnaður er áætlaður um 600–700 milljónir kr. á ári þegar þjóðgarðurinn verður komin í fullan rekstur og gert er ráð fyrir að auknar sértekjur geti verið 100–200 milljónir kr. Í fjármálaáætlun ríkisins fyrir árin 2020–2024 er gert ráð fyrir stigvaxandi fjárveitingum á árunum 2021–2023. Gert er ráð fyrir að þessar auknu fjárveitingar muni standa undir þeim viðbótarrekstrarkostnaði sem hlýst af stofnun Hálendisþjóðgarðs.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-290/2019· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. nóv. 2019 – 9. des. 2019· 29 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð

Umhverfis- og auðlindaráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga um þjóðgarð á miðhálendi Íslands. Þverpólitísk nefnd um undirbúning að stofnun þjóðgarðsins hefur unnið að áherslum sem frumvarpið mun byggja á.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-290/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 9. desember 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 29 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (2. febrúar 2022)

Frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð var lagt fram á Alþingi 30. nóvember 2011 (mál nr. 369) en náði ekki fram að ganga.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (29)
  • #1Albert Svan Sigurðsson
    Mér lýst vel á að stjórnsýsla miðhálendis verði samræmd, svo lengi sem það er gert á grundvelli náttúruverndar og náttúruverndarlaga, auk þess sem aðkoma sveitarfélaga, náttúruverndarsamtaka, áhugahópa og almennings verði sem mest og myndi þannig mótvægi við verktaka og nýtingarsinnaða fjárfesta sem ýmsu vilja fórna fyrir skammtímahagsmuni. Lýðræðislegt samráð viðkomandi aðila er besta formið og gagnsæi þarf að vera ríkjandi í allri málsmeðferð tengdri rekstri hálendisþjóðgarðs. Tryggja þarf að landsskipulag taki mið af sjórnunar- og verndaráætlun þjóðgarðsins og að nægilegu fé verði varið… Lesa alla

    Mér lýst vel á að stjórnsýsla miðhálendis verði samræmd, svo lengi sem það er gert á grundvelli náttúruverndar og náttúruverndarlaga, auk þess sem aðkoma sveitarfélaga, náttúruverndarsamtaka, áhugahópa og almennings verði sem mest og myndi þannig mótvægi við verktaka og nýtingarsinnaða fjárfesta sem ýmsu vilja fórna fyrir skammtímahagsmuni. Lýðræðislegt samráð viðkomandi aðila er besta formið og gagnsæi þarf að vera ríkjandi í allri málsmeðferð tengdri rekstri hálendisþjóðgarðs. Tryggja þarf að landsskipulag taki mið af sjórnunar- og verndaráætlun þjóðgarðsins og að nægilegu fé verði varið til landvörslu og uppbyggingar tengdri henni. Læra þarf af mistökum og samskiptaörðugleikum sem hafa verið viðvarandi í rekstri Vatnajökulsþjóðgarðs, þar sem faglegheit hafa ekki ætíð verið í fyrirrúmi. Mikilvægt er að nýta leiðbeiningar Alþjóða náttúruverndarsamtakanna (IUCN) við flokkun verndarsvæða innan þjóðgarðsins. Svæðisskipting innan þjóðgarða skv. IUCN: Svæði A, kjarninn (core zone): Ströng friðun, engin notkun, almenningi einungis leyfður aðgangur á merktum stígum, engin afskipti höfð af gangi náttúrunnar. Kjarninn er alltaf staðsettur þar sem sérstökustu svæðin eru í þjóðgarðinum, þess vegna geta verið margir litlir kjarnar í einum þjóðgarði. Svæði B, almennt verndað svæði (general protected area): Aðeins skipulögð afþreyingarstarfsemi, engin önnur landnotkun, engin búseta. Svæði C, landslagsvernd (protected landscape): Takmarkaður rekstur eða landnotkun sem er í samræmi við markmið verndunarinnar. Svæði D; virkt/þróunar svæði, (transition zone): Arðbær landnotkun og búseta. Til að þjóðgarður verði viðurkenndur af IUCN þurfa 75% af öllum þjóðgarðinum að vera á svæði A eins og fram kemur að ofan. Aðrir verndarflokkar IUCN1 eru: Náttúruvé (Ia), óbyggð víðerni (Ib), náttúruvætti (III), friðlönd (IV), landslagsverndarsvæði (V) og verndarsvæði með sjálfbærri nýtingu auðlinda (VI). Hver flokkur hefur sín sérstöku ákvæði um vernd og nýtingu sem eru misströng.

  • #2Björn Ármann Ólafsson

    Sjá umsögn í viðhengi

  • #3Sveitarfélagið Skagafjörður

    Meðfylgjandi er bókun 890. fundar byggðarráðs Sv.fél. Skagafjarðar þann 27. nóv 2019

  • #4Sigrún Helgadóttir
    Áform um lagasetningu Athugasemdir frá Ólafi S. Andréssyni og Sigrúnu Helgadóttur A 1. Við styðjum heils hugar stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Ísland og fögnum því að nú sé loks unnið að friðlýsingu þess verðmæta landsvæðis. Við erum sammála áformum um lagasetningu um þjóðgarðinn og þeim áherslum sem fram koma í framlögðu plaggi. 2. Jafnframt því að lögð er áhersla á áþreifanleg verðmæti sem felast í náttúru Íslands er mikilvægt að ítreka hlutverk og mikilvægi óefnislegra gilda og gæða svo sem hughrifa sem fólk sækir til víðerna, kyrrðar og tengsla við náttúru sem byggjast á virðingu og sam… Lesa alla

    Áform um lagasetningu Athugasemdir frá Ólafi S. Andréssyni og Sigrúnu Helgadóttur A 1. Við styðjum heils hugar stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Ísland og fögnum því að nú sé loks unnið að friðlýsingu þess verðmæta landsvæðis. Við erum sammála áformum um lagasetningu um þjóðgarðinn og þeim áherslum sem fram koma í framlögðu plaggi. 2. Jafnframt því að lögð er áhersla á áþreifanleg verðmæti sem felast í náttúru Íslands er mikilvægt að ítreka hlutverk og mikilvægi óefnislegra gilda og gæða svo sem hughrifa sem fólk sækir til víðerna, kyrrðar og tengsla við náttúru sem byggjast á virðingu og samsömun við volduga en þó viðkvæma náttúru. Mikilvægt er að þjóðgarðayfirvöld hafi forræði yfir minjum innan svæðisins, þ.á.m. fornminjum í nánum tengslum við Minjastofnun. Víða á hálendinu eru fornminjar, svo sem rústir, vörður og gamlar leiðir sem mikilvægt er að skrá og vernda en því hefur lítt verið sinnt fram að þessu. 3. Þau svæði á miðhálendinu sem eru utan Vatnajökulsþjóðgarðs hafa búið við misgóða verndun og sum enga. Með fyrirhugaðri lagasetningu um miðhálendisþjóðgarð næst samræmi og yfirsýn yfir þetta mikilvæga svæði en það hefur sárlega vantað. Kostir dreifstýrðrar stjórnunar nást ekki nema jafnræðis sé gætt meðal íbúa landsins. Í áformunum eru aðeins nefndir „hagaðilar“ og sveitarfélög. Rík hefð er fyrir því að nota orðin „hagaðili“ og „hagsmunaaðili“ yfir þá sem hafa fjárhagslegra hagsmuna að gæta. Stjórn miðhálendisþjóðgarðs Íslands varðar a.m.k. alla íbúa landsins. Mikilvægt er að þeir sem hafa áhuga og „óefnislegra“ hagsmuna að gæta geti líka átt ríkan þátt í stjórnuninni þótt þeir búi ekki í aðliggjandi sveitarfélögum. Forðast þarf það fyrirkomulag að innan stjórnar myndist bandalög hagsmunaaðila sem láta sérhagsmuni og skammtímasjónarmið ráða. C Við fögnum sérstaklega áformum um sérstaka stofnun sem fer með málefni allra friðlýstra svæða landsins (Náttúruvernd Íslands). E. Mikilvægt er að leggja áherslu á að hefðbundin landnýting á almenningseign sé afnotaréttur en ekki eignaréttur. Einnig að kveðið sé á um sjálfbæra nýtingu á öllum auðlindum. F „eigendur óbeinna eignarréttinda“ á að vera „afnotaréttur“. Eru einhver sveitarfélög sem liggja innan miðhálendislínu? Enn og aftur er lögð áhersla á „náið samráð við sveitarfélög og hagsmunaaðila“. Við hin, þessi áhugasömu, hugsjónafólkið og fagfólkið, höfum mikið til málanna að leggja en fáum ekki sömu tækifæri til áhrifa. H Enn vantar almenning í þennan lið! (3. liður.) Ólafur S. Andrésson (091051 4519) Sigrún Helgadóttir (220949 7299)

  • #5Sveinbjörn Halldórsson

    Hjálagt er umsögn Ferðaklúbbsins 4x4 Í umsögninni kemur fram afstaða Ferðaklúbbsins 4x4 varðandi stofnun Hálendisþjóðgarðs á miðhálendi Íslands. Í yfirlýsingunni kemur skýrt afstaða afstaða klúbbsins til verkefnisins miðað við stöðu mála í dag. Fh, Ferðaklúbbsins 4x4 Sveinbjörn Halldórsson formaður Ferðaklúbbsins 4x4

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-317/2019· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. des. 2019 – 20. jan. 2020· 72 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um Hálendisþjóðgarð

Með frumvarpinu er lagt til að stofnaður verði þjóðgarður á miðhálendinu í samræmi við sáttmála ríkisstjórnar Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um ríkisstjórnarsamstarf og eflingu Alþingis frá 30. nóvember 2017.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-317/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 20. janúar 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 72 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (2. febrúar 2022)

Frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð var lagt fram á Alþingi 30. nóvember 2020 (mál nr. 369) en náði ekki fram að ganga.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (72)
  • #1ÓFEIG náttúruvernd
    ÓFEIG setur fram þau sjónarmið að verndarsvæði/þjóðgarður verði stofnað með settum lögum frá Alþingi (sem frumvarpsdrögin gera ekki ráð fyrir) og að verndarmarkmið kjarna- og jaðarsvæða séu tilgreind í lögum (sem frumvarpsdrögin gera heldur ekki ráð fyrir). ÓFEIG telur rétt að hin miklu óbyggðu víðerni miðhálendis öðlist viðurkenningu með settum lögum, sem þau myndu ekki gera yrðu frumvarpsdrögin að lögum. ÓFEIG setur fram hugmynd að nýrri upphafsgrein, til samræmis við þetta og gildandi lög um Þingvallaþjóðgarð: 1. gr… Lesa alla

    ÓFEIG setur fram þau sjónarmið að verndarsvæði/þjóðgarður verði stofnað með settum lögum frá Alþingi (sem frumvarpsdrögin gera ekki ráð fyrir) og að verndarmarkmið kjarna- og jaðarsvæða séu tilgreind í lögum (sem frumvarpsdrögin gera heldur ekki ráð fyrir). ÓFEIG telur rétt að hin miklu óbyggðu víðerni miðhálendis öðlist viðurkenningu með settum lögum, sem þau myndu ekki gera yrðu frumvarpsdrögin að lögum. ÓFEIG setur fram hugmynd að nýrri upphafsgrein, til samræmis við þetta og gildandi lög um Þingvallaþjóðgarð: 1. gr. Hluti miðhálendis Íslands skal vera friðlýstur þjóðgarður. Mörk Hálendisþjóðgarðs skulu miðast við þjóðlendumörk innan miðhálendislínu auk þeirra landsvæða á miðhálendinu og nágrenni þess sem þegar eru friðlýst við gildistöku laga þessarra. Undanskilin friðlýsingu eru svæði sem þegar hafa að geyma vatnsaflsvirkjanir, eða Þjórsár- og Tungnaársvæðið, Blöndusvæðið og Kárahnjúkasvæðið. Mörk Hálendisþjóðgarðs eru sýnd á uppdrætti í viðauka. Svæðum Hálendisþjóðgarðs er skipt í kjarnasvæði og jaðarsvæði og eftir verndarmarkmiðum. Skulu þau vera: náttúruvé; Esjufjöll […], óbyggð víðerni; […], þjóðgarður; […], landslagsverndarsvæð;, […] og verndarsvæði með sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda; […] og skulu afmarkast eins og sýnt er í viðauka. Verndarmarkmið hvers svæðis skulu samrýmast verndarflokkum Alþjóðanáttúruverndarsambandsins og skal flokkunin alþjóðlega vottuð. Ósjálfbær nýting er óheimil innan Hálendisþjóðgarðs. Þjóðlendur Hálendisþjóðgarðs má aldrei selja eða veðsetja og óheimilt er þar að veita leyfi til afnota andstæðra verndarmarkmiðum 3. mgr. Meðfylgjandi er umsögn ÓFEIGAR á einni blaðsíðu og tilvitnun til fyrri umsagnar samtakanna, þar sem nánari grein er gerð fyrir sjónarmiðunum og röksemdum að baki þeirra.

  • #2Guðjón Ólafur Sigurbjartsson

    Meðfylgjandi er umsögn um drög að frumvarpi til laga um Hálendisþjóðgarð. Þar er meðal annars komið inn á: 1. Hálendisvegi milli landshluta 2. Orkuframleiðslu og orkuflutninga frá virkjunum 3. Lausa göngu búfjár 4. Byggðakjarna á nokkrum stöðum á hálendinu. Reykjavík 9.1.20 Guðjón Sigurbjartsson, viðskiptafræðingur

  • #3Arnar Már Bergmann

    Í viðhengi er umsögn Landsambands íslenskra vélsleðamanna. Arnar Bergmann ritari stjórnar LÍV

  • #4Hörður Sigurbjarnarson
    Lagt er til að einni grein verði bætt við frumvarp um miðhálendisþjóðgarð svohljóðandi: Um þjóðgarðinn liggja þjónustuleiðir sem ekki eru hlutar þjóðgarðsins, þ.e. ekki friðlýst svæði. Hver leið er einn km á breidd og tengir landshluta. Um þær liggja vegir og raflínur og innan þeirra eru önnur mannvirk svo sem þjónustumiðstöðvar fyrir þjóðgarðinn, gistiaðstaða, áningarstaðir fyrir hestaferðir o.fl. Leiðirnar liggja um Sprengisandsveg og Kjalveg auk tengingar frá Sprenisandsvegi til Austurlands norðan Vatnajökuls. Greinargerð: Í lagadrögum um miðhálendisþjóðgarð sem nú eru kynnt á samráðs… Lesa alla

    Lagt er til að einni grein verði bætt við frumvarp um miðhálendisþjóðgarð svohljóðandi: Um þjóðgarðinn liggja þjónustuleiðir sem ekki eru hlutar þjóðgarðsins, þ.e. ekki friðlýst svæði. Hver leið er einn km á breidd og tengir landshluta. Um þær liggja vegir og raflínur og innan þeirra eru önnur mannvirk svo sem þjónustumiðstöðvar fyrir þjóðgarðinn, gistiaðstaða, áningarstaðir fyrir hestaferðir o.fl. Leiðirnar liggja um Sprengisandsveg og Kjalveg auk tengingar frá Sprenisandsvegi til Austurlands norðan Vatnajökuls. Greinargerð: Í lagadrögum um miðhálendisþjóðgarð sem nú eru kynnt á samráðsgátt stjórnvalda er margt til bóta miðað við fyrri drög, m.a. markmið um að endurheimta röskuð vistkerfi og að landnotkum skuli vera sjálfbær, sem þýðir væntanlega að sauðfjárbeit verði bönnuð. Í frumvarpsdrögunum er fjallað um hvernig farið verður með virkjunarkosti en lítið fjallað um flutningsmannvirki (raflínur). Í góðu og öruggu flutningskerfi rafmagns felast þó mjög miklir hagsmunir fyrir þjóðina ekki síður en í góðu vegakerfi. Þeir hagsmunir eru ekki minni en náttúruverndarhagsmunir sem fylgja stofnun þjóðgarðs. Tillagan sem hér er lögð fram er hugsuð til að mæta þeim hagsmunum og byggir á hugmyndum sem Trausti Valsson arkitekt hefur áður lagt fram.

  • #5Hrunamannahreppur
    16. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið: Drög að frumvörpum til laga um Þjóðgarðastofnun og þjóðgarða og Hálendisþjóðgarð. Samráðsgátt. Oddviti kynnti að í samráðsgátt stjórnvalda hafa verið birt, þann 18. desember s.l. drög að tveimur stjórnarfrumvörpum. Annars vegar frumvarp til laga um þjóðgarðastofnun og þjóðgarða og hins vegar frumvarp til laga um hálendisþjóðgarð. Sveitarstjórn Hrunamannahrepps vill ítreka fyrri bókanir um frumvarp til laga um Þjóðgarðastofnun að nýta eigi þær stofnanir sem fyrir eru til að sinna verkefninu og nýta þannig fjármagnið betur. Þá tekur sveitarstjórn einni… Lesa alla

    16. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið: Drög að frumvörpum til laga um Þjóðgarðastofnun og þjóðgarða og Hálendisþjóðgarð. Samráðsgátt. Oddviti kynnti að í samráðsgátt stjórnvalda hafa verið birt, þann 18. desember s.l. drög að tveimur stjórnarfrumvörpum. Annars vegar frumvarp til laga um þjóðgarðastofnun og þjóðgarða og hins vegar frumvarp til laga um hálendisþjóðgarð. Sveitarstjórn Hrunamannahrepps vill ítreka fyrri bókanir um frumvarp til laga um Þjóðgarðastofnun að nýta eigi þær stofnanir sem fyrir eru til að sinna verkefninu og nýta þannig fjármagnið betur. Þá tekur sveitarstjórn einnig undir umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi frumvarp til laga um Þjóðgarðastofnun og þjóðgarða en bendir sérstaklega á það sé fullkomlega óásættanlegt að í 30. gr. frumvarps um Þjóðgarðastofun sé gert ráð fyrir að allar leyfisveitingar eigi að flytjast til Þjóðgarðastofnunar og ákvörðun um ráðstöfunar endurgjalds réttinda í þjóðlendum. Þá þarf að tryggja að ekki sé gengið á skipulagsvald sveitarfélaganna og tryggja þarf að það haldist heima í héraði. Sveitarstjórn mótmælir því að stofnunin fái heimild skv. 9. gr. að fengnu leyfi ráðherra, til að taka eignarnámi lönd, mannvirki og réttindi til þess að framkvæma friðun án samþykkis og samráðs við viðkomandi sveitarfélög. Í frumvarpi til laga um hálendisþjóðgarð koma fram markmið sem eru mjög góð og hefur sveitafélagið unnið að þessum markmiðum alla tíð varðandi landsvæði innan síns sveitarfélags, eins og t.d. má sjá í aðalskipulagi sveitarfélagsins og vinnu við friðlýsingu Kerlingarfjalla. Sveitarstjórn Hrunamannahrepps ítrekar það að stofnun þjóðgarðs á hálendi Íslands eigi að koma sem eðlilegt framhald af sameiginlegri vinnu sveitarfélaga á svæðinu og ríkisins en ekki lögþvinguð aðgerð. Forgangsmál er að tryggja að nægum fjármunum verði varið til að sinna hálendinu svo sómi sé að. Mikilvægt er að flýta sér hægt, skapa breiðari sátt og vinna málið betur í samvinnu við sveitarfélög og hagaðila. D-listi vill einnig taka undir bókun hreppsnefndar Ásahrepps þann 8. janúar s.l um frumvörpin og gagnrýnir störf undirbúningsaðila og finnst miður að ekki hafi verið haft meira samráð og tekið meira tillit til athugasemda sveitarfélaga. Þá vill listinn benda á að efla þurfi hagsmunagæslu sveitarfélaganna og beinir því til SASS hvort ekki þurfi að gera sérstakar ráðstafanir með því t.d. að ráða öflugan talsmann sveitarfélaganna í málinu.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 1. febrúar 2021
    2 beiðnir um umsögn
  2. Umræða
    Umræða
    4 ræður · 7 mín

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

4 ræður · 7 mín
  • Umræða: 4 ræður · 2 ræðumenn · 7 mín

Umsagnir og erindi

158 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Umhverfis- og samgöngunefnd sendi 2 umsagnabeiðnir 11. des. 2020, frestur 1. feb. 2021.

Hver sendiTegundBarstSkjal
LandsvirkjunskýrslaOpna PDF
Umhverfis- og auðlindaráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Umhverfis- og auðlindaráðuneytiðskýrslaOpna PDF
Ungir umhverfissinnarumsögnOpna PDF
Umhverfis- og auðlindaráðuneytiðkynningOpna PDF
SkorradalshreppurumsögnOpna PDF
EyjafjarðarsveitumsögnOpna PDF
Náttúruminjasafn ÍslandsumsögnOpna PDF
FerðamálastofaumsögnOpna PDF
Björn Arnar HaukssonumsögnOpna PDF
UmhverfisstofnunumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
Iceland Luxury ToursumsögnOpna PDF
Ingimundur StefánssonumsögnOpna PDF
Reynir Freyr PéturssonumsögnOpna PDF
Landssamtök landeigenda á ÍslandiumsögnOpna PDF
Náttúrufræðistofnun ÍslandsumsögnOpna PDF
VestmannaeyjabærumsögnOpna PDF
Félag íslenskra landslagsarkitektaumsögnOpna PDF
Norðurflug ehf.umsögnOpna PDF
Snorri IngimarssonumsögnOpna PDF
Eldvötn - samtök um náttúruvernd í SkaftárhreppiumsögnOpna PDF
Náttúruverndarsamtök SuðurlandsumsögnOpna PDF
Nature of Iceland ehf.umsögnOpna PDF
Svifflugfélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Hestamannafélagið Gnýfari ÓlafsfirðiumsögnOpna PDF
Þorvarður Hjalti MagnússonumsögnOpna PDF
Jón Baldur ÞorbjörnssonumsögnOpna PDF
Samorka, samtök orku- og veitufyrirtækjaumsögnOpna PDF
Hestamannafélagið Hringur á DalvíkumsögnOpna PDF
AOPA á ÍslandiumsögnOpna PDF
Náttúruverndarsamtök ÍslandsumsögnOpna PDF
Viðskiptaráð ÍslandsumsögnOpna PDF
VegagerðinumsögnOpna PDF
Samtök atvinnulífsinsumsögnOpna PDF
Fjöregg, félag um náttúruvernd og heilbrigt umhverfi í MývatnssveitumsögnOpna PDF
Landvarðafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Bændasamtök ÍslandsumsögnOpna PDF
Landssamtök sauðfjárbændaumsögnOpna PDF
Landsnet hfumsögnOpna PDF
FETAR - LandssamtökumsögnOpna PDF
Verkfræðingafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Samtök sveitarfélaga á VesturlandiumsögnOpna PDF
Samtök ferðaþjónustunnarumsögnOpna PDF
Rarik ohfumsögnOpna PDF
LandsvirkjunumsögnOpna PDF
Samtök iðnaðarinsumsögnOpna PDF
Alþýðusamband ÍslandsumsögnOpna PDF
Samtök sunnlenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
SkipulagsstofnunumsögnOpna PDF
Sveitarfélagið HornafjörðurumsögnOpna PDF
FljótsdalshreppurumsögnOpna PDF
AkrahreppurumsögnOpna PDF
SAMÚT - Samtök útivistarfélagaathugasemdOpna PDF
Björn TraustasonumsögnOpna PDF
Jóhannes Sveinbjörnsson, Ólöf Björg Einarsdóttir, Sveinbjörn F. Einarsson, Sveinn Ingi Sveinbjörnsson, Andrea Skúladóttir, Kolbeinn Sveinbjörnsson og Borghildur GuðmundsdóttirumsögnOpna PDF
Ian R. SykesumsögnOpna PDF
Félag leiðsögumanna með hreindýraveiðumumsögnOpna PDF
Gísli Rafn JónssonumsögnOpna PDF
Fisfélag ReykjavíkurumsögnOpna PDF
Jóhann BjörgvinssonumsögnOpna PDF
Guðmundur Freyr JónssonumsögnOpna PDF
Skotveiðifélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Einar Ásgeir SæmundsenumsögnOpna PDF
Sigþór Smári SigurðssonumsögnOpna PDF
Björn JóhannssonumsögnOpna PDF
V.S ÚtivistumsögnOpna PDF
Skógræktarfélag ÍslandsumsögnOpna PDF
ReykjavíkurborgumsögnOpna PDF
Ragnar ÁrnasonumsögnOpna PDF
Hið íslenska náttúrufræðifélagumsögnOpna PDF
Samtök náttúrustofaumsögnOpna PDF
Sveinbjörg VilhjálmsdóttirumsögnOpna PDF
Hjalti Steinn GunnarssonumsögnOpna PDF
Snæland Grímsson ehfumsögnOpna PDF
Michaël BishopumsögnOpna PDF
Jens Benedikt BaldurssonumsögnOpna PDF
Þórhallur BorgarssonumsögnOpna PDF
Ferða-og útivistarfélagið SlóðavinirumsögnOpna PDF
Gunnlaugur B. ÓlafssonumsögnOpna PDF
Ferðafélagið MelrakkarumsögnOpna PDF
Ferðafrelsisnefnd Eyjafjarðardeildar F4X4umsögnOpna PDF
Landgræðsla ríkisinsumsögnOpna PDF
ÁsahreppurumsögnOpna PDF
Ríkarður SigmundssonumsögnOpna PDF
Kristinn Snær Sigurjónsson, Guðbergur Reynisson og Freyr ÞórssonumsögnOpna PDF
Akstursíþróttasamband ÍslandsumsögnOpna PDF
Minjastofnun ÍslandsumsögnOpna PDF
Erla Guðný Helgadóttir, Kristín Helga Gunnarsdóttir, Helgi Geirharðsson, Gunnar Jónsson og Helga Erla HjartardóttirumsögnOpna PDF
Haukur PareliusumsögnOpna PDF
Flugmálafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Einar E SæmundsenumsögnOpna PDF
Baldvin JónssonumsögnOpna PDF
SUNN - Samtök um náttúruvernd á NorðurlandiumsögnOpna PDF
Valdimar AðalsteinssonumsögnOpna PDF
Páll Halldór HalldórssonumsögnOpna PDF
Ólafur Björnsson hrlumsögnOpna PDF
Ungliðahreyfing ferðaklúbbsins 4x4umsögnOpna PDF
StykkishólmsbærumsögnOpna PDF
Skálpi ehf.umsögnOpna PDF
Ferðafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
ÞingeyjarsveitumsögnOpna PDF
SkútustaðahreppurumsögnOpna PDF
HveravallafélagiðumsögnOpna PDF
Sigrún SigurgeirsdóttirumsögnOpna PDF
Margeir IngólfssonumsögnOpna PDF
Ferðafélagið ÚtivistumsögnOpna PDF
Jónas HafsteinssonumsögnOpna PDF
Rangárþing eystraumsögnOpna PDF
Rangárþing ytraumsögnOpna PDF
Ferðaklúbburinn 4x4umsögnOpna PDF
Guðmundur Óli GunnarssonumsögnOpna PDF
Halldór KvaranumsögnOpna PDF
Ársæll HaukssonumsögnOpna PDF
SvalbarðsstrandarhreppurumsögnOpna PDF
Umhverfisnefnd BláskógabyggðumsögnOpna PDF
Fjallskilanefnd LaugardalsumsögnOpna PDF
Friðrik Stefán HalldórssonumsögnOpna PDF
Fjallskilanefnd BiskupsstungnaumsögnOpna PDF
Félag húsbílaeigendaumsögnOpna PDF
Veiðifélag Landmannaafréttar og fjallskilanefnd LandmannaafréttarumsögnOpna PDF
Jöklarannsóknafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Halldór JóhannessonumsögnOpna PDF
Páll Ásgeir ÁsgeirssonumsögnOpna PDF
SamgöngustofaumsögnOpna PDF
Sigurður Ingi JónssonumsögnOpna PDF
Jón G. GuðmundssonumsögnOpna PDF
Alexander Vestfjörð KárasonumsögnOpna PDF
Landssamband hestamannafélagaumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestraumsögnOpna PDF
LandverndumsögnOpna PDF
BláskógabyggðumsögnOpna PDF
Þorvarður I ÞorbjörnssonumsögnOpna PDF
NorðurþingumsögnOpna PDF
Grímsnes- og GrafningshreppurumsögnOpna PDF
Arnar Már BergmannumsögnOpna PDF
Ágústa ÁgústsdóttirumsögnOpna PDF
Ingimundur Þór ÞorsteinssonumsögnOpna PDF
Sveinn Kristján IngimarssonumsögnOpna PDF
Sveitarfélagið ÁrborgumsögnOpna PDF
Sveitarfélagið Skagafjörður, Húnavatnshreppur, Húnaþing vestra og AkrahreppurumsögnOpna PDF
Sveitarfélagið SkagafjörðurumsögnOpna PDF
Félag íslenskra náttúrufræðingaumsögnOpna PDF
DalabyggðumsögnOpna PDF
VatnajökulsþjóðgarðurumsögnOpna PDF
Sveitarfélagið ÁrborgumsögnOpna PDF
Umhverfisnefnd HrunamannahreppsumsögnOpna PDF
HrunamannahreppurumsögnOpna PDF
Félag landeigenda á AlmenningumumsögnOpna PDF
MúlaþingumsögnOpna PDF
FlóahreppurumsögnOpna PDF
Landssamband íslenskra vélsleðamannaumsögnOpna PDF
MýrdalshreppurbókunOpna PDF
Freyr ÞórssonumsögnOpna PDF
Sveitarfélagið ÖlfusumsögnOpna PDF
SkógræktinumsögnOpna PDF
Ívar Örn LárussonumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.