Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 355. mál

Barna- og fjölskyldustofa

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 11. jún. 2021

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að setja á stofn nýja ríkisstofnun til að sinna ýmsum verkefnum sem tengjast þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra.

Lagt fram af Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra (F), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 11. jún. 2021 greiddu 58 atkvæði með og 0 á móti; málið var samþykkt.

Lagt fram
30. nóvember 2020
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
5
Umræða í þingsal
13 ræður · 34 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 24. jún. 2021

Markmiðið

Að setja á stofn nýja ríkisstofnun til að sinna ýmsum verkefnum sem tengjast þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra.

Hvað breytist

Lagt er til að komið verði á fót nýrri stjórnsýslustofnun, Barna- og fjölskyldustofu, sem mun sinna verkefnum sem tengjast samþættingu þjónustu og almennri velferðarþjónustu í þágu barna. Með stofnun Barna- og fjölskyldustofu verður Barnaverndarstofa lögð niður og flest verkefni hennar flytjast til nýrrar stofnunar. Lagt er til að Barna- og fjölskyldustofa sjái um uppbyggingu úrræða og yfirstjórn heimila og stofnana fyrir börn sem nú er í höndum Barnaverndarstofu. Þá er lagt til að stofnunin sinni stuðningi við sveitarfélög og aðra þjónustuaðila vegna þjónustu í þágu barna.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög en við gildistöku laganna verða breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, barnaverndarlögum, nr. 80/2002, lögum um þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, nr. 160/2008, lögum um grunnskóla, nr. 91/2008, og lögum um útlendinga, nr. 80/2016.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir kostnaður vegna fjölgunar starfa geti orðið árlega allt að 250 milljónir kr. Einnig er gert ráð fyrir tímabundnum stofnkostnaði vegna fjölgunar starfsfólks um allt að 50 milljónir kr. Þá er gert ráð fyrir að kostnaður vegna gerðar gagnagrunns í barnavernd verði 150 milljónir kr. árið 2021 auk 10 milljóna kr. varanlegrar rekstrarfjárveitingar.

Meira úr samantektinni

Viljayfirlýsing um aukið samstarf í þágu barna. Félagsmálaráðuneytið, mennta- og menningarmálaráðuneytið, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, dómsmálaráðuneytið, 7. september 2018.

Þingmannanefnd um málefni barna. Félagsmálaráðuneytið, 8. október 2018.

Stýrihópur Stjórnarráðsins í málefnum barna. Félagsmálaráðuneytið, 22. janúar 2019.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Halla Signý Kristjánsdóttir

Lokaatkvæðagreiðsla
11. jún. 2021
Samþykkt58 með · 0 á móti
Að samþykkja frumvarpið „Barna- og fjölskyldustofa“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S14–0
  • 239–0
  • M8–0
  • F7–0
  • Sf7–0
  • 437–0
  • V4–0
  • Flf2–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Velferðarnefnd
sendi 2 umsagnabeiðnir · frestur 11. jan. 2021
Sendu inn umsögn eða erindi
14 aðilar
Persónuvernd, Félagsmálaráðuneytið, Reykjavíkurborg, Samband íslenskra sveitarfélaga, Öryrkjabandalag Íslands o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
34 mín · 13 ræður
5 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir kostnaður vegna fjölgunar starfa geti orðið árlega allt að 250 milljónir kr. Einnig er gert ráð fyrir tímabundnum stofnkostnaði vegna fjölgunar starfsfólks um allt að 50 milljónir kr. Þá er gert ráð fyrir að kostnaður vegna gerðar gagnagrunns í barnavernd verði 150 milljónir kr. árið 2021 auk 10 milljóna kr. varanlegrar rekstrarfjárveitingar.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 11. júní 2021: 58 með, 0 á móti.

Greiddu atkvæði með5 tóku til máls

53 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 11. janúar 2021
    2 beiðnir um umsögn
  5. Þingskjal
  6. Umræða
    2. umræða
    12 ræður · 33 mín
  7. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 31 með, 0 á móti
  8. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 30 með, 0 á móti
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 31 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  11. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  12. Þingskjal
  13. Þingskjal
  14. Umræða
    3. umræða
    1 ræða · 1 mín
  15. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 59 með, 0 á móti
  16. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 58 með, 0 á móti
  17. Þingskjal

Þingskjöl

5 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
441Stjórnarfrumvarp30. nóv. 2020Ásmundur Einar DaðasonLesaPDF
1550Nál. með brtt.31. maí 2021Halla Signý Kristjánsdóttir, Ásmundur Friðriksson +3LesaPDF
1615Frumvarp eftir 2. umræðu8. jún. 2021—LesaPDF
1650Nál. með brtt.8. jún. 2021Halla Signý Kristjánsdóttir, Ásmundur Friðriksson +3LesaPDF
1724Lög í heild11. jún. 2021—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

9 alls · 5 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur9. desember 2020 kl. 19:48
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ velferðarnefnd9. desember 2020 kl. 19:48
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt4. júní 2021 kl. 13:51
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Barna- og fjölskyldustofa“.
    1. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:11 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:1 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
    • VViðreisn:0 með · 0 á móti · 3 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt4. júní 2021 kl. 13:51
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Barna- og fjölskyldustofa“.
    1--3
    • SSjálfstæðisflokkur:11 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
    • VViðreisn:0 með · 0 á móti · 3 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt4. júní 2021 kl. 13:51
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Barna- og fjölskyldustofa“.
    2.--8. gr., svo breyttar,
    • SSjálfstæðisflokkur:12 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
    • 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
    • VViðreisn:0 með · 0 á móti · 3 sat hjá
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
  • yfirlýsing forseta/mál gengur4. júní 2021 kl. 13:52
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ velferðarnefnd4. júní 2021 kl. 13:52
    Frumvarp gengur til nefndar eftir 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt11. júní 2021 kl. 11:18
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Barna- og fjölskyldustofa“.
    1--3
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:9 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:7 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt11. júní 2021 kl. 11:18
    Að samþykkja frumvarpið „Barna- og fjölskyldustofa“ sem lög.
    , svo breytt,
    • SSjálfstæðisflokkur:14 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:8 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:7 með · 0 á móti
    • VViðreisn:4 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti

Hverjir tóku til máls

13 ræður · 34 mín
  • 2. umræða: 12 ræður · 5 ræðumenn · 33 mín
  • 3. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 1 mín

Umsagnir og erindi

15 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Velferðarnefnd sendi 2 umsagnabeiðnir 17. des. 2020, frestur 11. jan. 2021.

Hver sendiTegundBarstSkjal
PersónuverndathugasemdOpna PDF
FélagsmálaráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
ReykjavíkurborgumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
Öryrkjabandalag ÍslandsumsögnOpna PDF
KópavogsbærumsögnOpna PDF
AkureyrarbærumsögnOpna PDF
Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertraumsögnOpna PDF
PersónuverndumsögnOpna PDF
Umboðsmaður barnaumsögnOpna PDF
BarnaheillumsögnOpna PDF
Félagsráðgjafafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
BarnaverndarstofaumsögnOpna PDF
Landssamtökin ÞroskahjálpumsögnOpna PDF
Sveitarfélagið ÁrborgumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)