Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 354. mál

Störf þingsins

Störf þingsinsStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Störf þingsins
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
15 ræður · 32 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 24. jún. 2021

Markmiðið

Að börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana.

Hvað breytist

Lagt er til að sett verði heildarlög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Frumvarpið byggir á víðtækri skilgreiningu á hugtakinu farsældarþjónusta sem er nýtt yfirheiti yfir þjónustu sem mælt er fyrir um í lögum að sé veitt á vegum ríkis og sveitarfélaga sem á þátt í að efla eða tryggja farsæld barns. Gert er ráð fyrir að fram fari víðtæk stefnumótun hvað varðar samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Lagt er til að kveðið verði á um samræmda mælikvarða sem lýsa stigskiptingu þjónustu í þágu farsældar barna og að mælt verði fyrir um skyldu til að stigskipta allri farsældarþjónustu. Gert er ráð fyrir að öll börn og foreldrar þeirra sem á þurfi að halda hafi rétt til aðgangs að aðila sem getur með tilgreindum hætti aðstoðað þau við að fá viðeigandi þjónustu án hindrana. Þá er gert ráð fyrir að markaður verði skýr farvegur fyrir samstarf mismunandi þjónustukerfa.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög en við gildistöku laganna verða breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir að árlegur kostnaður ríkisins fyrstu árin eftir gildistöku laganna verði 400 milljónir kr. vegna nýrra verkefna hjá heilbrigðiskerfi, löggæslu og framhaldsskólum. Þar að auki er áætlaður kostnaður vegna innleiðingar á þeim tíma 100 milljónir kr. árin 2021 og 2022 og 50 milljónir kr. árin 2023 og 2024.

Meira úr samantektinni

Viljayfirlýsing um aukið samstarf í þágu barna. Félagsmálaráðuneytið, mennta- og menningarmálaráðuneytið, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, dómsmálaráðuneytið, 7. september 2018.

Þingmannanefnd um málefni barna. Félagsmálaráðuneytið, 8. október 2018.

Stýrihópur Stjórnarráðsins í málefnum barna. Félagsmálaráðuneytið, 22. janúar 2019.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Halla Signý Kristjánsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Velferðarnefnd
sendi 2 umsagnabeiðnir · frestur 11. jan. 2021
Sendu inn umsögn eða erindi
21 aðili
Persónuvernd, Félagsmálaráðuneytið, Reykjavíkurborg, Öryrkjabandalag Íslands, ADHD samtökin o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
32 mín · 15 ræður
15 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir að árlegur kostnaður ríkisins fyrstu árin eftir gildistöku laganna verði 400 milljónir kr. vegna nýrra verkefna hjá heilbrigðiskerfi, löggæslu og framhaldsskólum. Þar að auki er áætlaður kostnaður vegna innleiðingar á þeim tíma 100 milljónir kr. árin 2021 og 2022 og 50 milljónir kr. árin 2023 og 2024.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Sýna 9 í viðbót

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-106/2020· Áform um lagasetningu· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 26. maí 2020 – 24. jún. 2020· 22 umsagnir

Áform um samþættingu þjónustu í þágu barna

Undanfarin tvö ár hefur farið fram margþætt vinna við endurskoðun á félagslegri umgjörð um málefni barna. Áformað er að leggja fram frumvarp til laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna síðar á árinu auk tveggja frumvarpa vegna breytinga á stofnanafyrirkomulagi á málefnasviði félagsmálaráðuneytisins. Frumvörpin eru hér kynnt sem áform um lagasetningu en samhliða er unnið að mati á áhrifum þeirra.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-106/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 24. júní 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 22 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (7. ágúst 2020)

Alls bárust 22 umsagnir frá stofnunum, sveitarfélögum, samtökum, háskólasamfélaginu og einstaklingum. Umsagnirnar eru almennt jákvæðar og samstaða um mikilvægi þess að frumvörpin nái fram að ganga. Unnið verður nánar úr öllum athugasemdum sem bárust og afstaða tekin til þeirra við áframhaldandi vinnslu frumvarpanna.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (22)
  • #1Eyjólfur Kjalar Emilsson

    Að mínum dómi er farsæld ekki hugak sem á við um börn, sérstaklega ekki við ung börn. Það er röng hugtakanotkun. Til manneskja geti talist farsæl verður hún sjálf að taka mikilvægar ákvarðanir, taka ábyrgð á eigin lífi. Það krefst vits og reynslu sem börn hafa ekki. Hins er ekkert að því að tala um velferð barna, sem vondandi býr þau undir að verða farsæl síðar.

  • #2Þroskahjálp,landssamtök
    Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um áform um samþættingu þjónustu í þágu barna. Hvað varðar drög að frumvarpi til laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna vísa Landssamtökin Þroskahjálp til sameiginlegrar umsagnar samtakanna, Sjónarhóls ráðgjafamiðstöðvar, ADHD samtakanna, Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra og Umhyggju, félags langveikra barna. Samtökin vilja koma eftirfarandi athugasemdum / ábendingum /spruningum á framfæri varðandi drög að frumvarpi til laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála. • Ekkert kemur fram um hvernig tengsl… Lesa alla

    Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um áform um samþættingu þjónustu í þágu barna. Hvað varðar drög að frumvarpi til laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna vísa Landssamtökin Þroskahjálp til sameiginlegrar umsagnar samtakanna, Sjónarhóls ráðgjafamiðstöðvar, ADHD samtakanna, Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra og Umhyggju, félags langveikra barna. Samtökin vilja koma eftirfarandi athugasemdum / ábendingum /spruningum á framfæri varðandi drög að frumvarpi til laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála. • Ekkert kemur fram um hvernig tengslum við réttindagæsluna verður háttað verði frumvarpið að lögum. Réttindagæslan er afar mikilvægur þáttur í eftirliti með réttindum fatlaðs fólks. Þá skal í þessu sambandi áréttað að nauðsynlegt er og mjög tímabært að fram fari heildarskoðun á lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk. Milli verkefna Gæða- og eftirlitsstofnunar skv. frumvarpinu og réttindaæslunnar eru veruleg og augljós tengsl og skörun verkefna, s.s. hvað varðar móttöku kvartana. Nauðsynlegt er að skýrt sé samkvæmt lögum hver verka- og ábyrgðarskipting er og hvert fatlað fólk og aðrir eiga að leita með kvartanir aðfinnslur o.þ.h. Einnig er nauðsynlegt að skýrt verði hver staða réttindagæslunnar í stjórnkerfinu verður verði frumvarpið að lögum Þá er óhjákvæmilegt að gera alvarlega athugsemd við að í frumvarpinu skuli ekkert minnst á sjálfstæða óháða mannréttindastofnun sem uppfyllir kröfur og skilyrði Parísar-meginreglnanna (Paris Principles) og hefur eftirlit með að mannréttindi fatlaðs fólks séu virt þó að íslenska ríkið hafi skuldbundið sig til að setja á fót slíka stofnun þegar það fullgilti samning SÞ um réttindi fatlaðs fólks árið 2016, sbr. 2. mgr. 33. gr. samningsins. • Töluvert vald er tekið frá félagsmálaráðherra, s.s. til afturköllunar starfsleyfa skv. 7. gr. laga nr. 38/2008, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Þá er í 7. gr. frumvarpsins fellt út ákvæði sem er nú í 8. gr. laga nr. 38/2008 um að aflað skuli umsagnar notendaráðs, án þess að í fumvarpinu sé að finna önnur ákvæði sem mæta þeim hagsmunum sem ætla verður að þessu ákvæði laganna sé ætlað að verja m.t.t. samráðs við fatlað fólk. Nauðsynlegt er að þessi breyting sé skýrð með einhverjum málefnalegum rökum • Ákvæði í 12. gr. um „ skráningu óvæntra atvik“ eru til bóta. Hér vaknar sú spurning hvort í lögum séu ákvæði sem ná til sambærilegra tilvika í skólum sem börn sækja. • Ákvæði 13. gr. frumvarpsins um „ábendingar“ eru mun veikari en skyldur til að tilkynna um brot gegn réttindum fatlaðs fólks samkvæmt 27. gr. laga 38/2018 og 6. gr. laga nr. um réttidnagæslu. Mikilvægt að þetta sé skýrt og ekkert gert til að veikja þá mikilvægu lagalegu vernd sem felst í umræddum ákvæðum laga nr. 38/2018 og laga nr. 88/2011, um réttindagæslu. • Ákvæði 15. gr. vekja spurningar um virðingu fyrir friðhelgi heimila fatlaðs fólks. Þá er sérstakt orðalag í 3. mgr. greinarinnar „skal leitast við að gefa notendum kost á að koma sjónarmiðum ...“. Veigamikil rök verða að vera fyrir því að orða þetta ekki sem fortakslausa skyldu. • Óljóst er hvort og að hvaða leyti ákvæði 18. og 19. gr. frumvarpsins eigi við þegar aðili vanrækir að starfrækja þá þjónustu sem honum ber að veita samkvæmt lögum eða hvort ákvæðið nái einvörðungu til þess þegar starfsemi sem er veitt er ófullnægjandi.

  • #3Bryndís Snæbjörnsdóttir

    Í meðfylgjandi viðhengi er sameiginleg umsögn frá Sjónarhóli, ADHD samtökunum, Styrktarfélagi Lamaðra og fatlaðra, Umhyggju og Landssamtökunum Þroskahjálp

  • #4Katrín Davíðsdóttir
    Umsögn frá Þroska- og hegðunarstöð Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðis: Okkur sýnist að það verklag sem ráðgert er í frumvarpinu þegar þörf er á stuðningi (grunn-, markvissari eða sérhæfðari) þá sé leið notenda að þjónustu lengri en er í núverandi kerfi, þar sem milliliðir verða fleiri. Ekki kemur fram hvernig eigi að tryggja þjónustu „án hindrana“. Hindranir nú eru ekki skortur á skipulagi eða samvinnu milli stofnana heldur ónóg fjármögnun úrræða. Stigskipting þjónustunnar er óljós og óvíst hvar (hjá hvaða stofnunum) eigi að koma verkefnunum fyrir. Það vantar áætlun um hve mörg börn þurfa 2. og 3… Lesa alla

    Umsögn frá Þroska- og hegðunarstöð Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðis: Okkur sýnist að það verklag sem ráðgert er í frumvarpinu þegar þörf er á stuðningi (grunn-, markvissari eða sérhæfðari) þá sé leið notenda að þjónustu lengri en er í núverandi kerfi, þar sem milliliðir verða fleiri. Ekki kemur fram hvernig eigi að tryggja þjónustu „án hindrana“. Hindranir nú eru ekki skortur á skipulagi eða samvinnu milli stofnana heldur ónóg fjármögnun úrræða. Stigskipting þjónustunnar er óljós og óvíst hvar (hjá hvaða stofnunum) eigi að koma verkefnunum fyrir. Það vantar áætlun um hve mörg börn þurfa 2. og 3. stigs þjónustu og það vantar að fjármagna þjónustuna miðað við þörf. Einnig vantar áætlun um hvernig eigi að tryggja að ekki myndist biðlistar á öllum stigum. Frumvarpið er í heild sinni mjög félags- og barnaverndarmiðað, vantar að taka meira mið af hlutverki heilbrigðisþjónustunnar. "Farsæld" ekki gott orð. "Velferð" væri heppilegra.

  • #5Embætti landlæknis

    Sjá umsögn embættis landlæknis í viðhengi.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 11. janúar 2021
    2 beiðnir um umsögn
  2. Umræða
    Umræða
    15 ræður · 32 mín

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

15 ræður · 32 mín
  • Umræða: 15 ræður · 15 ræðumenn · 32 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Líneik Anna SævarsdóttirFramsóknarflokkur12 mín
Inga SælandFlokkur fólksins11 mín
Karl Gauti HjaltasonMiðflokkurinn12 mín
Sigurður Páll JónssonMiðflokkurinn12 mín
Þorsteinn B SæmundssonMiðflokkurinn12 mín
Sara Elísa ÞórðardóttirUtan þingflokka12 mín
Björn Leví GunnarssonUtan þingflokka12 mín
Helgi Hrafn GunnarssonUtan þingflokka12 mín
Sigríður Á. AndersenSjálfstæðisflokkur12 mín
Rósa Björk BrynjólfsdóttirSamfylkingin12 mín
Guðmundur Andri ThorssonSamfylkingin12 mín
Helga Vala HelgadóttirSamfylkingin12 mín
Jón Steindór ValdimarssonViðreisn12 mín
Steinunn Þóra ÁrnadóttirUtan þingflokka12 mín
Bjarkey GunnarsdóttirUtan þingflokka12 mín

Umsagnir og erindi

23 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Velferðarnefnd sendi 2 umsagnabeiðnir 17. des. 2020, frestur 11. jan. 2021.

Hver sendiTegundBarstSkjal
PersónuverndathugasemdOpna PDF
FélagsmálaráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
ReykjavíkurborgumsögnOpna PDF
Öryrkjabandalag ÍslandsumsögnOpna PDF
ADHD samtökinumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
KópavogsbærumsögnOpna PDF
AkureyrarbærumsögnOpna PDF
Sveitarfélagið ÁrborgumsögnOpna PDF
Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertraumsögnOpna PDF
HafnarfjarðarbærumsögnOpna PDF
PersónuverndumsögnOpna PDF
Sýslumaðurinn í VestmannaeyjumumsögnOpna PDF
Umboðsmaður barnaumsögnOpna PDF
Félagsráðgjafadeild Háskóla ÍslandsumsögnOpna PDF
BarnaheillumsögnOpna PDF
Félagsráðgjafafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
BarnaverndarstofaumsögnOpna PDF
Þroskaþjálfafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Landssamtökin ÞroskahjálpumsögnOpna PDF
Sjónarhóll - ráðgjafarmiðstöð, ADHD samtökin, Landssamtökin Þroskahjálp, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra og Umhyggja ? félagi langveikra barnaumsögnOpna PDF
Lúðvík JúlíussonumsögnOpna PDF
Sveitarfélagið ÁrborgumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.