Beint í efni
Alviti
Þingmál151. þing · 20. mál

Bjargráðasjóður

Óundirbúinn fyrirspurnatímiStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að lækka aldursviðmið vegna réttar til að breyta skráningu kyns.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Óundirbúinn fyrirspurnatími
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
4 ræður · 7 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 25. jún. 2021

Markmiðið

Að lækka aldursviðmið vegna réttar til að breyta skráningu kyns.

Hvað breytist

Lagt er til að aldur vegna réttar til að breyta opinberri skráningu kyns, og samhliða breyta nafni, miðist við 15 ára aldur í stað 18 ára aldurs. Þá er gert ráð fyrir því að börn yngri en 15 ára geti breytt opinberri skráningu kyns síns með fulltingi forsjáraðila sinna. Gert er ráð fyrir því að þær takmarkanir sem skv. 7. gr. laga um kynrænt sjálfræði gilda um breytingu á skráningu kyns og sam­­hliða nafnbreytingu gildi ekki um einstaklinga yngri en 18 ára.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir að samþykkt frumvarpsins hafi neikvæð áhrif á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Löggjöf í öðrum löndum

Danmörk

Bekendtgørelse af lov om Det Centrale Personregister LBK nr 1297 af 03/09/2020.

Bekendtgørelse af lov om assisteret reproduktion i forbindelse med behandling, diagnostik og forskning m.v. LBK nr 902 af 23/08/2019.

Bekendtgørelse af sundhedsloven LBK nr 903 af 26/08/2019.

Írland

Gender Recognition Act 2015 Number 25 of 2015.

Malta

Gender Identity, Gender Expression and Sex Characteristics Act ACT XI of 2015.

Noregur

Lov om endring av juridisk kjønn LOV-2016-06-17-46.

Svíþjóð

Lag om fastställande av könstillhörighet i vissa fall (1972:119).

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Steinunn Þóra Árnadóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 29. okt. 2020
Sendu inn umsögn eða erindi
6 aðilar
Læknafélag Íslands, Félagsráðgjafafélag Íslands, Samtökin 78, Umboðsmaður barna, Kvenréttindafélag Íslands o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
7 mín · 4 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir að samþykkt frumvarpsins hafi neikvæð áhrif á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-142/2020· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. ágú. 2020 – 28. ágú. 2020· 4 umsagnir

Breyting á lögum um kynrænt sjálfræði (aldursskráning)

Samkvæmt bráðabirgðaákvæði II í lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019 var kveðið á um skipan starfshóps sem var meðal annars falið að endurskoða aldursviðmið laganna til lækkunar vegna réttar til að breyta skráningu kyns. Frumvarpið byggir á tillögum starfshópsins.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-142/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 28. ágúst 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (22. júní 2021)

Frumvarpið var samþykkt sem lög frá Alþingi 16. desember 2020. Í 5. kafla í greinargerð með frumvarpi til laganna er fjallað um umsagnir í samráðsgáttinni.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)
  • #1Guðlaugur Ingi Hauksson
    Nú á tímum þegar skilningur á þessu máli er eins mikill og hann er, þá opna börn fyrr á tjáningu kynvitundar. Sonur minn fæddist í líkama stúlku, en 4-5 ára var hann orðinn strákalegri en ég á þeim aldri. Þess vegna tel ég að ekki sé nógu langt gengið með þessum lögum og mundi vilja sjá aldurinn 12 ára. Ennfremur þarf að skoða hvort ekki megi leyfa krökkum að vera samferða jafnöldrum sínum gegnum kynþroskann, en þá er ég að tala um örlítið af kynhormónum upplifaðs kyns, ásamt þeim blokkerum sem nú eru almennt gefnir. Sonur minn er 12 ára núna og sér nú hvern vininn á fætur öðrum fara í mút… Lesa alla

    Nú á tímum þegar skilningur á þessu máli er eins mikill og hann er, þá opna börn fyrr á tjáningu kynvitundar. Sonur minn fæddist í líkama stúlku, en 4-5 ára var hann orðinn strákalegri en ég á þeim aldri. Þess vegna tel ég að ekki sé nógu langt gengið með þessum lögum og mundi vilja sjá aldurinn 12 ára. Ennfremur þarf að skoða hvort ekki megi leyfa krökkum að vera samferða jafnöldrum sínum gegnum kynþroskann, en þá er ég að tala um örlítið af kynhormónum upplifaðs kyns, ásamt þeim blokkerum sem nú eru almennt gefnir. Sonur minn er 12 ára núna og sér nú hvern vininn á fætur öðrum fara í mútur. Í fótboltanum eru strákarnir líka orðnir skotfastari, harkalegri og grimmari, en sonur minn fær líklega ekkert testósterón fyrr en eftir dúk og disk - og hann upplifir ósanngirni og mismunun í þessu. Þarna vantar lagaheimild fyrir að minnsta kosti þónokkurn hóp transbarna.

  • #2Trans Ísland, félag transgender fólks á Íslandi

    Góðan dag, Umsögn Trans Íslands, félags trans fólks á Íslandi, má finna í viðhengi. F. h. Trans Íslands, félags trans fólks á Íslandi Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, Formaður

  • #3Samtökin '78,félag hinsegin fólks á Íslandi

    Til þess er málið varðar. Umsögn Samtakanna '78 - félag hinsegin fólks á Íslandi, má finna hér í viðhengi. F. h. Samtakanna '78 Daníel E. Arnarsson, framkvæmdastjóri Þorbjörg Þorvaldsdóttir, formaður

  • #4Þóra Jónsdóttir
    Umsögn Barnaheilla – Save the Children á Íslandi um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019 (breytt aldursviðmið) Barnaheill - Save the Children á Íslandi fagna framkomnum drögum að frumvarpi og lýsa ánægju sinni yfir þeirri viðurkenningu sem komin er fram á rétti barna til þátttöku í ákvörðunum um aðgerðir til varanlegrar breytingar á ódæmigerðum kyneinkennum sínum. Barnaheill styðja við efni draganna í þeirri mynd sem þau nú eru og telja stigið heillaskref í átt að aukinni virðingu gagnvart mannréttindum barna. Hvað varðar ákvörðun um hven… Lesa alla

    Umsögn Barnaheilla – Save the Children á Íslandi um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019 (breytt aldursviðmið) Barnaheill - Save the Children á Íslandi fagna framkomnum drögum að frumvarpi og lýsa ánægju sinni yfir þeirri viðurkenningu sem komin er fram á rétti barna til þátttöku í ákvörðunum um aðgerðir til varanlegrar breytingar á ódæmigerðum kyneinkennum sínum. Barnaheill styðja við efni draganna í þeirri mynd sem þau nú eru og telja stigið heillaskref í átt að aukinni virðingu gagnvart mannréttindum barna. Hvað varðar ákvörðun um hvenær barni gefst færi á að breyta skráningu á kyni sínu þá styðja Barnaheill við að börnum gefist færi á því við 15 ára aldur eins og lagt er til í frumvarpsdrögunum. Hins vegar hvetja Barnaheill til þess að börnum verði gert kleift að breyta skráningu sinni fyrr ef, að lokinni ítarlegri skoðun og mati á lífi barns í samráði við barnið og forsjárfólk þess, það er ljóst að barnið vill að skráningu kyns síns verði breytt og talið er ljóst að það eigi við. Barnaheill hvetja til þess að frumvarpið verði lagt fyrir Alþingi sem fyrst til samþykktar. Barnaheill vinna að bættum mannréttindum barna og hafa Barnasáttmálann að leiðarljósi í öllu sínu starfi

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umræða
    Umræða
    4 ræður · 7 mín
  2. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 29. október 2020
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

4 ræður · 7 mín
  • Umræða: 4 ræður · 2 ræðumenn · 7 mín

Umsagnir og erindi

6 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 15. okt. 2020, frestur 29. okt. 2020.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Læknafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Félagsráðgjafafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Samtökin 78umsögnOpna PDF
Umboðsmaður barnaumsögnOpna PDF
Kvenréttindafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Mannréttindaskrifstofa ÍslandsumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.