Beint í efni
Alviti
Þingmál150. þing · 717. mál

Útlendingar og atvinnuréttindi útlendinga

Alþjóðleg vernd, brottvísunartilskipunin, dvalar- og atvinnuleyfi

LagafrumvarpDagaði uppiAtvinnumálLöggæsla og eftirlit

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 11. maí 2020

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 150. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að stuðla að gagnsærri og stöðugri framkvæmd laganna. Að auka skilvirkni og stytta málsmeðferðartíma til hagsbóta fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi og bæta þar með meðferð opinbers fjár.

Lagt fram af Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
11. apríl 2020
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
80 ræður · 4 klst. 20 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 7. sep. 2020

Markmiðið

Að stuðla að gagnsærri og stöðugri framkvæmd laganna. Að auka skilvirkni og stytta málsmeðferðartíma til hagsbóta fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi og bæta þar með meðferð opinbers fjár.

Hvað breytist

Á meðal þeirra álitaefna sem frumvarpinu er ætlað að taka á eru atriði er snerta forgangsmeðferð bersýnilega tilhæfulausra umsókna, málsmeðferðartími umsókna barna um alþjóðlega vernd, hvenær taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar, hlutverk Barnaverndarstofu við veitingu alþjóðlegrar verndar í málefnum fylgdarlausra barna sem sækja um slíka vernd hér á landi, orðalag útilokunarástæðna við ákvörðun um ríkisfangsleysi, réttindi og skyldur flóttafólks sem kemur til landsins í boði íslenskra stjórnvalda, fjölskyldusameiningu flóttafólks og afturköllun verndar sem veitt er á grundvelli slíkrar sameiningar og hvenær veita beri þjónustu sem umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga rétt á skv. 33. gr. laganna og hvenær sé eðlilegt að hún falli niður. Lagt er til að stoð Dyflinnarreglugerðarinnar sé styrkt og málsmeðferð umsókna einfölduð þegar umsækjandi hefur þegar hlotið alþjóðlega vernd í öðru ríki svo auka megi skilvirkni og stytta málsmeðferðartíma. Jafnframt eru breytingar lagðar til á nánar tilgreindum ákvæðum laganna varðandi útgáfu dvalarleyfa. Er m.a. lagt til að doktorsnemar megi vera staddir hér á landi þegar þeir sækja um dvalarleyfi í fyrsta skipti, að heimilt verði að endurnýja dvalarleyfi vegna vistráðningar og að heimilt verði að veita útlendingi sem misst hefur starf sitt sem krefst sérfræðiþekkingar dvalarleyfi til þriggja mánaða til þess að hann geti leitað sér annars starfs á grundvelli sérþekkingar sinnar. Loks eru lagðar til breytingar á lögum um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002, varðandi útgáfu tímabundinna atvinnuleyfa vegna sérstakra ástæðna. Samkvæmt núgildandi lögum er heimilt að veita útlendingi tímabundið atvinnuleyfi vegna tiltekins starfs hér á landi í undantekningartilvikum, hafi honum áður m.a. verið veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða eða sérstakra tengsla við landið. Í frumvarpinu er lagt til að útlendingar sem fengið hafa slík dvalarleyfi verði undanþegnir frá kröfu um tímabundið atvinnuleyfi hér á landi.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Verði frumvarpið óbreytt að lögum er ekki gert ráð fyrir að það hafi í för með sér útgjaldabreytingar fyrir ríkissjóð sem nokkru nemur en gefi færi á aukinni skilvirkni í málsmeðferð útlendingamála.

Meira úr samantektinni

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 frá 26. júní 2013 um að koma á viðmiðunum og fyrirkomulagi við að ákvarða hvaða aðildarríki beri ábyrgð á meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd sem ríkisborgari þriðja lands eða ríkisfangslaus einstaklingur leggur fram í einu aðildarríkjanna (Dyflinnarreglugerðin).

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 115/2008 frá 16. desember 2008 um sameiginleg viðmið og skilyrði fyrir brottvísun ríkisborgara utan EES sem dveljast ólöglega á yfirráðasvæði aðildarríkjanna.

Útlendingastofnun: Málsmeðferð og verklagsreglur. Ríkisendurskoðun, nóvember 2018.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Páll Magnússon

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 2 umsagnabeiðnir · frestur 29. maí 2020
Sendu inn umsögn eða erindi
23 aðilar
Íslandsdeild Amnesty International, No Borders Iceland, Útlendingastofnun, Siðfræðistofnun Háskóla Íslands, Barnaheill o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
4 klst. 20 mín · 80 ræður
11 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Verði frumvarpið óbreytt að lögum er ekki gert ráð fyrir að það hafi í för með sér útgjaldabreytingar fyrir ríkissjóð sem nokkru nemur en gefi færi á aukinni skilvirkni í málsmeðferð útlendingamála.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Sýna 5 í viðbót

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta
  3. Umræða
    1. umræða
    80 ræður · 4 klst. 20 mín
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  6. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 29. maí 2020
    2 beiðnir um umsögn

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1228Stjórnarfrumvarp11. apr. 2020Áslaug Arna SigurbjörnsdóttirLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

3 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta5. maí 2020 kl. 13:31
    Afbrigði
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur11. maí 2020 kl. 20:59
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ allsherjar- og menntamálanefnd11. maí 2020 kl. 20:59
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

80 ræður · 4 klst. 20 mín
  • 1. umræða: 80 ræður · 11 ræðumenn · 4 klst. 20 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Birgir ÞórarinssonMiðflokkurinn523 mín
Þórhildur Sunna ÆvarsdóttirUtan þingflokka1341 mín
Jón Þór ÓlafssonUtan þingflokka413 mín
Helgi Hrafn GunnarssonUtan þingflokka23 mín
Áslaug Arna SigurbjörnsdóttirSjálfstæðisflokkur2359 mín
Helga Vala HelgadóttirSamfylkingin320 mín
Guðmundur Andri ThorssonSamfylkingin318 mín
Andrés Ingi JónssonUtan þingflokka1129 mín
Rósa Björk BrynjólfsdóttirUtan þingflokka724 mín
Þorbjörg Sigríður GunnlaugsdóttirViðreisn623 mín
Steinunn Þóra ÁrnadóttirUtan þingflokka39 mín

Umsagnir og erindi

23 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 2 umsagnabeiðnir 15. maí 2020, frestur 29. maí 2020.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Íslandsdeild Amnesty InternationalumsögnOpna PDF
No Borders IcelandumsögnOpna PDF
ÚtlendingastofnunumsögnOpna PDF
Siðfræðistofnun Háskóla ÍslandsumsögnOpna PDF
BarnaheillumsögnOpna PDF
Kvenréttindafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Réttur - ráðgjöf og málflutningur ehfumsögnOpna PDF
UNHCR Representation for Northern EuropeathugasemdOpna PDF
Ungir jafnaðarmennumsögnOpna PDF
Kærunefnd útlendingamálaumsögnOpna PDF
Starfshópur þjóðkirkjunnar um málefni flóttafólksumsögnOpna PDF
Alþýðusamband ÍslandsumsögnOpna PDF
PersónuverndumsögnOpna PDF
FjölmenningarseturumsögnOpna PDF
UNICEF á ÍslandiumsögnOpna PDF
SOLARIS - Hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi.umsögnOpna PDF
UN WomenumsögnOpna PDF
Norðdahl & ValdimarssonumsögnOpna PDF
Mannréttindaskrifstofa ÍslandsumsögnOpna PDF
Mannréttinda- og lýðræðisskrifstofa ReykjavíkurborgarumsögnOpna PDF
Ungmennaráð UN Women á ÍslandiumsögnOpna PDF
Rauði krossinn á ÍslandiumsögnOpna PDF
Landssamtökin ÞroskahjálpumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)