Eignarráð og nýting fasteigna
Aðilar utan EES, landeignaskrá, ráðstöfun landeigna, aukið gagnsæi
Hvar er málið statt?
Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.
- Lagt fram
- 1. umræða
- Í nefnd
- 2. umræða
- 3. umræða
- Samþykkt
Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“
Í stuttu máli
Að styrkja löggjöf um jarðir, land og aðrar fasteignir með breytingum á lagaákvæðum um eignarráð og nýtingu fasteigna, þ.m.t. jarða, og um opinbera skráningu á atriðum viðkomandi landi og fasteignum.
Lagt fram af Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra (Vg), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 29. jún. 2020 greiddu 32 atkvæði með og 0 á móti, 23 sátu hjá; málið var samþykkt.
- Lagt fram
- 2. apríl 2020
- Tegund
- Stjórnarmál
- Atkvæðagreiðslur með skrá
- 6
- Umræða í þingsal
- 26 ræður · 2 klst. 27 mín
Málið á mannamáli
Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.
Markmiðið
Að styrkja löggjöf um jarðir, land og aðrar fasteignir með breytingum á lagaákvæðum um eignarráð og nýtingu fasteigna, þ.m.t. jarða, og um opinbera skráningu á atriðum viðkomandi landi og fasteignum.
Hvað breytist
Lagðar eru til breytingar á heimild ráðherra í lögum um eignarrétt og afnotarétt fasteigna til að veita aðilum frá ríkjum utan EES leyfi til að öðlast eignarrétt eða afnotarétt yfir fasteign ef þeir uppfylla ekki skilyrði laganna um íslenskan ríkisborgararétt eða skilyrði um lögheimili hér á landi. Verði frumvarpið óbreytt að lögum getur ráðherra heimilað einstaklingi eða lögaðila utan EES að öðlast eignar- eða afnotarétt yfir fasteign til beinna nota í atvinnustarfsemi og einnig heimilað einstaklingi, sem hefur sterk tengsl við Ísland, s.s. vegna hjúskapar við íslenskan ríkisborgara, að eignast hér fasteign. Lögð er til breyting á þinglýsingalögum þess efnis að upplýsingar um kaupverð eignar verði meðal skilyrða fyrir þinglýsingu afsals nema skýrt komi fram að ekkert endurgjald komi fyrir hina seldu eign. Þá er lagt til að í lög um skráningu og mat fasteigna komi ákvæði um landeignaskrá, sem er hluti fasteignaskrár og inniheldur m.a. upplýsingar um eignarmörk lands í samræmdum kortagrunni. Ákvæðinu er ætlað að ryðja úr vegi hindrunum fyrir frekari uppbyggingu landeignaskrár Þjóðskrár Íslands. Lagðar eru til ýmsar breytingar á jarðalögum, þ.á.m. að markmiðsákvæði laganna verði fyllra og ítarlegra en nú og innihaldi markmið um landnýtingu í samræmi við skilgreind markmið, þ.á.m. um að land sem vel er fallið til búvöruframleiðslu verði nýtt í því skyni. Lagðar eru til breytingar á ákvæðum um lögbýli þannig að þau verði einungis stofnuð til starfsemi á sviði landbúnaðar eins og hann er skilgreindur í lögunum. Lagt er til ákvæði um skyldu til að afla samþykkis ráðherra fyrir ráðstöfun beins eignarréttar eða afnotaréttar til lengri tíma en fimm ára yfir fasteign sem fellur undir gildissvið jarðalaga ef: a) ráðstöfunin tekur til lögbýlis og viðtakandi réttar og tengdir aðilar eiga fyrir fimm eða fleiri fasteignir, sem skráðar eru í lögbýlaskrá, og samanlögð stærð þeirra er yfir 50 hekturum; b) viðtakandi réttar og tengdir aðilar eiga fyrir fasteign eða fasteignir, sem falla undir gildissvið jarðalaga, og eru samtals 1.500 hektarar eða meira að stærð. Lagt er til að lögaðilum sem eiga bein eignarréttindi yfir fasteign eða fasteignarréttindi, sem falla undir gildissvið jarðalaga, verði skylt að veita stjórnvöldum upplýsingar um eignarhald sitt. Upplýsingaskylda samkvæmt ákvæðinu mun taka til erlendra lögaðila annars vegar og hins vegar íslenskra lögaðila sem eru að 1/3 hluta eða meira í beinni eða óbeinni eigu erlends lögaðila, fjárvörslusjóðs eða sambærilegs aðila eða undir yfirráðum slíkra aðila. Lagt er til að beiðnum um landskipti fylgi ávallt staðfesting á því að breytingin samrýmist gildandi skipulagsáætlun. Lagðar eru til breytingar á ákvæðum um niðurfellingu lögbýlisréttar þess efnis að ráðherra verði ekki lengur skylt að fella lögbýlisrétt niður að ósk eiganda og að lögbýlisréttur skuli ekki felldur niður gegn rökstuddum andmælum sveitarstjórnar. Lagt er til að rétthöfum verði gert skylt að láta þinglýsa skjölum um tiltekin eignarréttindi yfir fasteignum sem falla undir gildissvið jarðalaga, þ.á.m. afsölum. Lagt er til að viðurlagaákvæði jarðalaga verði styrkt og ráðherra veitt heimild til að bregðast við brotum á ákvæðum laganna, m.a. með því að krefjast nauðungarsölu eða virkja innlausnarrétt ríkissjóðs.
Lög sem breytast
Lög um eignarrétt og afnotarétt fasteigna, nr. 19/1966. Þinglýsingalög, nr. 39/1978. Lög um skráningu og mat fasteigna, nr. 6/2001. Jarðalög, nr. 81/2004.
Kostnaður fyrir ríkið
Gert er ráð fyrir auknum kostnaði Þjóðskrár Íslands vegna skráningar lands í landeignaskrá og viðhalds hennar sem falla mun á ríkissjóð. Er áætlaður kostnaður vegna þessa 80 milljónir kr. árið 2020, 83 milljónir kr. á ári árin 2021 til 2023 og 30 milljónir kr. á ári eftir það. Gert er ráð fyrir 17 milljóna kr. árlegum kostnaði atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis vegna nýrra verkefna sem leiða af frumvarpinu verði það óbreytt að lögum. Talið er að kostnaður við breytingar á tölvukerfum svo halda megi saman upplýsingum um eignarhald lögaðila undir erlendum yfirráðum muni verða um 12 milljónir kr. Gert er ráð fyrir því að einhver kostnaður falli til hjá sýslumönnum vegna upplýsingaöflunar úr gögnum í þeirra vörslu.
Meira úr samantektinni
Endurskoðun laga um eignarrétt og afnotarétt fasteigna, nr. 19/1966. Skýrsla nefndar. Innanríkisráðuneytið, 30. maí 2014.
Skýrsla starfshóps um eignarhald á bújörðum. 31. ágúst 2018.
Viðmiðunarreglur við afgreiðslu umsókna útlendinga um kaup á fasteign á Íslandi á grundvelli 2. mgr. 1. gr. laga nr. 19/1966.
Afstaða þingflokkanna
Katrín JakobsdóttirUtan þingflokkaforsætisráðherra
Framsögumaður nefndar: Bjarkey Gunnarsdóttir
- S15–0
- 239–0
- M0–0 · 6 hjá
- F7–0
- Sf0–0 · 7 hjá
- 430–0 · 5 hjá
- V0–0 · 3 hjá
- Flf1–0 · 1 hjá
- U0–0 · 1 hjá
Gott að vita um atkvæðin
- Með – greiddi atkvæði með (já)
- Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
- Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
- Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
- Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð
Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.
„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.
Af hverju skiptir þetta máli?
Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.
- Nefndin sem fjallar um málið
- Allsherjar- og menntamálanefnd
- sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 21. maí 2020
- Sendu inn umsögn eða erindi
- 22 aðilar
- Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands, Arion banki o.fl. · allar umsagnir
- Umræða í þingsal
- 2 klst. 27 mín · 26 ræður
- 11 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
- Kostnaður fyrir ríkissjóð
- Gert er ráð fyrir auknum kostnaði Þjóðskrár Íslands vegna skráningar lands í landeignaskrá og viðhalds hennar sem falla mun á ríkissjóð. Er áætlaður kostnaður vegna þessa 80 milljónir kr. árið 2020, 83 milljónir kr. á ári árin 2021 til 2023 og 30 milljónir kr. á ári eftir það. Gert er ráð fyrir 17 milljóna kr. árlegum kostnaði atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis vegna nýrra verkefna sem leiða af frumvarpinu verði það óbreytt að lögum. Talið er að kostnaður við breytingar á tölvukerfum svo halda megi saman upplýsingum um eignarhald lögaðila undir erlendum yfirráðum muni verða um 12 milljónir kr. Gert er ráð fyrir því að einhver kostnaður falli til hjá sýslumönnum vegna upplýsingaöflunar úr gögnum í þeirra vörslu.
- úr samantekt Alþingis
Orð og atkvæði
Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.
Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 29. júní 2020: 32 með, 0 á móti, 23 sátu hjá.
Greiddu atkvæði með4 tóku til máls
28 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.
Sátu hjá6 tóku til máls
17 aðrir sátu hjá án þess að taka til máls.
Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna1 tók til máls
Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.
Allt um málið
Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.
Ferill málsins
Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.
- Þingskjal
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta
- Umræða1. umræða1 ræða · 14 mín
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- UmsagnirUmsagnabeiðnir sendar, frestur til 21. maí 20201 beiðni um umsögn
- Þingskjal
- Umræða2. umræða24 ræður · 2 klst. 12 mín
- AtkvæðagreiðslaSamþykkt · 33 með, 0 á móti
- AtkvæðagreiðslaSamþykkt · 32 með, 0 á móti
- AtkvæðagreiðslaSamþykkt · 32 með, 0 á móti
- AtkvæðagreiðslaSamþykkt · 32 með, 0 á móti
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- Þingskjal
- AtkvæðagreiðslaSamþykkt · 31 með, 0 á móti
- Umræða3. umræða1 ræða · 1 mín
- AtkvæðagreiðslaSamþykkt · 32 með, 0 á móti
- Þingskjal
- Þingskjal
Þingskjöl
Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.
| Þskj. | Tegund | Útbýtt | Flutningsmenn | Skjal |
|---|---|---|---|---|
| 1223 | Stjórnarfrumvarp | 2. apr. 2020 | Katrín Jakobsdóttir | LesaPDF |
| 1763 | Nál. með brtt. | 23. jún. 2020 | Páll Magnússon, Bjarkey Gunnarsdóttir +3 | LesaPDF |
| 1933 | Frumvarp eftir 2. umræðu | 17. ágú. 2020 | — | LesaPDF |
| 1936 | Breytingartillaga | 29. jún. 2020 | Bjarkey Gunnarsdóttir | LesaPDF |
| 1957 | Lög í heild | 29. jún. 2020 | — | LesaPDF |
Allar atkvæðagreiðslur
Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.
- yfirlýsing forseta28. apríl 2020 kl. 18:12Afbrigðiog 1265Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- yfirlýsing forseta/mál gengur28. apríl 2020 kl. 18:51Frumvarp gengur til 2. umræðuEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- yfirlýsing forseta/mál gengur→ allsherjar- og menntamálanefnd28. apríl 2020 kl. 18:51Frumvarp gengur til nefndarEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- Samþykkt29. júní 2020 kl. 20:28Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Eignarráð og nýting fasteigna“.1
- SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
- 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
- MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
- FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
- SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
- 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
- VViðreisn:0 með · 0 á móti · 2 sat hjá
- FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti · 1 sat hjá
- UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
- Samþykkt29. júní 2020 kl. 20:29Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Eignarráð og nýting fasteigna“.1. gr., svo breytt,
- SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
- 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
- MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
- FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
- SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
- 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
- VViðreisn:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
- FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 2 sat hjá
- UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
- Samþykkt29. júní 2020 kl. 20:29Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Eignarráð og nýting fasteigna“.2--9
- SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
- 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
- MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
- FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
- SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
- 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
- VViðreisn:0 með · 0 á móti · 2 sat hjá
- FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 2 sat hjá
- UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
- Samþykkt29. júní 2020 kl. 20:29Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Eignarráð og nýting fasteigna“.2.--18. gr. (verða 2.--17. gr.), svo breyttar,
- SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
- 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
- MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
- FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
- SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
- 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
- VViðreisn:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
- FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 2 sat hjá
- UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
- yfirlýsing forseta/mál gengur29. júní 2020 kl. 20:30Frumvarp gengur til 3. umræðuEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- Samþykkt29. júní 2020 kl. 21:40Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Eignarráð og nýting fasteigna“.
- SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
- 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
- MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
- FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
- SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
- 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
- VViðreisn:0 með · 0 á móti · 3 sat hjá
- FlfFlokkur fólksins:0 með · 0 á móti · 2 sat hjá
- UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
- Samþykkt29. júní 2020 kl. 21:41Að samþykkja frumvarpið „Eignarráð og nýting fasteigna“ sem lög., svo breytt,
- SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
- 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
- MMiðflokkurinn:0 með · 0 á móti · 6 sat hjá
- FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
- SfSamfylkingin:0 með · 0 á móti · 7 sat hjá
- 43Þingflokkur 43:0 með · 0 á móti · 5 sat hjá
- VViðreisn:0 með · 0 á móti · 3 sat hjá
- FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti · 1 sat hjá
- UUtan þingflokka:0 með · 0 á móti · 1 sat hjá
Hverjir tóku til máls
- 1. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 14 mín
- 2. umræða: 24 ræður · 10 ræðumenn · 2 klst. 12 mín
- 3. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 1 mín
| Þingmaður | Flokkur | Ræður | Ræðutími |
|---|---|---|---|
| Framsóknarflokkur | 3 | 24 mín | |
| Flokkur fólksins | 2 | 3 mín | |
| Miðflokkurinn | 1 | 14 mín | |
| Miðflokkurinn | 2 | 3 mín | |
| Miðflokkurinn | 1 | 3 mín | |
| Sjálfstæðisflokkur | 3 | 12 mín | |
| Samfylkingin | 3 | 19 mín | |
| Viðreisn | 5 | 21 mín | |
| Viðreisn | 1 | 10 mín | |
| Utan þingflokka | 3 | 24 mín | |
| Utan þingflokka | 2 | 15 mín |
Umsagnir og erindi
Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.
Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 30. apr. 2020, frestur 21. maí 2020.
| Hver sendi | Tegund | Barst | Skjal |
|---|---|---|---|
| Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið | minnisblað | Opna PDF | |
| Forsætisráðuneytið | athugasemd | Opna PDF | |
| Samband íslenskra sveitarfélaga | umsögn | Opna PDF | |
| Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands | umsögn | Opna PDF | |
| Arion banki | umsögn | Opna PDF | |
| Samtök fjármálafyrirtækja | umsögn | Opna PDF | |
| Ögmundur Jónasson | umsögn | Opna PDF | |
| Eleven Experience á Íslandi | umsögn | Opna PDF | |
| Þjóðskrá Íslands | umsögn | Opna PDF | |
| Landssamtök landeigenda á Íslandi | umsókn | Opna PDF | |
| Veiðiklúbburinn Strengur | umsögn | Opna PDF | |
| Bændasamtök Íslands | umsögn | Opna PDF | |
| Ríkisskattstjóri | umsögn | Opna PDF | |
| Sýslumannafélag Íslands | umsögn | Opna PDF | |
| Sveitarstjórn Fljótsdalshrepps | umsögn | Opna PDF | |
| Samtök ferðaþjónustunnar | umsögn | Opna PDF | |
| LEX lögmannsstofa | athugasemd | Opna PDF | |
| Kristján Úlfsson | umsögn | Opna PDF | |
| Byggðastofnun | umsögn | Opna PDF | |
| Landssamband veiðifélaga | umsögn | Opna PDF | |
| Fljótsdalshérað | umsögn | Opna PDF | |
| Héraðssaksóknari | umsögn | Opna PDF |
Tengd mál
Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)