Beint í efni
Alviti
Þingmál150. þing · 707. mál

Nýr aðgerðapakki ríkisstjórnarinnar

Óundirbúinn fyrirspurnatímiStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að stuðla að sátt og jafnari stöðu foreldra sem fara sameiginlega með forsjá barns og ákveða að ala það upp á tveimur heimilum.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Óundirbúinn fyrirspurnatími
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
4 ræður · 7 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 7. sep. 2020

Markmiðið

Að stuðla að sátt og jafnari stöðu foreldra sem fara sameiginlega með forsjá barns og ákveða að ala það upp á tveimur heimilum.

Hvað breytist

Lagt er til að lögfesta ákvæði um heimild foreldra sem ekki búa saman en fara sameiginlega með forsjá barns til að semja um skipta búsetu barns við tilteknar aðstæður. Einnig er lagt til að lögin beri með sér að forsenda þess að foreldrar semji um sameiginlega forsjá verði sú að foreldrar geti unnið saman á fullnægjandi hátt og haft samráð um málefni barns. Þá er lagt til það nýmæli að barn geti haft frumkvæði að því að sýslumaður boði foreldra til samtals til að ræða fyrirkomulag forsjár, lögheimilis, búsetu og umgengni. Að auki er gert ráð fyrir breytingu á ákvæðum um framfærslu og meðlag með áherslu á aukið samningsfrelsi foreldra.

Lög sem breytast

Barnalög, nr. 76/2003. Barnaverndarlög, nr. 80/2002. Lög um félagslega aðstoð, nr. 99/2007. Hjúskaparlög, nr. 31/1993. Lög um húsnæðisbætur, nr. 75/2016. Lög um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018. Lög um skráningu einstaklinga, nr. 140/2019. Lög um tekjuskatt, nr. 90/2003. Lög um útlendinga, nr. 80/2016. Lög um viðurkenningu og fullnustu erlendra ákvarðana um forsjá barna, afhendingu brottnuminna barna o.fl., nr. 160/1995.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir því að árlegur heildarkostnaður ríkissjóðs vegna innleiðingar frumvarpsins verði 4,5 milljónir kr. á árinu 2021 og 6 milljónir kr. frá og með árinu 2022 auk tímabundins kostnaðar að upphæð 1 milljón kr. árið 2020.

Meira úr samantektinni

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk

Bekendtgørelse af forældreansvarsloven LBK nr 776 af 07/08/2019.

Bekendtgørelse af lov om børns forsørgelse LBK nr 773 af 07/08/2019.

Finnland

Lag angående vårdnad om barn och umgängesrätt 8.4.1983/361.

Lag om underhåll för barn 5.9.1975/704.

Noregur

Lov om barn og foreldre (barnelova) LOV-1981-04-08-7.

Svíþjóð

Föräldrabalk (1949:381).

Socialförsäkringsbalk (2010:110).

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Páll Magnússon

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 26. maí 2020
Sendu inn umsögn eða erindi
19 aðilar
Mosfellsbær, Félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands, Barnaheill, Þjóðskrá Íslands, Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
7 mín · 4 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir því að árlegur heildarkostnaður ríkissjóðs vegna innleiðingar frumvarpsins verði 4,5 milljónir kr. á árinu 2021 og 6 milljónir kr. frá og með árinu 2022 auk tímabundins kostnaðar að upphæð 1 milljón kr. árið 2020.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-30/2018· Áform um lagasetningu· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. mar. 2018 – 6. apr. 2018· 3 umsagnir

Breytingar á barnalögum

Hér er um að ræða áform um breytingar á barnalögum nr. 76/2003 sem snúa að því að lögfesta ákvæði um heimild foreldra til þess að semja um skipta búsetu barns auk þess að endurskoða ákvæði barnalaga varðandi framfærslu barns og meðlag. Í tengslum við þessa breytingu á barnalögunum eru tilheyrandi breytingar á ýmsum öðrum lögum.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-30/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 6. apríl 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (5. september 2018)

Dómsmálaráðuneytinu bárust 3 umsagnir vegna fyrirhugaðra breytinga á barnalögum. Ein umsögn barst frá Þjóðskrá Íslands, ein frá Hagsmunasamtökum heimilanna og ein frá Félagi um foreldrajafnrétti. Í umsögnunum var m.a. fagnað áformum um fyrirhugaðar breytingar á barnalögum og bent á að í ljósi breyttra búsetuhátta og samfélagslegra aðstæðna væri við hæfi að taka það upp sem meginreglu að bæði skyldur og réttindi vegna barna skiptist jafnt milli beggja foreldra, óháð því hvernig sambandi þeirra og búsetu væri háttað að öðru leyti, nema í undantekningartilvikum þar sem annað fyrirkomulag þætti nauðsynlegt og réttlætanlegt. Þá kom fram rannsóknir á líðan barna gefi sterka vísbendingu um að það sé börnum fyrir bestu að vera sem mest með báðum foreldrum. Ef foreldrar búa ekki saman að börn séu þá til jafns á báðum heimilum. Einnig kom fram sú tillaga að jafnt búsetuform yrði meginregla hjá foreldrum sem ekki búa saman, en búa þó í sama eða nærliggjandi skólahverfi og einnig að dómari hefði heimild til að dæma jafnt búsetuform. Kom m.a. fram frá Þjóðskrá Íslands að mikilvægt yrði að haft yrði samráð við stofnunina við gerð frumvarpsins vegna breytinga sem þarf að gera á lögum sem heyra undir stofnunina og þeirra breytinga sem gera þarf á þjóðskrá. Ráðuneytið mun við samningu frumvarpsins hafa til hliðsjónar þær ábendingar og tillögur sem bárust. Bent er á að þegar drög að frumvarpi liggja fyrir verður einnig hægt að veita umsögn um þær tillögur sem lagðar eru fram.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-53/2019· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. feb. 2019 – 4. mar. 2019· 18 umsagnir

Drög að frumvarpi til breytinga á barnalögum nr. 76/2003 og fleiri lögum (skipt búseta og meðlag)

Dómsmálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til breytinga á barnalögum nr. 76/2003 auk breytinga á ýmsum lögum (skipt búseta og meðlag).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-53/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 4. mars 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 18 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (20. nóvember 2020)

Alls bárust 18 umsagnir. Þá bárust ráðuneytinu auk þess 2 aðrar umsagnir. Í umsögnum var bæði tekið undir tillögur frumvarpsins og komið á framfæri ýmsum athugasemdum. Athugasemdum og viðbrögðum við athugasemdum er nánar lýst í samráðskafla frumvarpsins, en frumvarpið hefur nú verið lagt fram á Alþingi.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (18)
  • #1Hugi Freyr Valsson
    Bæta við ákvæði ef annar aðillinn neitar umgengni að meðlagsgreiðslur geti fallið niður, í þeim tilfellum er reynt og sýnt er fram á brot á umgengni. Eins og þetta er sett fram 4-7 nætur í mánuði minka greiðslu, sem gæti virkað hvetjandi fyrir ráðandi foreldri að neita umgengni. Við mat á meðlagi að tekið verið áfram tillit til þess er foreldrar leggji til með börnunum, t.a.m föt, nám utan skyldu, búnaður og tæki s.s hjól, hljóðfæri, íþróttafatnaður/búnaður og framlag til kostnaðar og almenna þátttöku í þroska barns með hliðsjón af ferðalögum, menningarviðburðum o.fl. Ef umgegnin er… Lesa alla

    Bæta við ákvæði ef annar aðillinn neitar umgengni að meðlagsgreiðslur geti fallið niður, í þeim tilfellum er reynt og sýnt er fram á brot á umgengni. Eins og þetta er sett fram 4-7 nætur í mánuði minka greiðslu, sem gæti virkað hvetjandi fyrir ráðandi foreldri að neita umgengni. Við mat á meðlagi að tekið verið áfram tillit til þess er foreldrar leggji til með börnunum, t.a.m föt, nám utan skyldu, búnaður og tæki s.s hjól, hljóðfæri, íþróttafatnaður/búnaður og framlag til kostnaðar og almenna þátttöku í þroska barns með hliðsjón af ferðalögum, menningarviðburðum o.fl. Ef umgegnin er jöfn að meðlag falli niður og kostnaður skiptist jafnt, þó með viðmið við tekjur úr skattskýrslu. Er jafnvel ekki viðeigandi sem umsögn, en að í grunninn sé forsjáin alltaf sameiginleg, sama hvort um hjúskap eða ekki sé að ræða. Einnig að foreldrar hafi jafnari samningsgrundvöll.

  • #2Sveinlaug Sigurðardóttir

    Löngu tímabær skref í rétta átt.

  • #3Jóhann Már Sigurbjörnsson
    Hér virðist vera komið frumvarp eingöngu ætlað til þess að tekjutengja barnameðlög til útgjaldahækkunnar fyrir umgengnisforeldrið. Slík hækkun mun gera umgengnisforeldri enn erfiðara fyrir að umgangast börn sín og nógu slæmt er það núþegar í mörgum tilvikum, enda margir meðlagsgreiðendur núþegar í miklum fjárhags-, eða greiðsluvanda. Gefnar forsendur í frumvarpi þessu eru fátíðar og meiri líkur en minni að umgengnisforeldri þurfi að greiða hærri barnameðlög , enda regluleg heildarlaun á vinnumarkaði á milli 5-600.000 á mánuði. Sem gefur okkur að meðlögin hækka að meðaltali um 12þ krónur… Lesa alla

    Hér virðist vera komið frumvarp eingöngu ætlað til þess að tekjutengja barnameðlög til útgjaldahækkunnar fyrir umgengnisforeldrið. Slík hækkun mun gera umgengnisforeldri enn erfiðara fyrir að umgangast börn sín og nógu slæmt er það núþegar í mörgum tilvikum, enda margir meðlagsgreiðendur núþegar í miklum fjárhags-, eða greiðsluvanda. Gefnar forsendur í frumvarpi þessu eru fátíðar og meiri líkur en minni að umgengnisforeldri þurfi að greiða hærri barnameðlög , enda regluleg heildarlaun á vinnumarkaði á milli 5-600.000 á mánuði. Sem gefur okkur að meðlögin hækka að meðaltali um 12þ krónur á mánuði. Það er að segja að þá er ólíklegt, miðað við þann húsnæðisskort og húsnæðisvanda sem sveitarfélög standa frammi fyrir, að foreldrar geti búið í sama hverfi (nálægð) og það er heldur ekki gert ráð fyrir þeim málum sem næst ekki sátt um umgengni (þau eru mörg). Tekjutenging er alltaf letjandi fyrir alla aðila hvort sem hún er notuð til þess að láta viðkomandi greiða og eða fá til baka , eins og t.d. barnabætur osfrv. Það væri hentugra að hafa fasta upphæð óháð tekjum sem dreifist á milli aðila eftir umgengi. Alls ekki að letja kerfið, þar sem hvatar yrðu þá meiri til að meðlagsgreiðandi vinni á svörtu og eða eitthvað verra (s.b. fyrrverandi fangar sem leiðast oftar en ekki aftur út í ólöglegra starfssemi). - Ekki er gert ráð fyrir að umgengnisforeldri njóti húsaleigu-, barna- eða vaxtabóta til jafns á við forsjárforeldrið. Þörfin sé mikil á þeim stuðningi af hálfu ríkis og sveitarfélaga sé ætlunin að umgengnisforeldrið haldi búsetu í nálægð við lögheimilsforeldri. Þá er ekki gert ráð fyrir að framfærslustofn á LÍN lánum hækki miðað við þetta og eða að LÍN dragi frá tekjur vegna framfærslu barna þegar til endurgreiðslu lána kemur. - Ekki er gert ráð fyrir að umgengisforeldrið njóti skattaafsláttar vegna meðlagsgreiðslna, enda fá sambærilegur hópur á hinum Norðurlöndunum c.a. 200.000 krónur í skattaafslátt á hverju ári. - Ekki er gert ráð fyrir að meðlög falli niður ef forsjáraðili tálmi umgengni - Umgengnin hefur of lítið vægi til lækkunar á meðlagi, enda kosti meira en 7.500 krónur að umgangast barn eða börn í 7 daga á mánuði. - Þá er ekkert fjallað um innheimtu á meðlagi, sem er ómannúðleg og líklega ólögleg að því er virðist enda virðist innheimtuaðili ekki þurfa að fylgja stjórnsýslulögum (s.b. innheimtuaðferðir hjá innheimtustofnun Sveitarfélaga). Gæti tínt meira til í þessari umfjöllun, enda eru meðlagsgreiðeindur faldi fátæki hópurinn í landinu og umrætt frumvarp að óbreyttu, mun líklegra til að auka á núþegar mikinn vanda á andlegri heilsu barna enda hafi það ekki greiðan aðgang að lífforeldri sínu til þess að umgangast og eða búa tímabundið hjá því vegna fjárhagserfiðleika lífforeldris til að framfæra barnið í sinni umgengni.

  • #4Særún Gréta Hermannsdóttir
    Hvað ef lögheimilisforeldri er með hærri tekjur en 300þ? Munu umgengnisforeldrar á vanskilaskrá fá tækifæri til að koma undir sig fótunum eða mun sama framganga af hálfu Innheimtustofnun og peningaplokk halda áfram? Ekki finnst mér þetta sanngjarnt fyrir umgengnisforeldra sem vilja taka þátt í lífi barna sinna og vera með í ákvörðunum. Vegna þess að það vantar inn ákvæði um afleiðingar tálmana þá virðist lögheimilisforeldri græða á því að tálma. Þá getur það foreldri tekið allar ákvarðanir um hvernig skal ala upp barnið án þess að láta hitt foreldrið vita eða hafa það viðráðið læknis-, sk… Lesa alla

    Hvað ef lögheimilisforeldri er með hærri tekjur en 300þ? Munu umgengnisforeldrar á vanskilaskrá fá tækifæri til að koma undir sig fótunum eða mun sama framganga af hálfu Innheimtustofnun og peningaplokk halda áfram? Ekki finnst mér þetta sanngjarnt fyrir umgengnisforeldra sem vilja taka þátt í lífi barna sinna og vera með í ákvörðunum. Vegna þess að það vantar inn ákvæði um afleiðingar tálmana þá virðist lögheimilisforeldri græða á því að tálma. Þá getur það foreldri tekið allar ákvarðanir um hvernig skal ala upp barnið án þess að láta hitt foreldrið vita eða hafa það viðráðið læknis-, skólatímum eða öðru og í þokkabót myndi umgengnisforeldri bera meginn fjárhagslegan þunga af því. T.d. ef lögheimilisforeldri flyst í burtu og tálmar svo. Þá hefur það í för með sér minni umgengni en áður vegna fjarlægðar (án tálmunar) en er alfarið ákvörðun lögheimilisforeldris. Umgengnisforeldri hefur ekkert atkvæði og ekki heldur barn undir 12, þó báðir aðilar myndu mótmæla. Þarna er lögheimilisforeldri að græða á því að flytja og tálma í ofanálag. Þó ekki væri nema umgengni myndi ósjálfrátt minnka. Ákvæði ætti að vera um meðlag og tálmanir. Hvernig geta meðlagsgreiðslur skilað sér ef lögheimilisforeldri tilkynnir ekki flutninga? Það ætti að vera skylda að tilkynna hvar lögheimilið er og meðlagsgreiðslur ættu að berast frá degi tilkynningar en ekki 2 ár aftur í tímann. Það þarf líka að huga að fjárhagsaðstoð umgengnisforeldra og slíkar aðgerðir koma umgengnisforeldri í vanda. Ósanngjarnt er að gera endalaus lög og ákvæði lögheimilisforeldrum og forsjáraðilum í hag en gleyma og níðast á réttindalausa hópnum sem er á jafnvel á vanskilaskrá, að berjast við andlega vanlíðan eða jafnvel sjálfsvígshugsanir vegna tálmana á börnum sínum! Hvenær fær þessi hópur viðurkenningu og áheyrn?

  • #5Ása Ásmundardóttir

    Hvað með meðlagsgreiðslur með börnum sem eiga eitt foreldri á lífi? Munu foreldrar í þeirri stöðu áfram fá einfalt meðlag með sínu barni? Og tvöfalda vinnu við uppeldi á barninu því það er enginn til að deila ábyrgðinni með? Kv. Ása Ásmundardóttir, ekkja með þrjú föðurlaus börn.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umræða
    Umræða
    4 ræður · 7 mín
  2. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 26. maí 2020
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

4 ræður · 7 mín
  • Umræða: 4 ræður · 2 ræðumenn · 7 mín

Umsagnir og erindi

20 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 6. maí 2020, frestur 26. maí 2020.

Hver sendiTegundBarstSkjal
MosfellsbærumsögnOpna PDF
Félagsráðgjafadeild Háskóla ÍslandsupplýsingarOpna PDF
Félagsráðgjafadeild Háskóla ÍslandsumsögnOpna PDF
BarnaheillumsögnOpna PDF
Þjóðskrá ÍslandsumsögnOpna PDF
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinuumsögnOpna PDF
Sýslumannafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Félagsráðgjafafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
JafnréttisstofaumsögnOpna PDF
SkatturinnumsögnOpna PDF
Umboðsmaður barnaumsögnOpna PDF
Tryggingastofnun ríkisinsumsögnOpna PDF
Lúðvík JúlíussonumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
Bæjarráð FljótsdalshéraðsumsögnOpna PDF
Landssamtökin ÞroskahjálpumsögnOpna PDF
Lögmenn NorðurlandiumsögnOpna PDF
Mannréttindaskrifstofa ÍslandsumsögnOpna PDF
Sveitarfélagið SkagafjörðurumsögnOpna PDF
BarnaverndarstofaumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið, líka beint úr klippiborðinu.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.