Breytingar á barnalögum
Hér er um að ræða áform um breytingar á barnalögum nr. 76/2003 sem snúa að því að lögfesta ákvæði um heimild foreldra til þess að semja um skipta búsetu barns auk þess að endurskoða ákvæði barnalaga varðandi framfærslu barns og meðlag. Í tengslum við þessa breytingu á barnalögunum eru tilheyrandi breytingar á ýmsum öðrum lögum.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-30/2018)
- Umsagnarfrestur hefst · til 6. apríl 2018
- Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (5. september 2018)
Dómsmálaráðuneytinu bárust 3 umsagnir vegna fyrirhugaðra breytinga á barnalögum. Ein umsögn barst frá Þjóðskrá Íslands, ein frá Hagsmunasamtökum heimilanna og ein frá Félagi um foreldrajafnrétti. Í umsögnunum var m.a. fagnað áformum um fyrirhugaðar breytingar á barnalögum og bent á að í ljósi breyttra búsetuhátta og samfélagslegra aðstæðna væri við hæfi að taka það upp sem meginreglu að bæði skyldur og réttindi vegna barna skiptist jafnt milli beggja foreldra, óháð því hvernig sambandi þeirra og búsetu væri háttað að öðru leyti, nema í undantekningartilvikum þar sem annað fyrirkomulag þætti nauðsynlegt og réttlætanlegt. Þá kom fram rannsóknir á líðan barna gefi sterka vísbendingu um að það sé börnum fyrir bestu að vera sem mest með báðum foreldrum. Ef foreldrar búa ekki saman að börn séu þá til jafns á báðum heimilum. Einnig kom fram sú tillaga að jafnt búsetuform yrði meginregla hjá foreldrum sem ekki búa saman, en búa þó í sama eða nærliggjandi skólahverfi og einnig að dómari hefði heimild til að dæma jafnt búsetuform. Kom m.a. fram frá Þjóðskrá Íslands að mikilvægt yrði að haft yrði samráð við stofnunina við gerð frumvarpsins vegna breytinga sem þarf að gera á lögum sem heyra undir stofnunina og þeirra breytinga sem gera þarf á þjóðskrá. Ráðuneytið mun við samningu frumvarpsins hafa til hliðsjónar þær ábendingar og tillögur sem bárust. Bent er á að þegar drög að frumvarpi liggja fyrir verður einnig hægt að veita umsögn um þær tillögur sem lagðar eru fram.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
- #1Þjóðskrá Íslands
Meðfylgjandi er umsögn Þjóðskrár Íslands vegna breytinga á barnalögum.
- #2Hagsmunasamtök heimilanna
Sjá viðhengi.
- #3Heimir Hilmarsson
Umsögn Félags um foreldrajafnrétti í viðhengi.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.