Beint í efni
Alviti
Þingmál150. þing · 607. mál

Frumvörp um atvinnuleysisbætur

Óundirbúinn fyrirspurnatímiStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að ljúka við innleiðingu fasteignalánatilskipunar ESB. Að gera neytendum kleift að taka annars vegar fasteignalán til kaupa á fasteign hér á landi og hins vegar neytendalán þó svo að tekjur þeirra séu í öðrum gjaldmiðli en íslenskri krónu.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Óundirbúinn fyrirspurnatími
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
3 ræður · 6 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 10. jún. 2020

Markmiðið

Að ljúka við innleiðingu fasteignalánatilskipunar ESB. Að gera neytendum kleift að taka annars vegar fasteignalán til kaupa á fasteign hér á landi og hins vegar neytendalán þó svo að tekjur þeirra séu í öðrum gjaldmiðli en íslenskri krónu.

Hvað breytist

Breytingar sem lagðar eru til á bæði fasteignalánalögum og neytendalánalögum: Lagt er til að réttur neytanda til að breyta eftirstöðvum láns, sem tengist erlendum gjaldmiðlum, í lán, sem tengist ekki erlendum gjaldmiðlum, eigi ekki við þegar lánsfjárhæð og veð, sem sett er til tryggingar láninu, t.d. í íbúðarhúsnæði, eru bæði í sama gjaldmiðli, s.s. íslenskum krónum. Lagt er til að lánveitanda verði heimilt í samningi að takmarka breytirétt neytanda við einn eða fleiri gjaldmiðla í þeim tilvikum sem fleiri en einn kemur til greina m.t.t. aðstæðna neytanda við lántöku.

Breytingar sem lagðar eru til á fasteignalánalögum: Lagt er til að lánveitanda verði aðeins skylt að veita neytanda einu sinni á ári, í stað tvisvar líkt og nú er, upplýsingar um gengisbreytingar fasteignaláns, sem tengist erlendum gjaldmiðlum. Lagt er til að skerpt verði á kröfu um aðvörunarskyldu lánveitanda þegar eftirstöðvar láns eða reglulegar endurgreiðslur breytast um meira en 20% miðað við gengi á þeim tíma sem samningur um fasteignalán var gerður. Þar að auki er gert ráð fyrir að veita skuli upplýsingar um breytingu á heildarfjárhæð, sem neytandi skal greiða, og áætlaða fjárhæð næstu reglulegu endurgreiðslu í stað þess að veita upplýsingar um breytingu heildarfjárhæðar, sem neytandi skal greiða, og reglulegra endurgreiðslna, sem getur verið erfitt í framkvæmd. Lagt er til að Neytendastofu, að höfðu samráði við Fjármálaeftirlitið, verði heimilt að setja frekari reglur um upplýsinga- og aðvörunarskyldu lánveitanda vegna gengisbreytinga.

Breytingar sem lagðar eru til á neytendalánalögum: Lagt er til að almennar viðmiðunarfjárhæðir greiðslumats, tvær milljónir fyrir einstaklinga og fjórar milljónir fyrir hjón og sambúðarfólk, eigi einnig við um lán, sem tengjast erlendum gjaldmiðlum, í stað þess að í öllum tilvikum verði að framkvæma greiðslumat vegna slíkra lána. Lagt er til að heimilt verði að veita lán tengt erlendum gjaldmiðlum þrátt fyrir neikvæða niðurstöðu greiðslumats að uppfylltum þeim skilyrðum sem eiga almennt við um lánveitingar þrátt fyrir neikvætt greiðslumat, þ.e. að frekari upplýsingar frá neytanda sýni fram á að líklegt sé að neytandi geti staðið í skilum með lánið.

Lög sem breytast

Lög um fasteignalán til neytenda, nr. 118/2016. Lög um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði, nr. 24/2017. Lög um neytendalán, nr. 33/2013.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/17/ESB frá 4. febrúar 2014 um lánssamninga fyrir neytendur í tengslum við íbúðarhúsnæði og um breytingu á tilskipun 2008/48/EB og 2013/36/ESB og reglugerð (ESB) nr. 1093/2010.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Bryndís Haraldsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Efnahags- og viðskiptanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 22. mar. 2020
Sendu inn umsögn eða erindi
1 aðili
Neytendastofa · allar umsagnir
Umræða í þingsal
6 mín · 3 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-33/2020· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. feb. 2020 – 19. feb. 2020· 2 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fasteignalán til neytenda, nr. 118/2016.

Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fasteignalán til neytenda, nr. 118/2016.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-33/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 19. febrúar 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (16. júní 2021)

Frumvarpið var samþykkt sem lög nr. 62/2020. Í 5. kafla í greinargerð með frumvarpinu er fjallað um umsagnir í samráðsgátt stjórnvalda.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
  • #1Neytendastofa

    Góðan dag, meðfylgjandi er umsögn Neytendastofu um frumvarpið.

  • #2Hagsmunasamtök heimilanna

    Hagsmunasamtök heimilanna leggjast ekki gegn markmiðum frumvarps þessa, en taka þó undir athugasemdir í umsögn Neytendastofu um lagfæringar á tæknilegri útfærslu lagatexta. Vegna þess stutta tíma sem veittur var til umsagna gafst samtökunum ekki svigrúm til að vinna efnislega umsögn um málið en þess er vænst að hægt verði að koma nánari athugasemdum á framfæri á síðari stigum. Athugasemdir í umsögn samtakanna um fyrra mál þessu tengt nr. S-103/2018 eru jafnframt ítrekaðar.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 22. mars 2020
    1 beiðni um umsögn
  2. Umræða
    Umræða
    3 ræður · 6 mín

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

3 ræður · 6 mín
  • Umræða: 3 ræður · 2 ræðumenn · 6 mín

Umsagnir og erindi

2 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 6. mar. 2020, frestur 22. mar. 2020.

Hver sendiTegundBarstSkjal
NeytendastofaminnisblaðOpna PDF
NeytendastofaumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið, líka beint úr klippiborðinu.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.