Beint í efni
Alviti
Þingmál150. þing · 569. mál

Samræmd viðbrögð ríkja við fólksflutningum

Óundirbúinn fyrirspurnatímiStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að stuðla að skýrari og einfaldari skattframkvæmd hvað varðar innheimtu stimpilgjalda.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Óundirbúinn fyrirspurnatími
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
4 ræður · 5 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 10. jún. 2020

Markmiðið

Að stuðla að skýrari og einfaldari skattframkvæmd hvað varðar innheimtu stimpilgjalda.

Hvað breytist

Lagðar eru til breytingar á gjaldstofni stimpilgjalds við álagningu í kjölfar íbúðarkaupa. Gert er ráð fyrir að kveðið verði skýrar á um það þegar gjaldstofn til stimpilgjalds af skjölum er varða eignaryfirfærslu fasteigna, þar sem skráð fasteignamatsverð endurspeglar ekki byggingarstig eignar eins og það verður við afhendingu, skuli miða gjaldstofninn við áætlað matsverð sem tekur mið af byggingarstigi viðkomandi eignar við afhendingu. Lagt er til að kveðið verði með skýrari hætti á um það að skilyrði helmingsafsláttar af stimpilgjaldi vegna kaupa á fyrstu íbúð er að kaupandi íbúðarhúsnæðis hafi ekki áður verið þinglýstur eigandi að íbúðarhúsnæði, hvort sem er með kaupum, arftöku, gjafagerningi eða eignaryfirfærslu með hvers kyns öðrum hætti. Í þessu tilliti skiptir það jafnframt ekki máli hvort kaupandinn hafi hagnýtt sér íbúðarhúsnæðið, sem hann hefur áður verið þinglýstur eigandi að, í eigin þágu eða á nokkurn annan hátt. Enn fremur er lagt til að fellt verði brott ákvæði varðandi skilyrði helmingsafsláttar af stimpilgjaldi vegna kaupa á fyrstu íbúð um að kaupandinn þurfi að verða þinglýstur eigandi að a.m.k. helmingi þeirrar eignar sem keypt er.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir óverulegum áhrifum á afkomu ríkissjóðs.

Meira úr samantektinni

Úrskurður yfirskattanefndar frá 12. júní 2019, nr. 103/2019.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Óli Björn Kárason

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Efnahags- og viðskiptanefnd
sendi 2 umsagnabeiðnir · frestur 23. mar. 2020
Sendu inn umsögn eða erindi
2 aðilar
Samtök skattgreiðenda, Hagsmunasamtök heimilanna · allar umsagnir
Umræða í þingsal
5 mín · 4 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir óverulegum áhrifum á afkomu ríkissjóðs.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-311/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. des. 2019 – 31. des. 2019· 1 umsögn

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stimpilgjald, nr. 138/2013 (gjaldstofn og skilyrði helmings afsláttar af stimpilgjaldi)

Áformaðar breytingar á lögum um stimpilgjald sem fela í sér breytingar til skýringarauka á annars vegar einstaka ákvæðum laganna um gjaldstofn og hins vegar skilyrðum varðandi helmings afslátt vegna fyrstu íbúðarkaupa.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-311/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 31. desember 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (30. janúar 2020)

Umsögnin gaf ekki sérstak tilefni til sérstakra viðbragða af hálfu ráðuneytisins. Ráðuneytið telur að frekari viðbrögð hefðu leitt til þess að lagaákvæði í lögum um stimpilgjald hefðu orðið óskýrari og ógagnsærri.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-7/2020· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. jan. 2020 – 20. jan. 2020· 2 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um stimpilgjald, nr. 138/2013, með síðari breytingum (gjaldstofn og skilyrði helmingsafsláttar)

Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um stimpilgjald, nr. 138/2013, varðandi gjaldstofn stimpilgjalds og skilyrði helmingsafsláttar af stimpilgjaldi.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-7/2020)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 20. janúar 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (30. janúar 2020)

Umsagnirnar gáfu ekki tilefni til sérstakra viðbragða af hálfu ráðuneytisins. Ráðuneytið telur að frekari viðbrögð hefðu leitt til þess að lagaákvæði í lögum um stimpilgjald hefðu orðið óskýrari og ógagnsærri.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
  • #1Jón Sigurðsson
    Vegna fyrirhugaðrar breytingar á lögum nr. 138/2013 óska ég að gera eftirfarandi athugasemd við a-lið 2. gr. frumvarpsins (breyting á a-lið 4. mgr. 5. grein laganna): Árið 1986 missti ég eiginkonum mína, en við áttum saman þrjú börn, 9 ára, 7 ára og 9 mánaða. Við frágagn dánarbús hennar tók ég ákvörðun um að það sem kom í hlut barnanna okkar skyldi þinglýst í íbúðarhúsi okkar því þar væri það varanlega tryggt. Þannig fékk hvert barnanna 6% eignarhlut í eign okkar, samtals 18%. Að núvirði væri hlutur hvers sennilega um 4 millj. króna. Eignarhluta sína fengu þau greidda út þegar þau keyptu sín… Lesa alla

    Vegna fyrirhugaðrar breytingar á lögum nr. 138/2013 óska ég að gera eftirfarandi athugasemd við a-lið 2. gr. frumvarpsins (breyting á a-lið 4. mgr. 5. grein laganna): Árið 1986 missti ég eiginkonum mína, en við áttum saman þrjú börn, 9 ára, 7 ára og 9 mánaða. Við frágagn dánarbús hennar tók ég ákvörðun um að það sem kom í hlut barnanna okkar skyldi þinglýst í íbúðarhúsi okkar því þar væri það varanlega tryggt. Þannig fékk hvert barnanna 6% eignarhlut í eign okkar, samtals 18%. Að núvirði væri hlutur hvers sennilega um 4 millj. króna. Eignarhluta sína fengu þau greidda út þegar þau keyptu sína fyrstu fasteign. Mér þætti það skjóta skökku við ef einstaklingar í sömu stöðu og börnin mín voru nytu ekki afsláttar stimpilgjalda við kaup á sinni fyrstu eign líkt og aðrir.

  • #2Hagsmunasamtök heimilanna

    Sjá viðhengi.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 23. mars 2020
    2 beiðnir um umsögn
  2. Umræða
    Umræða
    4 ræður · 5 mín

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

4 ræður · 5 mín
  • Umræða: 4 ræður · 2 ræðumenn · 5 mín

Umsagnir og erindi

2 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 2 umsagnabeiðnir 2. mar. 2020, frestur 23. mar. 2020.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Samtök skattgreiðendaumsögnOpna PDF
Hagsmunasamtök heimilannaumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið, líka beint úr klippiborðinu.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.