Beint í efni
Alviti
Þingmál150. þing · 421. mál

Leigubifreiðaakstur

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 4. des. 2019

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 150. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að tryggja gott aðgengi að hagkvæmri, skilvirkri og öruggri leigubifreiðaþjónustu fyrir neytendur á Íslandi sem og að auka frelsi á leigubifreiðamarkaðnum.

Lagt fram af Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (F), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
28. nóvember 2019
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
14 ræður · 1 klst. 1 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 7. sep. 2020

Markmiðið

Að tryggja gott aðgengi að hagkvæmri, skilvirkri og öruggri leigubifreiðaþjónustu fyrir neytendur á Íslandi sem og að auka frelsi á leigubifreiðamarkaðnum.

Hvað breytist

Lagt er til að fallið verði frá takmörkunum á fjölda leigubifreiðaleyfa á ákveðnum svæðum (takmörkunarsvæðum) en slíkar fjöldatakmarkanir hafa leitt til ýmissa kvaða á leyfishafa um nýtingu leyfis. Þannig er gert ráð fyrir að öll ákvæði sem snúa að lágmarksnýtingu atvinnuleyfis, s.s. skilyrðið um að um sé að ræða aðalatvinnu leyfishafa, um veitingu undanþágu vegna veikinda, orlofs, um tímabundna innlögn leyfa, notkun forfallabílstjóra o.s.frv., verði óþörf. Þá er gert ráð fyrir að leyfishöfum beri ekki lengur skylda til að hafa afgreiðslu á leigubifreiðastöð. Gert er ráð fyrir að hægt verði að fá undanþágu frá skyldu til að vera með gjaldmæli þegar þjónusta er seld gegn fyrirfram umsömdu föstu gjaldi. Þannig skapast t.d. möguleiki til að útfæra lausnir sem falla að þjónustu sem farveitur bjóða upp á. Einnig er gert ráð fyrir að gefnar verði út tvær nýjar tegundir af leyfum til leigubifreiðastjóra: 1) Leyfi til að starfa sem leigubifreiðastjóri (atvinnuleyfi) en með þessu fyrirkomulagi er gert ráð fyrir að rekstrarleyfishafi taki á sig þær skyldur sem hvíla í dag á leigubifreiðastöðvum og 2) leyfi til að reka leigubifreið auk þess að starfa sem leigubifreiðastjóri (rekstrarleyfi). Enn fremur eru lagðar til þær breytingar á aldursskilyrði leyfis til leigubifreiðaaksturs að umsækjandi þurfi að hafa náð a.m.k. 21 árs aldri og hafa haft almenn ökuréttindi fyrir fólksbifreið í B-flokki í minnst þrjú ár. Ekki er lagt til að kveðið verði á um hámarksaldur heldur gert ráð fyrir að sá sem uppfyllir skilyrði um aukin ökuréttindi til farþegaflutninga verði að teljast hæfur til að stunda leigubifreiðaakstur.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög og við gildistöku laganna falla úr gildi lög um leigubifreiðar, nr. 134/2001.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir neinum áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Skýrsla starfshóps um heildarendurskoðun á íslensku regluverki um leigubifreiðar. Mars 2018.

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk

Taxilov (Taxiloven) LOV nr 1538 af 19/12/2017.

Finnland

Lag om transportservice 24.5.2017/320.

Noregur

Lov om yrkestransport med motorvogn og fartøy (yrkestransportlova) LOV-2002-06-21-45.

Svíþjóð

Taxitrafiklag (2012:211).

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Jón Gunnarsson

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Umhverfis- og samgöngunefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 10. jan. 2020
Sendu inn umsögn eða erindi
17 aðilar
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, Persónuvernd, Bandalag íslenskra leigubifreiðastjóra, Bandalag íslenskra leigubifreiðastjóra og Bifreiðastjórafélagið Frami, Samkeppniseftirlitið o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
1 klst. 1 mín · 14 ræður
5 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir neinum áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-76/2018· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. jún. 2018 – 19. júl. 2018· 8 umsagnir

Áform um lagasetningu - Frumvarp til laga um leigubifreiðar

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur með hliðsjón af tillögum starfshóps ráðuneytisins um endurskoðun regluverks um leigubifreiðar, tekið ákvörðun um að í ráðuneytinu skuli hefja undirbúning að frumvarpi til nýrra laga um leigubifreiðar með það að markmiði að leggja það fram á haustþingi Alþingis 2019.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-76/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 19. júlí 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 8 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (17. maí 2019)

Frumvarp til laga um leigubifreiðar birt í samráðsgátt 17. maí 2019 í samræmi við efni áforma.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (8)
  • #1Guðjón Ólafur Sigurbjartsson

    Gott er að sjá að hugmyndin er að opna leigubílamarkaðinn væntanlega neytendum í hag. Horfa þarf til hagsmuna neytenda, það er almennings í þessu sambandi. Gæta þarf þess að mögulegt verði að nýta tæknilegar lausnir í anda deilihagkerfisins, samanber lausnina sem fyrirtækið Uber stendur fyrir. Hagkvæmari leigubílar þýða að færri þurfa að eiga og reka eigin bíl og lækkar kostnað við ferðir og samgöngukerfið með betri nýtingu. Guðjón Sigurbjartsson, viðskiptafræðingur og áhugamaður um almannahag og neytendamál :)

  • #2Samkeppniseftirlitið

    Umsögn Samkeppniseftirlitsins - Frumvarp til laga um leigubifreiðar - áform um lagasetningu. Sjá meðfylgjandi viðhengi.

  • #3Neytendastofa

    Umsögn Neytendastofu - Frumvarp til laga um leigubifreiðar - Áform um lagasetningu, sjá umsögn í meðfylgjandi viðhengi.

  • #4Viðskiptaráð Íslands

    Umsögn Viðskiptaráðs Íslands - Frumvarp til laga um leigubifreiðar - áform um lagasetningu. Sjá umsögn í meðfylgjandi viðhengi.

  • #5A-stöðin ehf

    Frumvarp til laga um leigubifreiðar - áform um lagasetningu. Sjá meðfylgjandi viðhengi.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-132/2019· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. maí 2019 – 20. jún. 2019· 14 umsagnir

Frumvarp til nýrra laga um leigubifreiðar

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til nýrra laga um leigubifreiðar. Markmiðið með frumvarpinu er að auka frelsi á leigubifreiðamarkaðnum og tryggja örugga og góða þjónustu.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-132/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 20. júní 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 14 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (29. júlí 2019)

Farið hefur verið yfir allar fram komnar umsagnir og brugðist við þeim með viðeigandi hætti. Breytingar voru gerðar á frumvarpinu í kjölfar umsagna. Meðfylgjandi er tafla með athugasemdum og viðbrögðum við þeim. Drögin verða sett aftur í samráð og mun þá fylgja skjal þar sem breytingar koma fram í breytingaham.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (14)
  • #1Guðjón Ólafur Sigurbjartsson
    Mig langar að nota tækifærið og fagna þessu frumvarpi. Með samþykkt þess virðist það verðuga markmið nást að opna leigubílamarkaðinn á nútíma vísu okkur neytendum í hag. Framfarir í tölvu- og fjarskiptatækni og deilihagkerfið sem hefur þróast síðustu ár, er gríðarlega jákvæð þróun á marga vegu og gott að sjá að við hér á landi og þeir sem heimsækja okkur munum brátt fá að njóta ávaxanna hér, hvað samgöngur varðar. Meðal þess jákvæða er að nýting bíla vex og samgöngukerfisins batnar, verð ferða lækkar og færri munu telja sig þurfa að eiga bíl. Þetta frumvarp og tilurð þess sýnir hversu g… Lesa alla

    Mig langar að nota tækifærið og fagna þessu frumvarpi. Með samþykkt þess virðist það verðuga markmið nást að opna leigubílamarkaðinn á nútíma vísu okkur neytendum í hag. Framfarir í tölvu- og fjarskiptatækni og deilihagkerfið sem hefur þróast síðustu ár, er gríðarlega jákvæð þróun á marga vegu og gott að sjá að við hér á landi og þeir sem heimsækja okkur munum brátt fá að njóta ávaxanna hér, hvað samgöngur varðar. Meðal þess jákvæða er að nýting bíla vex og samgöngukerfisins batnar, verð ferða lækkar og færri munu telja sig þurfa að eiga bíl. Þetta frumvarp og tilurð þess sýnir hversu gríðarlega mikilvægt það er fámennri þjóð að vera í öflugu sambandi þjóða Evrópusambandsins innan EES. Eins og rakið er hér í inngangi þá er tilurð þess takin til athugunar Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) á leigubifreiðamarkaðnum á Íslandi og mögulegum hindrunum á aðgengi að honum. Þetta sýnir að því meir og betur sem við tengjumst Evrópusamvinnunni því betra. Vona að frumvarpið verði að lögum sem fyrst, Guðjón Sigurbjartsson, viðskiptafræðingur og áhugamaður um hag neytenda :)

  • #2Blindrafélagið
    Umsögn Blindrafélagsins um frumvarp til laga um leigubifreiðar. Ferðaþjónusta Blindrafélagsins. Allt frá 1997 hefur Blindrafélagið verið með samning við Reykjavíkurborg annarsvegar og Hreyfil hins vegar um ferðaþjónustu við lögblinda Reykvíkinga. Á þeim 22 árum sem liðin eru frá því að þetta samstarf hófs hefur orðið til mikil reynsla og þekking á því hvernig þetta úrræði hefur reynst saman borð við önnur úrræði í ferðaþjónustu við fatlað fólk, auk þess sem verkferlar og skráning hefur þróast mikið á þessum árum. Það sem að einkennir ferðaþjónusta Blindrafélagsins er að það er þjónustuúrræ… Lesa alla

    Umsögn Blindrafélagsins um frumvarp til laga um leigubifreiðar. Ferðaþjónusta Blindrafélagsins. Allt frá 1997 hefur Blindrafélagið verið með samning við Reykjavíkurborg annarsvegar og Hreyfil hins vegar um ferðaþjónustu við lögblinda Reykvíkinga. Á þeim 22 árum sem liðin eru frá því að þetta samstarf hófs hefur orðið til mikil reynsla og þekking á því hvernig þetta úrræði hefur reynst saman borð við önnur úrræði í ferðaþjónustu við fatlað fólk, auk þess sem verkferlar og skráning hefur þróast mikið á þessum árum. Það sem að einkennir ferðaþjónusta Blindrafélagsins er að það er þjónustuúrræði sem nýtir leigubílaþjónustu sem fyrir er í samfélaginu. Samkvæmt lögum um málefni fatlaðra bera sveitarfélög ábyrgð á að bjóða þeim sem ekki geta nýtt sér almenningssamgöngur ferðaþjónustu sem gerir þeim kleift að stunda atvinnu, nám og tómstundir. Í upphafi árs 2011 var gerð sú breyting á 1. grein laga um málefni fatlaðra að nú er kveðið á um að við framkvæmd laganna skuli litið til alþjóðlegra samninga sem Ísland á aðild að, svo sem Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Í 20. grein samningsins er fjallað um ferlimál einstaklinga og í greininni segir m.a.: Aðildarríkin skulu gera árangursríkar ráðstafanir til þess að tryggja að einstaklingum sé gert kleift að fara allra sinna ferða og tryggja sjálfstæði fatlaðra í þeim efnum, eftir því sem frekast er unnt, m.a. með því „að greiða fyrir því að fatlaðir geti farið allra sinna ferða með þeim hætti sem, og þegar, þeim hentar og gegn viðráðanlegu gjaldi“. Hver ferð í Ferðaþjónustu við fatlað á höfuðborgarsvæðinu kostar að meðaltali um 3.500 krónur fyrir Reykjavíkurborg, í ferðaþjónustu Blindrafélagsins kostar hver ferða að jafnaði 2.200 kr. Munurinn er 59%. Ánægja með ferðaþjónustu Blindrafélagsins meðal notenda hefur ávalt verið meiri en meðal notenda ferðaþjónustu fatlaðra, þrátt fyrir að kostnaðarþátttaka notenda sé mun hærri í ferðaþjónustu Blindrafélagsins Þegar kannanir hafa verið gerðar meðal lögblindra einstaklinga þá kemur í ljós að ferðaþjónustu Blindrafélagsins er dýrmætasta þjónustuúrræðið sem þeim stendur til boða. Það endurspeglast svo í því að atvinnuþátttaka meðal lögblindra einstaklinga er mjög há á Íslandi í alþjóðlegum samanburði. Lykilinn að þessu farsæla samstarfi milli Blindrafélagsins, Hreyfils og Reykjavikurborgar liggur meðal annars í því að; • notendur hafa aðganga að þjónustunni allan sólahringinn í gegnum skiptiborð Hreyfils, • að ferðir er hægt að panta fyrirvaralaust í þeirri vissu að bíll sé ávalt til staðar, • að skráning og greiðsla ferða er miðlæg og rafræn, • að skýrslur um fjölda ferða og kostnað eru aðgengilegar Reykjavíkurborg, sem aðalgreiðanda þjónustunnar, þegar þeirra er óskað. • notendur geta verið þess fullvissir að bílstjórar í ferðaþjónustu Blindrafélagsins hafa gengist undir trúnaðarskyldur gangvart notendum ferðaþjónustunnar og að þeir hafa fengið fræðslu frá starfsmanni Blindrafélagsins um nytsöm atriði er varð umgengni við blint og sjónskert fólk. • að bílstjórar sem verða uppvísir af því að misnota aðstöðu sín verða umsvifalast fjarlægðir úr ferðaþjónustu Blindrafélagsins. Notendur ferðaþjónustu Blindrafélagsins hafa mjög ólíkar þarfir og eru mismikið fatlaðir. Þar er ekki eingöngu um að ræða fötlun vegna sjónmissis heldur er einnig um að ræða einstaklinga með samþætta sjón og heyrnarskerðingu og einstaklinga, með geðrænar fatlanir og þroskaskerðingar til viðbótar við sjónmissinn. Nú er um 600 einstaklinga með þjónustusamning hjá í ferðaþjónustu Blindrafélagsins. Á árinu 2018 voru farnar um 45 þúsund ferðir. Benda má á að samkvæmt fréttum frá Finnlandi, þar sem fyrirkomulag er með svipuðum hætti varðandi akstur blindra einstaklinga, hrundi þjónustan við þennan hóp, eftir að lögum um leigubílaakstur var breytt í þá átt sem að þetta frumvarp gengur útá. Það er mikilvægt að missa ekki sjónar á því leigubílaþjónusta er mikilvæg almenningsþjónusta sem er viðkvæmum einstaklingum mjög mikilvæg. Það að færa þessa þjónustu alfarið á óbeislað markaðstorg mun líklega valda meiri skaða en ávinningi. Reykjavík 13.06.2019. Kristinn Halldór Einarsson framkvæmdastjóri Blindrafélagsins, samtaka blindra og sjónskertra á Íslandi

  • #3Hreyfill svf. ( Samvinnufélagið Hreyfill )
    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið Sölvhólsgötu 7 150 Reykjavík srn@srn.is 19. júní 2019. Efni: Umsögn Hreyfils svf. vegna boðaðs frumvarps til laga um leigubifreiðar. Hreyfill er samvinnufélag með starfsvettvang á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. Tilgangur félagsins er að reka sameiginlega bifreiðastöð fyrir þá bílstjóra sem hafa atvinnuleyfi til aksturs leigubifreiða fyrir allt að 8 farþega. Aðild að félaginu fá umsækjendur sem stundað hafa samfelldan akstur í 6 mánuði hjá bifreiðastöðinni og eru atvinnuleyfishafar. Hreyfill svf. rekur langstærstu leigubifreiðastö… Lesa alla

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið Sölvhólsgötu 7 150 Reykjavík srn@srn.is 19. júní 2019. Efni: Umsögn Hreyfils svf. vegna boðaðs frumvarps til laga um leigubifreiðar. Hreyfill er samvinnufélag með starfsvettvang á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. Tilgangur félagsins er að reka sameiginlega bifreiðastöð fyrir þá bílstjóra sem hafa atvinnuleyfi til aksturs leigubifreiða fyrir allt að 8 farþega. Aðild að félaginu fá umsækjendur sem stundað hafa samfelldan akstur í 6 mánuði hjá bifreiðastöðinni og eru atvinnuleyfishafar. Hreyfill svf. rekur langstærstu leigubifreiðastöð landsins undir nafninu Hreyfill. Atvinnuleyfishafar eru nú á milli 360 og 370. Hjá Hreyfli og dótturfélögum Hreyfils eru um 30 einstaklingar í fullu starfi. Þá eru að auki um 550 einstaklingar á skrá yfir „virka launþega“ þ.e. aðilar sem í mismiklu mæli sinna afleysingum eða tímabundum akstri hjá Hreyfli. Það eru því tæplega 1.000 einstaklingar sem hafa atvinnu tengda Hreyfli og um helmingur þeirra í aðalstarfi sem aftur er grundvöllur framfærslu fjölskyldna þeirra einstaklinga sem í hlut eiga. Hreyfill hefur starfað farsællega í meira en 75 ár. Á þeim tíma hefur félagið vaxið og dafnað og í senn svarað eftirspurn frá almenningi, fyrirtækjum, stjórnvöldum og ferðamönnum. Þá hefur félagið skapað þeim sem starfa hjá Hreyfli atvinnu með viðunandi afkomu. Í gegnum dótturfélag Hreyfils hefur m.a. verið byggt upp sameiginlegt tölvukerfi fyrir bifreiðar sem aka frá Hreyfli sem styttir viðbragðstíma, dregur úr „óþörfum“ akstri og eykur öryggi ökumanna og farþega. Í tölvukerfinu eru skráðar upplýsingar um „eiginleika“ viðkomandi bílstjóra og bílanna sem þeir nota. Sé t.d. óskað þjónustu á tilteknu tungumáli „velur“ kerfið bílstjóra sem talar viðkomandi tungumál. Sé þjónustu t.d. óskað fyrir fatlaðan viðskiptamann sér kerfið um að velja bifreið sem hentar viðskiptamanninum. Í því skyni að tryggja öryggi þjónustunnar hefur félagsstjórn ýmsar heimildir. Hún getur synjað umsækjanda um aðild, telji hún ástæðu til, en umsækjandi getur skotið slíkri ákvörðun til félagsfundar. Í samþykktum félagsins, sem félagsmenn skuldbinda sig til þess að virða, má m.a. finna reglur um inngöngu, aðildargjald, stofnsjóð, félagsfundi, stjórn, breytingu samþykkta, samninga sem félagið má gera f.h. félagsmanna sinna, útborgun úr stofnsjóði og brottrekstur úr félaginu. Mikil áhersla er lögð á að allir sem aka undir merki Hreyfils virði reglur og sýni ekki af sér háttsemi eða framkomu sem er ósæmileg. Stjórn Hreyfils leyfir sér að fullyrða að sú þjónusta sem Hreyfill býður á starfssvæði sínu standist samjöfnuð við það sem best gerist í öðrum löndum. Viðgangur Hreyfils er ekki vegna einokunaraðstöðu því allan tímann hefur starfsemin verið rekin í samkeppni við aðra þjónustuaðila. Í vaxandi mæli fer greiðsla fyrir þjónustuna fram með rafrænum hætti (greiðslukort) eða í gegnum viðskiptareikninga á grundvelli samninga sem Hreyfill gerir við fasta viðskiptavini. Hefur skrifstofa Hreyfils mikilvægt hlutverk gagnvart viðskiptamönnum og bílstjórum um skráningu og uppgjör þessara viðskipta. Má fullyrða að síðustu árin hefur öryggi í viðskiptunum farið vaxandi samfara bættri skráningu og réttum skilum til viðkomandi yfirvalda. Þá hefur Hreyfill brugðist við nýjum lögum um vernd persónuupplýsinga með því að leggja viðeigandi skyldur á þá sem aka undir merkjum Hreyfils. Stjórn Hreyfils hefur áhyggjur af þeim breytingum sem að virðist stefnt með boðuðu frumvarpi um leiguakstur. Markmiðið með breytingunum er sagt vera að bregðast við athugasemdum ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, um takmarkanir á heimildum til leigubifreiðaaksturs á Íslandi. Hefur starfshópur lagt fram tillögur um að afnema fjöldatakmarkanir á útgefnum atvinnuleyfum til leigubifreiðaaksturs og að fallið verði frá stöðvarskyldu í því skyni að auka samkeppni og þjónustu. Til þess að tryggja öryggi þjónustunnar verði veitt tvenns konar leyfi til leiguaksturs, þ.e. atvinnuleyfi, sem yrði leyfi til þess að aka leigubifreið, og rekstrarleyfi, sem yrði leyfi til þess að reka eina leigubifreið. Stjórn Hreyfils gengur út frá því sem gefnu að henni muni á síðari stigum gefast kostur á að gefa umsögn um frumvarp að lögum um leigubifreiðar þegar það liggur fyrir í endanlegri mynd og áður en það verður lagt fyrir Alþingi. Á þessu stigi málsins vill stjórnin því einungis vekja sérstaka athygli á þremur efnisatriðum sem huga þarf vel að við umfjöllun um frumvarpið. 1. Jafnræði aðila í skattalegu tilliti. Í gildandi kerfi ganga allar greiðslur viðskiptavina Hreyfils til félagsins og bílstjóranna sem þar starfa. Greiðslurnar standa undir lög- og samningsbundnum útgjöldum, rekstrarkostnaði og loks launum eða tekjum viðkomandi aðila. Allar greiðslurnar ganga inn í íslenska hagkerfið og eru grundvöllur viðeigandi skattlagningar. Með þessu móti er starfsemi Hreyfils þáttur í þeirri efnahagsstarfsemi sem íslenska samfélagið byggist á. Mikilvægt er að tryggja að Hreyfill og bílstjórar stöðvarinnar þurfi ekki að mæta samkeppni sem ekki tæki þátt í greiðslum til íslenska samfélagsins. Þetta á t.d. við samkeppni frá erlendum aðilum sem vilja selja leigubifreiðaþjónustu á Íslandi með þeim hætti að allt endurgjaldið sé greitt inn á erlenda reikninga og einungis hluta þess skilað aftur til Íslands sem verktakagreiðslum til viðkomandi bílstjóra. Slíkt fyrirkomulag skapar ósanngjarna samkeppnisaðstöðu og leggur ekkert til íslensks samfélags. 2. Öryggi viðskiptavina og bílstjóra. Með því skipulagi sem nú er á leigubifreiðaakstri hefur tekist að tryggja viðunandi öryggi viðskiptavina og bílstjóra m.a. með stöðvarskyldunni og því félagsformi sem Hreyfill býr við eins og að framan er lýst. Mikilvægir þjóðfélagslegir hagsmunir tengjast því að tryggja þetta öryggi áfram eins og kostur er. Hreyfill væntir þess og leggur áherslu á að allir sem fá leyfi til leigubifreiðaaksturs verði í reynd að lúta reglum og eftirliti með því að eftir reglum sé farið. 3. Atvinnuhagsmunir þeirra sem starfa hjá Hreyfli og öðrum bifreiðastöðvum. Að framan er vakin athygli á stærð Hreyfils og þeirri staðreynd að tæplega 1.000 einstaklingar eiga fjárhagslega afkomu að öllu eða einhverju leyti undir viðgangi félagsins. Á íslenskan mælikvarða er Hreyfill stórt „fyrirtæki“ og miklir hagsmunir við það bundnir að grundvöllurinn fyrir rekstri Hreyfils verði ekki eyðilagður með skyndilegum breytingum á rekstrarumhverfi félagsins. Þess vegna er til þess mælst að hugsanlegar breytingar á samkeppnisumhverfinu verði gerðar með þeim hætti að stjórnendum og bílstjórum Hreyfils gefist sanngjarn tími, sem yrði a.m.k. nokkur ár, til þess að bregðast við og aðlaga reksturinn að breyttum lögum. Stjórn Hreyfils tekur fram að félagið vill vinna með stjórnvöldum í þessu máli með það að markmiði að breytingar sem kunni að verða gerðar þjóni í reynd íslensku samfélagi. Virðingarfyllst f.h. stjórnar Hreyfils svf Hallgrímur Guðrúnarson formaður stjórnar Haraldur Axel Gunnarsson framkvæmdastjóri

  • #4Samkeppniseftirlitið

    Í meðfylgjandi viðhengi er umsögn Samkeppniseftirlitsins.

  • #5Bifreiðastöð Oddeyrar ehf
    Efni: umsögn Bifreiðastöðar Oddeyrar ehf vegna frumvarps til laga um leigubifreiðar. Bifreiðastöð Oddeyrar ehf (BSO) hefur verið starfandi á Akureyri í yfir 70 ár Hér eru 22 atvinnuleyfi auk annara starfsmanna alls 30 manns sem starfa á BSO. Hér er tryggður aðgangur að þjónustu allann sólarhringinn. Höfum við kappkostað að veita Akureyringum og nærsveitungum góða þjónustu einnig fyrirtækjum og félagasamtökum t.d Blindrafélaginu og annarri ferliþjónustu fyrir sveitarfélög sem er viðkvæmur hópur oft á tíðum. Að afnema stöðvarskyldu leigubílstjóra myndi valda t.d þessum aðilum erfiðle… Lesa alla

    Efni: umsögn Bifreiðastöðar Oddeyrar ehf vegna frumvarps til laga um leigubifreiðar. Bifreiðastöð Oddeyrar ehf (BSO) hefur verið starfandi á Akureyri í yfir 70 ár Hér eru 22 atvinnuleyfi auk annara starfsmanna alls 30 manns sem starfa á BSO. Hér er tryggður aðgangur að þjónustu allann sólarhringinn. Höfum við kappkostað að veita Akureyringum og nærsveitungum góða þjónustu einnig fyrirtækjum og félagasamtökum t.d Blindrafélaginu og annarri ferliþjónustu fyrir sveitarfélög sem er viðkvæmur hópur oft á tíðum. Að afnema stöðvarskyldu leigubílstjóra myndi valda t.d þessum aðilum erfiðleikum með að tryggja þann akstur. Hvert eiga fyrirtæki að snúa sér ef engar leigubílastöðvar eru eftir? Að bílstjórar þurfi ekki að hlýta stöðvarskyldu sér maður ekki hvernig er framkvæmanlegt, né að þurfa ekki að hafa gjaldmæli í bílum og vera í talstöðvarsambandi við stöð. Með því skipulagi sem nú er á leigubifreiðaakstri hefur tekist að tryggja öryggi viðskiptavina og bílstjóra m.a. með stöðvarskyldunni. Mikilvægt er að tryggja þetta öryggi áfram eins og kostur er. Leggju við áherslu á að allir sem fá leyfi til leigubifreiðaaksturs verði í reynd að lúta reglum og eftirliti og að eftir þeim reglum sé farið. Teljum ekki ásættanlegt að slakað sé á kröfum til þeirra er vilja aka leigubílum Að afnema fjöldatalmörkum leigubíla hér á landi myndi þýða að: Engin gæti haft viðunandi afkomu af þessu starfi sem aðalatvinnu t.d hér á Akureyri. Menn flykktust út um helgar á allskonar bílum. Tökum við undir áhyggjur um samkeppni á þessum markaði erlendis frá. Akureyri 19.júní 2019 F. h Bifreiðastöðvar Oddeyrar ehf Ásdís Ásmundsdóttir Framkv.stj.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    14 ræður · 1 klst. 1 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 10. janúar 2020
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
577Stjórnarfrumvarp28. nóv. 2019Sigurður Ingi JóhannssonLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur4. desember 2019 kl. 22:55
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ umhverfis- og samgöngunefnd4. desember 2019 kl. 22:56
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

14 ræður · 1 klst. 1 mín
  • 1. umræða: 14 ræður · 5 ræðumenn · 1 klst. 1 mín

Umsagnir og erindi

25 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Umhverfis- og samgöngunefnd sendi 1 umsagnabeiðni 6. des. 2019, frestur 10. jan. 2020.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytiðupplýsingarOpna PDF
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytiðupplýsingarOpna PDF
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytiðupplýsingarOpna PDF
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytiðupplýsingarOpna PDF
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytiðupplýsingarOpna PDF
PersónuverndumsögnOpna PDF
Bandalag íslenskra leigubifreiðastjóralagt fram á fundiOpna PDF
Bandalag íslenskra leigubifreiðastjóra og Bifreiðastjórafélagið FramiupplýsingarOpna PDF
SamkeppniseftirlitiðumsögnOpna PDF
Ársæll HaukssonumsögnOpna PDF
Bifreiðastjórafélagið Fylkir og A-StöðinumsögnOpna PDF
Bifreiðastöðin Hreyfill Bæjarleiðir hfumsögnOpna PDF
NeytendastofaumsögnOpna PDF
SamgöngustofaumsögnOpna PDF
Viðskiptaráð ÍslandsumsögnOpna PDF
Samtök atvinnulífsinsumsögnOpna PDF
NeytendasamtökinumsögnOpna PDF
Birkir Rafn Guðjónsson og Bjarni Freyr BjörnssonumsögnOpna PDF
Alþýðusamband ÍslandsumsögnOpna PDF
BlindrafélagiðumsögnOpna PDF
Bifreiðastöð Oddeyrar - BSOumsögnOpna PDF
Bandalag íslenskra leigubifreiðastjóra og Bifreiðastjórafélagið FramiumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.