Beint í efni
Alviti
Þingmál149. þing · 801. mál

Einkaframkvæmdir í heilbrigðiskerfinu

Óundirbúinn fyrirspurnatímiStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að tryggja að þeir sem sinna uppeldis-, kennslu- og stjórnunarstörfum í leik-, grunn- og framhaldsskólum hafi menntun og hæfni í samræmi við störf þeirra og ábyrgð.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Óundirbúinn fyrirspurnatími
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
4 ræður · 6 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 4. júl. 2019

Markmiðið

Að tryggja að þeir sem sinna uppeldis-, kennslu- og stjórnunarstörfum í leik-, grunn- og framhaldsskólum hafi menntun og hæfni í samræmi við störf þeirra og ábyrgð.

Hvað breytist

Lagt er til að í stað þriggja leyfisbréfa kennara, einu leyfisbréfi fyrir hvert skólastig, komi eitt leyfisbréf sem byggist á skilgreiningu á almennri og sérhæfðri hæfni kennara. Gert er ráð fyrir að skilgreindur sé hæfnirammi fyrir menntun kennara og skólastjórnenda með vísan til útgefinna viðmiða um æðri menntun og prófgráður. Þá er lagt til að komið verði á fót kennararáði til að styðja við þróun hæfnirammans, sem verður ráðgefandi fyrir stjórnvöld í því efni. Einnig er gert ráð fyrir að mat á umsóknum um leyfisbréf og útgáfa þeirra færist til Menntamálastofnunar og að stofnunin gefi út undanþágur til ráðningar leiðbeinenda að fengnum tillögum undanþágunefndar kennara. Enn fremur er lagt til að skólastjórnendur beri aukna ábyrgð við mat á hæfni umsækjenda um kennslustörf.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög og við gildistöku laganna falla úr gildi lög um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, nr. 87/2008.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir óverulegum áhrifum á útgjöld ríkissjóðs.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Þórarinn Ingi Pétursson

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 2. maí 2019
Sendu inn umsögn eða erindi
18 aðilar
Persónuvernd, Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Menntamálastofnun, Félag framhaldsskólakennara, Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
6 mín · 4 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir óverulegum áhrifum á útgjöld ríkissjóðs.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-25/2019· Áform um lagasetningu· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. jan. 2019 – 4. feb. 2019· 6 umsagnir

Áform um lagabreytingar um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla nr. 87/2008

Áformað er að gera breytingar á lögum nr. 87/2008 þar sem meðal annars verður stuðlað að aukinni samfellu og sveigjanleika milli skólastiga með útgáfu eins leyfisbréfs til kennslu.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-25/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 4. febrúar 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (29. janúar 2020)

Lög um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla voru samþykkt á Alþingi 1, júlí 2019.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)
  • #1Sigurbjörg Friðriksdóttir

    Sammála þessari breytingu.

  • #2Haraldur Freyr Gíslason

    Sjá viðhengi

  • #3Sigurbjörn Árni Arngrímsson
    Breytingarnar á lögunum munu opna ýmsa möguleika og auka flæði kennara á milli skólastiga. Hins vegar myndast ýmsar flækjur við þessar breytingar. Til að mynda virðast þær stangast á við reglugerð 872/2009 um inntak menntunar leik-, grunn- og framhaldsskólakennara. Þar kemur fram að talsverður munur er gerður á þeim fjölda eininga (ECTS) sem þarf að vera til staðar til að uppfylla skilyrði um menntun leik-, grunn- og framhaldsskólakennara. Leikskólakennari þarf t.d. að hafa lokið eigi minna en 150 einingum í uppeldis- og kennslufræði og inntak faggreina sem tengist námssviðum leikskólans skal… Lesa alla

    Breytingarnar á lögunum munu opna ýmsa möguleika og auka flæði kennara á milli skólastiga. Hins vegar myndast ýmsar flækjur við þessar breytingar. Til að mynda virðast þær stangast á við reglugerð 872/2009 um inntak menntunar leik-, grunn- og framhaldsskólakennara. Þar kemur fram að talsverður munur er gerður á þeim fjölda eininga (ECTS) sem þarf að vera til staðar til að uppfylla skilyrði um menntun leik-, grunn- og framhaldsskólakennara. Leikskólakennari þarf t.d. að hafa lokið eigi minna en 150 einingum í uppeldis- og kennslufræði og inntak faggreina sem tengist námssviðum leikskólans skal eigi vera minna en 90 einingar á meðan framhaldsskólakennari þarf að hafa lokið eigi minna en 60 einingum í uppeldis- og kennslufræði og faggreinin skal eigi vera minna en 180 staðlaðar ­ein­ingar í aðalkennslugrein. Þarna ber talsvert í milli enda langt á milli þessara skólastiga. Ef skólastjórnendum ber skylda til að ráða kennara með leyfisbréf (t.d. leikskólakennara til stærðfræðikennslu í framhaldsskóla eða eðlisfræðikennara úr framhaldsskóla til kennslu í yngstu deild leikskólans) umfram hæfari einstakling sem hefur reynslu eða fagmenntun á sviðinu (þó svo að kennsluréttindin vanti) er verr af stað farið en heima setið. Lagabreytingin þarf að tryggja að fólk með þekkingu á faggreininni gangi fyrir eða standi að minsta kosti jafnfætis fólki án þekkingar á faggreininni en með kennsluréttindi sem upphaflega voru hugsuð til kennslu á öðru skólastigi. Sigurbjörn Árni Arngrímsson Skólameistari Framhaldsskólans á Laugum

  • #4Sara Ósk Halldórsdóttir
    Góðan daginn, Varðandi að gefa eitt leyfisbréf fyrir alla þrjá skóla leik-, grunn- og framhaldsskóla er ég ekki sammála. Mér þykir mjög mikilvægt að einstaklingar sem kenna börnunum okkar séu að læra það sem þeir eru að kenna eða svipuð fræði og þeir eru að kenna. Ég tel að í sumum tilfellum kæmi þetta niður á gæðum kennslunar, ekki endilega alltaf. Ég er leiðbeinandi í dag, ég er í 100% starfshlutfalli að vinna í 20 einingum í Háskóla Íslands við að reyna að klára B.Ed. gráðuna mína í sumar. Ég er að leggja það á mig að læra það sem ég vil kenna til frambúðar. En ég veit fullvel að samn… Lesa alla

    Góðan daginn, Varðandi að gefa eitt leyfisbréf fyrir alla þrjá skóla leik-, grunn- og framhaldsskóla er ég ekki sammála. Mér þykir mjög mikilvægt að einstaklingar sem kenna börnunum okkar séu að læra það sem þeir eru að kenna eða svipuð fræði og þeir eru að kenna. Ég tel að í sumum tilfellum kæmi þetta niður á gæðum kennslunar, ekki endilega alltaf. Ég er leiðbeinandi í dag, ég er í 100% starfshlutfalli að vinna í 20 einingum í Háskóla Íslands við að reyna að klára B.Ed. gráðuna mína í sumar. Ég er að leggja það á mig að læra það sem ég vil kenna til frambúðar. En ég veit fullvel að samningur minn er til eins árs hvert skipti. Ef leikskólakennari og framhaldsskólakennari vilja fá viðeigandi laun í grunnskóla þá er eðlilegt að þeir þurfi að bæta við sig einhverjum fögum í HÍ, hvaða fög það yrðu er hins vegar allt annað mál og má kannski ráðgast við Strakkahlíð hvað þeim þætti mikilvægast fyrir einstaklinga sem hoppa milli skólastiga. Ég tel sérstaklega varhugavert að vera að hleypa leikskólakennurum upp í grunnskóla, án viðeigandi menntunar, og að hleypa grunnskólakennurum upp í framhaldsskóla án viðeigandi menntunar. Hvernig stofnanirnar eru uppsettar er gjörólíkt. Hvaða aumingjavæðing er þetta líka að gefa afslátt af menntun? Haldið þið að hjúkrunarfræðingur fái kannski einhvern tíman að vinna sem læknir á lærri launum? Eða að læknir fái að spreyta sig sem sjúkraþjálfari? Mér finnst þetta algjör vanvirðing við kennarastéttina að segja að öll þessi skólastig séu bara eins og kennarar geti hoppað á milli eins og þeim sýnist þrátt fyrir að vera sérhæfðir í einhverju. Ég verð líka spólandi vitlaus í skapinu, ef að ég er kominn með Masterinn minn, og sæki um stöðu í kennslu yngstu barna í grunnskóla og skólastjórinn hefur leyfi til að taka leikskólakennara fram yfir mig, þegar ég er með sérhæfingu á sviðinu. Hver ætlar að passa að þess sé gætt?? Það mun ENGINN bera virðingu fyrir kennarastarfinu meðan þetta er svona, væl ofan í væl í stað þess að bara taka einhver námskeið í fjarnámi og vera kominn með annað skólastig. MIKIÐ, á móti þessari tillögu. Mbkv. Sara Ósk Halldórsdóttir, Háskólanemi, að sligast stundum undan náms og vinnuálagi en vælir ekki yfir því að vera leiðbeinandi, og læri bara það sem ég ÆTLA að kenna.

  • #5Samband íslenskra sveitarfélaga

    Vinsamlegast sjá meðfylgjandi umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga, við áform um lagabreytingar um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda, nr. 87/2008. Virðingarfyllst, f.h. sambandsins, Vigdís Häsler, lögmaður

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 2. maí 2019
    1 beiðni um umsögn
  2. Umræða
    Umræða
    4 ræður · 6 mín

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

4 ræður · 6 mín
  • Umræða: 4 ræður · 2 ræðumenn · 6 mín

Umsagnir og erindi

21 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 11. apr. 2019, frestur 2. maí 2019.

Hver sendiTegundBarstSkjal
PersónuverndumsögnOpna PDF
Mennta- og menningarmálaráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
MenntamálastofnunumsögnOpna PDF
Mennta- og menningarmálaráðuneytiðupplýsingarOpna PDF
Félag framhaldsskólakennaraminnisblaðOpna PDF
Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólumumsögnOpna PDF
Kennarasamband ÍslandsumsögnOpna PDF
Menntavísindasvið Háskóla ÍslandsumsögnOpna PDF
Alþýðusamband ÍslandsumsögnOpna PDF
Skólamálanefnd Félags framhaldsskólakennaraumsögnOpna PDF
Kennarafélag Menntaskólans á AkureyriumsögnOpna PDF
Guðjón H. HaukssonumsögnOpna PDF
Mennta- og menningarmálaráðuneytiðupplýsingarOpna PDF
Gerður G. ÓskarsdóttirumsögnOpna PDF
Félag framhaldsskólakennaraumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
Skólastjórafélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Samtök líffræðikennara,SamlífumsögnOpna PDF
Háskólinn á AkureyriumsögnOpna PDF
Félag leikskólakennaraumsögnOpna PDF
Keilir, miðstöð vísinda,fræða og atvinnulífsumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið, líka beint úr klippiborðinu.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.