Beint í efni
Alviti
Þingmál149. þing · 785. mál

Félög til almannaheilla

LagafrumvarpDagaði uppiFélagsmál

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 11. apr. 2019

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 149. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að skjóta traustari stoðum undir frjáls félagasamtök sem geta talist almannaheillasamtök.

Lagt fram af Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
30. mars 2019
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
2 ræður · 19 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 4. júl. 2019

Markmiðið

Að skjóta traustari stoðum undir frjáls félagasamtök sem geta talist almannaheillasamtök.

Hvað breytist

Lagt er til að sett verði heildarlög um félagasamtök til almannaheilla. Lagt er til að félagasamtök til almannaheilla verði aðgreind frá öðrum félagasamtökum og að settar verði reglur um stofnun félagasamtaka til almannaheilla, meginefni samþykkta, félagsaðild, ákvörðunarvald, ákvörðunartöku og stjórnun slíkra félaga. Lagt er til að félagasamtök til almannaheilla verði skráð í almannaheillafélagaskrá sem ríkisskattstjóri haldi og taki við nýskráningum þeirra, breytingum á skráningu og tilkynningum um slit, auk þess að hafa heimild til afskráningar. Þá er lagt til að opinberum aðilum verði heimilt að setja það sem skilyrði fyrir veitingu styrkja, rekstrarsamninga og opinberra leyfa til almannaheillasamtaka að þau séu skráð í almannaheillafélagaskrá. Jafnframt er gert ráð fyrir að atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu verði falin ákveðin verkefni sem kalla á töku stjórnvaldsákvarðana í ákveðnum málum.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög en við gildistöku laganna verða breytingar á lögum um fyrirtækjaskrá, nr. 17/2003.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir neinum áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Almannaheill – samtök þriðja geirans.

Lög á Norðurlöndum

Finnland

Föreningslag 26.05.1989/503.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Silja Dögg Gunnarsdóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Efnahags- og viðskiptanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 2. maí 2019
Sendu inn umsögn eða erindi
17 aðilar
Hagsmunasamtök heimilanna, Öryrkjabandalag Íslands, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Almannaheill, samtök þriðja geirans, Samband íslenskra framhaldsskólanema o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
19 mín · 2 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir neinum áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    2 ræður · 19 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 2. maí 2019
    1 beiðni um umsögn

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1245Stjórnarfrumvarp30. mar. 2019Þórdís Kolbrún Reykfjörð GylfadóttirLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur11. apríl 2019 kl. 20:00
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ efnahags- og viðskiptanefnd11. apríl 2019 kl. 20:00
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

2 ræður · 19 mín
  • 1. umræða: 2 ræður · 2 ræðumenn · 19 mín

Umsagnir og erindi

17 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 12. apr. 2019, frestur 2. maí 2019.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Hagsmunasamtök heimilannaumsögnOpna PDF
Öryrkjabandalag ÍslandsumsögnOpna PDF
Íþrótta- og Ólympíusamband ÍslandsumsögnOpna PDF
Almannaheill, samtök þriðja geiransumsögnOpna PDF
Samband íslenskra framhaldsskólanemaumsögnOpna PDF
Landssamband ungmennafélagaumsögnOpna PDF
Astma- og ofnæmisfélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
Slysavarnafélagið LandsbjörgumsögnOpna PDF
BarnaheillumsögnOpna PDF
RíkisskattstjóriumsögnOpna PDF
NeytendasamtökinumsögnOpna PDF
Samband íslenskra berkla- og brjóstholssjúklingaumsögnOpna PDF
Krabbameinsfélag ÍslandsumsögnOpna PDF
Knattspyrnusamband ÍslandsumsögnOpna PDF
Alþýðusamband ÍslandsumsögnOpna PDF
Landssamtökin ÞroskahjálpumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)