Beint í efni
Alviti
Þingmál149. þing · 779. mál

Sjálfstætt starfandi aðilar í heilbrigðiskerfinu

Óundirbúinn fyrirspurnatímiStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að stuðla að því að rannsóknir í vísindum fari fram í samræmi við vandaða starfshætti í vísindum og auka þannig trúverðugleika vísindastarfs og rannsókna í samfélaginu.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Óundirbúinn fyrirspurnatími
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
4 ræður · 7 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 12. jún. 2019

Markmiðið

Að stuðla að því að rannsóknir í vísindum fari fram í samræmi við vandaða starfshætti í vísindum og auka þannig trúverðugleika vísindastarfs og rannsókna í samfélaginu.

Hvað breytist

Lagt er til að sett verði á fót ein miðlæg nefnd um vandaða starfshætti í vísindum. Lögð er áhersla á þá meginábyrgð vísindamanna, stofnana og fyrirtækja sem sinna rannsóknum að gæta að vönduðum rannsóknarháttum. Nefndinni er ætlað að vera til ráðgjafar og stuðla að fræðslu um þessi efni. Gert er ráð fyrir að nefndin muni einnig fjalla um mál sem til hennar er vísað eða sem hún tekur upp að eigin frumkvæði. Ekki er gert ráð fyrir að í lögum sé að finna skilgreiningu á því hvað séu brot á vönduðum starfsháttum heldur er nefndinni ætlað að skrá siðferðisviðmið sem falla undir það hugtak og birta á vef sínum að fenginni staðfestingu ráðherra.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög.

Kostnaður fyrir ríkið

Helsti kostnaður sem fylgir samþykkt frumvarpsins er tengdur nefnd um vandaða starfshætti í vísindum. Gert er ráð fyrir að hann nemi 10 milljónum kr. á ári.

Meira úr samantektinni

Drög að siðareglum fyrir íslenskt vísindasamfélag. Rannís, desember 2010.

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk

Lov om videnskabelig uredelighed m.v. LOV nr 383 af 26/04/2017.

Finnland

Í Finnlandi starfar ráðgefandi nefnd á þessu sviði á grundvelli reglugerðar nr. 1347/1991 (förordning om forskningsetiska delegationen).

Noregur

Lov om organisering av forskningsetisk arbeid (forskningsetikkloven) LOV-2017-04-28-23.

Svíþjóð

Frumvarp til laga um athugun á óheilindum í rannsóknum (förslag till lag om prövning av oredlighet i forskning) er nú til umfjöllunar í sænska þinginu.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Steinunn Þóra Árnadóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 3. maí 2019
Sendu inn umsögn eða erindi
7 aðilar
Persónuvernd, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Háskólaráð Háskóla Íslands, Félag háskólakennara, Náttúrufræðistofnun Íslands o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
7 mín · 4 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Helsti kostnaður sem fylgir samþykkt frumvarpsins er tengdur nefnd um vandaða starfshætti í vísindum. Gert er ráð fyrir að hann nemi 10 milljónum kr. á ári.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-20/2019· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. jan. 2019 – 5. feb. 2019· 9 umsagnir

Áformuð lagasetning um vandaða starfshætti í vísindum

Markmiðið er að tryggja eftir megni að siðferðileg viðmið í vísindum séu í heiðri höfð og að góðir vísindalegir starfshættir séu iðkaðir. Það er nauðsynlegt til að hægt sé meta niðurstöður og áreiðanleika rannsókna og til að skapa traust almennings á gildi þeirra.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-20/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 5. febrúar 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 9 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (12. febrúar 2019)

Níu umsagnir bárust um áformin, frá einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum, félögum og nefndum. Umsagnirnar eru almennt mjög jákvæðar í garð áformanna og tekið undir að nauðsyn sé að setja lög um málefnasviðið. Unnið verður nánar úr athugasemdum og tekið tillit til þeirra eftir atvikum við gerð lagafrumvarpsins. Stefnt er að því að setja frumvarpsdrög í samráð á þessum vettvangi eftir miðjan febrúar.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (9)
  • #1Valdimar Össurarson

    Meðfylgjandi í viðhengi er umsögn Valdimars Össurarsonar, frkv.stj Valorku og formanns SFH

  • #2Íslensk erfðagreining ehf.

    Umsögn Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar er í viðhengi.

  • #3Eiríkur Brynjólfur Baldursson
    Ath Eftir fer umsögn einstaklings: Umsögn 1. Það er mikilvægt og tímabært að skapa hér ramma til þess að styrkja siðfræðilega umföllun um vísindarannsóknir og heilindi líkt og tíðkast með öðrum þjóðum. Vandaðir starfshættir í rannsóknum eru forsenda fyrir öflugu samstarfi við aðrar þjóðir. Þetta hefur sýnt sig skipta miklu fyrir erlent samstarf á sviði heilbrigðisrannsókna sem eru eina sviðið í rannsóknum hér á landi þar sem fjallað er með skipulegum hætti um siðferðilegar hliðar rannsókna – þó einkum í ljósi hagsmuna þátttakenda. Má ætla að fyrirkomulagið geri íslenska vísindamenn að áh… Lesa alla

    Ath Eftir fer umsögn einstaklings: Umsögn 1. Það er mikilvægt og tímabært að skapa hér ramma til þess að styrkja siðfræðilega umföllun um vísindarannsóknir og heilindi líkt og tíðkast með öðrum þjóðum. Vandaðir starfshættir í rannsóknum eru forsenda fyrir öflugu samstarfi við aðrar þjóðir. Þetta hefur sýnt sig skipta miklu fyrir erlent samstarf á sviði heilbrigðisrannsókna sem eru eina sviðið í rannsóknum hér á landi þar sem fjallað er með skipulegum hætti um siðferðilegar hliðar rannsókna – þó einkum í ljósi hagsmuna þátttakenda. Má ætla að fyrirkomulagið geri íslenska vísindamenn að áhugaverðari samstarfsaðilum um leið og styrkveitendur og ritstjórnir birtingaraðila gera í vaxandi mæli kröfur um að siðanefnd hafi fjallað um rannsóknirnar. 2. Sá rammi og regluverk sem sett verður um heilindi í vísindastarfi taki mið af því sem gert er meðal annarra þjóða, ekki síst í þeim ríkjum sem samstarf er við um vísindi og rannsóknir. Séríslenskar reglur og viðmið gætu orðið til trafala í erlendu samstarfi, en öllu vísindastarfi er sammerkt að það er mikilvægt að rannsakendur leggi verk sín og niðurstöður í dóm hins alþjóðlega vísindasamfélags. 3. Í háskólatengdum rannsóknum, sem einatt eru grunnrannsóknir, þarf að tryggja gæði og heilindi. Krafan er sanngjörn: Þeir sem kosta rannsóknirnar – almenningur eða einkaaðilar – eiga heimtingu á því að farið sé vel með fjármuni sem eru til ráðstöfunar og þeim sé varið til verkefna sem eru talin mikilvæg fyrir þróun fræðanna og fyrir þá hagnýtingu sem stefnt er að. Sú framhaldsmenntun sem boðin er þarf að uppfylla ströng gæðaviðmið og kröfur, þar á meðal að góðir og viðurkenndir starfshættir séu viðhafðir í framhaldsnámi sem felur í sér rannsóknaþjálfun og hjá þeim rannsóknaaðilum sem bjóða framhaldsmenntuðum störf að námi loknu hér á landi eða erlendis. Íslenskir háskólar eru einkum í erlendri samkeppni hvað þetta varðar. 4. Í fyrirliggjandi hugmyndum er lögð áhersla á sjálfsmat rannsóknaraðila til að tryggja að heilindi séu ástunduð í vísindastarfinu. Þetta er einmitt lykilatriði. Heilindi í rannsóknum verða aldrei tryggð nema með því að áhersla sé lögð á þessi atriði í starfsemi bæði mennta- og rannsóknarstofnana, svo og hjá einkaaðilum sem stunda rannsóknir. Gæðastarfið sem vikið var að hér að ofan er óhjákvæmilegur liður í þessu. Áherslu á siðfræðilegar hliðar rannsókna þarf að efla í allri menntun sem felur í sér rannsóknaþjálfun. 5. Ekki er gert ráð fyrir því að væntanleg nefnd eigi kröfu til þess að fá í hendurnar öll gögn sem kynnu að varða umfjöllun hennar um einstök mál. Þetta er umdeilanlegt og ekki er víst að það nægi að treysta alfarið á að rannsakandi sem er til skoðunar sjái hag sínum best borgið með því að leggja öll viðeigandi gögn fyrir nefndina. Þeir sem hafa gerst sekir um refsivert athæfi munu líklega ekki leggja fram öll gögn. Þó ætla mætti að rannsakendur átti sig almennt á því að hagsmunum þeirra er best borgið með þessum hætti þá er rétt að nefndin geti gert kröfu um gögn sem að hennar mati eru nauðsynleg til þess að leiða til lykta mál sem hún fjallar um. 6. Miklu skiptir að sú umgjörð sem þessari starfsemi verður valin tryggi sjálfstæði gagnvart stjórnvöldum, háskólum, rannsóknastofnunum og öðrum opinberum eða einkaaðilum, þmt fræðafélögum og hagsmunasamtökum í fræðasamfélaginu, stjórnmálaöflum eða öðrum hagsmunaaðilum. Sjálfstæðið þarf að ná til þess verklags sem fylgt verður, til skilgreiningar á viðmiðum sem unnið verður eftir innan þess lagaramma sem nær til vísindarannsókna á öllum fræðasviðum. Sjálfstæðið nær einnig til þess sem nefndin hefur úr að spila til þess að geta sinnt verkefnum sínum. Skipun í nefnd sem stofnuð yrði þarf að vera með þeim hætti að einstaklingar sem yrðu skipaðir geta ekki verið fulltrúar hagsmunaaðila. Það þarf að vera lögbundið að hvorki það stjórnvald sem þessi starfsemi verður látin heyra undir né tilnefningaraðilar, hafi neitt boðvald um efnislegar ákvarðanir sem teknar verða. Um stjórnsýsluleg málefni verði farið að stjórnsýslulögum. 7. Rétt er að halda því til haga að nefnd/rammi af því tagi sem hér er um rætt leysir ekki úr þeirri þörf sem er til þess að vernda þátttakendur í öðrum rannsóknum en vísindarannsóknum á heilbrigðissviði. Það eru mörg verkefni t.d. á svið félagsvísinda þar sem unnið er með viðkvæmar upplýsingar og um er að ræða virka þátttöku einstaklinga í rannsóknunum.

  • #4Hildigunnur H. H. Thorsteinsson

    Góðan dag, Umsögn Orkuveitu Reykjavíkur, Orku náttúrunnar, Veitna og Gagnaveitunnar er í viðhengi. Kær kveðja, Hildigunnur Thorsteinsson Framkvæmdastjóri Þróunar OR

  • #5Sigurður Óli Sigurðsson

    Umsögn gæðaráðs íslenskra háskóla

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-75/2019· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. mar. 2019 – 19. mar. 2019· 4 umsagnir

Frumvarp til laga um heiðarlega starfshætti í vísindum

Markmið með setningu laga á þessu sviði er að stuðla að því að rannsóknir fari fram í samræmi við viðurkennd siðferðisviðmið um heiðarleika í vísindum og auka þannig trúverðugleika vísindastarfs og rannsókna í samfélaginu.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-75/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 19. mars 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (8. maí 2019)

Í samráðsferlinu vegna frumvarps til laga um heiðarlega starfshætti í vísindum bárust allmargar umsagnir. Á áformastigi bárust 9 umsagnir og 4 til viðbótar á frumvarpsstigi. Umsagnir voru jákvæðar og innihéldu margar hverjar ábendingar sem tekið var tillit til eftir atvikum í frumvarpssmíðinni. Nánar er greint frá samráðinu og niðurstöðu þess í sérstöku niðurstöðuskjali sem fylgir með.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)
  • #2Samtök atvinnulífsins

    Í viðhengi fyrlgir sameiginleg umsögn Samtaka atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins.

  • #3Veðurstofa Íslands

    Umsögn Veðurstofu Íslands er að finna í viðhengi.

  • #4Eiríkur Brynjólfur Baldursson
    Eftirfarandi umsögn í fimm liðum er sendi inn fh Vísindasiðanefndar: 1. Í fyrirliggjandi frumvarpi er gert ráð fyrir því að stofnanir og háskólar, svo og einkaaðilar sem það kjósa, geti skotið málum til nefndar skv 5. gr. frumvarpsins. Mörg tilvik óheilinda og óreiðu í rannsóknum uppgötvast hins vegar fyrir tilstilli uppljóstrara (e. whistleblowers). Hvergi er vikið að því með hvaða hætti stjórnendur stofnana eða fyrirtækja fá upplýsingar um óheilindi eða óreiðu í rannsóknum á þeirra vegum. Þrátt fyrir 7. gr., lið 3 a er almennt ekki gert ráð fyrir því að nefnd skv. 5. gr. berist upplýsinga… Lesa alla

    Eftirfarandi umsögn í fimm liðum er sendi inn fh Vísindasiðanefndar: 1. Í fyrirliggjandi frumvarpi er gert ráð fyrir því að stofnanir og háskólar, svo og einkaaðilar sem það kjósa, geti skotið málum til nefndar skv 5. gr. frumvarpsins. Mörg tilvik óheilinda og óreiðu í rannsóknum uppgötvast hins vegar fyrir tilstilli uppljóstrara (e. whistleblowers). Hvergi er vikið að því með hvaða hætti stjórnendur stofnana eða fyrirtækja fá upplýsingar um óheilindi eða óreiðu í rannsóknum á þeirra vegum. Þrátt fyrir 7. gr., lið 3 a er almennt ekki gert ráð fyrir því að nefnd skv. 5. gr. berist upplýsingar beint frá uppjóstrurum sem vilja eða verða að njóta algers trúnaðar. Uppljóstrarar eru oftar en ekki nánir samstarfsmenn þeirra sem grunaðir eru um óheilindi og eru oft í óheppilegri valdaaðstöðu gagnvart þeim sem grunsemdirnar beinast gegn. Þar getur t.d. verið um að ræða samstarfsmann sem á starf undir þeim sem liggur undir grun eða nemanda í rannsóknarnámi sem verður var óreiðu eða óheilinda í verkum samstarfsmanna. Heimild nefndarinnar til þess að geta ákveðið að trúnaður skuli gilda í tilteknum málum, sem gert er ráð fyrir í 9. gr. frumvarpsins dugir ekki til þess að veita uppljóstrurum nægilega vernd. 2. Dæmi eru um að siðanefndir í heilbrigðisrannsóknum verði varar við þætti í rannsóknarverkefnum sem heppilegt væri að vísa til nefndar um heilindi í rannsóknum. Því er lagt til að meðal þeirra leiða sem erindi geta borist til nefndar skv. 5. grein frumvarpsins verði sá möguleiki að lögbundnar siðanefndir skv. lögum nr. 44/2024 geti vísað þangað erindum til umfjöllunar. 3. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir 10-15 millj kr framlagi til rekstrarins. Það er einsýnt að vinnan við skilgreiningu viðmiða með tíðum fundum nefndarinnar verður þyngsti þáttur starfsins í upphafi ásamt kynningarstarfsemi hjá háskólum, stofnunum og fyrirtækjum, auk annarra verkefna sem upp eru talin í 6. gr. Nefndin þarf starfskrafta og aðstöðu til starfseminnar. Upphafsframlagið til nefndarinnar er of naumt til þess að hægt verði að fylgja eftir áformum löggjafans með frumvarpinu. Fram komin hugmynd um sambýli við Vísindasiðanefnd er góðra gjalda verð en ekki verður unnt að samnýta starfslið nema að mjög takmörkuðu leyti. 4. Í nefndinni sem skipa á er gert ráð fyrir að fimm einstaklingar eigi sæti. Gerðar eru miklar kröfur til þeirra sem skipaðir verða í nefndina og ljóst má vera að færni sem gerð er krafa um er hvorki almenn né útbreidd. Til þess að nefndin ráði við hlutverk sitt eru tvær leiðir: Annars vegar að fjölga nefndarmönnum til þess að breikka reynsluheim og færni þeirra sem þangað veljast eða að halda fjöldanum óbreyttum en gera þess í stað ráð fyrir því að nefndin geti í ríkari mæli sótt sér sérfræðilega aðstoð innanlands sem utan. 5. Í greinargerð með frumvarpinu er gert ráð fyrir frumkvæði menntamálaráðherra um skipan nefndarinnar. Vert er að vekja athygli á því að vísindarannsóknir á heilbrigðissviði heyra undir valdsvið heilbrigðisráðherra skv. forsetaúrskurði. Heilbrigðisrannsóknir eru einn umfangsmesti flokkur rannsókna hér á landi og því væri rétt að heilbrigðisráðherra skipaði amk einn í nefndina eða að skilgreint væri að sérþekking á sviði heilbrigðisrannsókna sé nauðsynleg hjá amk einum nefndarmanna.

  • #5Hildigunnur H. H. Thorsteinsson

    Viðhengd er umsögn Orkuveitu Reykjavíkur

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 3. maí 2019
    1 beiðni um umsögn
  2. Umræða
    Umræða
    4 ræður · 7 mín

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

4 ræður · 7 mín
  • Umræða: 4 ræður · 2 ræðumenn · 7 mín

Umsagnir og erindi

7 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 12. apr. 2019, frestur 3. maí 2019.

Hver sendiTegundBarstSkjal
PersónuverndumsögnOpna PDF
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðumumsögnOpna PDF
Háskólaráð Háskóla ÍslandsumsögnOpna PDF
Félag háskólakennaraumsögnOpna PDF
Náttúrufræðistofnun ÍslandsumsögnOpna PDF
VísindasiðanefndumsögnOpna PDF
Valdimar ÖssurarsonumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið, líka beint úr klippiborðinu.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.