Beint í efni
Alviti
Þingmál149. þing · 752. mál

Lyf við taugahrörnunarsjúkdómi

Óundirbúinn fyrirspurnatímiStaða ekki skráð

Hvar er málið statt?

Staða ekki skráð

Staða máls er leidd af þingskjölum og atkvæðagreiðslum.

Allur ferillinn

Í stuttu máli

Að kveða á um rétt einstaklinga til þess að skilgreina sjálfir kyn sitt og miða þannig að því að tryggja að kynvitund þeirra njóti viðurkenningar. Að standa vörð um rétt einstaklinga til líkamlegrar friðhelgi.

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingi.

Lagt fram
—
Tegund
Óundirbúinn fyrirspurnatími
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
4 ræður · 7 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 26. jún. 2019

Markmiðið

Að kveða á um rétt einstaklinga til þess að skilgreina sjálfir kyn sitt og miða þannig að því að tryggja að kynvitund þeirra njóti viðurkenningar. Að standa vörð um rétt einstaklinga til líkamlegrar friðhelgi.

Hvað breytist

Lagt er til að skilið verði á milli lagalegrar kynleiðréttingar annars vegar, þ.e. breyttrar skráningar kyns í þjóðskrá, og þeirrar heilbrigðisþjónustu sem trans fólk þarf að hafa aðgang að hins vegar. Með samþykkt frumvarpsins falla úr gildi skilyrði gildandi laga fyrir lagalegri kynleiðréttingu sem lúta að sjúkdómsgreiningu og læknismeðferð. Gert er ráð fyrir að einstaklingum sem eru 15 ára og eldri verði heimilað að skilgreina kyn sitt á eigin forsendum og ráða skráningu þess. Einnig yrði börnum sem eru yngri en 15 ára veitt sú heimild með samþykki forsjáraðila eða ef sérfræðinefnd fellst á erindi barns að fá að breyta skráningu kyns. Lagt er til að óheimilt verði að gera varanlegar breytingar á kynfærum, kynkirtlum eða öðrum kyneinkennum einstaklings 16 ára eða eldri án skriflegs samþykkis hans. Jafnframt er gert ráð fyrir að starfrækt verði teymi Landspítala um kynvitund og breytingar á kyneinkennum sem og teymi barna- og unglingageðdeildar um kynvitund og ódæmigerð kyneinkenni.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög en við gildistöku laganna falla úr gildi lög um réttarstöðu einstaklinga með kynáttunarvanda, nr. 57/2012, og breytingar verða á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 10/2008, lögum um mannanöfn, nr. 45/1996, lögum um fullnustu refsinga, nr. 15/2016, og lögum um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991.

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki liggja fyrir upplýsingar um áhrif á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Löggjöf í öðrum löndum

Danmörk

Bekendtgørelse af lov om Det Centrale Personregister LBK nr 646 af 02/06/2017.

Bekendtgørelse af lov om assisteret reproduktion i forbindelse med behandling, diagnostik og forskning m.v. LBK nr 93 af 19/01/2015.

Bekendtgørelse af sundhedsloven LBK nr 1286 af 02/11/2018.

Írland

Gender Recognition Act 2015 Number 25 of 2015.

Malta

Gender Identity, Gender Expression and Sex Characteristics Act ACT XI of 2015.

Noregur

Lov om endring av juridisk kjønn LOV-2016-06-17-46.

Svíþjóð

Lag om fastställande av könstillhörighet i vissa fall (1972:119).

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn

Flutningsmenn eru ekki skráðir í gögnum Alþingis fyrir þetta mál.

Framsögumaður nefndar: Steinunn Þóra Árnadóttir

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 24. apr. 2019
Sendu inn umsögn eða erindi
21 aðili
Amnesty International, Barnaverndarstofa, Samtökin 78, Prestastefna Íslands, Ráðgjafahópur umboðsmanns barna (ungmennaráð) o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
7 mín · 4 ræður
2 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki liggja fyrir upplýsingar um áhrif á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

1 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-42/2019· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 8. feb. 2019 – 18. feb. 2019· 32 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um kynrænt sjálfræði

Í frumvarpinu er komið til móts við ný og breytt viðhorf til opinberrar skráningar kyns og stuðlað að réttarbótum trans og intersex einstaklinga. Lagt er til að kveðið verði á um rétt einstaklinga til þess að skilgreina sjálfir kyn sitt og miða þannig að því að tryggja að kynvitund þeirra njóti viðurkenningar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-42/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 18. febrúar 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 32 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (22. mars 2019)

Umsagnirnar voru almennt afar jákvæðar og fjölmargir aðilar fögnuðu framlagningu þess og töldu það tvímælalaust fela í sér miklar réttarbót fyrir trans og intersex fólk. Ýmsir aðilar gerðu þó athugasemdir við að í frumvarpinu væri ekki fjallað um breytingar á kyneinkennum barna sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni. Þeirra á meðal voru Samtökin ˈ78, félögin Trans Ísland og Intersex Ísland, umboðsmaður barna, UNICEF, Amnesty International og Barnaheill. Var á það bent að í þessu fælist ósamræmi þar sem eitt af markmiðum frumvarpsins væri að tryggja rétt einstaklinga til líkamlegrar friðhelgi en það ætti þó einungis við um einstaklinga 16 ára og eldri. Eins og fram kemur í frumvarpinu var það ætlunin að frumvarpið hefði að geyma grein sem fjallaði um breytingar á kyneinkennum barna sem fæðast með ódæmigerð kyneinkenni. Ekki náðist samkomulag innan hópsins sem samdi frumvarpsdrögin um framsetningu og efni þeirrar greinar og var jafnframt mat sérfræðinga að ýmis atriði í því sambandi þyrfti að gaumgæfa betur. Var því ákvörðun ráðuneytisins að leggja frumvarpið fram án greinar um þetta efni en kveða á um skipun starfshóps sem hefði meðal annars það verkefni að gera tillögu um slíka grein. Samtökin ˈ78 og félögin Trans Ísland og Intersex Ísland voru samstíga í umsögnum sínum og settu, auk athugasemda um ofangreint atriði, fram ábendingar varðandi takmörkun á heimild til að breyta skráningu kyns, sbr. 7. gr. frumvarpsins, um hæfisskilyrði lögfræðings sérfræðinefndar skv. 9. gr. og skipan starfshóps samkvæmt ákvæði til bráðabirgða. Einnig lögðust þessi félög gegn því að teymi Landspítala og BUGL, sbr. 12. og 13. gr., yrðu kennd við kynósamræmi og töldu að fremur ætti að nota orðið kynvitund, enda væri það hlutlaust, lýsandi, ólíklegt til að úreldast og feli ekki í sér tiltekna sjúkdómsgreiningu. Farið hefur verið að flestum tillögum félaganna.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (32)
  • #1Birna Björg Guðmundsdóttir

    Mikið er gott að þetta frumvarp sé að líta dagsins ljós og getur hjálpað okkur foreldrum Transbarns að breyta nafninu. Það er mjög erfitt að fara til læknis, apótek og aðra staði þar sem nafnið kemur fyrir og þurfa að heyra nafnið sem er ekki lengur í notkun. Það tekur líka á fyrir barnið þar sem því líður mjög illa að heyra hitt nafnið og að við foreldrarnir þurfum ítrekað að leiðrétta fólk.

  • #2Dagný Sjöfn Guðmundsdóttir

    Ég styð þétta frumvarp

  • #3Björn Bergmann Þorvaldsson

    Ég velti því fyrir mér hvaða tilgangi kynskráning hafi ef hver og einn ræður því sjálfur hvað er skráð í opinber gögn. Ég legg því til að skráningin verði felld niður.

  • #4Sandra Tryggvadóttir
    Þetta er frábær tillaga og mikil réttindabót fyrir einstaklinga hverrar kynvitund er í ósamræmi við líffræðilegt kyn. Það hlýtur þó í einhverum tilfellum að skipta máli hvert líffræðilegt kyn einstaklinga er, þ.e. í heilbrigðistengdum aðstæðum, enda koma einkenni sjúkdóma oft ólíkt fram í konum en körlum og sumir sjúkdómar eru algengari í öðru kyninu en hinu. Ég legg því til að allir séu skráðir áfram út frá líffræðilegu kyni og verði þá intersex bætt við listann svo kynin verði þrjú. Ég legg líka til að AUK líffræðilegs kyns verði skráð á skírteini og skilríki kynvitund og geti einstaklingar… Lesa alla

    Þetta er frábær tillaga og mikil réttindabót fyrir einstaklinga hverrar kynvitund er í ósamræmi við líffræðilegt kyn. Það hlýtur þó í einhverum tilfellum að skipta máli hvert líffræðilegt kyn einstaklinga er, þ.e. í heilbrigðistengdum aðstæðum, enda koma einkenni sjúkdóma oft ólíkt fram í konum en körlum og sumir sjúkdómar eru algengari í öðru kyninu en hinu. Ég legg því til að allir séu skráðir áfram út frá líffræðilegu kyni og verði þá intersex bætt við listann svo kynin verði þrjú. Ég legg líka til að AUK líffræðilegs kyns verði skráð á skírteini og skilríki kynvitund og geti einstaklingar breytt kynvitundinni einu sinni og fái þá öll þau réttindi og megi bera nafn sem samræmist kynvitund sinni. Farið væri þá eftir kynvitund alla jafna en í heilbrigðiskerfinu væri einnig tekið tillit til líffræðilegs kyns viðkomandi þegar við á.

  • #5Jón Gísli Björgvinsson

    Þetta er góð byrjun, og löngu kominn tími til! Gerum þetta, og svo meira.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 24. apríl 2019
    1 beiðni um umsögn
  2. Umræða
    Umræða
    4 ræður · 7 mín

Þingskjöl

0 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Engin þingskjöl hafa borist.

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

4 ræður · 7 mín
  • Umræða: 4 ræður · 2 ræðumenn · 7 mín

Umsagnir og erindi

24 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 3. apr. 2019, frestur 24. apr. 2019.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Amnesty InternationalundirskriftalistiOpna PDF
Amnesty InternationalundirskriftalistiOpna PDF
BarnaverndarstofaumsögnOpna PDF
Samtökin 78tillagaOpna PDF
Prestastefna ÍslandsumsögnOpna PDF
Ráðgjafahópur umboðsmanns barna (ungmennaráð)umsögnOpna PDF
JafnréttisstofaumsögnOpna PDF
Alda Vigdís SkarphéðinsdóttirumsögnOpna PDF
Intersex á ÍslandiumsögnOpna PDF
Samtökin 78umsögnOpna PDF
BarnaheillumsögnOpna PDF
Fangelsismálastofnun ríkisinsumsögnOpna PDF
Siðfræðistofnun Háskóla ÍslandsumsögnOpna PDF
Amnesty InternationalumsögnOpna PDF
Transteymi LSHumsögnOpna PDF
LandlæknisembættiðumsögnOpna PDF
Umboðsmaður barnaumsögnOpna PDF
Trans ÍslandumsögnOpna PDF
LandspítalinnumsögnOpna PDF
Mannréttindaskrifstofa ÍslandsumsögnOpna PDF
Mannréttinda- og lýðræðisskrifstofa ReykjavíkurborgarumsögnOpna PDF
Sjúkratryggingar ÍslandsumsögnOpna PDF
Þjóðskrá ÍslandsumsögnOpna PDF
Kvenréttindafélag ÍslandsumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið, líka beint úr klippiborðinu.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.