Breyting á ýmsum lagaákvæðum sem tengjast fiskeldi
Áhættumat erfðablöndunar, úthlutun eldissvæða, stjórnvaldssektir o.fl.
Hvar er málið statt?
Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.
- Lagt fram
- 1. umræða
- Í nefnd
- 2. umræða
- 3. umræða
- Dagaði uppi
Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 148. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“
Í stuttu máli
Að styrkja lagaumgjörð fiskeldis þannig að íslensku fiskeldi séu sköpuð bestu mögulegu skilyrði til uppbyggingar og það verði þannig sterk og öflug atvinnugrein jafnframt því að stuðla að ábyrgu fiskeldi, þar sem sjálfbær þróun og vernd lífríkis er höfð að leiðarljósi á grundvelli vísinda og rannsókna.
Lagt fram af Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.
- Lagt fram
- 6. apríl 2018
- Tegund
- Stjórnarmál
- Atkvæðagreiðslur með skrá
- 0
- Umræða í þingsal
- 13 ræður · 36 mín
Málið á mannamáli
Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.
Markmiðið
Að styrkja lagaumgjörð fiskeldis þannig að íslensku fiskeldi séu sköpuð bestu mögulegu skilyrði til uppbyggingar og það verði þannig sterk og öflug atvinnugrein jafnframt því að stuðla að ábyrgu fiskeldi, þar sem sjálfbær þróun og vernd lífríkis er höfð að leiðarljósi á grundvelli vísinda og rannsókna.
Hvað breytist
Lagt er til að áhættumat erfðablöndunar og regluleg endurskoðun þess, sem Hafrannsóknastofnun gefur út, verði lögfest og lagt til grundvallar leyfilegu magni af frjóum eldislaxi í sjókvíum á hverjum tíma. Gert er ráð fyrir að hafsvæðum verði skipt í eldissvæði og að þeim verði úthlutað með auglýsingu. Jafnframt er lagt til að tekið verði upp innra eftirlit fiskeldisstöðva og það skuli m.a. fela í sér vöktun á laxalús. Lagt er til að heimilað verði að leggja stjórnvaldssektir á rekstrarleyfishafa ef þeir brjóta gegn ákvæði um innra eftirlit, sannprófun þess og framkvæmd úrbóta. Enn fremur er gert ráð fyrir að upplýsingagjöf fiskeldisfyrirtækja til stjórnvalda verði umfangsmeiri og tíðari. Lagt er til að Matvælastofnun skuli auglýsa tillögu að rekstrarleyfi til fiskeldisfyrirtækja og að stofnunin fái heimild til að leggja stjórnvaldssektir á fiskeldisfyrirtæki sem brjóta gegn tilteknum ákvæðum laga um fiskeldi.
Lög sem breytast
Lög um fiskeldi, nr. 71/2008. Lög um varnir gegn fisksjúkdómum, nr. 60/2006. Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
Kostnaður fyrir ríkið
Gert er ráð fyrir að ýmis verkefni verði fjármögnuð af Umhverfissjóði sjókvíaeldis og er áætlað að sjóðurinn þurfi 200 m.kr. á ári til ráðstöfunar í þessi verkefni og önnur sem honum eru ætluð samkvæmt lögum, frá og með árinu 2020. Í fjárlögum 2018 er framlag ríkissjóðs 110 milljónir kr. og er því aukningin 90 milljónir kr. á ári. Áætlaður kostnaður vegna áhrifa frumvarpsins á störf atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis og stofnana þess er 83 milljónir kr. árið 2019, þar af eru 23 milljónir kr. tímabundinn stofnkostnaður. Árlegur kostnaður verði þannig 60 milljónir kr. frá og með árinu 2020. Árleg útgjaldaaukning er því talin verða 150 milljónir kr. frá og með árinu 2020. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið mun fjármagna útgjöld ársins 2019 innan útgjaldaramma málefnasviðsins sjávarútvegur og fiskeldi í fjármálaáætlun 2019–2023 en frá og með árinu 2020 verða útgjöldin fjármögnuð með sérstakri gjaldtöku.
Meira úr samantektinni
Skýrsla starfshóps sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um stefnumótun í fiskeldi. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, ágúst 2017.
Afstaða þingflokkanna
Kristján Þór JúlíussonSjálfstæðisflokkursjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
Framsögumaður nefndar: Lilja Rafney Magnúsdóttir
Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.
„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.
Af hverju skiptir þetta máli?
Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.
- Nefndin sem fjallar um málið
- Atvinnuveganefnd
- sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 30. apr. 2018
- Sendu inn umsögn eða erindi
- 38 aðilar
- Umhverfisstofnun, Ísafjarðarbær, Óttar Yngvason, The Icelandic Wildlife Fund, NASF, Verndarsjóður villtra laxastofna o.fl. · allar umsagnir
- Umræða í þingsal
- 36 mín · 13 ræður
- 4 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
- Kostnaður fyrir ríkissjóð
- Gert er ráð fyrir að ýmis verkefni verði fjármögnuð af Umhverfissjóði sjókvíaeldis og er áætlað að sjóðurinn þurfi 200 m.kr. á ári til ráðstöfunar í þessi verkefni og önnur sem honum eru ætluð samkvæmt lögum, frá og með árinu 2020. Í fjárlögum 2018 er framlag ríkissjóðs 110 milljónir kr. og er því aukningin 90 milljónir kr. á ári. Áætlaður kostnaður vegna áhrifa frumvarpsins á störf atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis og stofnana þess er 83 milljónir kr. árið 2019, þar af eru 23 milljónir kr. tímabundinn stofnkostnaður. Árlegur kostnaður verði þannig 60 milljónir kr. frá og með árinu 2020. Árleg útgjaldaaukning er því talin verða 150 milljónir kr. frá og með árinu 2020. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið mun fjármagna útgjöld ársins 2019 innan útgjaldaramma málefnasviðsins sjávarútvegur og fiskeldi í fjármálaáætlun 2019–2023 en frá og með árinu 2020 verða útgjöldin fjármögnuð með sérstakri gjaldtöku.
- úr samantekt Alþingis
Orð og atkvæði
Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.
Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.
Kristján Þór JúlíussonSjálfstæðisflokkur1 ræða · 6 andsvör · 27 mín
Sigurður Páll JónssonMiðflokkurinn2 andsvör · 4 mín
Líneik Anna SævarsdóttirFramsóknarflokkur2 andsvör · 3 mín
Halla Signý KristjánsdóttirFramsóknarflokkur2 andsvör · 2 mín
Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.
Allt um málið
Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.
Ferill málsins
Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.
- Þingskjal
- Umræða1. umræða13 ræður · 36 mín
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- UmsagnirUmsagnabeiðnir sendar, frestur til 30. apríl 20181 beiðni um umsögn
Þingskjöl
Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.
Allar atkvæðagreiðslur
Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.
- yfirlýsing forseta/mál gengur10. apríl 2018 kl. 20:08Frumvarp gengur til 2. umræðuEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- yfirlýsing forseta/mál gengur→ atvinnuveganefnd10. apríl 2018 kl. 20:08Frumvarp gengur til nefndarEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
Hverjir tóku til máls
- 1. umræða: 13 ræður · 4 ræðumenn · 36 mín
| Þingmaður | Flokkur | Ræður | Ræðutími |
|---|---|---|---|
| Miðflokkurinn | 2 | 4 mín | |
| Framsóknarflokkur | 2 | 3 mín | |
| Framsóknarflokkur | 2 | 2 mín | |
| Sjálfstæðisflokkur | 7 | 27 mín |
Umsagnir og erindi
Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.
Atvinnuveganefnd sendi 1 umsagnabeiðni 18. apr. 2018, frestur 30. apr. 2018.
| Hver sendi | Tegund | Barst | Skjal |
|---|---|---|---|
| Umhverfisstofnun | upplýsingar | Opna PDF | |
| Ísafjarðarbær | umsögn | Opna PDF | |
| Óttar Yngvason | upplýsingar | Opna PDF | |
| The Icelandic Wildlife Fund | upplýsingar | Opna PDF | |
| NASF, Verndarsjóður villtra laxastofna | upplýsingar | Opna PDF | |
| Umhverfisstofnun | umsögn | Opna PDF | |
| Veiðifélag Norðurár | ályktun | Opna PDF | |
| Fjórðungssamband Vestfirðinga | umsögn | Opna PDF | |
| Stangaveiðifélag Reykjavíkur | umsögn | Opna PDF | |
| Skipulagsstofnun | umsögn | Opna PDF | |
| Náttúruverndarsamtök Íslands og 14 veiðirétthafar | umsögn | Opna PDF | |
| Matvælastofnun | umsögn | Opna PDF | |
| Fjarðabyggð | umsögn | Opna PDF | |
| Náttúrufræðistofnun Íslands | umsögn | Opna PDF | |
| Fiskistofa | umsögn | Opna PDF | |
| Borgarbyggð | bókun | Opna PDF | |
| Dýralæknafélag Íslands | umsögn | Opna PDF | |
| Vakandi - Rakel Garðarsdóttir | umsögn | Opna PDF | |
| NASF, Verndarsjóður villtra laxastofna | umsögn | Opna PDF | |
| Erfðanefnd landbúnaðarins | umsögn | Opna PDF | |
| Háafell ehf. | umsögn | Opna PDF | |
| ÍS 47 ehf. | umsögn | Opna PDF | |
| AkvaFuture ehf. | umsögn | Opna PDF | |
| Hábrún ehf. | umsögn | Opna PDF | |
| Samtök sjávarútvegssveitarfélaga | umsögn | Opna PDF | |
| Fiskeldi Austfjarða ehf. | umsögn | Opna PDF | |
| Veiðifélag Víðidalsár | athugasemd | Opna PDF | |
| Veiðifélag Vatnsdalsár | athugasemd | Opna PDF | |
| Hafrannsóknastofnun - rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna | umsögn | Opna PDF | |
| The Icelandic Wildlife Fund | umsögn | Opna PDF | |
| Samtök atvinnulífsins og Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi | umsögn | Opna PDF | |
| Laxar fiskeldi ehf. | umsögn | Opna PDF | |
| Samband íslenskra sveitarfélaga | umsögn | Opna PDF | |
| Landssamband veiðifélaga | umsögn | Opna PDF | |
| Landssamband fiskeldisstöðva | umsögn | Opna PDF | |
| Veiðifélag Miðfirðinga | umsögn | Opna PDF | |
| Veiðifélag Selár | athugasemd | Opna PDF | |
| Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið | upplýsingar | Opna PDF | |
| Veiðifélag Hofsár og Sunnudalsár | umsögn | Opna PDF | |
| Veiðifélag Breiðdæla | athugasemd | Opna PDF | |
| Matorka | umsögn | Opna PDF |
Tengd mál
Engin tengd mál skráð.
Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)