Beint í efni
Alviti
Þingmál145. þing · 859. mál

Kosningar til Alþingis

Undirbúningur og framkvæmd kosninga o.fl.

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 5. sep. 2016

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 145. þingi. (Beið 1. umræðu.)“

Í stuttu máli

Að framkvæmd kosninga verði samræmdari og skilvirkari, hlutverk stofnana sem annast hana skýrt og dregið úr réttaróvissu.

Flutt af Einar K. Guðfinnsson (S) ásamt 6 öðrum þingmönnum.

Lagt fram
5. september 2016
Tegund
Lagafrumvarp
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
engin enn

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 17. okt. 2016

Markmiðið

Að framkvæmd kosninga verði samræmdari og skilvirkari, hlutverk stofnana sem annast hana skýrt og dregið úr réttaróvissu.

Hvað breytist

Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á stjórnsýslu og framkvæmd kosninga, meðal annars þannig að landskjörstjórn verði sjálfstæð stjórnsýslustofnun og að Þjóðskrá taki við því hlutverki sveitarstjórna að semja kjörskrár og gera leiðréttingar á þeim.

Lagt er til að tímafrestir séu reiknaðir í sólarhringum í stað vikna áður. Einnig eru lagðar til breytingar á ákvæðum um kjörskrárgerð, skráningu stjórnmálasamtaka og listabókstafi.

Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að yfirkjörstjórn taki við framboðslistum og athugi hvort öll skilyrði séu uppfyllt. Ekki er gert ráð fyrir að yfirkjörstjórnir kveði upp úrskurð um gildi fram­boðslista líkt og nú er.

Lagt er til að upphaf atkvæðagreiðslu utan kjörfundar færist nær kjör­degi, úr 56 dögum eða átta vikum í 29 daga eða fjórar vikur.

Komið verður á fót sjálfstæðri úrskurðarnefnd kosningamála.

Tekin verður upp í kosningalög sérstök heimild fyrir innlenda og erlenda kosningaeftirlitsmenn til þess að fylgjast með framkvæmd kosninga.

Lög sem breytast

Meira úr samantektinni

Endurskoðun kosningalaga - skýrsla vinnuhóps. Alþingi, 19.8.2016.

Iceland Early Parliamentary Elections 25 April 2009. Skýrsla sendinefndar ÖSE sem var á Íslandi 3.-5. mars 2009 um alþingiskosningarnar 25. apríl 2009. Skýrslan var gefin út 18. mars 2009.

Iceland Parliamentary Elections 27 April 2013. Skýrsla sendinefndar ÖSE sem var á Íslandi 15.-30. apríl 2013 um alþingiskosningarnar 27. apríl 2013. Skýrslan var gefin út 24. júní 2013.

Löggjöf á Norðurlöndum

Noregur

Lov om valg til Stortinget, fylkesting og kommunestyrer (valgloven). LOV-2002-06-28-57.

Danmörk

Bekendtgørelse af lov om valg til Folketinget. LBK nr 416 af 12/05/2016.

Svíþjóð

Kungörelse (1974:152) om beslutad ny regeringsform.

Riksdagsordning (2014:801).

Valförordning (2005:874).

Finnland

Finlands grundlag 11.6.1999/731.

Vallag 2.10.1998/714.

Afstaða þingflokkanna

Flutningsmenn
Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal

Þingskjöl

1 skjal

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1626Frumvarp nefndar5. sep. 2016Einar K. Guðfinnsson, Kristján L. Möller +5LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

0 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

Engar atkvæðagreiðslur hafa farið fram um málið.

Hverjir tóku til máls

Engar ræður hafa verið fluttar um málið.

Umsagnir og erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Engar umsagnir hafa borist.

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið, líka beint úr klippiborðinu.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.